Pressan - 05.04.1990, Side 22
22
Fimmtudagur 5. apríl 1990
*r
ÚTIVIST
Feröir um byggðir
og óbyggðir
Ferðafélagið Útivist var stofnað þann 23. mars 1975.
Markmið félagsins er að stuðla að útivist fólks í hollu og
óspilltu umhverfi, m.a; með því að skipuleggja úrval lengri
og skemmri ferða um ísland. Höfuðáhersla er lögð á útiveru
og gönguferðir og reynt er að halda akstri í lágmarki. Vegna
óstöðugs verðlags er ekki hægt að áætla verð ferðanna með
löngum fyrirvara. í Útivistarferðir eru allir velkomnir en fé-
lagsmenn í Útivist fá góðan afslátt af helgar- og sumarleyfis-
ferðum. Það nægir að einn fjölskyldumeðlimur sé í félaginu.
Hálft gjald greiðist fyrir börn 7—12 ára. Unglingar 13—15 ára
greiða 75% af fargjaldi, en hálft gjald ef þeir eru í fylgd með
foreldrum sínum. I dagsferðum er hins vegar sama verð fyrir
alla en frítt fyrir börn að 12 ára aldri í fylgd með fullorðnum.
Fararstjórar eru í öllum ferðum félagsins. Farþegar leggja
sjálfir til fæði og viðeigandi ferðaútbúnað.
Farmiðar í helgar- og sumarleyfisferðir eru seldir á skrif-
stofu Útivistar, Grófinni 1. Yfir vetrarmánuðina er skrifstof-
an opin frá kl. 12 til kl. 18 (okh— apríl), annars frá kl. 10 til
kl. 18. Símar 14606 og 23732. Áríðandi er að panta og taka
farmiða í helgarferðir daginn fyrir brottför og með viku
fyrirvara í sumarleyfisferðir og áramótaferð. I dagsferðir
þarf ekki að panta. Útivist tryggir hvorki farþega sína né
farangur þeirra. Brottför í Útivistarferðir er frá Umferðar-
miðstöðinni að vestanverðu (við bensínsölu) og í hjólreiða-
ferðir frá Árbæjarsafni nema annað verði auglýst.
Ferðir Útivistar eru ávallt auglýstar í smáauglýsingum
dagblaðanna og dagbókum fjölmiðla. Upplýsingar um
næstu ferðir er einnig að fá á skrifstofu og í símsvara 14606
utan skrifstofutíma.
Unglingadeild Útivistar
Þrettán til átján ára félagar í Útivist mynda unglingadeild
í umsjón eldri félaga. Markmið deildarinnar er að gefa félög-
um kost á góðum ferðum á góðu verði, kynnast landinu og
ferðamennsku, fræðast um ferðabúnað og undirbúning
ferða og að auka áhuga ungs fólks á útiveru og heilbrigðu
líferni. Unglingadeildin aðstoðar einnig félagið við ýmsar
ferðir og sérstök verkefni.
Raðferðir
Fyrir þremur árum tók Útivist upp raðferðir eða ferða-
syrpur í dagsferðum. Fyrsta ferðaröðin var „strandganga í
landnámi Ingólfs". Raðferðirnar hafa verið mjög vinsælar. í
þeim er t.d. mikið af nýjum gönguleiðum og þær hvetja fólk
til þess að drífa sig í göngur reglulega. í þessum ferðum gefst
einnig kostur á samfelldum fróðleik um stórt svæði.
Útivist í Básum
Útivist á tvo glæsilega gistiskála í Básum, Goðalandi.
Stærri skálinn rúmar 70 manns í svefnpokagistingu og sá
minni 25 manns. Rúmgott eldhús og borðsalur eru tengd
stóra skálanum. Öll nauðsynleg eldunaráhöld eru til staðar,
stórt yfirbyggt útigrill og er gistiaðstaðan eins og best gerist
í óbyggðum. Á staðnum er snyrtihús með vatnssalerni og
sturtum. Sambyggt því er vetrarsalerni.
Mögulegt er fyrir hópa og einstaklinga að fá gistingu eftir
því sem húsrými leyfir. Útivistarfélagar greiða lægra gisti-
gjald en aðrir og hafa forgangsrétt til gistingar. Gistingu þarf
að panta á skrifstofu félagsins.
