Pressan - 05.04.1990, Page 2
2
* M «.« ( > .• i i.m i.i < ”
AÐ SJÁ OG SJÁST
Þegar Alain Mikli sýndi fyrst opinberlega gleraugnaumgjarðir sem hann hafði hannað
brá flestum í brún. Þar gaf nefnilega hvorki að líta mjóu skásettu línuna sem hafði verið
í tísku fimmtán árum fyrr né einföldu iínuna sem síðar fylgdi. Ennþá síður hafði Alain Mikli
fylgt tískunni sem ríkti á þessum tíma, 1978, og fólst í breiðum umgjörðum sem þá fóru
sigurför um allan heim.
Básinn sem Alain Mikli sýndi umgjörðir sínar í var lítill og hlaðinn sérkennilegum um-
gjörðum í öllum regnbogans litum. Gleraugnasalar voru lítt hrifnir og sagan segir reyndar
að þeir hafi hörfað frá básnum, enda höfðu þeir enga trú á að nokkur þyrði að ganga um
með gleraugnaumgjarðir af þessari gerð.
Reynslan sýndi annað. Frá þessum tíma hefur Alain Mikli komið á óvart, aftur og aftur.
Hann var aðeins 23 ára þegar hann lagði heiminn að fótum sér og tískukóngar á borð við
Chantal Thomas, Anne Marie Beretta og Claude Montana gerðu við hann samninga um
hönnun á umgjörðum sem þau selja nú undir eigin nafni.
Hér á landi var Alain Mikli staddur í vikunni að kynna það nýjasta sem hann hefur hann-
að. Einkunnarorð hans: „Með gleraugum frá Mikli sérð þú — og aðrir sjá þig“ standa ennþá
svo sannarlega fyrir sínu!
Fimmtudagur 5. apríl 1990
Alain Mikli og kona hans, Axelle.
Bergsteinn Stefánsson, eigandi Linsunnar í Reykjavík,
hefur selt umgjarðir frá Mikli í fjögur ár. Hér sjást þeir fé-
lanarnlr Rárnctolnn nr. Alojn MÍklÍ, aUÖVÍtað báðír méð
nda.
Axelle með nýjustu línuna
í kvengleraugum...
... og hinn brosmildi Mikl
með nýju herralínuna.
Steinunn Ólafsdóttir leikkona og Einar Kristjánsson
íþróttakennari, málari og markmaður með meiru slógu
í gegn sem „Granz-hjónin“. Frúin var sérlega lagin við að
segja kjaftasögur af Pálma en karlinn var meira fyrir
sopann!
velkomin i heiminn
1. Foreldrar: Dagný Arnþórs-
dóttir og Sveinn Stefánsson.
Stúlka fædd 27. mars, 55 senti-
metrar og 4316 grömm.
5. Foreldrar: Agústa Jóhanns-
dóttir og Ellert B. Schram.
Stúlka fædd 23. mars, 50 senti-
metrar og 3000 grömm.
9. Foreldrar: Ásgerður Pálma-
dóttir og Gunnar Kristinsson.
Drengur fæddur 26. mars, 54
sentimetrar og 3880 grömm.
13. Foreldrar: Vilborg Eiríks-
dóttir og Einar Guðbjartsson.
Stúlka fædd 29. mars, 50 senti-
metrar og 13 merkur.
2. Foreldrar: María Lóa Frið-
jónsdóttir og Sveinbjörn Ó.
Ragnarsson.
Drengur fæddur 28. mars, 50
sentimetrar og 3145 grömm.
6. Foreldrar: Kirsten Niels-
en-Toft og Heimir Þór Gíslason.
Drengur fæddur 25. mars, 51
sentimetri og 3200 grömm.
10. Foreldrar: Helena Sigur-
bergsdóttir og Þorgeir Egils-
son.
Drengur fæddur 29. mars, 52
sentimetrar og 3420 grömm.
14. Foreldrar: Ester Höskulds-
dóttir og Sigurður Gunnarsson.
Drengur fæddur 28. mars, 55'
sentimetrar og 4040 grömm.
3. Foreldrar: Hallfríður Karls-
dóttir og Hafsteinn Valsson.
Drengur fæddur 25. mars, 53
sentimetrar og 4274 grörhm.
7. Foreldrar: Sigurvina Falsdótt-
ir og Ástþór Harðarson.
Drengur fæddur 24. mars, 54
sentimetrar og 4400 grömm.
11. Foreldrar: Herdís Þórunn
Jakobsdóttir og Jón Kristófer
Sigmarsson.
Stúlka fædd 24. mars, 50 senti-
metrar og 3200 grömm.
4. Foreldrar: Gudrun Marie
Hanneck-Kloes og Arinbjörn
Jóhannsson.
Drengur fæddur 27. mars, 53,5
sentimetrar og 14 merkur.
8. Foreldrar: Ása Bjarney Árna-
dóttir og Gylfi Kjartansson.
Stúlka fædd 27. mars, 52 senti-
metrar og 3940 grömm.
12. Foreldrar: Bjarnheiður
Magnúsdóttir og Claudius
Branolte.
Drengur fæddur 25. mars, 50
sentimetrar og 12 merkur.
AFMÆLIS B ÖRN
Vikan 9. til 15. apríl
Barn fætt árið 1990: Seinþroska, en stendur sig
síðan vel. Hefur lag á dýrum, gaman af íþróttum og
óbeit á skólanum! Sérkennilegur’starfsferill í vændum.
Eldri afmælisbörn: Þérfinns* þú ílausu lofti og sem-
ur illa við þína nánustu. A endanum fer þó allt vel.