Pressan - 05.04.1990, Blaðsíða 31
y-.‘-’ i v '
Fimmtudagur 5. apríl 1990
■jLmaLmUmLJLméLm!
5. apríl
Stöö 2 kl. 23.55
FÍFLDJÖRF
FJÁRÖFLUN **
(How to Beat the High Cost
of Living)
Bandarísk bíómynd
Gerd 1980
Leikstjóri Robert Scheere
Adalhlutuerk Susan Saint-James,
Jane Curtin, Jessica Lange, Ri-
chard Benjamin, Dabney Coleman
Fjallar um þrjár konur sem reyna að
ná niður kostnaðinum við heimilis-
haldið með heldur vafasömum að-
ferðum. Á rölti um stórmarkað sjá
þær sparibauk sem er eins og bolti
í laginu. Þá kviknar hugmynd og
um þá hugmynd snýst myndin en
það er kannski bara ekki nógu góð
hugmynd. í það minnsta er myndin
talin afspyrnuléleg, helst vekur hún
athygli fyrir að í henni leikur ein
fremsta leikkona Bandaríkjanna í
dag, Jessica Lange, en hún hóf ein-
mitt feril sinn í kvikmyndum á því
ári sem þessi mynd var gerð. Lægsta
einkunn.
og ræður þar lögum og lofum. Lítt
er um þessa mynd vitað, en Ástralir
eru þekktir að mjög þokkalegu efni
seinni árin.
Stöö 2 kl. 00.35
DVERGADANS*•
(Dance of the Dwarfs)
Bandarísk bíómynd
Gerd 1983
Leikstjóri Gus Trikonis
Adalhlutverk Peter Fonda, De-
bornh Raffin, John Amos
Myndin fjallar um mannfræðing,
konu, sem heldur inn í frumskóginn
til að leita annarsvegar að prófess-
ornum sínum, hinsvegar að fá-
mennum ættflokki skógarbúa. Hún
lendir í slagtogi við þyrluflugmann
sem er kærulaus fyllibytta og allir
geta víst ímyndað sér hvernig þetta
endar. Þetta er heimskuleg mynd
hvernig sem á það er litið; á meðan
leikararnir rekast á furðulegustu
verur í frumskóginum uppgötva
áhorfendur hvað orðið leiðindi get-
ur haft sterka merkingu. Lægsta
einkunn.
LAU6ARDAGUR
7. apríl
i ki
6. apríl
Stöö 2 kl. 22.10
LAUMUFARÞEGITIL
TUNGLSINS ***
(Stowaway to the Moon)
Bandarísk sjónvarpsmynd
Gerd 1974
Leikstjóri Andrew V. McLaglen
Adalhlutverk Lloyd Bridgés, Jer-
emy Slate, Morgan Pauli
Dreng nokkrum, ellefu ára gömlum,
tekst að uppfylla draum sinn til
nokkurra ára þegar hann smyglar
sér inn í geimfar sem á að fara að
skjóta á loft. Drengnum er illa tekið
í fyrstu en í Ijós kemur að hann hef-
ur ráð undir rifi hverju. Þetta er fjöl-
skyldumynd og þykir fyrir ofan
meðallag. Góðlegt ævintýr.
Sjónvarpiö kl. 22.55
BRÖGÐ í TAFLI
(Barracuda)
Áströlsk sjónvarpsmynd
Gerö 1987
Leikstjóri Pinc Armenta
Aðalhlutverk Dennis Miller, John
Bonney, Lisa Taylor, Roger Ward
Hér segir af lögreglumönnum sem
berjast hatrammri baráttu við að
hafa hendur í hári glæpagengis sem
hefur aðsetur við höfnina í Sydney
Stöö 2 kl. 21.00
FULLNÆGJA **/2
(Fulfilment of Mary Gray)
Bandarisk sjónvarpsmynd
Gerö 1988
Leikstjóri Piers Haggard
Adalhlutverk Cheryl Ladd, Ted Le-
vine, Lewis Smith
Myndin fjallar um konu um alda-
mótin síðustu sem stendur frammi
fyrir afdrifaríkri ákvörðun, þegar
hún verður ástfangin af bróður eig-
inmanns síns og veit um leið að
hann getur getið við henni barn
sem eiginmaðurinn getur gre.inilega
ekki. Þetta er hinn sígildi ásfarþrí-
hyrningur sem hér um ræðir 'og
tekst að leysa úr honum- í venju-
bundnu meðallagi. ....