í Básum eru einnig mörg góð tjaldstæði svo og í Strákagili
en þar hefur nýlega verið komið upp góðri salernisaðstöðu.
Skálaverðir eru í Básum yfir sumarmánuðina og sjá þeir
einnig um tjaldsvæðin.
Helgarferdir, dagsferdir og
sumarleyfisdvöl í Þórsmörk
Helgarferðir í Bása eru um hverja helgi frá maí og fram i
október. Dagsferðir eru á sunnudögum yfir sumarmánuðina
og einnig á miðvikudögum í júlí og ágúst og er brottför kl.
08.00. Þær eru ákjósanlegt tækifæri fyrir þá sem hafa tak-
markaðan tíma til að kynnast töfrum Þórsmerkur. Ferðir í
Þórsmörk eru á föstudögum, sunnudögum og miðvikudög-
um og sömu daga til baka. Umhverfi Bása er hlýlegt og skjól-
gott. Frá Útivistarskálunum í Básum liggja fjölbreyttar
gönguleiðir um Þórsmörk og Goðaland þar sem allir geta
fundið eitthvað viö sitt hæfi. Meðal gönguleiða má nefna
leiðir í Strákagil, Hvannárgil, að Álfakirkju, á Bólfell og í
Teigs- og Múlatungur sem eru áhugaverð svæði innst í Þórs-
mörk en með tilkomu göngubrúar yfir .Hrpnaá, sem Útivist
reisti fyrir þremur árum, opnuðust gönguleiðir í Tungurnar.
Þeir sem kjósa erfiðari göngur geta gengið á Réttarfell, Úti-
gönguhöfða og Morinsheiði. Göngur um Fimmvörðuháls er
tilvalið að hefja eða enda í Básum.
Útivist tekur að sér að skipuleggja ferðir fyrir sér-
hópa, sé þess óskað.
Utanlandsferðir
Útivist skipuleggur á hverju ári ferðir til útlanda fyrir fé-
lagsmenn og fjölskyldur þeirra í samvinnu við ferðafélög er-
lendis. Utanlandsferðir Útivistar 1990, sem verða á kostnað-
arverði, munu verða kynntar i fréttabréfi félagsins.
Útivist fyrir alla
Útivist auðveldar öllum að ferðast um byggðir og óbyggð-
ir. Félagsmenn fá afslátt af ferðum og hið vandaða ársrit Úti-
vistar. Meðal efnis ársrita Útivistar má nefna landslags- og
leiðalýsingar, ferðasögur og náttúrufræðigreinar. Um sextíu
litmyndir prýða hvert rit. Upplög fyrstu ritanna eru senn á
þrotum. Fólk er hvatt til þess að hafa samband við skrifstofu,
vilji það fá nánari upplýsingar um starfsemi félagsins og
ferðirnar. Útivist, Grófinni 1, símar: 14606 og 23732.
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR
JÓNASSONAR
Sumarferðir 1990
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar hf. hefur und-
anfarin ár verið með hálendisferðir um landið og svo er
einnig í ár. I þeim ferðum sem farnar eru á vegum
fyrirtækisins er innifalið m.a. fullt fæði og leiðsögn og fylgir
eldhúsbíll öllum hópum í hálendisferðum og ferð um
Vestfirði.
Helstu ferðir í sumar eru þessar:
GJ/41-48: Highland Odyssey
12 daga hálendisferð. Farið m.a. i Kverkfjöll, Öskju, Herðu-
breiðarlindir, Þórsmörk og Landmannalaugar.
Gist í tjöldum. Brottför alla mánudaga frá 25. jún,—13. ág.
GJ/51-59: Mountain Highlights
12 daga hálendis- og gönguferð. Farið um Norðurland til
baka yfir Sprengisand með viðkomu í Veiðivötnum og Land-
mannalaugum.
Gist í svefnpokaplássi í sæluhúsum og skólum. Brottför
annan hvern mánudag frá 25. jún,— 20. ág.
GJ/21-24: Adventure Photo Tour
— Ljósmyndaferd
7 daga Ijósmyndaferð með hinum kunna breska Ijósmynd-
ara David Oswin. Farið m.a. i Þórsmörk og Skaftafell.
