Pressan - 05.04.1990, Blaðsíða 24
OOOf lnn<- P ■»! tnrjl
nmí3
24
FERÐAFÉLAG
ISLANDS
Ferdaáœtlun 1990
Ferðafélag íslands var stofnad 27. nóv 1927.
í lögum félagsins 2. gr. segir svo:
„Tilgangur félagsins er að stuðla að ferðalögum á íslandi
og greiða fyrir þeim.“
Tilgangi sínum leitast félagið við að ná, m.a. með því að
vekja áhuga landsmanna á ferðalögum um landið og gefa út
ferða- og landlýsingar (árbækurnar). Ennfremur með því að
kynna mönnum jarðfræði landsins, jurta- og dýralíf og sögu
merkra staða. í ferðaáætlun Ferðafélags Islands fyrir árið
1990 eru upplýsingar um dags- og kvöldferðir, helgarferðir
og sumarleyfisferðir.
í ferðum félagsins er gist í sæluhúsum, öðrum húsum eða
tjöldum. Farþegar sjá sjálfir um nesti og annan útbúnað.
Ferðafélögin áskilja sér rétt til að breyta ferðum, bæta við
eða fella niður ef betur þykir henta.
} Ferðir FÍ. eru ávallt auglýstar í smáauglýsingum (félagslífi)
Morgunblaðsins og dagbókum hinna dagblaðanna og er fólk
hvatt til að fylgjast með þeim auglýsingum. Sérstakur fjöl-
Iskylduafsláttur er veittur. Börn 7—12 ára greiða hálft gjald,
og 13—15 ára unglingar 75% af gjaldi, en hálft gjald ef þeir
eru í fylgd með foreldrum sínum.
í dagsferðum (undantekning Þórsmörk og Landmanna-
laugar) er frítt fyrir börn og unglinga, 15 ára og yngri, í fylgd
með foreldrum sínum.
Ferðafélag íslands tryggir hvorki farþega sína né farangur
þeirra.
Nauðsynlegt er að panta tímanlega í helgar- og lengri ferð-
ir. í dagsferðir þarf ekki að panta (undantekning Þórsmörk
og Landmannalaugar).
FERÐAFÓLK á vegum F.í. og deilda þess gengur fyr-
ir með gistingu í sæluhúsum F.í.
Þeim sem ekki eru á vegum F.í. er vinsamlegast bent á að
hafa samband við skrifstofuna Öldugötu 3, Reykjavík, til
þess að fá gistileyfi og þar með forðast óþægindi.
Helgarferðir
Þórsmerkurferðir eru um hverja helgi frá 25. maí—12.
október. Gist er í Skagfjörðsskála í Langadal, en þar er gisti-
aðstaðan ein sú besta í óbyggðum.
Dagsferðir eru til Þórsmerkur á sunnudögum og
miðvikudögum í júlí og ágúst. Ferðir í sæluhús Ferðafé-
lagsins í Landmannalaugum og á Hveravöllum hefjast um
leið og fjallvegir opnast. Miðvikudagsferðir verða í Land-
mannalaugar í júlí.
Sumardvöl: Odýrasta sumarleyfi sem býðst er sumardvöl
á ofangreindum stöðum. Þá er dvalið á milli ferða og ræðst
dvalarlengd af eigin óskum.
Sumarleyfi í Þórsmörk
Enginn ætti að láta sumarfrí í Þórsmörk framhjá sér fara.
Skagfjörðsskáli er miðsvæðis í Þórsmörk með spennandi
gönguleiðum til ailra átta. Gistiaðstaðan þar er ein sú besta
í óbyggðum. Ferðir á föstudagskvöldum, sunnudags- og mið-,
vikudagsmorgnum.
Ódýrasta sumarleyfi sem býðst. -
FERÐA-
ÞJÓNUSTA
BÆNDA
Hvað er það sem kemur upp í huga þinn þegar þú heyrir
Ferðaþjónustu bænda nefnda?
Sérðu þá kannski fyrir þér eingöngu gistingu inni á sveita-
heimilum?
Ef svo er þá skaltu ekki hætta að lesa núna því að Ferða-
þjónusta bænda stendur fyrir margt fleira.
Fimmtudagur 5. apríl 1990
Gisting:
Gisting í herbergjum, inni á sveitabæjum.
Gisting í herbergjum, í sérstökum húsum.
Leiga sumarbústaða.
Máltíðir:
Morgunverður.
Hádegisveröur, kvöldverður, nestispakkar.
Eldunaraðstaða.
Afþreying:
Hestaferðir: stuttar: 1—2ja klst.—1 dags.
langar: 1—14 dagar.
