Pressan - 05.04.1990, Side 20
20
Fimmtudagur 5. apríl 1990
í næsta mánuði kemur út bók um hinn
heimsþekkta og vinsæla söngvara Tom
Jones, sem heldur tónleika á Rslandi i
byrjjun maimánaðar. Höfundar bókar-
innar halda þvi fram að söngvarinn sé
með kvenfólk á heilanum og fullyrða að
hann hafi átt mök við þúsundir aðdá-
enda sinna.
EFTIR JÓNI'NU LEÓSDÓTTUR
Konur eru adaláhugamál
hins kunna söngvara Toms Jones sem
kemur í tónleikaferd
til Islands í maí
Það kemur oft fyrir úti í heimi að
skrifaðar eru bækur um frægt fólk,
án þess að það kæri sig nokkurn
hlut um það. Þetta er einfaldlega
einn af fylgifiskum frægðarinnar. í
næsta mánuði verður t.d. gefin út
bók um líf og ástir söngvaransToms
Jones, sem íslendingar fá brátt að
berja augum í fyrsta sinn, því hann
heldur tónleika á Hótel Islandi í
maí. Bókin er rituð af Stafford
Hildred og David Gritten og heitir
einfaldlega TOM JONES.
Fyrir skemmstu gerði breska
sunnudagsblaðið SUNDAY MIRR-
OR nokkra grein fyrir því, sem Tom
og væntanlegir lesendur bókarinn-
ar eiga von á að sjá á prenti í apríl.
Og af því að dæma verður söngvar-
inn að öllum líkindum lítt hrifinn af
„ævisögunni". Honum er nefnilega
lýst sem óforbetranlegum kvenna-
bósa, sem hoppi upp í rúm með
flestum konum sem hann kemst í
tæri við — algjörlega burtséð frá því
hvort þær eru ungar eða gamlar, fal-
legar eða Ijótar, grannar eða feitar.
Byrjaði snemma
Flestir þekkja einhver af þeim lög-
um, sem Tom Jones hefur sungið í
gegnum tíðina. Mörg þeirra hafa
náð gífurlegum vinsældum, svo
ekki sé meira sagt. Sem dæmi má
nefna lög eins og Green green
grass of home, Delilah, I who ha-
ve nothing, It’s not unusual,
What’s new Pussycat?, Daughter
of darkness, She’s a lady, Help
yourself og Thunderball, sem á
sinum tíma var flutt í kvikmynd um
James Bond.
En Tom karlinn hefur greinilega
ekki eytt allri orku sinni í sönginn,
ef marka má heimildir höfunda fyrr-
nefndrar ævisögu. Þeir grafa upp
gamla vini hans og fjölda ættingja,
sem hafa upp til hópa sömu sögu að
segja: Tom Jones er með kvenfólk á
heilanum.
Þetta áhugamál söngvarans kom
snemma í Ijós. Þegar hann var 14
eða 15 ára var hann rúmliggjandi
vegna einhverra veikinda og jafn-
aldra frænka hans hjálpaði til við að
líta eftir honum. Hann var þó ekki
veikari en svo að hann lét það eftir
sér að stíga í vænginn við frænk-
una. Svo segir a.m.k. núverandi eig-
inmaður umræddrar frænku í bók-
inni.
Tvenns konar
konur
Árið 1956 barnaði Tom líka þáver-
andi kærustu sína, sem var einungis
15 ára gömul. Hún heitir Melinda
(kölluð Linda!) og það leið ekki
nema eitt ár þar til Tom Jones, sem
þá hét raunar Woodward að eftir-
nafni, gekk að eiga hana.
Haft hefur verið eftir söngvaran-
um að á meðan hann á kynmök sé
viðkomandi kona honum allt. Kon-
ur skiptist hins vegar í tvo hópa,
þegar hann hafi komist yfir þær.
Þ.e.a.s. konur, sem hann vilji hafa
hjá sér áfram, og konur, sem hann
langi að skríða sem fyrst í burtu frá.