Gist í tjöldum. Brottför fjórum sinnum í sumar.
GJ/31: Western Fjords Trail
— Vestfjarðaferð
6 daga ferð um Vestíiröi. Farið m.a. á Látrabjarg, Breiðu-
vík, ísafjörð og Drangsnes.
Gist í svefnpokaplássi í samkomuhúsum og skólum. Brott-
för þrisvar í júlí og ágúst.
GJ/30: Southern Countryside
7 daga hótelferð um Suðurland.
Gist á gistiheimilinu Mosfelli á Hellu, en farið í skoöunar-|
ferðir þaðan á hverjum degi, m.a. Gullfoss/Geysir, Land-
mannalaugar, Þórsmörk og um Suðurland. Brottför alla|
laugardaga í sumar.
Reykjavík — Sprengisandur — Mývatn
Brottför frá Reykjavík (BSÍ) miðvikudaga og laugardagal
en frá Mývatni fimmtudaga og sunnudaga í júlí og ágúst.
Innifalið er leiðsögn og nestispakki.
Einnig erum við með áætlunarferðir til Hólmavíkur ogl
Drangsness. Brottför frá BSÍ á þriöjudögum og föstudögum.
SÉRLEYFISHAFAR
Þjonusta um land allt\
Að ferðast með sérleyfisbifreiðum um ísland er bæði ódýr [
og þægilegur ferðamáti. Á síðastliðnu ári ferðaðist um hálf I
milljón farþega með sérleyfisbifreiðum á Islandi og ef far-1
þegar á sérleyfisleiðum Rvík-Hafnarfjörður og Rvík-Mos-I
fellsbæ eru meðtaldir notfærðu sér um 1,4 milljónir manna[
þjónustu sérleyfisbifreiða á árinu 1989.
Þetta þýðir að sérhver íslendingur notfærði sér sérleyfis-
bifreiðir að meðaltali 5,5 sinnum á síðastliðnu ári.
Þjóðvegakerfi okkar íslendinga er u.þ.b. 9.000 km og til I
viðbótar eru um 4.500 km hálendis- og fjallvegir eingöngu |
færir um sumartímann.
Sérleyfisleiðir á íslandi eru nú 42 og tengja saman og|
þjóna meira en 70 þorpum og kauptúnum víðsvegar um Is- [
land, enda eru sérleyfisleiðir samtals 6.575 km.
Sumarmánuðina júní, júlí og ágúst bjóða sérleyfishafar |
upp á meira en 16.500 brottfarir sérleyfisbifreiða og munu [
vagnar þeirra aka samtals 2.200.000 km, sem samsvarar lið-1
lega 1.300 sinnum umhverfis ísland eða rúmlega 54 sinnum [
umhverfis jörðina.
Auk sérleyfisaksturs bjóða sérleyfishafar upp á mikið úr-1
val af ýmiskonar sérferðum til áhugaverðra og skoðunar-|
verðra staða um land allt.
Af þessum ferðum má nefna:
Reykjavík — Sprengisandur — Akureyri
Akureyri — Kjölur — Reykjavík
Reykjavík — Sprengisandur —• Mývatn
Reykjavik — Fjallabak nyrðra — Landmannalaugar —
Skaftafell
Reykjavík — Þórsmörk
Vík í Mýrdal — Laki og Lakagígar
Egilsstaðir — Mjóifjörður
Egilsstaðir — Borgarfjörður eystra
Húsavík — Mývatn — Kverkfjöll
Akureyri — skoðunarferðir til Mývatns
Reykjavík -— ýmsar skoðunarferðir á Vestfirði s.s. Látra-|
bjarg o.fl.
Reykjavík — Snæfellsnes og Snæfellsjökull
ásamt fjölda af lengri tjcúdferðum og hótelferðum um landj
allt.
Um nokkurra ára skeið hafa sérleyfishcifar boðið upp á af-1
sláttarmiða til ferðalanga með sérleyfisbílum um land allt. [
HRING- OG TÍMAMIÐAR eru sífellt að verða vinsælli fyrir þá
sem kjósa að ferðast á eigin vegum um ísland á ódýran hátt.