Sjónvarpiö kl. 23.25
LÚLLILÚÐI ★★★Vi
(Loulou)
Frönsk bíómynd
Gerd 1980
Leikstjóri Maurice Pialat
Adalhlutverk Isabelle Huppert,
Gérard Depardieu
Tvær af stærstu stjörnum Frakka á
hvíta tjaldinu fara á kostum í þessari
mynd sem segir af stúlku af góðum
ættum sem verður ástfangin af
manni sem lifir í undirheimum Par-
ísarborgar og er utangarðs á alla
kanta í lífinu. Þau leika frábærlega
og ástin er ógnarheit á milli þeirra í
myndinni, svo heit að tjaldið logaði
fannst sumum þegar myndin fyrst
var sýnd. Kynæsandi mynd að því
er sagt er. Fær næsthæstu einkunn.
Stöð 2 kl. 00.25
BÓFAHASAR**
(Johnny Dangerously)
Bandarísk bíómynd
Gerð 1984
Leikstjóri Amy Hackerling
Aðalhlutverk Michael Keaton, Joe
Piscope, Danny De Vito, Dom
DeLuise
Myndin er gamanmynd, a.m.k. á
hún að vera það. Hún gerist á bann-
árunum í Bandaríkjunum og fjallar
um Johnny þennan og baráttu hans
Sjónvarpið kl. 21.50
NÍUNDI B
0 B)
Kanadísk sjónvarpsmynd
Gerö 1986
Leikstjóri James Swan
Aðalhlutverk Robert Wisden,
Sheila McCarthy, Joanne Mclntyre,
Ron White
Ungur Englendingur er ráðinn
kennari við Fort Hamilton í Kanada.
Nemendur hans í 9 B eru ákaflega
uppreisnargjarnir og ýmislegt geng-
ur á en smám saman skapast traust
milli kennara og nemenda.
Stöð 2 kl. 22.30
ELSKUMST ***
(Let's Make Love)
Bandarísk bíómynd
Gerð 1960
Leikstjóri George Cukor
Aðalhlutverk Marilyn Monroe, Yv-
es Montand, Tony Randall
Yves Montand leikur milljónamær-
ing sem berst til eyrna að í leikhúsi
einu sé verið að setja upp verk þar
sem gert er gys að honum. Hann
hyggst reyna að stöðva uppfærsluna
en þegar hann mætir í leikhúsið
hittir hann Marilyn og ákveður frek-
ar að reyna að komast í leikhópinn.
Hann fær hlutverk og ræður ýmsa
kunna menn sér til aöstoðar, t.d.
Gene Keliy sem danskennara, Bing
Crosby sem söngkennara og Milton
Berle sem kennara í gamanleik.
Þetta þykir ágæt mynd, að minnsta
kosti valinn maður í hverju rúmi.
við að ná völdum í mafíunni. Mynd-
in er leikin eins og um sjónvarpsþátt
væri ræða, lítur reyndar öll út sem
slík og í staðinn fyrir handrit er hún
byggð í kringum einstaka brandara
sem hanga ekki saman og eru fæstir
fyndnir. Lægsta einkunn, en það
kemur varla neinum á óvart eftir
þessa upptalningu. Greinilegt að
Stöð 2 er að spara spilin fyrir páska-
dagskrána ef marka má dagskrá
helgarinnar.
8. apríl
Sjónvarpið kl. 14.35
ÓVEÐRIÐ
(The Tempest)
Breskt sjónvarpsleikrit eftir Willi-
am Shakespeare
Leikstjóri John Gorris
Aðalhlutverk Michael Horden, De-
rek Godfrey, David Waller, Warren
Clarke, Nigel Hawthorne
Uppfærsla BBC á þessu leikriti
Shakespeares hlýtur að heilla
marga, enda þykir það með ein-
dæmum hversu næmum höndum
breska sjónvarpið fer um mesta leik-
ritaskáld sögunnar fyrr og síðar.
Þarna eru og á ferð margir af bestu
leikurum Breta, nægir að nefna Mi-
chael Horden, sem hefur verið aðl-
aður fyrir framlag sitt til leiklistar-
innar, og Nigel Hawthorne, sem við
þekkjum úr þáttunum Já ráðherra
og fleirum.
