Pressan - 05.04.1990, Síða 32
Þ
að gerist ekki á hverjum degi.
aö ritstjórar segi upp á Morgun-
blaðinu. Þó eru undantekningar frá
þeirri reglu, eins og mörgum öðr-
um, því nýveriö sagði Arni Þórar-
insson, ritstjóri sunnudags-
blaðsins, upp störfum. Ekki hefur
verið ákveðið hvenær hann hættir,
en væntanlega fer það eftir því hve
fljótt þeim Styrmi og Matthíasi
tekst að ráða mann í stað Arna . . .
^^yrir skemmstu fundaði biskup
Islands, herra Olafur Skúlason.
með nokkrum þingmönnum og
ræddi þann möguleika að verkefni
yrðu færð frá Þróunarsamvinnu-
stofnun íslands yfir til Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar. Biskup hef-
ur mikinn áhuga á að koma þessum
hreytingum á, en ríkið styrkir fyrr-
nefndu stofnunina með fjárveiting-
um, en ekki þá síðarnefndu . . .
^^yrir skemmstu tóku þær Jó-
hanna Harðardóttir, Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir og Bryn-
dís Schram við stjórn hádegisút-
varps á rás 2. Nú hefur Bryndís hins
vegar fært sig um set og tekiö að sér
viðtalsþáttinn Fyrirmyndarfólk
eitt kvöld í viku. Þær Jóhanna og
Ásta Ragnheiður verða hins vegar
áfram á sínum stað . . .
II er til meðferðar hjá jafn-
réttisráði kæra á hendur Hand-
knattleikssambandi íslands, sem
komin er frá handknattleiksdeild
Gróttu, ásamt unglinganefnd fé-
lagsins og foreldraráði í 5. deild
kvenna. Snýst málið um grein í
reglugerð HSI, sem fjallar um leik-
þjálfun unglingadeildanna í hand-
bolta. I stuttu máli er umkvörtunar-
efnið þaö, að stelpulið í 5. deild fá
mun minni þjálfun en lið drengja í
sama aldursflokki, en ekkert svar
hefur enn horist írá HSÍ. . .
þ ..................
es Eiríksson. sem stefnir ótrauður
á fyrsta sætið í prófkjöri hjá Nýj-
um vettvangi nú um helgina.
hyggst standa áfram í stórræðum á
mánudaginn. Hann héfur farið fram
á að leggja fram myndband sem
fylgiskjal i neðri deild Alþingis og
brjóta þar með blaö í sögunni. í lög-
unum segir nefnilega að fylgiskjöl
skuli vera prentuð en þingmaður-
inn álítur það orð hafa verið sett til
aögreiningar frá handskrifuðu.
Prentfrelsi á þeim tíma sem lögin
voru sett telur Ásgeir Hannes flokk-
ast undir tjáningarfrelsi í dag og á
þeirri forsendu leggur hann fram
þessa sérstæöu beiðni. Myndbandið
hefur að geyma sýningu á fóstur-
ejðingu og mun þingforsetunum
Árna Gunnarssyni og Guðrúnu
Helgadóttur ekki hafa litist neitt
stórkostlega á hugmyndina. Munu
þau nú ráða ráðum sínum en Ásgeir
Hannes fer væntanlega fram á svar
i dag . . .
■ nýjasta hefti Heimsmyndar er
grein sem ber heitiö Maðurinn
sem breytti heiminum og fjallar
um Gorbachov. I efnisyfirliti blaðs-
ins er birt mynd af ritstjórnarfull-
trúa Heimsmyndar, Olafi Hanni-
balssyni. og undir myndinni er
smáklausa þar sem þess er meðal
annars getiö að Olafur hafi nýverið
skrifaö merkilega grein um Stöð 2
og nú gefist lesendum kostur á að
lesa aðra merkilega grein eftir
hann, í þetta sinn um Gorbachov.
Nú segja okkur fróðir menn sem
fylgjast vel með erlendum blöðum
og tímaritum að í febrúarhefti
tímaritsins Vanity Fair hafi birst
grein um Gorbachov sem bar nafniö
The man who changed the
world. Greinin í Heimsmynd er
sögð tekin orðrétt upp úr Vanity
Fair, nema hvað á einstaka stað er
hún staðfærð og skotið inn i þekkt-
um, islenskum nöfnum. Myndirnar
sem birtast með greininni í Heims-
mynd munu vera þær sömu og birt-
ust í umræddu bandarísku tímariti
og hvergi er getiö heimilda . . .
y
msar breytingar eiga sér stað
á Stöð 2. Meöal þeirra sem munu
hætta að sjást á skjánum í frétta-
þættinum 19.19 er eitt þekktasta
andlit stöðvarinnar, Valgerður
Matthíasdóttir. Valgerður hættir
þar í föstu starfi nú í vor, en mun í
sumar vinna að þáttagerð fyrir
stööina. Mikil leynd hvílir yfir því út
á hvað þættirnir munu gang'a, en
þeir eru sagðir spennandi og nýstár-
legir . . .
'tvarpsstöövarnar leggja um
þessar mundir síaukna áherslu á
svokallaöa talmálsliöi í dagskránni.