Fyrir aðeins kr. 9.400 er hægt að ferðast hringinn um ísland
á eins löngum tíma og með eins mörgum viðkomustöðum
og ferðalangurinn kýs sjálfur. (Hringmiði.) Fyrir aðeins kr. [
11.000 er hægt að ferðast ótakmarkað með öllum sérleyfis-
bílum á Islandi í eina viku. Einnig er hægt að fá Tímamiða |
fyrir tvær, þrjár eða fjórar vikur.
Allar upplýsingar um þessa ferðamöguleika gefur Ferða-1
skrifstofa BSÍ, Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík, sími |
91-22300.
urn með það sem á eftir kemur.
Þó þessi flokkun sé eins og áður
sagði nauðsynleg eru samt sem
áður ákveðnir hlutir sem ekki er
hægt að setja í einhverja flokka og
þar áégtil dæmis við persónulega
þjónustu bændanna og þeirra
(ólks, landslagið umhverfis bæina
og sumarbústaðina, aðstöðu til af-
þreyingar og margt fleira."
Hvaða staðir á ykkar vegum eru
vinsælastir?
„Það er mjög erfitt að nefna ein-
hverja sérstaka bæi en það er Ijóst
að ákveöin landsvæði eru vinsællí
en önnur. Þar rná til dæmis nefna
Snæfelisnes, Skaftafell og Mý-
vatnssveit, en þessir staðir draga
að sér ferðarnenn út á rráttúrufeg-
urð auk margs annars. Önnur vin-
sæl landsvæði eru t.d. Borgar-
fjörður og Árnessýsla sem helgast
kannski að hluta til af nálægðinni
við höfuðborgarsvæðið.
Hins vegar reynum við líka að
hvetja fóik til að prófa staði ann-
ars staðar á landinu sem kannski
heilla ekki eins mikið vegna stað-
setningarinnar og fólk oft og tíð-
um þekkir hreinlega ekki, en eru
engu að síöur nrjög heiilandi. Þar
nægir t.d. að nefna stað eins og
Vatn á Höfðaströnd í Skagafirði
sem mörgutn finnst vera ur altara-
leið en þeir sem fást til að fara
þangað einu sinni fara þangað aft-
ur og aftur, enda nú svo komið að
þau anna varla eftirspurn og svo
er urn fleiri staði. Það er því full
ástæöa til að hvetja fólk til aö
vikka sjóndeildarhringinn."
Er þetta gistimáti sem stendur
fólki einungis til boða yfir hásum-
arið?
„Nei, alls ekki, þó það virðist
vera nokkuð útbreiddur misskiln-
ingur. Flestir þeir staðir sem við
bjóðum upp á eru opnir alit árið
og það hefur reyndar aukist mjög
að undanförnu að fólk leiti i sveit-
ina að vetrarlagi til afslöppunar og
útiveru. Mörgum finnst þetta vera
besti kosturinn í páskafríinu en
þessi árstími er nú reyndar þannig
að mörgum finnst erfitt að ákveða
með nokkrum fyrirvara hvort og
hvert þeir vilja fara og ekki síst
vegna brigðullar veðráttu.
Ég er sannfærð urn að allir eiga
að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi hjá okkur og þó að sumar-
húsin virðist frekar heilla íslend-
inga og heimagistingin útlendínga
þá er hvort tveggja fýsilegur kost-
ur. Það sem við vildum kannski
helst fá íslendinga til að gefa meiri
gaum en hingað til eru hestaferðir
sem taka nokkra daga og margir
bændur skipuleggja og fara rneð
sínu fólki. Það er ekki erfitt að
ímynda sér hversu gott ferðalag
það gæti orðið, að ferðast á hest-
baki urn byggð jafnt sem óbyggö,
ásamt skemmtilegu fólki, íslend-
ingum og útlendingum. Þetta er
enda ferðamáti sem útlendingar
sækja mjög mikið í og ætti að
höfða jafnt til okkar. í slíkar ferðir
væri svo ekki úr vegi að taka með
sér veiðistöng, en ein þeirra nýj-
unga sem við kynnum í ár er ieiga
á slíkum tólum fyrir þá sem ekki
höfðu upphaflega t hyggju að fara
í veiði en dettur það svo í hug þeg-
ar á staðinn er komið."