Pressan - 07.11.1991, Page 28

Pressan - 07.11.1991, Page 28
28! FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. NÓVEMBER 1991 * er með ólíkindum — Fyrir 15 árum var haldinn aðalfundur Stúd- entafélags Háskóla ís- lands, sem vaeri vart í frá- sögur færandi, nema fyrir þá sök að lögmæti fundar- ins lenti fyrir dómstólum. Vinstri og hægri öfl deildu að vanda og fór svo að full- trúar hægri kærðu aðal- fundinn. Stefnendur voru Kjartan Gunnarsson, þá laganemi, nú fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins, Siguröur Helga- ■ son sagnfræöinemi, Geir Waage guðfræðinemi. Anna Jónsdóltir lyfja- fræðinemi og Tryggvi Agn- arsson lyfjafræðinemi. Meðal vitna fyrir þeirra hönd var Hannes Hólm- steinn Gissurarson. Hinir kærðu vinstrimenn voru Garöar Mýrdal háskóla- nemi, Eiríkur Brynjólfsson háskólanemi, Jón Guöni Kristjánsson, síðar frétta- maður, Gunnlaugur Ást- geirsson háskólanemi og Halldór Á. Sigurösson há- skólanemi. Endanlegur dómur féll vinstrimönnum nokkuð í vil, en hér verður málið ekki rakið nánar. En á fundinum voru uppi órói og hrindingar, eftir mikla smölun, og meðal annars vitnaði Kjartan Gunnars- son um að á hann hefði verið ráðist og Hannes, sem var annar fundarrit- ara, sagði um fundinn: „Óp, köll og háreysti ein- kenndu fundinn, þannig að varla var hægt að greina orðaskil hjá þeim fundarmönnum sem köll- uðu . . . Menn höfðu gert sig líklega til áfloga, stokk- ið upp á borð, haldið þar ræður, æpt og kallað . . . Atli Árnason hafði gert til- raun til að leggja hendur á mig, en verið stöðvaður af Adolf Guömundssyni, Arn- lin Óladóttir hafði stokkiö upp á borð og hélt þar ræð- ur, og Púll Balduinsson kallaði í sifellu og hvatti menn til að sæta ekki því, sem var að gerast." ÞRJAR TVEGGJA ÞIN I fljótu bragði lítur út fyrir að 34 þingmenn séu með skráð aðset- ur í Reykjavíkur- borg, þótt vafa- laust verði þar fjölgun á þegar hinir mörgu nýju þingmenn hinna dreifðari býggða hafa komið sér almennilega fyrir. Aðeins einn þingmaður er skráður i gamla Breiðholtinu, Vest- manneyingurinn Arni John- sen í Rituhólum. Hins vegar eru sex þing- menn skráðir í Seljahverfi, sömuleiðis sex í Fossvogs- og Smáíbúðahverfum, en alls tólf í borgarhlutum vestan Tjarnarinnar. I þingkosningunum 1987 og 1991 var það „flakkarinn" sem síðastur fékk úthlutað þingsæti og í hvorumtveggja kosningunum kom sætið i hlut Kvennalistans, fyrst skreið inn Danfrtöur Skarp- hédinsdóllir og síðast Jóna Valgerdur Kristjánsdóttir. Áð- ur var við lýði uppbótarþing- Það eru síðan þrjár götur í borginni sem innihalda tvo þingmenn hver. Fram hefur komið að Halldór Ásgríms- son Framsóknarflokki og Steingrímur J. Sigfússon Al- þýðubandalagi halda heimili í Brekkuseli, sem um leið var um tíma tveggja ráðherra gata. Þau Kristín Einarsdóttir Kvennalista og Ingi Björn Al- bertsson Sjálfstæðisflokki búa í lítilli gotu að nafni Brekkubær í Arbæ Loks