Aðalstöðin hefur frá upphafi haft
töluvert af rabb- og viðtalsþáttum
og nýverið varð aukning á slíku efni
á rás 2. Kkki viröist Bylgjan ætla
að verða eftirbátur keppinautanna,
því nú hefur verið ráðinn til útvarps-
stöðvarinnar sérstakur umsjónar-
maður talmálsliða. Þaö er Pétur
Steinn Guðmundsson, sem tekur
við þessari nýju stööu, en hann ætti
að vera öllum hnútum kunnugur á
Bylgjunni. Hann starfaöi þar í upp-
hafi rekstrarins og hefur einnig ver-
ið viöloöandi dagskrárgerð þrátt
fyrir fullt starf hjá Sam-útgáfunni
að undanförnu . . .
lýr fréttamaöur tekur til starfa
á ríkissjónvarpinu innan skamms.
Það er Árni Magnússon, sem und-
anfarið hefur verið dagskrárgerðar-
maður á rás 2, en hann hefur einnig
unnið við fréttamennsku á Tíman-
um og Bylgjunni. Árni er ekki
ókunnugur starfi sjónvarpsfrétta^,
manna, þó hann hafi ekki sjálfur
unniö á þeim vettvangi fyrr en nú.
Þegar hann var aö vaxa úr grasi
starfaði faöir hans nefnilega á frétta-
stofu sjónvarpsins. Heitir sá Magn-
ús Bjarnfreðsson . . .
OSKAUSTINN
TÆKIN SEM UNGLINGARNIR FILA
\ » * * i * /
\ » > M t / ^
s i • « f f
Panasonic SG-HM10
Hljómtækjastæða með 16 stöðva
minni á útvarpi, 40 watta magnara, 3
banda tónjafnara, tvöföldu kassettu-
tæki, plötuspilara og hátölurum.
Verð 27.950 stgr.
Technics X-900
Glæsileg fjarstýrð hljómtækjastæða.
60 watta magnari, 24 stöðva minni á
útvarpi FM, MB, LB. Tvöfalt
kassettutæki, sjálfvirkur plötuspilari,
fullkomin 18 bita geislaspilari.
Vandaðir hátalarar.
Verð án geislaspilara
49.900 stgr.
Verð með geislaspilara og skáp
79.900 stgr.
Panasonic SG-HM30 Verð án geislaspilara
Fjarstýrö hljómlækjastæða með 24 OQ QCA
stöðva minni á útvarpi, 40 watta stgr.
magnar'a.tvöföldu segulbandi, 5 Verö meö geis|aspilara
banda tónjafnara, plötuspilara,
hátöluaim og 18 bita geislaspilara. 900
Panasonic RX-FS400
Nett og meðfærilegt útvarpstæki með
innbyggðu kassettutæki og 16 watta
magnara.
Verð
8.800
SONY CFS-201L
Alvöru SONY ferðatæki meö
kassettutæki og vönduðu útvarpi með
FM, LB, MB, SB. Innbyggður
hljóðnemi og tengi fyrir heyrnartól.
stgr.
Panasonic RX-CS700 ) * ‘
Öflugur ferðafélagi með 20 watta
magnara, lausum "2 way” hátölurum,
tengi fyrir geislaspilara.
Verð
8.540
stgr.
Verð
SONY WM-B12
Vandað vasadiskó með heyrnartækj-
um. Stillingarfyrir normal/crome/metal
kassettur. >
11.350
Verð
3.990
Panasonic RF-1630
Ekta hljómgott ferðaútvarp, FM, MB,
LB.
Panasoníc RF-502
Vasaútvarpstæki meö hátalara og
tengi fyrir heymartæki.
Verð
4.610
Verð
1.770
SONY ICF-C220
Morgunhani með tveimur verkjurum.
Útvarp FM, MB, LB. Góður hljómur.
Tengist við 220 volt og öryggisraf-
hlaða.
Verð 5.870
*»» *
Panasonic RC-6064
Áreiðanlegur morgunhani fyrir straum
með öryggisrafhlöðu.
JAPISS1
Verð
3.580
BRAUTARHOLT 2 ■ KRINGLAN ■ SIMI 27133
AKUREYRJ ■ SKIPAGATA 1 ■ SÍMI 96-25611 ■
SONY ICF-350
Næmt útvarpstæki, tengi fyrir
heyrnartæki, fáanlegt svart og hvítt.
Verð
2.780
»Málningarþjónustan hf. Akranesi • Kaupfélag Borgfirðinga Borgamesi • Verslun Óttars Sveinbjömssonar Hellissandi • Bjamabúð Tálknafirði
• Verslun Einars Guðfinnssonar Bolungarvík • Póllinn Isafirði • Rafsjá Sauðárkróki • Bókaverslun Þórarins Stefánssonar Húsavík
> Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum • Kaupfélag Héraðsbúa Seyöisfirði • Tónspil Neskaupstað • Hátiöni Höfn Hornafirði • Mosfell Hellu
• Brlmnes Vestmannaeyjum • Vöruhús KÁ Selfossi • Stúdeo Keflavík