Pressan - 05.04.1990, Síða 29
Fim'mtudagur 5. apríl 1990
spáiii
5. — 10. apríl
(21. murs—20. upril)
Hugkvæmni þín veröur í sviðsljósinu þessa
vikuna og skiptir miklu að beita henni
ákveðið og rétt. Náinn ættingi mun veita
mikilvægar upplýsingar varðandi fjármál,
ellegar þá peningagjöf. Þú munt sömuleiðis
fá mikilvægar upplýsingar yfir málsverði,
upplýsingar sem kannski láta lítið yfir sér en
eru þeim mun veigameiri.
(21. upríl—20. mui)
Þú munt risa upp til sigurs eftir slæman
ósigur. Þeim sem héldu að þeir hefðu fest
þig í gildru sinni verður ekki kápan úr því
klæðinu eins og til stóð. Þú skalt halda upp
á þetta með því að játa boði i samkvæmi
sem þig hefði ef til vill ekki fýst að fara i fyrir
nokkru.
/21. mui—21. júni)
Einhver óeining kemur upp á borðið innan
fjölskyldunnar. Nokkuðóvænt kannski og sá
sem veldur henni verður ekki i náðinni hjá
mörgum fjölskyldumeðlimum. Það er hins-
vegar kannski ekki réttlátt og þú skalt gæta
þín á því að dæma menn ekki of hart, né
heldur á ósanngjörnum forsendum.
(22. júní—22. júli)
Bróðir þinn eða systir mun leika stórt hlut-
verk i lífi þínu næstu vikuna ef að líkum læt-
ur. Einhverskonar ferðalag mun þar spila
stóra rullu ef allt gengur eftir, það getur
bæði verið að þú þurfir i ferðalag eða að
systkin muni leggja í ferðalag eða koma
heim úr sliku.
(23. júlí—22. úgúsl)
Það verða breytingar á lifsstíl þinum á næst-
unni, ef til vill ættirðu að huga að því að
breyta einhverju á heimilinu, kaupa eitthvað
nýtt. Þetta getur átt við á mörgum sviðum
— ef þig fýsir að kaupa einhvern hlut skaltu
huga að langtímaverðgildi hans.
(23. úgúst—23. sept.)
Það er skolli líklegt að þú verðir á réttum
stað á réttri stundu þegar liður á vikuna. Ekki
er annað að sjá en að það geti leitt af sér
gæfu og gott gengi. Þetta er því miður erfitt
að skilgreina nánar, hér getur verið um pen-
ingamál að ræða, en rómantík eða vinátta
kemur líka vel til greina.
(23. sept.—24 ukt.)
Það sem þér kann að virðast ákveðið bak-
slag i verkefni sem þú vinnur að reynist
sennilega aðeins vera lítilsháttar töf. Þú hef-
ur komið ár þinni vel fyrir borð á undan-
gengnum dögum og vikum og þetta getur
valdið þvi að fólk mun leita til þín með úr-
lausn ýmissa mála. Kulnuð ást mun að lík-
indum glæðast á ný.
m (24. okt.—22. nóu.)
Þér mun takast að Ijúka þvi sem þú hefur
tekið þér fyrir hendur og það léttir að sjálf-
sögðu álagið. Það er mikilvægt að nýta þann
tima sem verður aflögu í eitthvað sem ekki
getur talist hversdagslegt, ellegar þá í eitt-
hvað sem ekki gleymist og fyrnist yfir þegar
í stað. Kannski stutt ferðalag með ástvini
gæti gert það.
(23. nóu.—21. des.)
Þérfinnst þú hafa höndlað sannleikann. Ef til
vill er það rétt að einhverju leyti, í það
minnsta stendurðu styrkar en áður, bæði á
fjármálasviðinu og tilfinningasviðinu. Það
síðarnefnda er ekki síður mikilvægt. Þú skalt
skoða vel tilboð sem þú færð, ekki afskrifa
það strax sem svo óvenjulegt að það geti
aldrei hentað þér. Þú ert meiri ævintýramað-
ur en þú hafðir haldið
(22. des —20. jan.)
Stundum verður þörfin fyrir að komast i
burtu, bara eitthvert, svo sterk að ekkert
annað kemst að. Það sem ef til vill hefur
heillað þig áðurfinnst þér nú vera hreint öm-
urlegt. Ef til vill gæti verið gott fyrir þig að
kalla á aðstoð þeirra sem búa lengra í burtu.
Ef það dugar ekki venðurðu að skoða hug
þinn nánar. Eru það verkefnin sem eru
ómöguleg — ert það þú sjálfur?
