Pressan - 05.04.1990, Blaðsíða 21
p&ó/sIa
Fimmtudagur 5. apríl 1990
21
í bændahöllinni, ödru nafni Hótei Sögu, er
Ferdaþjónusta bænda til húsa. Eins og nafnið
bendir til er þetta miðstöð þeirrar þjónustu sem
íslenskir bændur hafa í auknum mæli verid að
snúa sér að, nefnilega þjónustu við ferðamenn,
íslenska sem erlenda.
Á skrifstofunni verður Þórdís
Eiríksdóttir fyrir svörum en auk
þess iagði Margrét Jóhannsdóttir
til upplýsingar um þessa starfsemi
sem birtist á öðrumstað í blaðinu.
Biaðamaður spurði fyrst hvort
það væri einhver ákveðin tegund
ferðamanna sem viidi kynnast
landi og þjóð á þennan hátt, þ.e.
með gistingu á íslenskum sveita-
heimilum?
„Nei, alls ekki. Til okkar leita all-
ar manngerðir en því er þó ekki
að neita að fjölskyldufólk er þar í
miklum meirihluta. Þetta eru
hvorki ríkir ferðamenn né blankir,
þ.e.a.s. í einhverjum meirihluta,
heidur ósköp venjuiegt fólk.
Þeir útlendingar sem vilja kom-
ast í þá aðstöðu sem við bjóðum
eru yfirleitt mun fyrirhyggjusam-
ari en íslendingar en þó er eins og
landar okkar séu í auknum mæli
að átta sig á því að það er alls ekki
víst að þeir geti fengið það sem
þeir vilja með mjög stuttum fyrir-
vara. Við erum alltaf að bíða eftir
„góðá' veðrinu og viljum helst
ekki ákveða neitt varðandi frí
okkar fyrr en við höfum séð veð-
urspána. Þetta er hægt ef fólki er
sama á hvaða stöðum það gistir
hverju sinni, en hafi það í hyggju
að dvelja á ákveðnum stöðum
verður að hafa meiri fyrirvara á.
Til dæmis eru sumir af þeim stöð-
um sem eru innan okkar vébanda
nú þegar að verða fullbókaðir í
sumar!"
Nú gefur það augaleið að að-
staöa á bæjum iandsins hlýtur að
verða ákaflega misjöfn. Eru ein-
hverjir staðlar á ykkar vegum sem
fólk getur miðað við þegar það
leitar eftir þjónustu bænda?
„Því miður er slíkur staðall ekki
fullbúinn en við höfum í vetur og
síðastliðið sumar verið að vinna
að honum og sú vinna er nú að
taka á sig nokkuð Ijósa mynd. Við
komum til með að byrja á staðli
sem tekur til uppbúinna rúma, þ.e.
þau tilfelli þar sem gist er inni á
heimilunum í uppbúnum rúmum.
Gæðaflokkarnir verða fjórir og þó
það sé ekki hægt að fara nánar út
í það í viðtali sem þessu þá mun-
um við í fyrsta lagi gera ákveðnar
lágmarkskröfur og síðan bæta við
ákveðnum atriðum i hverjum
flokki þar fyrir ofan.
Við leggjum mikla áherslu á
gæði rúmanna í þessari flokkun,
hreinlætisaðstöðu og fleira slikt.
Með þessu erum viö alls ekki að
steypa alla bæina í sama form,
heldur vonumst við til þess að
þetta geti orðið til þess að við-
skiptavinir viti nokkurn veginn að
hverju þeir ganga á hverjum bæ
fyrir sig hvað varðar lágmarksað-
stöðu. Þaö er svo þeirra aö veija
hversu góðan aðbúnað þeir kjósa."
Fjöldi sumarhúsa
„Auk þess sem bændur bjóða
upp á gistingu inni á heimilum er
mikið um sumarhús á þeirra veg-
um. Það er í bígerð að flokka þau
á svipaðan hátt og bæina sem er
bráðnauðsynlegt því þau eru jafn-
misjöfn og þau eru mörg.
Þessi gæðaflokkun er ekki síst
tilkomin vegna þess að allir eru
bessir staðir kvnntir undir sama
merki, þ.e. Ferðaþjónustu bænda,
og því brýnt að fóík geti haft ein-
hverja hugmynd um að hverju það
gengur. Við þekkjum dæmi um
það að fólk hefur gist á einhverj-
um þeirra bæja sem við kynnum
og orðið {yrir vonbrigðum. Það
hefur síöan dæmt alla aðra bæi á
sama hátt og prófar þá ekki. Við
höfum líka séð fólk gista í fyrsta
sinn á einhverjum þeirra bæja sem
skara langt fram úr öðrum og
verða síðan alltaf fyrir vonbrigð-
framh.
12% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
■ npRÍL - T% AUKAAFSLATTUR
FYRIR ELLItÍFEYRISÞEGA
Léttur aö morgni
eftir svefn í Regumatic
REGUMATIC er rúmbotn sem hver og einn REGUMATIC
stillir eftir sínum þörfum og dýna sem gefur ingu notandans.
hæfilega eftir.
REGUMATIC MIÐAST VIÐ
ÞÍNAR ÞARFIR.
aðlagast þunga og líkamsbygg-
Pétur Snæland, Skeifunni 8, sími 685588