Pressan - 05.04.1990, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 5. apríl 1990
5
Útgerðarævintýrí ANDR.A, Aiaskastrendur:
Sagan aff makalausri Alaskaferð áhafnarinnar á Andra.
Skipver jar máttu þola endalausar bilanir; á stýribúnaði,
spilbúnaði, frystipressum, vatnseimingartæki,
miðstöðvarkatli, sjókælibúnaði og aðalvél skipsins.
Þegar ákveðið var að drif a f rystiskipið
Andra til úthafsveiða við Alaskastrendur
var f lýtirinn svo mikill að skipið var varla
haffært þegar lagt var af stað. Ekki ein-
asta reyndist vonin um kvóta ytra á
sandi reist, heldur máttu skipverjar þola
vatnsskort, bilaða kyndingu i frosti,
máttlaust spil, vélarbilanir, peninga-
leysi og margt fleira.
EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSSON MYNDIR ÞÓRIR ÓLAFSSON
Útgerð íslenska úthafsútgerðarfé-
lagsins á Andra við Alaskastrendur
reyndist martröð frá byrjun til enda.
Skipið var keypt í Færeyjum, þar
sem það hafði legið á annað ár. Sið-
an lá það í nokkra mánuði í Hull og
átti þá að fara yfir allt skipið, en sið-
ar kom í ljós að þar vantaði vægast
sagt mikið upp á.
I skjóli samnings sem gerður var
1984, þar sem hugsunin fyrir vestan
var að fá íslendinga ofan af hval-
veiðum, lagði Andri af stað frá Hull
í nóvember sl. í þeim tilgangi að
vinna þorsk um borð við strendur
Alaska. Útgerðin gerði sér vonir um
góðan afrakstur og áhöfnin um góð
laun og ævintýraferð.
í Hull tóku tólf íslenskir skipverjar
við skipinu, en þrjátíu pólskir skip-
verjar hittu þá fyrir vestan.
Skipinu stýrt
eins og kassabíi!
Daginn eftir að skipið fór frá Hull
var áhafnarmeðlimunum afhentur
listi yfir 28 atriði sem þyrfti að lag-
færa á leiðinni. í jretta fóru skipverj-
arnir á timabilinu 5— 30. nóvember
og liggur fyrir að yfirvinna á mann
— eftir 10 tíma vaktir — hafi náð
130—160 tímum. Þá var þessari yfir-
vinnu hætt vegna þess að engin
svör fengust um greiðslur fyrir
hana. Þær komu seint og um síðir, í
febrúar.
Þegar eftir tveggja sólarhringa
siglingu frá Hull kom í Ijós að skipið
lak. Síðuloki reyndist laus og varð
að rífa klæðningar af einum veggja
skipsins.
A leiðinni vestur bilaði gyro-
kompás skipsins, en hann er tengd-
ur við sjálfstýringuna. Mótor sem
knýr kompásinn hafði áður verið
bilaður og sendur til Globe Engine-
ering-verktakafyrirtækisins í Hull til
yfirhalningar. Mótorinn kom til
baka og hann sagður viðgerður, en
þegar skipið var komið út á sjó kom
bilunin í Ijós og um leið að ekkert
hafði verið gert við mótorinn. Til að
losna við að standa átta tíma vaktir
við rafmagnsstýrið var gripið til
þess ráðs að strengja spotta frá stýr-
Spilbúnaður Andra reyndist
máttlaus í meira lagi. Hann átti
að orka 60 tonna „holi", en með
naumindum tókst að koma 7—8
tonnum upp á dekk.
inu yfir í sætið, en síðar tókst þó að
færa rafmagnsstýrið að stólnum!
Máttlaust spil
og bilaðar
frystipressur
Þegar út kom uppgötvaðist meðal
annars að spilbúnaður hafði aldrei
verið prófaður. Um er að ræða lág-
þrýstispil sem undir venjulegum
kringumstæðum á að keyra með
fjórum dælum. Af einhverjum
ástæðum var útgerðin sannfærð um
að tvær dælur myndu duga. Eigi að
síður áttu spilin tvö að þola 30 tonna
átak hvort eða samtals 60 tonn. Þeg-
ar til kom á Alaskamiðum tókst hins
vegar með naumindum að hífa inn
7—8 tonn í einu. Þegar hinir banda-
rísku bátar voru beðnir að útvega
aðeins þetta litla magn í einu urðu
þeir eðlilega hvumsa. Á þennan
hátt urðu holin þó þrjú, alls um 20
tonn, eftir að gripið var til ráðstaf-
ana eins og að tvöfalda svokallaða
gilsa og ,,redda“ með blökkum.
Einnig reyndust frystipressur
skipsins í ólestri. Þetta olli miklum