Pressan - 05.04.1990, Síða 7
Fimmtudagur 5. apríl 1990
7
PRESSU
I hefur gerst i landkynning-
arátaki stjórnvalda og er þar fjár-
skorti um að kenna. Hefur samstarf
við Forum Communication í
London því orðið minna en til stóð
í sambandi við heimsókn Breta-
drottningar til íslands í sumar. Nú
hefur nýr hópur verið settur á lagg-
irnar og á að vinna sérstaka land-
kynningarstefnu til fimm ára og ber
að skila af sér fyrir árslok. Jafnframt
er hópnum ætlað sérstakt tilrauna-
átak á Bretlandi í sumar ef fjárveit-
ing fæst. í hópnum sitja Baldvin
Jónsson, Pétur Eiríksson, Karl
Sigurhjartarson, Júlíus Hafstein
og Ingjaldur Hannibalsson. Með-
al þess sem landkynningarnefnd
þessi hugar að í áætlunum sínum, af
litlum efnum, er þátttaka íslands í
Heimssýningu á Spáni árið
1992 . . .
I auglýsingu í Morgunblaðinu í
vikunni býður Hótei Loftleiðir
Reykvíkinga velkomna í hóp hótel-
gesta og lýsir yfir að HL sé fyrst hót-
ela í Reykjavík til að veita borgarbú-
um aðgang að gistingu. Þetta mun
þó ekki vera alls kostar rétt. Hótel
Saga braut upp á því fyrir nokkrum
árum að opna hótelið fyrir Reykvik-
ingum. Þetta var gert með ákv. skil-
yröum. Menn urðu að panta gist-
ingu með nokkrum fyrirvara en auk
þess var prófuð sú leiö að bjóöa
gestum Súlnasalar gistingu aö
málsveröi og skemmtun afloknum.
Gátu menn keypt allt í pakka; að-
gang að dansstaðnum. máltíð -og
gistingu. Hugmyndin var sú aö
borgarbúar ættu kost á að fara á
skemmtun á eigin bíl, skreppa upp á
hótelherbergi og gera sig klára fyrir
kvöldið, leggja sig svo að balli loknu
og aka heim að morgni, algáðir. Eitt-
hvaö munu menn þó hafa tekið til-
boðinu tregiega og lítt viljað bendla
hótelgistingar við ballferðir en Hót-
el Saga mun enn í dag vera borgar-
búum opin til gistingar . . .
■11 ólga og óánægja er nú
í Reykhólaskóla vegna deilna íor-
eldra og stjórnenda skólans og aga-
vandamála nemenda. Nýr skóla-
stjóri tók við um siðustu áramót og
vilja foreldrar meina að mikið vand-
ræðaástand hafi skapast af hans
völdum. Fræðslustjóri Vestfjarða
hefur blandað sér í málið og var sál-
fræðingur sendur til skólans til að
kynna sér ástandiö og reyna að
jafna deilur. Dvaldi hann í vikutíma
á staönum. Þá hefur hreppsnefnd
einnig látið málið til sín taka. Sl.
þriðjudagskvöld var haldinn fjöl-
mennur fundur með foreldrum,
kennurum o.fl. þar sem óánægjan
blossaði upp. Þjófnaðarmál kom
upp innan skólans fyrir skömmu
þegar hurfu peningar úr sjóði sem
nemendur höfðu safnað í. Það er
óupplýst en mun hafa fyllt mælinn
og skólastjóri og einhverjir kennar-
ar vilja beita nemendur hörðum
refsingum. Foreldrar ásaka skóla-
stjórann um óþarfa hörku og slakan •
árangur og telja að nám þeirra u.þ.b.
60 nemenda sem eru við skólann sé
í rúst. Engin niðurstaða fékkst á
fundinum á þriðjudagskvöldið en
þeim mun harðar var deilt . .
VILTU SPARA
á vinnustaðnum eða á heimilinu?
RV-Markaður er sérhæfður markaður með
rekstrar- og hreinlætisvörur fyrir stofnanir,
fyrirtæki og heimili.
Á RV-Markaði eru allar vörur strikamerktar sem
hraðar afgreiðslu og lækkar rekstrarkostnað, því
við viljum líka spara.
RV-Markaður minnir á að virðisaukaskattur af
almennum rekstrar- og hreinlætisvörum fæst
frádregin sem innskattur sé reikningur stílaður á
nafn rekstraraðila.
ÞEKKING — ÚRVAL — ÞJÓNUSTA
5% staögreiðsluafsláttur.
Kreditkorta
þiónusta
m
jj'v
k®
JJ ÍK
jarnrum
Tilvalin fermingargjöf
Verð frá kr. 22.350,- stgr.
Teg. 508- Br. 90-120
Teg. 596-Br. 90-120
Teg 661 - Br. 90-100
Opið laugardaga 10—16.
HÚSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 54100.
Afmælisdagabókin
é>tiátda
er sígild og góð
fermingargjöf
Verðkr. 3.112
SÍMAR13510 - 17059, PÓSTHÓLF147.