(21. junúur—19 íebrúur)
Leitin að sannleika, réttlæti og friði er löng
og ströng. Þú viít skýringar og lausnir en
sýnir ef til vill fullmikla óþolinmæði. Róm var
ekki byggð á einum degi og þú verður að
reyna, þó erfitt sé, að setja þig í spor þeirra
sem þér þykir hafa aðrar skoðanir á þessum
þremur atriðum en þú hefur. Skoðanamun-
ur þarf ekki að vera neikvæður.
(20. febrúar—20 mars)
Þú getur hreinsað borðið i þessari viku, klár-
að smáverkefni sem þú hefur ekki alveg
gengið frá og látið til hliðar. En til þess að
þetta gangi þarftu einbeitingu og mátt ekki
láta allskyns hluti draga úr þessari einbeit-
ingu. Mundu að öll verkefni eru í sjálfu sér
jafnrétthá og þurfa öll alúð og nærgætni við
vinnslu svo vel fari.
29
i framhjqhlaupi
Skúli Alexandersson
alþingismaöur
bæði
„Puðiö
testur og
galli"
— Hvaða persóna hefur haft
mest áhrif á þig?
„Ætli það séu ekki foreldrar
mínir, þau höfðu einhliða góð
áhrif á mig. Ég vil líka nefna Ár-
mann Friðriksson, fv. skipstjóra,
sem ég var háseti hjá um nokk-
urt skeið. Viðkynni okkar voru
mjög góð eins og hvernig hann
stjórnaði sínum mannskap og
skipi, Helgunni RE-49. Hann var
aldrei með stóryrði þótt eitthvað
misfærist hjá okkur, það stærsta
sem ég heyrði hann segja var
„ansvítans ári"."
— Án hvers gætir þú síst ver-
ið, þ.e. fyrir utan mat, drykk og
súrefni?
„Fjölskyldunnar. Og svo nefni
ég útivist og samband við sjóinn
og fiskvinnsluna. Ég fæ mér allt-
af góða göngutúra af og til og fer
eins oft og ég get um Snæfells-
nesið."
— Hvað finnst þér leiðinleg-
ast að gera?
„Ef ég segði nú allan sannleik-
ann um það! En mér þykir voða-
lega leiðinlegt á sfundum að
sitja hér á þinginu undir ákveðn-
um ræðum."
— Hvað er þá skemmtilegast
að gera?
„Að vera með fjölskyldunni og
vera í góðum hópi. Og að vera
úti í náttúrunni."
— Hvaða eiginleiki finnst þér
eftirsóknarverðastur í fari
fólks?
„Það er heiðarleiki, númer eitt,
tvö og þrjú."
— Við hvaða aðstæður líður
þér best?
„Það er þegar ég hef nóg að
gera, en þó ekki of mikið þannig
að ég finni fyrir tímahraki."
— Getur þú nefnt einn kost
þinn og einn galla?
„Þar fór í verra. Sjálfsagt er
stærsti ókostur minn sá, að ég
þarf alltaf að vera að puða eitt-
hvað, það kemur kannski stund-
um illa við þá sem eru í kringum
mig. Á hinn bóginn get ég til-
nefnt puðið sem minn helsta
kost!"
— Hvað fer mest í taugarnar
á þér i fari þeirra, sem þú átt
samskipti við?
„Ef þeir eru ekki hreinir og
beinir."
— Ertu hræddur við eitthvað
sérstakt?
„Það er ekki mikið. En ef ég er
í bíl hjá öðrum vil ég hafa góðan
og öruggan bílstjóra og eins
þegar ég fer í flugvél; ég vil hafa
sterka tilfinningu fyrir því að
vera með góðum mönnum þar."
— Hver er eftirlætisbílteg-
undin þín?
„Það er Audi."
— Hver er eftirlætismaturinn
þinn?
„Ætli það sé ekki vel steiktur
og vel frágenginn lambahrygg-
ur."
— Hvert er uppáhaldsfélag
þitt í íþróttum?
„Þú mátt eiginlega ekki spyrja
mig að þessu. En, jú, vitaskuld
eru það Skagamennirnir."
— Hvaða hugmyndir gerir þú
þér um lífið eftir dauðann?
„Ég vil ekki hafna neinu, en
geri engar sérstakar ráðstafanir.
Ég met íslensku kirkjuna mikils,
ekki endilega trúna, heldur kirkj-
una."