Linda virðist því tilheyra fyrri hópn-
um, því þau Tom eru enn gift, þrátt
fyrir alla kvensemina. Þau eru
a.m.k. enn gift „á pappírunum", eins
og sagt er. Tom Jones býr nefnilega
í húsi í Kaliforníu, sem hann keypti
af Dean Martin kollega sínum, en
Linda býr í glæsilegu húsi skammt
frá heimabæ þeirra í Wales á Bret-
landi.
Hágrátandi í
sgálfsmorös-
hugieiðingum
Tom Jones hóf feril sinn sem
söngvari hljómsveitar, sem kallaðist
Senatorarnir (The Senators). Þeir
störfuðu á heimaslóðum í Wales
fram til ársins 1964, en þá tóku pilt-
■ :
«1811
.
mmms
mmm
n‘ uePPn'n°a
■aroVW*V °
KVENNABÓSI
arnir sig til og fóru til Lundúna í leit
að frægð og frama. Gítarleikari
hljómsveitarinnar, Mickey Gee,
segir í bókinni frá þessu tímabili á
ferli þeirra:
„Við vorum bara villingar frá Wa-
les. Okkur langaði einfaldlega til að
fara á fyllerí og krækja okkur í stelp-
ur. Enda gerðum við það líka! Tom
var svakalegur villingur og með
mikla karlastæía, eins og algengt er
í Wales. Honum fannst gaman að
detta í það og ná sér í skvísu — og
sá var ekki vandlátur. Hann svaf sko
hjá hvaða kvenmanni sem var.“
En þó kvennafarið sé köppunum
minnisstætt frá þessum upphafsár-
um ferilsins var lífið þó alls enginn
dans á rósum. Einn hljómsveitar-
meðlimurinn segir t.d. í bókinni að
hann hafi eitt sinn komið að Tom há-
grátandi í íbúðinni, sem hljómsveit-
in hafði yfir að ráða. Þá á hann að
hafa trúað vininum fyrir því að
hann væri kominn út á ystu nöf,
þreyttur á líferninu í London og bið-
inni eftir heimsfrægð. Vinurinn seg-
ir m.a.s. að söngvarinn hafi sagst
hafa farið á járnbrautarstöð og ætl-
að að fleygja sér fyrir næstu lest, en
þegar til kom hafi hann ekki getað
framkvæmt þá fyrirætlun stna.
Hann I Rolls Royce,
hinir í rútu
En frægðin var á næsta leiti, þeg-
ar söngvarinn var þarna sem sorg-
mæddastur, og sem betur fór lét
hann hvorki verða af því að fremja
sjálfsmorð né flytja aftur til Wales.
Dægurtónlistin hefði þá orðið af
klassískum „ellismellum" eins og
Green green grass of home, Del-
ilah og fleirum slíkum.
Það var lagið It’s not unusual,
sem skaut Tom Jones upp á stjörnu-
himininn í marsmánuði árið 1965.
Og hafi hljómsveitarmeðlimirnir
stundað hið Ijúfa líf af krafti fyrir
þennan tíma voru það þó smámunir
í samanburði við það, sem átti eftir
að verða. Þeir höfðu áður orðið að
lifa á einu sterlingspundi á dag og
hírast í lélegu húsnæði, en nú var
öldin skyndilega önnur — a.m.k. hjá
Tom. í bókinni halda félagar hans
því fram að hann hafi bráðlega
keypt sér Rolls Royce-bifreið. Þeir
hafi hins vegar ferðast um í rútu og
eyðsluféð hafi einungis hækkað í
tuttugu pund, þrátt fyrir velgengn-
ina.
Hljómlistarmennirnir, sem störf-
uðu með Tom Jones þessi fyrstu
frægðarár, kunna margar sögur af
honum frá þeim tíma. Segir einn
þeirra, að þegar söngvarinn var að
ná sér í stelpur hafi það verið eins og
að fylgjast með steinaldarmanni
draga kvenmann inn í helli sinn á
hárinu.
