Pressan - 05.04.1990, Síða 9
r— ~ -i ... .»»-*•.
Fimmtudagur 5. apríl 1990 9
Ríkisrekið fésýsluapparat stofnad þegjandi og hljóðalaust:
Nýtt fésýsluapparat hefur verid stofn-
að þegjandi og hljóðalaust af fjármála-
ráðuneytinu og Seðlabankanum — utan
við lög og reglur. Þetta er Þjónustumið-
stöð rikisverðbréfa á Hverfisgötu 6. For-
stjóri miðstöðvarinnar er Pétur Kristins-
son. Samkvæmt heimildum PRESSUNN-
AR var hann ráðinn samkvæmt kjörum
og hlunnindum aðstoðarbankastjóra og
hefur fengið glæsilegan Pajero-jeppa til
umráða. Kerfið hefur eignast nýjan
kóng.
EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON — MYND EINAR ÓLASON
Þjónustumiðstöð ríkisverð-
bréfa hefur verið sett á lagg-
irnar utan við lög og reglur.
Ríkisendurskoðun hefur gert
athugasemd við að kostnaður
vegna miðstöðvarinnar hafi
verið ,,falinn" sem vaxta-
kostnaður ríkisins. Forstjóri
þjónustumiðstöð varinnar
ráðinn samkvæmt kjörum að-
stoðarbankastjóra og með
ríkisbifreið til afnota.
Ríkisendurskoöun hefur gert at-
hugasemd viö fjármálaráðuneytið
um stofnun þjónustumiöstöðvarinn-
ar án stoðar í lögum, en þó fyrst og
fremst um að kostnaður vegna und-
irbúnings á uppsetningu miðstöðv-
arinnar á síðasta ári, um 10 milljónir
króna, hafi veriö „falinn" meö því
aö hann var færður undir fjárlaga-
liðinn vaxtagjöld ríkisins.
Sölukostnaður
,#falinn" sem
vaxtakostnaður
Ríkisendurskoðun gerði nánar til-
tekið munnlega athugasemd og
vakti sérstaklega athygli ráðuneytis-
ins á því að kostnaður upp á 150
milljónir króna hefði verið færður
undir vaxtakostnað ríkisins án þess
að um vaxtakostnað væri að ræða.
Inni í þeirri tölu er meðal annars
rekstur þessarar skrifstofu þjónustu-
miðstöövarinnar upp á 10 milljónir,
prentun á spariskírteinum, þóknan-
ir til söluaðila og fleira þess háttar.
Ríkisendurskoðun færði ráðu-
neytinu þau tilmæli að kostnaður
þessi yrði tilgreindur sem sölukostn-
aður spariskírteina hjá ráðuneytinu.
Samkvæmt heimildum PRESSUNN-
AR fannst mönnum hjá ríkisendur-
skoðun að þarna væri verið að „fela
kostnað inni í vaxtatölunni", en
heildarkostnaður ríkisins vegna
vaxta nam 8,6 milljörðum króna á
síðasta ári.
Sala spariskírteina og annarra rík-
isverðbréfa var fyrst í höndum
Seðlabankans, en síðustu þrjú árin
hefur salan færst æ meir á hendur
fjármálaráöuneytisins. í maí í fyrra
var ráöinn sérstakur maður til að sjá
um þessi mál fyrir ráðuneytið, fyrr-
nefndur Pétur Kristinsson, sem áður
var starfsmaöur verðbréfasjóðs
Fjárfestingarfélagsins. Með honum
tóku til starfa tveir aðrir nýir skrif-
stofustarfsmenn, viðskiptafræðing-
Pétur Kristinsson, forstjóri Þjónustumiöstöðvar ríkisverðbréfa. Síðar
verður miðstööin deild í „Lánasýslu ríkisins" — nýju ríkisapparati
með Seðlabankaígildi.
ur og ritari. Kostnaður vegna þessa
þáttar í starfsemi fjármálaráðuneyt-
isins nam sem áður segir um 10
milljónum króna í fyrra og hann
færður undir vaxtakostnað en ekki
sölukostnað.
Seðlabankamenn
afneita miðstöðinni
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR er nálægt helmingi þessar-
ar upphæðar launakostnaður. Nú
hefur þjónustumiðstööin öölast
sjálfstæða skrifstofu á Hverfisgötu
6, framkvæmdastjóra, tvo starfs-
menn og ríkisbifreið til afnota.
