Pressan - 07.11.1991, Side 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. NÓVEMBER 1991
FYRST^tFREMST
steingrímur hermannsson. Veröur hann sendiherra í New York?
haraldur I andra. Ætlar aö græða 53 milljónir á fyrsta ári nýja dag-
blaösins.
ÆTLA AÐ GRÆÐA
53 MILLJÓNIR
Á FYRSTA ÁRINU
í frumáætlunum um nýtt
dagblað er gert ráð fyrir að
hagnaðurinn fyrsta árið verði
um 53 milljónir króna. Har-
aldur í Andra og aðrir upp-
hafsmenn þessa blaðs ætla
því að byrja með glans. Að
minnsta kosti gera þeir ráð
fyrir því á pappírunum.
Þrátt fyrir þá almennu
skoðun manna að ekki sé
hægt að stofna nýtt dagblað
nema leggja til þess 150 til
200 milljónir er ekki gert ráð
fyrir nema um 70 milljóna
króna hlutafé í nýja blaðið
samkvæmt þessum áætlun-
um. Hluti þess er greiddur
með peningum og annar
hluti með viðskiptavild Þjóð-
viljans, Tímans og Sjónvarps-
vísis. Þjóðviljinn ogTíminn fá
því áskrifendur sína metna til
hlutafjár. Einnig mun það
metið inn að nýja blaðið hef-
ur hag af því að þessi blöð
hætti að koma út á sama tíma
og það hefur göngu sína. Þaði
er reyndar fyrirséð með Tím-
ann, þar sem ákvörðun ligg-
ur fyrir um að hætta að gefa
blaðið út um áramót. Þjóð-
viljinn á síðan einungis tæp-
an mánuð eftir ef greiðslu-
stöðvunartímabili sínu.
í áætlunum er gert ráð fyrir
drjúgum kostnaðarlið vegna
hönnunar og áætlanagerðar,
sem að öllum líkindum falla
Hvíta húsinu að mestu i
skaut. Það er einmitt Gunn-
ar Steinn Pálsson í Hvíta
húsinu sem veitir undirbún-
ingshópnum forstöðu. Aðrir í
honum eru Guðjón Arn-
grímsson í Athygli, dóttur-
fyrirtæki Hvíta hússins, og
Björn Brynjólfur Björns-
son í Sýn. Björn Brynjólfur
hefur hannað nýtt útlit nokk-
urra blaða; meðal annars
Þjóðviljans og Helgarpósts-
ins sáluga.
ÁRNI í STAÐ
STEINGRÍMS TIL
NEW YORK?
í síðustu viku greindum við
frá vangaveltum um hver
yrði næsti sendiherra í New
York. Þar komu við sögu þeir
Eyjólfur Konráð Jónsson,
þingmaður og formaður ut-
anríkismálanefndar, og
Gunnar G. Schram prófess-
or. En fleiri eru nefndir til.
Vitað er að Árnl Gunnars-
son hefur hug á starfinu.
Árni datt út af þingi þegar
hann færði sig frá Norður-
landi eystra til Suðurlands.
Eftir kosningarnar var hann
orðaður við ýmis embætti, til
dæmis formennsku í HSl.
Hann er nú formaður Slysa-
varnafélagsins.
Annar maður sem talinn er
á leið út úr pólitik er Stein-
grímur Hermannsson, en
hann mun hafa gefið afsvar
við boði utanríkisráðherra.
Hann hefur haft hug á virð-
ingarstöðum við erlendar
stofnanir. PRESSAN hefur
meðal annars sagt frá því að
Jón Baldvin Hannibalsson
utanrikisráðherra hafi á
óformlegan hátt kannað hug
Norðurlandaþjóðanna til
framboðs Steingríms til aðal-
ritara Sameinuðu þjóðanna.
STRIÐ UM VORUMERKI
Þad gekk ekki lítid á hjá
forystumönnum Slysavarna-
félags íslands þegar stofnun
Landsbjargar, Landssam-
bands björgunarsveita, stód
fyrir dyrum. Landssamband
flugbjörgunarsveita og Hjálp-
arsveit skáta standa aö
Landsbjörg og er því
stórveldi á svidi
björgunarmáta viö hlid
Slysavarnafélagsins.
Slysavarnafélagsmenn
gátu af einhverjum
ástæðum ekki sætt
sig við stofnunina
og þustu niðurá
Vörumerkjaskrá
iðnaðarráðuneytisins
og létu skrásetja
möguleg og
ómöguleg innlend og erlend
vörumerki fyrir tugi þúsunda
króna til að koma í veg fyrir
að hin nýstofnuðu samtök
gætu heitið nafni sem gæfi til
kynna hlutverk þeirra.
Meðal nafna sem Slysa-
varnafélagið lét skrásetja
voru Björgunarfélag íslands.