í þessari viku:
MBG
(karl fæddur 17.8. '36)
Þetta ersterkleg hönd og bend-
ir til að maðurinn fari ótroðnar
slóðir. Hann er svolítið viðkvæmur
og mjög tilfinningaríkur maður og
hefur kannski látið tilfinningarnar
stjórna sér um of. Það hafa orðið
miklar breytingar í lífi hans um 40
til 45 ára aldur. Á næstu árum get-
ur hann líka búist við breytingum
tengdum starfi, en þær eru alls
ekki neikvæðar þegarfram í sækir.
Hann hefur þurft að þræla tölu-
vert um ævina, en nú verður hann
að hugsa betur um heilsuna og
gæta þess að ofkeyra sig ekki.
Þetta tengist ef til vill æðakerfinu.
Einnig gæti hann þjáðst af nær-
sýni eða sjónskekkju og haft
ákveðna tilhneigingu til þung-
lyndis.
„ALEXANDRA" fd. 18.08. 1969:
Sendu betri Ijósrit af lófanum þín-
um og skrifaðu „frá Alexöndru"
aftan á umslagið.
VILTU LÁTA LESA
ÚR ÞÍNUM LÓFA?
Sendu þá TVÖ GÓÐ LJÓSRIT af
hægri lófa (örvhentir Ijósriti
þann vinstri) og skrifaðu eitt-
hvert lykilorð aftan á blöðin,
ásamt upplýsingum um kyn og
fæðingardag. Utanáskrift:
PRESSAN — lófalestur, Ármúla
36, 108 Reykjavík.
draumar
Draumfegurd
Oft er orðið draumfegurð notað efnum. Systir mín stóð hjá mér í
um ójarðneska fegurð, fögur ljóð
eða tóna — fagrar heyrði ég raddirn-
ar úr Niflungaheim. Það mun þó
sannast að mikil fegurð í draumi er
sjaldan fyrir veraldiegum ávinningi,
en stundum fyrir erfiðri lífsreynslu
eða dánarfregn. Stundum einnig
fyrir lífsleiða dreymandans. Stúlku,
sem ég þekki vel, dreymdi þegar
hún var unglingur að hún væri á
ferð eftir miklum gljúfrum. Gljúfrin
voru ákaflega fögur svo hún hafði
ekki séð slíka náttúrufegurð neins
staðar í vökunni. En mjög brött og
erfið yfirferðar, víða háir hamrar,
miklir fossar og einstigi sem henni
þóttu næstum ófær en varð þó að
klifra yfir. Stúlkuna dreymdi þennan
draum oft. Stundum vaknaði hún
þegar hún þóttist komin í sjálfheldu
eða að því komin að hrapa í hömr-
unum. Nú virðist okkur að þarna
hafi hana verið að dreyma fyrir lífs-
hlaupi sínu, sem vissulega hefur oft
líkst ferðinni um gljúfrin.
Að dreyma fagurt sólarlag er sagt
boða mannslát. Fagrar borgir eða
hallir í draumum tákna oft ævi
dreymandans eða hluta af henni.
Mig dreymdi eitt sinn að ég horfði
fram eftir dal sem ég átti þá heima
í. Nú held ég að dalurinn tengist lífs-
leið minni. Nema þegar ég lít fram
dalinn þykir mér vera þar stór borg,
ólýsanlega fögur. Mér þótti þetta
vera í ljósaskiptunum. Borgin var öll
upplýst og lék um hana fjólublár
bjarmi. Ég veit ekki hvenær ég kem
að þessari draumaborg en ég tengi
hana meiri þekkingu á dulrænum
draumnum en hún er mjög dulræn.
Sá möguleiki er líka fyrir hendi að
mér hafi verið sýnd álfaborg. Álfar
eru gamlir og nýir draumavinir ís-
lendinga og hjá þeim kvað vera
mikil fegurð.
Fagur gróður er jákvæður í
draumi eins og við höfum áður
nefnt. Mjög fagurt og svipfallegt fólk
er góðs viti í draumi, einkum börn,
sér í lagi ef það hefur sítt og fagurt
hár. Fegurð innan húss er líka góð,
einkum ef maður þykist eiga húsið.
Fagurt landslag í snjó bendir til þess
að dreymanda hlotnist hjálp í örð-
ugleikum. Að dreyma að maður
heimsæki skáld eða listamann í fag-
urt og skrautlegt hús er fyrir andleg-
um árangri. Bláar og fjólubláar
skreytingar eru sérlega góðar t
draumum, þær tengjast þroska-
brautinni. Regnbogi er svipaðrar
merkingar. Draumfegurðin virðist
þannig vera einu lagi ofar í tilver-
unni en við sjálf.
STEINUNrt
EYJÓLFSDÓTTIR