Pressan - 05.04.1990, Side 10
10
Fimmtudagur 5. apríl 1990
*K,íísr
!f
Grein um alþjóðlegan ferðamálaskóla
vekur harðar deilur
— segir Póra Jóna Dagbjartsdóttir sem hefur i
höndum skriflegt loforö um aö víxli veröi
breytt í skuldabréf. Víxillinn er fallinn.
bteV1
ot a fV’
st ^écmeÖ át3 bt®f S*°
ð vcr- 1 NeSueq
ialöda9a °PÍ> rtSd6ttar ’
ianafVr aa oagbía
u<" „a ræ \6nu
r-£*- •’5
R\|V •
PRESSAN hefur undir höndum skriflegt
loforð fró Guðna Þórðarsyni þar sem
vottast að víxli frá 1. febrúar verði
breytt i skuldabréf til tveggja ára frá 1.
nóvember. Við þetta var ekki staðið, víx-
illinn féll og er nú á dagsvöxtum.
EFTIR: BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR
„Eg fékk undirskrift Guðna til
þess aö vera alveg örugg um að lof-
orðin stæðust því annars hefði ég
ekki haft efni á að fara í skólann. Ntí
er ég að missa aieiguna," segir Þóra
Jóna Dagbjarlsdóttir. Fleiri nem-
endunt í hinum Aiþjóölega ferða-
mála* og fararstjóraskóla Guöna
Þórðarsonar og Örnólfs Árnasonar
var boöið upp.á lán með góðum
kjörurn, en samt hafa fleiri víxlar
einnig fallið. Þóra Jóna Dagbjarts-
dóttir er, eftir því sem FRESSAN veit
best, ein um að hafa fengið skriflegt
loforð frá Guðna varöandi skulda-
bréfið. Guðni sagði í síöustu PRÉSSU
að hann bæri ekki ábyrgð á því
hvernig nemendur fjármögnuðu
skólavistina. Þess vegna er hér end-
urtekin klausa úr kynningarbréfi
um skúlann, sem einuig birtist í síð-
ustu PRESSU: ......væntanlegum
nemendum bjóðast möguleikar á
bankaláni fyrir milligöngu skólans.
Um er að ræða skuldabréf til
tveggja ára með fyrstu afborgun 1.
íebrúar 1990, með föstum vöxtum
7,25%, verötryggt. Lántökukostn-
aður meö stimpilgjöldum o.fl. er
u.þ.b. H%. Verður að telja þetta hag-
stæð kjör miöað við síöustu breyt-
ingar á lánakjörum bankanna."
Þetta er sú lilið málsins sem snýr
að fjármögnun námskeiðsins á
Spáni, sem ekki hefur verið svarað
af hálfu Guðna Þóröarsonar.
Fóu lofað —
lítið efnt
En vissu nemendur Alþjóðlega
ferðamálaskólans hvaða vöru þeir
voru að kaupa? Eigendur feröaskrif-
stofa sem PRESSAN hafði samband
við styöja ekki skóla af þessu tagi.
„Það er svo sannarlega þörf á breyt-
iugu," segir Karl Sigurhjartarson,
formaður Félags íslenskra ferða-
skrifstofa. Félagið hélt fund í gær
þar sem rætt var um þessi málefni.
YFIRLYSING
RITSTJÓRA
PRESSAN ákvað að
fella út eina máls-
grein úr athugasemd
þeirra Guðna Þórð-
arsonar og Örnólfs
Árnasonar þar sem
vikið er að geðheilsu
eins af heimilda-
mönnum umræddrar
greinar. Við fáum
ekki séð að aðdrótt-
anir af því tagi komi
málinu við og er
málsgreinin ekki
prenthæf.
Ritstj.
Athumsemd frá feröamálaskólanum
„ÓHRÓDURBYGGÐURÁ
ÓTRAUSTUM HEIMILDUM#
I uikubladinu Pressunni
fimmtudaginn 29. mars sl. er gerd
suíuirdileg adför ad mannordi og
starfsheidri okkar undirritadra,
lapinn andstyggilegur rógur um
ferdamálaskóla okkar eftir
heimildum, sem bladinu uar
kunnugt um ad uoru ótraustar,
undir óhródurinn tekid með gífur-
yrtum fyrirsögnum: „fjárplógs-
starfsemi", „suik og prettir" og
sorpskrifin síðan kórónuð með
fölskum myndum.