National Association of lee-
iandic Rescue Teams, Björg-
unarsveitir fslands, The Na-
tional Rescue Association of
lceland, National Association
of lcelandic Search and
Rescue Teams og Landssam-
band björgunarsveita,
sem er einmitt undirtitill
Landsbjargar.
Landsbjörg fékk
nafnið
Landssamband
björgunarsveita
staðfest hjá Vöru-
merkjaskrá með
því að hafa
Landsbjörg sem
yfirtitil sam-
takanna.
Slysavarnafélagið
er nú búið að kæra
samtökin
fyrir nafngiftina á þeim for-
sendum að þau geti ekki heit-
ið Landssamband björgunar-
sveita af því að Slysavarnafé-
lagið sé ekki innan vébanda
þess.
Þá mun Jón Baldvin hafa
kannað hvort hægt væri að
gera Steingrím að yfirmanni
Alþjóðamatvælastofnunar-
innar.
ÓLAFI HÁLT
Á SVELLINU
Ólafur B. Thors, forstjóri
Sjóvár/Almennra, var gestur í
morgunþætti Eiríks Jóns-
sonar á Bylgjunni á þriðju-
dagsmorguninn.
Olafur og Eirikur ræddu
bifreiðatryggingar, slysabæt-
ur og fleira viðkomandi
tryggingamálum. Þennan
morgun var hált í Reykjavík
og var þetta fyrsti dagurinn í
vetur sem einhver hálka var
að ráði. Ólafur sagði að
reynslan sýndi að tjón væri
ekkert óeðlilega mikið fyrstu
hálkudaga hvers vetrar og
þakkaði hann það aðgæslu
og varfærni ökumanna.
Þegar Eiríkur kvaddi Ólaf
bað hann hann að fara nú
varlega í umferðinni. Ólafur
kvaðst ávallt gera það. Þeir
kveðjast síðan með virktum.
Ólafur heldur að bíl sínum,
sest upp í hann, setur í bakk-
gír, bakkar úr stæðinu og á
næsta bil.
Fyrst verið er að tala um
ákeyrslur má segja frá því að
þegar Svavar Gestsson var
menntamálaráðherra ók
hann einu sinni ráðherrabíln-
um á ráðuneytið. Áreksturinn
var það harður að bæði bíll-
inn og húsið þörfnuðust lag-
færingar.
GÍSLIj GÍSLI
OG GISLI
Vírnet hf. í Borgarnesi
keypti nú fyrir skemmstu Bif-
reiðaog trésmiðju Borgar-
ness, eins og fram hefur kom-
ið í fréttum.
Salan gekk í stuttu máli
þannig fyrir sig að Gísli H*dl-
dórsson, framkvæmdastjóri
BTB, talaði við Gísla Halldórs-
son, stjórnarformann Vír-
nets, um hugsanleg kaup Vír-
nets á BTB. Gísli Halldórsson,
stjórnarformaður Vírnets,
sneri sér til Gísla Halldórsson-
ar, stjórnarmanns í Sparisjóði
Mýrasýslu, og athugaði með
hugsanlega fyrirgreiðslu í
sambandi við kaup á BTR
Gísli í Sparisjóðnum tók
þessu vel og Gísli í Vírneti tal-
aði þá við Gísla í BTB og end-
irinn varð sá að gengið var
frá kaupunum.
Felldar voru niður einhverj-
ar skuldir og Vírnet greiddi 5
prósent af nafnvirði hluta-
bréfa og tók að auki yfir
skuldir. Menn voru ekki til-
búnir að láta BTB fara í gjald-
þrot, sem hefði þýtt rekstrar-
stöðvun. Hjá BTB vinna í
kringum 25 manns og það
hefði verið mikil blóðtaka
fyrir ekki stærra bæjarfélag
en Borgarnes ef rekstur fyrir-
tækisins hefði stöðvast.
Gíslar þeir er fyrr eru
nefndir rúmast allir í sama
manninum, en hann er einn-
ig þekktur sem sonur Hall-
dórs nokkurs E.
árnigunnarsson. Krati sem horfir til New York. ólafurathors.Sagði fólki að fara gætilega í umferðinni og bakkaði á bil. svavargestsson
Keyrði á ráðherrabíl á ráðuneyti svo gera þurfti við hvort tveggja. halldór e. sigurdsson Gisli sonur hans ekki síður áberandi i Borgarnesi
en faðirinn. gunnar steinn pAlsson. Hvíta húsið mun hafa nokkrar tekjur af hönnun og áætlanagerð fyrir nýja dagblaðið. bjórn brynjólfur
bjóRNSSON. Hannaði Þjóðviljann á sinum tima, lika Helgarpóstinn og er nú í undirbúningsnefnd um nýtt dagblað.