Veiði: Silungsveiði er í meirihluta.
Þar að auki: Laxveiöi, sjóstangaveiði
o.s.frv. Bátsferðir, jöklaferðir, ganga, berjatínsla . . .
Feröaþjónusta á vegum bænda er í boði á u.þ.b. 120 stöð-
um um allt land og eins og sést á undanfarandi upptalningu
ættu flestir aö geta fundið eitthvaö við sitt hæfi. Fyrir frekari
upplýsingar er bent á bækling Ferðaþjónustu bænda. Þar er
aö finna upplýsingar um þá þjónustu sem boðin er á hverjum
bæ.
Veidiflakkarinn/Veidistangaleiga
Veiöiflakkarinn er sölu og upplýsingakerfi um silungsveiöi
á íslandi. Um er að ræða upplýsingabækling þar sem er að
finna kort og allar helstu upplýsingar um 127 veiðisvæði um
allt land. Silungsveiöi er í meirihluta, en einnig er um að
ræða blandaöa silungs- og laxveiði. Næsta sumar veröur
bryddað á þeirri nýbreytni að leigöar veröa veiðistangir á að
minnsta kosti 15 stöðum á landinu. Oft eru þessir staðir líka
í Veiðiflakkaranum og því auðvelt fyrir fólk að komast í sil-
ungsveiði á ferð sinni um landið.
Hestaferði,r
Áhugi fyrir Hestum og hestamennsku hefur stóraukist síð-
astliðin ár. Mikið úrval hestaferða er í boði á 44 stöðum á
landinu. Víða er hægt að komast í stutta reiðtúra án mikils
fyrirvara, en einnig er vert að hugleiða allar þær lengri ferö-
ir sem i boði eru í öllum landshlutum.
Sem dæmi má nefna 10 daga ferö sem farin er úr Miöfiröi,
yfir Arnarvatnsheiði, í Húsafell og aðra leið til baka í Miö-
fjöröinn. Annað dæmi er 6 daga ferð um Eyjafjöllin, í Þórs-
mörk og Mýrdal. Leiöirnar eru mismunandi en tilfinninguna
um tengsl við hrossin og náttúruna eiga þær sameiginlega.
Lengri hestaferöirnar hafa aðallega útlendingar nýtt sér
síöastliðin ár, en þetta er ferðamöguleiki sem íslendingar
ættu tvímælalaust aö nýta sér í meira mæli.
JÖKUFWIL SILUNGSVEIM OG ÆTTARMÓT
Kjartan Lárusson veitir Ferðaskrifstofu ís-
lands, sem áður hét Ferðaskrifstofa ríkisins, for-
stöðu og varð hann fyrir svörum þegar blaða-
maður PRESSUNNAR spurðist fyrir ura helstu
möguleika til ferðalaga innanlands, í tengslum
við starfsemi þeirrar skrifstofu.
OLIEIH AR
Jón Bergmann sýnir olíu- og krítarmyndir
Opið alla daga
12.00-15.00 og 18.00-01.00
föstudaga og laugardaga til 03.00
MATUR, ÖL
OG LIFANDI TÓNLIST
Ómar og Pétur halda uppi fjörinu
FRÁ FIMMTUDEGl TIL SUNNUDAGS
„Þótt Ferðaskrifstofa fslands sé
ungt fyrirtæki sem slíkt þá byggir
hún á traustum grunni, um það bil
hálftar aldar reynsiu af þjónustu
við ferðamenn á ferðum þeirra
um ísland. Skrifstofan annast
rekstur Eddu-hótelanna og reynd-
ar nokkurra annarra hótela einn-
ig, þá oft í samvinnu við aðra að-
ila.
Við teljum okkur hafa ákveðinni
þjónustuskyldu að gegna gagn-
vart viöskiptavinum okkar og ger-
um okkur Ijósa grein fyrir nauð-
syn á nýjungum og því að betrum-
bæta það sem eldra er. Skilningur
okkar er sá að okkur beri að veita
hinum dæmigerða íslendingi,
hvort sem hann ferðast einn eða í
fylgd með öðrum, aukna afþrey-
ingu á þeim stöðum sem hann kýs
að dvelja á hverju sinni. Þess
vegna erum við í auknum mæli að
bjóða upp á aðstöðu til ýmiss konar
íþróttaiðkana og má þar t.d. nefna
badminton, blak, golf, hesta-
mennsku, silungsveiði, hjólreiðar
og margt fleira. Með þessu teljum
við okkur vera að mæta síaukinni
þörf viðskiptavina okkar.