Skemmst er frá þuí að segja að
öll grein Pressunnar er uppspuni. I
ferðamálaskólanum uoru yfir
áttatíu nemendur sem langflestir
uoru ánœgöir með skólavist sína
og þá menntun sem þar uar boðið
upp á. Auðuitað er ekkert
skólastarf liafið yfir gagnrýni
en óhœtt er að fullyrða að
kennarar og aðstandendur
skólans gerðu sitt besta til að
nemendur hefðu sem mest gagn af
náminu. Sömuleiðis lagði allur
þorri nemenda sig fram uið námið
og margir náðu frábœrum
árangri. Aðeins einn þeirra
heimildarmanna sem Pressan
nafngreinir (að uísu með röngu
föðurnafni) er úr þeimi hópi enda
er sá ánœgður með skólann og
segir að staðið hafi uerið uið öll
þau loforð sem gefin uoru. Blaða-
konunni uar boðin aðstoð uið að
afla sér uandaðri heimilda en það
uar álíka árangursríkt og að gefa
rottu aðgöngumiða á kammertón-
leika.
Blaðakona Pressunnar kuittaði
áður en blaðiö fór í prentun fyrir
móttöku á gögnum sem sýna suart
á huítu að gott samrœmi uar á
milli þess sem boðið uar í aug-
lýsingum og kynningu skólans og
þess sem nemendur fengu. Ekki
kaus hún að fœra sér í nyt þessar
upplýsingar enda hefðu þœr lík-
lega ekki passað undir fyrirsagnir
blaðsins. Þess í stað er haft eftir
ónafngreindum nemendum ,,að
framhald á bls. 12
Fundurinn komst að þeirri niður-
stöðu að full þörf væri á því að end-
urskoða menntunarmál á sviði
feröaþjónustu og athuga nánar þá
skóla og námskeiö sem í boði hafa
vérið á þessu sviöi.
Formaöur íslenskra feröaskrií-
stofa staðfestir að alveg sé undir
hælinn lagl hvort prófskírteini frá
feröamálaskúlum í einkarekstri séu
nokkurs virði fyrir handhafa þeirra.
Ingólfur Hjartarson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra feröaskrif-
stofa og lögfræðingur íélagsins.
sagði í síöustu PRESSU, þar sem
fjallaö var um „Alþjóðlegan ferða-
mála- og fararstjóraskóla" Guðna
Þórðarsonar og Örnólfs Árnasonar,
aö það væri þjóðþrifamál að vara
við starfsemi af þessu tagi.
Engar kröfur —
engin réttindi
Karl Sigurhjartarson staðfestir aö
engar kröfur séu gerðar til skólanna
og þar með fylgja þeim engin rétt-
indi heldur.
„Það er alveg einstaklingsbundið
hvort tekið er tillit til skóla af þessu
tagi af þvi við vitum ekki hvað boðið
er upp á í þeim. Það vantar ein-
hverja staðla. Það þarf að gefa nám-
skeiðum stimpil sem tryggir inni-
liald þeirra. Slíkur stimpill íyrir-
finnst ekki í dag. Ég treysti mér ekki
til þess að dæma um innihald náms
í þessum skólum og námskeiöum
sem eru í gangi, hvorki til þess að
fordæma það né leggja blessun
mína yfir það," segir Karl Sigur-
hjartarson.
Karl segir aö áhugi á menntunar-
málurn sé mikill innan félagsins og
þvt verði reynt að móta stefnu um
hvað nám af þessu tagi þurfi aö fela
í sér.
Byrjað á
öfugum enda
Kjartan Lárusson. forstjóri Feröa-
skrifstofu ísiands, telur að til þess að
skólar í ferðamálum eigi aö hafa
einhverja raunhæfa þýðingu þurfi
atvinnurekendur að vera með í
myndinni frá upphafi og taka þátt í
að ákvarða námsefnið sem boðið er
upp á. Að öðrum kosti sé byrjað á öf-
ugum enda. „Pappírar frá skólum
sem reknir eru án slíkrar samvinnu
eru tiltölulega lítils virði," segir
Kjartan Lárusson.
Það viröist því Ijóst að fólk sem
ákveöur aö gerast nemendur í
ferðamálaskólum af sama tagi og
Alþjóðlegi feröamála- og farar-
stjóraskólinn , getur ekki reiknaö
með því að kaup á slíkum námskeið-
um séu íjárfesting sem skili sér i
bættum atvinnumöguleikum.