Pressan - 05.04.1990, Síða 18
18
Fimmtudagur 5. apríl 1990
bridcpe
Það er haft á orði í bridge-inum
að ef þú meldar illa á kortin er eins
gott fyrir þig að spila vel úr spilun-
um til þess að jafna reikningana.
Sagnir suðurs í spili vikunnar voru
villtar og hann lenti í samningi
sem virtist óvinnandi.
En snemma í spilinu eygði hann
glætu og þegar lykilspil lágu eins
og nauðsyn krafði hafði hann
heppnina með sér.
♦ 743
V ÁD64
♦ KD32
•f» 65
4KG9
V9
♦ G954
4» DG1073
+ Á82
V KG108753
♦ -
4» Á82
Með alla utan hættu gefur suður
og vekur á 1-hjarta. Norður fór
rakleiðis í 4-hjörtu. Það fannst
suðri svo góðar fréttir að hann
hélt áfram í 6-hjörtu... best að
hafa ekki fleiri orð um sagnir.
Útspil vesturs laufdrottning.
Sagnhafi var fljótur að átta sig á
því að tveir tapslagir voru óumflýj-
anlegir. Þótt austur ætti ás í tígli
gæfi trompsvíning þar aðeins eitt
niðurkast.
En. . .Suður drap á laufás, fór
inn á trompás og spilaði smáum
tígli úr blindum. Austur var í
vanda, hver átti árans gosann? —
„Þú platar mig ekki svona,” sagði
hann loks (það var talsvert málæði
við borðið) og skellti ásnum í
borðið. Suður svaraði fyrir sig með
þvi að leggja öll sin spil niður og
kvaðst trompa, síðan myndi hann
kasta tveim spöðum í tígulhjón og
gefa loks laufslag.
VAR einhver vísbending sem
austur gat byggt á? Hugsanlega
hefði suður notað Blackwood með
blankan tígulgosa (með rauðu ás-
ana þá úti) en síður með eyðu í lit.
En suður var jú þekktur fyrir af-
leitar sagnir svo slikar pælingar
voru marklausar.
♦ D1065
V2
♦ Á10876
4» K94
skqk
Eftir þingið
í New York
Skákþinginu í New York 1857
lauk með mikilli veislu. Þar voru
haldnar miklar ræður og andríkar,
flutt kvæði og fleira sér til gamans
gert. Sumar ræðurnar þóttu full-
langar en um það var ekki að fást
og flestar snerust þær um Morphy,
þennan unga snilling sem kalla
mátti að hefði verið uppgötvaður
á þinginu. Sennilega hefði lofið
orðið enn hátíðlegra ef menn
hefði grunað að þetta fyrsta þing
Morphys væri jafnframt hans síð-
asta. En það datt engum í hug.
Sjálfur hélt Morphy eina ræðu þar
sem hann hyllti aðalkeppinaut
sinn, Louis Paulsen.
Annars var Morphy fremur fá-
skiptinn maður. Hann hafði verið
óvenjulega hæglátur sem barn, lít-
inn þátt tekið í leikjum jafnaldra
sinna en unað vel einveru og
grúskað í ýmsu. Sem fulltíða mað-
ur var hann smávaxinn og grann-
ur, nettur og nærri kvenlegur,
handsmár og fótsmár. Hann var
ávallt vel klæddur og einstaklega
háttvís. Við skákborðið var hann
manna kurteisastur, tillitssamur
við mótherja sinn, sat rólegur og
hreyfingarlaus við borðið og lét
ekki á sér sjá minnstu merki óþol-
inmæði, hversu seinlátur sem and-
stæðingurinn var. En enginn vafi
var á því að við taflborðið var
hann afburða snillingur. Skákina
sem hér fer á eftir tefldi hann
blindandi samtimis fimm öðrum
skömmu eftir að hann kom heim
frá þinginu.
Morphy—Ónef ndur skákmaður
New Orleans 1858
I e4 e5 2 Rf3 Rc6 3 Bc4 Bc5 4 b4
Bxb4 5 c3 Ba5 6 d4 ed4 7 0-0
dc3 8 Ba3
Þetta er Evansbragðið sem rætt
var hér í þáttunum nýlega. Svartur
velur hættulegustu vörnina, hann
þiggur allt sem honum er rétt.
Hvítur hefur látið þrjú peð en unn-
ið tíma og á hættuleg færi. Hvort
þau eru peðanna virði er erfitt að
segja. Talið er að 8 Db3 sé besti
leikur hvíts. Svartur verður þá að
leika 8 — Df6, en þá kemur 9 e5.