Veðrið hér hefur líka alltaf áhrif
og þó við séum ekki svo bjartsýn
að telja það í okkar valdi að breyta
því, þá reynum við að bregðast við
því með ýmsum hætti t.d. með því
að bjóða gestum okkar upp á
íþróttasali þar sem slík aðstaða er
fyrir hendi og er þá hægt að
stunda þar ýmsar íþróttir auk þess
sem fólk getur teflt, spilað og fleira
og við tökum þátt í því að láta fólk-
inu líða vel. Með þessu erum við
að reyna að gæða Edduna meiri
afþreyingarmöguleikum."
Ungt fólk og gamalt
„Auk þess að leggja svo mikla
áherslu á aukna afþreyingar-
möguleika almennra viðskipta-
vina leggjum við mikið upp úr
þjónustu við eldri borgara.
Það má eiginlega segja að þaö
séu einkum tveir hópar fólks sem
enn kunna að meta þann ferða-
máta að ferðast um með lang-
ferðabílum, sem er þó tvimæla-
laust mjög þægilegt. Þarna er ann-
ars vegar um að ræða æsku lands-
ins sem er þá oft og tíðum á leið á
útihátíðir og annað slíkt og hins
vegar eldri borgara.
Eldra fólk nýtur þess í auknum
mæli að ferðast í skipulögðum
ferðum um sveitir landsins en í
slíkum ferðum leggjum við
áherslu á góða bílstjóra og leið-
sögumenn. Þessar ferðir eru allt í
senn; þægilegar, skemmtilegar og
síðast en ekki síst stórfróðlegar.
Þær hafa enda notið mikilla vin-
sælda, ekki síst vegna þess að þær
eru sérsniðnar að þörfum og ósk-
um eldra fólks."
Sértilboð á gistingu
„Eins og áður komum við til
með að bjóða upp á sértilboð á
gistingu á Edduhótelunum og í ár
verður því þannig háttað að fólk
getur keypt fjórar gistinætur á sér-
stöku afsláttarverði, hvort sem er
á sama hóteiinu eða ferðast milli
fjögurra hótela. Þetta tilboð mun
gilda í júnímánuði og í lok ágúst
og verðinu verður stillt í hóf.“
17 Eddnr nm allt land
„Það er allt útlit fyrir að
Eddu-hótelin verði 17 tajsins í ár,
vítt og breitt um landið. Öll verða
þau með sama verð á gistingu og
svipaða þjónustu, þó auðvitað sé
hún svolítið mismunandi eins og
gefur að skilja. Hvaða hótei þetta
verða vil ég ekki segja til um að
svo stöddu, en árlegur bæklingur
okkar kemur væntanlega út í
næsta mánuði og þar sést hver
hótelin verða og hvað gistingin
kemur til með að kosta.“
Kynnnm aðra ferða-
þjónnstumögnleika
„í ár mun Ferðaskrifstofa ís-
lands beita sér í auknum mæli fyr-
ir kynningu á ýmiss konar ferða-
þjónustu sem tengist þjónustu
okkar, án þess þó að vera á okkar
vegum. Þar á ég til dæmis viö
ferjuferðir, jöklaferðir, ýmsar
stuttar flugferðir, nýja möguleika
hvað varðar fjölskyIduveiöi, þ.e.
fjölskyldan sameinast um veiði-
íþróttina, við kynnum hugsanlega
ævintýraferðir niður stórár lands-
ins á þar til gerðum prömmum,
bátsferöir allskonar, t.d. inn í helli
í Vestmannaeyjum og fleiri ferðir
kringum eyjarnar, gönguferðir t.d.
á Hornstrandir eru á stefnu-
skránni, sjósleðaferðir (Jet-ski),
seglbretti og sjóstangaveiði, svo
eitthvað sé nefnt."
Reynsla af ættarmótnm
„Á undanförnum árum hefur
það færst mjög í vöxt að fólk hópi
sig saman og haidi ættarmót hér
og þar um landið og hefur þá
gjarnan verið dvalið á Eddu-hótel-
um. Þess vegna höfum við nú öðl-
ast talsverða reynslu í þjónustu við
það fólk sem slík mót heldur og
munum í sumar halda áfram að
veita þessum hópum sérstaka að-
stoð. Starfsfólk okkar hefur veru-
lega reynslu af slíkri þjónustu og
þá um leið reynslu af hinum ýmsu
ættum þessa lands!" _
Finnst þér áhugi íslendinga á
eigin landi vera að aukast?
„Á þeim 15—20 árum sem ég
hef verið viðloðandi þetta starf
hefur mér fundist áhuginn vera að
aukast jafnt og þétt, þó kannski
sérstaklega undanfarin 5 ár. Það
hafa líka ýmsar breytingar orðið á