Stöö 2 kl. 21.20
MENNIRNIR MÍNIR
ÞRÍR
(Strange Interlude)
Bandarísk sjónvarpsmynd
Gerð 1987
Leikstjóri Herbert Wise
Aðalhlutverk Edward Pether-
bridge, Jose Ferrer, Glenda Jack-
son, David Dukes
Framhaldsmynd í tveimur hlutum,
byggð á leikriti eftir þann þekkta
Eugene O’Neill. Myndin gerist í
Nýja-Englandi í Bandaríkjunum á
fyrri hluta aldarinnar og segir af
stúlkunni Nínu sem verður fyrir
hverju áfallinu á fætur ööru í ásta-
málum. Hún missir einn unnusta,
eignast annan og verður ófrísk þeg-
ar henni er tjáð að heppilegast sé
fyrir hana að eyða fóstri vegna geð-
veilu í ætt föðurins og svona má
lengi telja. Vissulega athyglisvert
efni, leikritið er mjög orðmargt og
spurningin er hvernig sjónvarpinu
tekst að vinna sviðsverkið yfir á
skjáinn. Þar getur álltaf brugðið til
beggja vona.
31
dagbókin
hennar
dúllu
Ég er alltaf að reyna að botna í því
af hverju fullorðið fólk hefur svona
svakalega gaman af að tala um ein-
hverjar galókunnugar manneskjur
úti í bæ, sem það þekkir ekki baun.
Amma á Einimelnum er nú til dæm-
is algjör sérfræðingur í svoleiðis, en
mamma getur líka verið ógeðsleg
kjaftakerling, þó hún reyni að kol-
þræta fyrir það í rauðan dauðann —
a.m.k. þegar amma heyrir til, vegna
þess að mamma er alltaf að hneyksl-
ast á Einimelsslúðurganginum þó
hún hafi ekkert efni á því. Meira að
segja pabbi getur smjattað rosalega
á alls konar kjaftasögum um fólk,
sem hann hefur afdrei augum litið!
Það er soldið mikið sama fólkið,
sem allar þessar sögur ganga út á.
Amma er mest í pólitíkusum og
konunum þeirra, en það er ekki
sama í hvaða flokki þeir eru. Hún
fær langmest út úr sögum um alla-
balla og framsóknarkalla, sem hafa
gert einhverjar gloríur. Og það er
sko toppurinn, ef þeir hafa stolið
peningum, farið í meðferð eða hald-
ið framhjá með einhverri af öllum
þessum 18 ára stelpum, sem virðast
vera í því að tæla ríka eða þekkta
kalla frá eiginkonum — sem eru
ótrúlega margar búnar að missa
brjóstið.
Amma hefur líka sjúklega góð
sambönd til að fylgjast með öllum
skandölunum. Hún þekkir bæði
konu, sem hjálpar til í eldhúsinu í
ráðherrabústaðnum, og aðra, sem
er þjónustustúlka í Rúgbrauðsgerð-
inni. Svo hún fær alltaf ferskar frétt-
ir af því hverjir eru farnir að drekka
of mikið, hverjir eru komnir í bind-
indi og hverjir fara heim í leigubíl
með hverjum og annað, sem kemur
sér vel að vita. Það getur náttúru-
lega stundum klikkað, eins og þegar
hún var orðin pottþétt á því að Guð-
rún Helgadóttir byggi með Páli Pét-
urssyni og ætti von á tvíburum. Það
varð obboslegt sjokk fyrir hana að
sjá svo barasta um daginn blaðavið-
tal við Pál með einhverja allt aðra
konu upp á arminn!
Mamma er hins vegar mest fyrir
tragedíur í minningargreinum
Moggans. Það má enginn undir
fimmtugu deyja, án þess að hún sé
búin að sjúga í sig hvert orð um það
hvernig manneskjan barðist hetju-
lega og brosti til fjölskyldunnar í
sjúkrarúminu og cúlt. Hún tekur sér-
staklega inn á sig sögur af ungum
konum, sem deyja frá mörgum litl-
um krökkum, og getur diskúterað
það endalaust við vinkonur sínar.
Þá verða þær voða daprar, stynja al-
veg í bak og fyrir og segja tíu sinn-
um 7—-9—13. (Rabbi harðbannar
mér að gera grín að þessu. Hann
segir að þetta sé bara af því mamma
og vinkonur hennar séu svo hrylli-
lega hræddar um að fá krabba-
mein.)
Pabbi fréttir sjálfur mest af spennó
sögum úr viðskiptalífinu, en þær
eru oftast algjört rugl. Ég man eftir
mörgum köllum, sem hann hefur
fullyrt að væru komnir í fangelsi fyr-
ir að fjármagna dópsölu, en ganga
enn lausir og liðugir. Svo eru aðrir,
sem eiga að hafa stolið helling af
peningum og stungið af til útlanda,
eni eru samt sallaróiegir í sinni vinnu
á íslandi.