En leiki hvítur Db3 eftir Ba3 á
svartur svarið Rh6. Engu að síður
valdi Morphy alltaf 8 Ba3.
8 - d6 9 Db3 Rh6 10 Rxc3 Bxc3
II Dxc3 0-0 12 Hadl
Hvítur verður að reyna að opna
taflið til þess að geta beitt mönn-
um sínum sem eru virkari en
menn svarts. Hann hótar nú 13 e5,
en svartur hindrétr það.
12 - Rg4 13 h3 Re5 14 Rxe5
Rxe5 15 Be2!
Hvítur lætur ekki biskupinn og
leikur því heldur ekki Bb3 sem
svartur gæti svarað með Be6.
Hann undirbýr 16 f4. En nú velur
svartur leik sem er gallaður frá
sjónarmiði herstjórnar. Skynsam-
legast fyrir hann væri að reyna að
koma í veg fyrir að sóknariínur
opnist: leika f6 og Rg6. í staðinn
hyggst hann létta á stöðunni, en
gætir sín ekki á því að þannig
greiðir hann götu Morphys.
15 -f5 16f4Rc6 17 Bc4+ Kh8
18 Bb2 De7 19 Hdel Hf6 20 ef5
Df8
a b c d e f g h
Nú 'kemur glæsileg flétta sem
sýnir að blindinginn „sér“ betur
en hinn sjáandi!
21 He8!l Dxe8 22 Dxf6! De7 23
Dxg7 +! Dxg7 24 f6
Nú er svartur glataður: 24 — Df8
25 f7+ Re5 (Dg7 26 f8D mát) 26
fe5 h5 27 e6+ Kh7 28 Bd3+ Kh6
29 Hf6+ Kg5 30 Hg6+ Kf4 31 Kf2!
Hann fleygir nú tveimur mönn-
um fyrir borð en það breytir engu.
24 - Dxg2+ 25 Kxg2 Bxh3 +
26 Kxh3 h5 27 Hgl og svartur
gafst upp.
GUÐMUNDUR
ARNLAUGSSON
krossgátan
rn-EÉ
NÍ FÆODI S*L
1 > 1 „
1 MJÚKM r*
'p&TTl/JrlV
SK/tíJA
'oHu'oG
S'A£>-'
L.AKÚj
LByfl
OÐLAST
UTArJ
Vó'xrue
favftX'flR
/K
S±-
‘AjJ/t&JAN
MT6AL-
AwXI
AldoC-
K t' V RA
PÚK l
ASK
HAf
ÍR'fl'
PRkqöi/I
BtK
UMOÆws
ÍTflfi/í
fATA-
fc' tHi
DYP
II
f/JÆODl
'D/JOPrlO-
LAtZ
OODI
AFTuR,-
Br/Dfl
HlSlfl I
TOM T
it.
JZ.---
•HA&
Kor/u-
NflfN
lAAh/rJ
VAGN
K V‘íí> i
| nyrif/i
TALfl-Ol
of-
Gr-eOlH
MAOKuF
f'fl'/AOA
ÁLJfl
lýl > i-l/r
mm
R/JÐGFBa
umdiulus-
STflfi/í
KOrJu-
NAFrJ
fUKL
'OTR/GGB
PiPA
FlSK
HblT-
OIAOiaF
ILL-
Gííf-í l
SVtlfl
GO-B
W
tf
F-Y-ÐA
SP/L
PLAHta
pltrJlrJiA
ULLfllZ-
’> L'AT
/'>
hPydja
BOR.BArlúi
I
'ATT
TPtGT
MISKimJk'
fFRL'iKI
hlATTÚRA
L.A&A6
DRYKKkR
RÚlM
KALDiaH
Qfíuffí
Hfc-TTfí
kKDuli
y/JO\
)-■
NÝT
vi-eflR-
TíCturJO
DjoRP
BLlUJft
FCR-
FA-Olfí
MÆ.LI
ORF-'DU
t—
FVKST
Rcta
bl'as1
fR'iB
QisPA
a.ÍkCKm a
:y£/
Verdlaunakrossgáta nr. 80
Skilafrestur er til 14. apríl og ad þessu sinni er verdlaunabókin
góökunn íslensk skáldsaga, Eldhúsmellur eftir Guðlaug Arason.
Þaö er Mál og menning sem gefur bókin út. Utanáskriftin er
PRESSAN—krossgáta nr. 80, Armúla 36,108 Reykjavík. Verð-
launahafi 78. krossgátu er Soffía Helgadóttir, Meistaravöllum
31,107 Reykjavík. Hún fœr senda bókina Hættulegt hlutverk eft-
ir Soffíu Jóhannesdóttur en Skjaldborg gefur þá bók út.