Heimildir blaðsins greina frá því að
Pétur hafi veriö ráðinn samkvæmt
kjörum og hlunnindum aöstoöar-
bankastjóra. Hlunnindin eru mis-
jöfn eftir bönkum, en gera má ráð
fyrir þvi að laun Péturs séu vart und-
ir 800 þúsund krónum á mánuöi.
Viðmælendum PRESSUNNAR
bar ekki saman um hvort líta bæri
frekar á þjónustumiðstööina sem
deild í fjármálaráðuneytinu eða
Seðlabankanum. Starfsemin mun
vera afurð samstarfssamnings þess-
ara aðila og eftir munnlegar athuga-
semdir ríkisendurskoðunar var tek-
in ákvörðun um að þjónustumiö-
stöðin skyldi „heyra undir fjármála-
ráðuneytiö, en vera sérstök deild í
ríkisábyrgöasjóði, sem Seðlabank-
inn rekur" — og þangað var bók-
hald miðstöðvarinnar sent. Tals-
maður ríkisábyrgðasjóðs sagöi að
vissulega væri „þetta oröað svo", en
miðstöðin kæmi ekkert inn í dagleg-
an rekstur ríkisábyrgðasjóðs og vís-
aði á fjármálaráðuneytiö um allar
upplýsingar. Mun Seðlabankinn í
fyrstu hafa endursent reikninga
þjónustumiðstöövarinnar til ráðu-
neytisins, en síðar var gert bráða-
birgðasamkomulag, sem fól í sér að
bankinn borgaði brúsann þar til
endanleg lausn fengist eftir laga-
setningu í vor.
Lægri söluþóknanlr
til óskyldra
I fjármálaráðuneytinu fengust
þær upplýsingar að ekki hefði verið
litið svo á að setja þyrfti sérstök lög
eða reglugerö um miöstöðina „enda
væri aðallega um nafn á húsnæði að
ræða", ákveönir starfsmenn ráðu-
neytisins hefðu fengið sérstaka
skrifstofu og hún kölluö þessu nafni.
Pess ber að geta að viðmælendur
PRESSUNNAR voru almennt sam-
mála um að stofnun þessarar þjón-
ustumiðstöðvar fæli ekki í sér upp-
setningu á nýju „bákni" og ef eitt-
hvað væri myndi kostnaöur ríkis-
sjóðs minnka, þar sem söluþóknun
til óskyldra umboösaðila drægist
saman. Þetta breytir hins vegar ekki
því, að kostnaðurinn var að mati
rikisendurskoöunar „falinn" sem
vaxtakostnaöur ríkisins, en hefði átt
að flokkast sem sölukostnaður.
Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa
er ekki hugsuð sem sjálfstæð deild
til langframa. Á allra næstu dögum
stendur til að leggja fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp um „Lánasýslu
ríkisins", stofnun sem á teikniborö-
inu hefur hingað til veriö kölluð
Lána- og ábyrgðarstofnun ríkisins —
af gárungum kölluð „Lára". Hug-
myndin er að þjónustumiðstöðin,
eöa sú starfsemi sem þar er rekin,
verði í umsjá sérstakrar deildar
lánasýslunnar.
Nýtt bókn í
uppsiglingu?
Lánasýslan á að sjá um allar opin-
berar skuldir og ríkisábyrgðir, sem í
dag hljóða upp á 120—130 milljarða
króna. Meðal þess sem knýr á um
stofnun lánasýslunnar er þörfin á að
samræma alla lántöku opinberra
aöila, fjárfestingarlánasjóða og að-
ila sem fá ríkisábyrgð. Samkvæmt
heimildum PRESSUNNAR nýtur
Ríkissjóöur íslands um þessar
mundir mjög góðra lánskjara er-
lendis og mun betri en ýmsir opin-
berir og hálfopinberir sjóðir. Nokk-
ur ótti hefur verið uppi um að lán-
taka þessara sjóða gæti bitnað á
lánskjörum ríkissjóðs og því taliö
nauösynlegt að íyrir hendi sé sam-
ræmingaraðili sem fari yfir og sam-
þykki allar lántökur. Mun vera
nokkuð breið pólitísk samstaða um
stofnun lánasýslunnar og er frum-
varpið um hana meðal forgangs-
verkefna ríkisstjórnarinnar á þessu
þingi.
Sumir þingmenn bera þó þann
u0g í brjósti aö með „Láru" sé í upp-
siglingu bákn sem með tíð og tíma
veröi fyllilega sambærilegt við sjálf-
an Seðlabankann.