Ævintýri í þoku
Ein sagan í bókinni er höfð eftir
Vic Cooper hljómborðsleikara,
sem var einnig í hlutverki einkabíl-
stjóra fyrir Tom. Hún hljóðar svo:
„Eitt sinn vorum við í Stock-
ton-on-Tees. Við vorum búnir að
leika í einum klúbbnum og vorum
á leið í þann næsta. Það var afar
mikil þoka og ég ók Rollsinum, en
aftur í var Tom kominn vel áleiðis
með 16 ára stelpu. Ég fylgdist svo
spenntur með hinum æsandi leik í
aftursætinu að ég tók ekki eftir því
að framundan var hringtorg. Þegar
ég uppgötvaði það loksins var orðið
of seint fyrir mig að beygja og ég
varð bara að keyra beint yfir hring-
torgið.
Rútan með strákunum fylgdi fast
á eftir og fór því líka beinustu leið yf-
ir hringtorgið með braki og brest-
um, en þá varð Tom alveg trylltur.
Hann heimtaði að ég stöðvaði bílinn
og skipaði mér að fara út og koma
ekki aftur fyrr en hann kallaði í mig.
Rútan stansaði náttúrulega líka og
öll hljómsveitin varð að bíða þarna
í þokunni eftir því að Tom lyki sér af
með stelpunni."
Bara ein af
mörgum
Tom varð yfir sig hrifinn af Mary
Wilson, söngkonu í tríóinu Supr-
emes. Þau áttu í ástarsambandi um
hríð og minnist Mary á hann í ævi-
sögu sinni. Þar segir að hann hafi
bæði reynst henni frábær vinur og
elskhugi.
Hann heillaðist líka af alheimsfeg-
urðardrottningunni árið 1973, sem
heitir Marjorie Wallace. Þau komu
bæði fram í skemmtiþætti og eftir
að Tom hafði sungið lagið I want to
make it with you kysstust þau
mjög innilega á sviðinu fyrir framan
myndatökuvélarnar. Sagt er að Jul-
ia Morley, fulltrúi fegurðarsam-
keppninnar, hafi orðið alveg æf yfir
þessari framkomu og dómgreindar-
leysi Marjorie. Og seinna var stúlk-
an raunar svipt titlinum.
En Tom Jones hefur ekki bara haft
áhuga á frægum konum. Þeir, sem
til þekkja, segja í bókinni að hann
sofi hreinlega hjá hvaða konu sem
er. Hann hefur ávallt verið um-
kringdur aðdáendum á öllum aldri
og verið duglegur við að sinna þeim
— jafnt ungum sem gömlum — og
virðist útlit þeirra ekki hafa skipt
hann meginmáli. Þegar hann var
með eigin sjónvarpsþátt hafði hann
Tom Jones er enn kvæntur
æskuvinkonunni, Lindu, en hún
býr í Wales og hann í Kaliforníu,
svo það virðist ekki sérlega mik-
ið á milli þeirra — nema fjarlægð-
in!
hjólhýsi á svæðinu og þangað mátti
enginn ryðjast inn nema banka
fyrst, því áhangendur stjörnunnar
voru þar iðulega „í heimsókn".
En haldi einhver að Tom sé farinn
að stillast upp á síðkastið er greini-
legt að það er mesti misskilningur.
Fyrir tveimur árum eignaðist kona í
New York t.d. son, sem Tom Jones
greiðir meðlag með eftir að sannað
var að hann væri faðirinn. Sú
bandaríska ku hins vegar vera af-
skaplega miður sín eftir þessa
reynslu. í margumræddri ævisögu
er a.m.k. haft eftír henni: „Ég sé
núna að ég var honum einskis virði.
Ég var bara ein af mörgum, sem
hann hafði í takinu."