Er ekki rétt að selja
Grænfriðungum sæti
okkar í Alþjóðahval-
veiðiráðinu, svona til
að fá eitthvað út úr
því, Jóhann?
„Grœnfriöungar eru
þarna til staöar sem
áheyrnarfulltrúar og mér
þykir ekki rétt aö vera aö
höndla meö þessi sœti."
Fréttir hafa birst þess efnis að
Grænfriöungar hafi keypt sig
inn i Alþjóðahvalveiöiráöið
Jóhann Sigurjónsson er einn
helsti hvalasérfræðingur
íslendinga og fulltrúi Tslands í
Alþjóðahvalveiöiráðinu.
LÍTILRÆÐI
af selsemstáli
Eg er með afbrigðum frið-
samur maður og hef alltaf
verið. Þessvegna lofa ég guð
fyrir það á hverjum morgni
við sólarupprás að vera ekki
um þessar mundir búsettur í
Serbíu, Króatíu, Beirút eða
miðbænum í Reykjavík,
heldur í friðsælli sveit þar-
sem hundgá boðar stórtíð-
indi, hvaðþá hófadynur.
Heimahjá mér er öðru-
jöfnu allt með stakri spekt
enda er ég annálaður fyrir
dagfarsprýði og hef löngum
verið afar eftirlátur við konu
mína með því bæði að skaffa
vel og gleyma ekki að gauka
einhverju að henni til hátíð-
arbrigða á tyllidögum.
Og aldrei flökrar að mér
að hreyta í hana illindum
nema þegar ærin ástæða er
til.
Hann er skoplítill skerfur-
inn sem ég hef lagt til heimil-
isfriðarins hjá okkur heið-
urshjónunum.
Nú er frá því að segja að
ekkert gleður konu mína
eins af hjartans grunni og að
fá svokölluð heimilistæki í
jóla- eða afmælisgjöf, og
mér finnst ég svosem alveg
inega njóta sannmælis þeg-
ar ég segi að marga nyt-
semdarvélina hef ég gefið
henni til að létta henni
skyldustörfin á heimilinu.
Þessa stundina er hún að
hakka Iifur framí eldhúsi
með ,,Sunbeam"-hrærivél
sem ég fékk eftir hana
ömmu mína þegar hún dó
fyrir rúmum þrjátíu árum og
var víst tækið þá búið að
þjóna blessaðri gömlu kon-
unni í meira en áratug.
Aldrei, í hartnær hálfa öld,
hefur þessi kjörgripur slegið
feilpúst en nú skilst mér að
hnífurinn í hakkavélinni sé
orðinn bitlaús og þá er ekki
annað en láta það eftir kon-
unni að bregða honum á
smergel.
Allt til vinnandi að halda
heimilisfriðinn.
Sem dæmi um það hve
ríka áherslu ég hef lagt á það
að gefa konu minni jafnan
vönduð heimilistæki má
geta þess að bakarofninn
hennar er af AEG-tegund
keyptur í Sambandinu um
1950 og gerir ekki aðeins sitt
gagn enn í dag heldur er
sannkallaður gleðigjafi í
daglegri önn húsfreyjunnar.
Þetta er semsagt fertugur
steikarofn úr ekta stáli.
„Selsemstálið" (selst sem
stál) kom seinna.
Því er ég að hafa orð á
heimilistækjum og húsfriði
að nú eru óveðursblikur á
lofti.
Það var semsagt að frum-
kvæði konu minnar að
keyptur var ísskápur til
heimilisins fyrir ári eða svo,
ítalskur af IGNIS-gerð.
Þetta tæki virðist einnota,
einsog svo mjög er í tísku í
dag, því skemmst er frá því
að segja að plastikinnrétt-
ingar þessarar kæligeymslu
eru bókstaflega í maski eftir
árið.
Á umboðsmönnum er
helst að skilja að einnota ís-
skápa eigi bara að nota einu-
sinni, og víst er það geð-
þekkt sölutrikk að eiga enga
varahluti á lager svo menn
verði að kaupa ísskáp árlega
þegar plastikruslið fer að
gefa sig.
Auðvitað getur verið
handagangur í öskjunni þeg-
ar matmenn þurfa að kom-
ast í kæfubelg en ef maður
er allsgáður á ekki allt að
þurfa að fara í rúst í ísskápn-
um þó leitað sé að bringu-
kolli eða síðubita.
Nú er að vísu búið að
panta varahluti i isskápinn
frá Ítalíu en ég treysti því
ekki að friður haldist á þessu
heimili nema ég gefi kon-
unni minni nýjan ísskáp á
jólunum og það verður ekkij Flosi Ólafsson
einnota IGNlS-ísskápur úr
selsemstáli heldur alvöru-
skápur.