Pressan - 05.04.1990, Qupperneq 3
Fimmtudagur 5. apríl 1990
3
PRESSU
MOJLAR
m
■ ikissljornin hefur falið land-
búnaðarráðherra og félagsmála-
ráðherra að athuga hvort á ein-
hvern hátt er hægt að aðstoða fjöl-
skyldur loðdýrabænda, sem
komnir eru í algjöra fjárþröng. Kkki
er Steingrími J. og Jóhönnu þó
með þessu ætlað að finna krafta-
verkalausn á hinum mikla vanda
loðdýraræktenda, heldur mun sam-
ráð þeirra að lúta að hinum mann-
lega þætti þessa máls, þar sem ein-
hverjir bændur eiga orðið erfitt með
að kaupa hrýnustu nauðþurftir . . .
Þ
að vill bera við að kvartanir
berist jafnréttisráði í ákveðnum
„bylgjum". Að undanförnu mun t.d.
hafa borið sérstaklega á símhring-
ingum vegna ójafnrar réttarstöðu
fólks eftir andlát maka. í lögum og
reglum lífeyrissjóða er algengt að
ekkjur fái lífeyri út ævina, en
greiðslur til ekkla vara stundum
ekki nema í 18 mánuði. . .
|i
^^Fndanfarin ár hefur Esther
Guðmundsdóttir þjóðfélagsfræö-
ingur verið í stöðu markaðsstjóra
Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis. Nú mun Esther hins vegar
hafa sagt upp störfum hjá SPRON og
ætla að snúa sér að öðrum verkefn-
um . . .
A
^^^ft heyrast sögur af lélegri
þjónustu ýmissa opinberra stofn-
ana. Við fréttum t.d. af konu, sem
nýlega fór með bilað símtæki í við-
gerð til Pósts og síma. Þótti henni
skiljanlega bagalegt aö vera síma-
laus og spurði manninn, sem tók við
tækinu í viögerðardeildinni viö
Sölvhólsgötu, hvort möguleiki
væri á því að fá það til baka sam-
dægurs. Viögeröarmaðurinn var
hinn fúlasti og sagðist ekkert vita
um þaö og spurði þá konan hvort
hún mætti koma á milli kl. 17 og 18
þennan sama dag og athuga hvort
síminn væri tilbúinn. ,,Þú getur
reynt það!" svaraöi maðurinn glott-
andi og konan, sem sá ekkert fyndiö
við þetta, mætti aftur á staðinn þeg-
ar klukkan var^korter gengin í sex
um kvöldið. Þá kom hún hins vegar
að lokuðum dyrum og fékk þær
upplýsingar hjá starfsmanni í ann-
arri deild að viðgeröarmennirnir
hættu ávallt störfum klukkan
fimm . . .
B^íú hefur verið framleiddur
tæknibúnaður fyrir símstöðvar, sem
gerir notendum kleift að sjá á skjá
á símtæki sínu úr hvaða númeri
er verið að hringja í þá. Þessi
möguleiki hefur vakið sérstaka
hrifningu hjá konum, sem álíta
þetta mikið öryggisatriði fyrir kven-
fólk sem verður fyrir svoköiluðum
„dónasímtölum". Þær geti þá séð
hvaðan ,,dóninn" hringir og látið
lögreglu vita. Því miður er þessi
tækjabúnaður óheyrilega dýr og
samkvæmt upplýsingum frá Pósti
og síma hér á Fróni stendur ekki til
aö fjárfesta í slíku tækniundri á
næstunni. Hins vegar verður í haust
byrjað að veita notendum upplýs-
ingar um langlínu- og utanlands-
samtöl, ef þess er óskað. Fólk getur
þá beðið um aö fá sundurliöaöan
reikning með lista af þeim númer-
um, sem hringt hefur verið í, og hve
mikiö það kostaöi. Hér hefur veriö
beðið eftir þessari þjónustu Pósts og
sima með nokkurri óþreyju, en
sums staðar erlendis hefur hún hins
vegar vakið óánægju aðstandenda
kvennaathvarfa og sifjaspella-
hópa. Telja þessir aðilar að það geti
hugsanlega dregið úr símhringing-
um i neyöarnúmer slíkra samtaka.
ef þolendur ofbeldis í heimahúsum
vita að hægt er að sjá á símreikn-
ingnum hvert hefur verið hringt . . .
11
þessar mundir er til um-
fjöllunar í menntamálanefnd
nedri deildar Alþingis frumvarp
um launasjóð stórmeistara í
skák. Nefndarmenn eru greinilega
afar jafnréttissinnaðir, því ákveðið
var að senda frumvarpiö til umsagn-
ar til jafnréttisráðs þar sem Ijóst
þótti að það yröu eingöngu karlar
sem nytu góðs af umræddum sjóði
—. a.m.k. þar til konur færu að
standa sig betur í skáklistinni. Ráðið
tók máliö fyrir á fundi og hefur nú
sent menntamálanefnd breytingar-
tillögu. Felur hún í sér aö i hvert sinn
sem úthlutað veröi úr sjóðnum
verði ávallt einn af fjórum styrkþeg-
um kona, sem hafi náö einhverjum
sérstökum áfanga í skák þó ekki sé
um stórmeistaratitil að ræöa . . .
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Félags
hárgreiðslu- og hárskerasveina
verður haldinn föstudaginn 6. apríl
kl. 20.30 í Ingólfsbæ, Ingólfsstræti 5.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
TIL FMNDANS MEÐ FIKNIEFNIN
IÞROTTA- OG TOMSTUNDARAÐ
REYKJAVÍKUR