Morgunblaðið - 22.04.2004, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 22.04.2004, Qupperneq 61
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 61 SKRIFSTOFAN (The Office) sópaði enn og aftur að sér verðlaunum um helgina, nú á BAFTA-sjónvarpshátíð- inni. Þátturinn var valinn besti gam- anþátturinn þriðja árið í röð, auk þess sem Ricky Gerv- ais var valinn besti leikarinn þriðja ár- ið í röð. Julie Walt- ers lék sama leik og Gervais og vann þriðja árið í röð, nú fyrir leik sinn í sjónvarpsmyndinni The Wife of Bath. Aðrir sigurvegarar á hátíðinni voru þáttastjórnandinn, grínistinn og útvarpsmaðurinn Jonathan Ross, sápuóperan Coronation Street og leikarinn Bill Nighy sem vann fyrir leik sinn í stjórnmáladramanu State of Play. Hann vann einnig kvik- mynda-BAFTA fyrr á árinu fyrir hlutverk sitt í gamanmyndinni Love Actually. REBECCA LOOS hefur grætt um 800.000 pund, alls um 105 milljónir ís- lenskra króna, á því að fullyrða að hún hafi átt í ástarsambandi við Dav- id Beckham. Þetta fullyrðir Max Clifford, sem er umboðsmaður henn- ar. Í viðtali við blaðið Evening Stand- ard greinir Clifford frá því að Loos hafi fengið 150.000 pund fyrir viðtal sem birtist við hana á Sky-sjónvarps- stöðinni síðastliðinn fimmtudag. Hann sagði að hún hefði fengið 350.000 pund fyrir viðtal í News of the World, vinsælasta æsifréttablaði Breta, en þar upp- lýsti Loos um sam- band sitt við Beck- ham. Sjálfur segist hann hafa fengið um 160.000 pund í tekjur fyrir að sjá um mál Loos. Beckham hafnar fullyrðingum Loos og segir þær fáránlegar, en Loos var aðstoðarkona hans þegar hann hóf að leika með spænska liðinu Real Madr- id. Loos segist hafa sofið hjá Beck- ham þegar hann var nýfluttur til Madridar og Victoria kona hans var enn í Bretlandi. Sögur af framhjá- haldi Beckhams tóku svo nýjan kipp, þegar fyrirsætan Sarah Marbeck, sem er af malasískum uppruna, sagð- ist hafa átt í tveggja ára ástarsam- bandi við Beckham, sem hefði hafist í FÓLK Ífréttum ferð Manchester United til Singa- púr í júlí 2001. Í fyrradag steig svo þriðja konan, að nafni Celina Laurie, fram í sviðsljósið og sagði í viðtali við blaðið People að hún hefði átt kyn- mök við Beckham í ágúst 2002, í Árósum í Danmörku, eftir leik Man- chester United þar. Loos mun koma fram í spjallþætti á sjónvarpsstöðinni Channel Four í Bretlandi í dag, en Mar- beck er sögð eiga í viðræðum um viðtöl við aðra breska fjöl- miðla. Clifford, um- boðsmaður hennar, sagði að Loos hefði leitað til sín og lýst yfir áhyggjum af því að ferli hennar sem aðstoðarkonu einstaklinga væri lokið, upplýsti hún um samband sitt við Beckham. „Ég útskýrði fyrir henni að hún gæti feng- ið svo mikla peninga fyrir að skýra frá þessu að hún þyrfti aldrei að vinna framar,“ sagði Clifford … How to Be Alone, safn greina eftir Jon- athan Franzen. Picador gefur út 2003. 288 bls. innb. Fæst í Máli og menningu. AF ungtyrkjunum sem nú hrista upp í bókmenntalífi vestan hafs er Jonathan Franzen einna alvarleg- astur, eilítið þunglamalegur en traustur, kannski sá höfundur sem á eftir að endast lengst af McSween- ey’s-klíkunni, hann og Michael Chabon. Franzen sló í gegn með bókinni The Corrections; ekki var bara að hún fengið National Book-verðlaun- in eftirsóttu heldur lenti bókin á bókalista Oprah Winfrey sem tryggði góða sölu og mikið umtal. Franzen hefur miklar áhyggjur af andláti bókarinnar og fjallar talsvert um bóklestur í nokkrum grein- anna, þar á meðal þeirri sem gefur safninu nafn sitt; í greininni Lesandinn í útlegð, sem er bókadómur, byrjar hann að segja frá því að hann hafi gefið sjónvarp sitt til að hafa frið til að lesa og eftir skemmtilegar vangaveltur um bæk- urnar sem hann er að dæma, lestur og lífið klykkir hann út með setning- unni: „Það fyrsta sem lestur kennir okkur er hvernig á að vera einn.“ Sumar greinanna eru skrifaðar sem tækifærisvangaveltur en obbinn þó sem hluti af starfi hans er hann gafst upp á að vera rithöfundur og fór að vinna sem blaðamaður fyrir tímarit. Þannig skrifar hann einkar fróðlega grein um hnignun póstþjón- ustu í Bandaríkjunum með skelfing- arástandið í Chicago sem þunga- miðju, um tóbaksfyrirtækin og banvænan blekkingaleik þeirra, há- tæknifangelsi þar sem öllum mann- réttindum er ýtt til hliðar og svo má telja. Ein helsta greinin er þar sem hann skrifar um föður sinn og heila- bilun hans og lítt síðri greinin um það er Oprah valdi bók hans sem bók vikunnar og nauðugur viljugur varð hann að taka þátt í gerð heimildar- þáttar um sjálfan sig. Sú frásögn er skemmtileg en verður óforvarandis grátbrosleg þegar hann minnist síð- ustu daga móður sinnar. Í safninu er frægasta grein hans, Harper’s-greinin eins og hún var jafnan kölluð eftir tímaritinu kunna. Greinin birtist 1986, fjallaði um örlög skáldsögunnar vestan hafs og var gríðarlega umdeild, enda þótti mönnum Franzen fullsvartsýnn á framtíð skáldsagna. Tíminn hefur reyndar leitt í ljós að Franzen var ekki að fjalla um skáldsöguna sem slíka heldur það að landar hans eru að glata getunni til að vera einir, ein- ir með bók, glata getunni til að sökkva sér í heim sem annar hefur búið til og gefur færi á að auka skiln- ing og þekkingu á kimum manns- hjartans en ekki bara afþreyingu. Árni Matthíasson Erlendar bækur Hvernig á að vera einn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.