hafa valið sér Tómasarhaga þau fngibjörg Sólrún Gísladóttir Kvennalista og Jón Kristjáns- son Framsóknarflokki. Brekkusel, Brekkubær: Eitthvað heilla brekkurnar og svo er Eyjólfur Konrád Jónsson í Brekkugerði... mannakerfi. Árið 1983 skreið síðastur inn á þing Egill Jóns- son, bóndi á Seljavöllum, rétt á undan Eyjapeyjanum Magnúsi H. Magnússyni, sem sat eftir með sárt ennið. Egill skreið líka síðastur inn 1979, rétt á undan Kjartani Ólafs- syni ritstjóra. Árið 1978 var síðastur inn Árni Gunnars- UNGLINGARNIR ERÍ/NÚ TIL FYRIRMYNDAR (aldrei þessu vant) Um hverja helgi eru nú brotnar ein til tvær rúður í miðborginni. Við slíkar að- stæður kallar lögreglan á Bjarna Hólm „rúðumeistara" sem framkvæmir „í snatri bráðabirgðaviðgerð". Það eru að sjálfsögðu unglingar borgarinnar sem venjulega .brjóta þessar rúður, en áður son, rétt á undan Steinþóri Gestssyni. Árið 1974 skolaði Geir Gunnarssyni síðast inn, rétt á undan Ingiberg Hannes- syni sjálfstæðismanni. Árið 1971 var það núverandi menntamálaráðherra, Ólafur, G. Einarsson, sem var síðast- ur inn og tróðst j» framfyrir flokksbróður sinn, Halldór en unglingunum er blótað skal eftirfarandi haft í huga. Blöndal, sem tuttugu árum síðar er landbúnaðar- og samgönguráðherra. Tvenn- um kosningum áður hafði Matthías Bjarnason gert sama hlut; orðið síðastur inn en ýtt samflokksmanni til hliðar, Ragnari Jónssyni. Að sögn Gudmundar Gud- jónssonar hjá lögreglunni hafa þau ánægjulegu tíðindi orðið að talsvert hefur dregið úr ofbeldis- og skemmdar- verkum unglinga síðustu 1—2 ár. Og þau verk sem framin eru eru frekar annars staðar en í miðborginni. Of- beldi unglinga náði hámarki fyrir 5 til 6 árum og nútíðin hálfgerður barnaleikur í sam- anburði. Dæmi: Rán af hendi fólks yngra en 16 ára voru 16 árið 1989 en 7 á síðasta ári. Líkamsárásir hjá sama ald- urshópi voru 34 árið 1989 en 22 árið eftir. Þetta þýðir ekki að ofbeldisverkin hafi færst til annarra borgarhluta, því þeim hefur t.d. einnig fækkað í Breiðholti, eftir tilkomu nýju lögreglustöðvarinnar við Drafnarfell. Guðmundur taldi að ástæður hinnar ánægju- legu þróunar í miðborginni væru aukin gæsla, samvinna við unglingadeildir borgar- innar og aukin vitund ung- linganna sjálfra. Þeir unglingar sem voru 15 ára árið 1990 og 1991 eru fæddir árin 1975 og 1976. Þetta eru börn barnabylgj- unnar miklu 1954 til 1958. EGILL Á SELJAVÖLLUM OG AÐRIR HINIR SÍÐUSTU KYNLÍF Náin samskipti HIV-jákvæds fólks Alnæmis verður vafa- laust minnst í sögunni sem faraldurs sem lagði sitt af mörkum til að opna um- ræðu um kynlif og sýna fram á nauðsyn kyn- fræðslu. Þótt átakanlegt sé að hugsa til þess að sjúk- dóm þurfi til að benda okk- ur á vankanta í mannlegum samskiptum má segja að al- næmi veiti okkur ýmis tækifæri. Alnæmi kennir okkur meðal annars að verða betri elskhugar með hættulausu kynlífi, gefur „leyfi" til að ræða um getn- aðarvarnir, til dæmis smokkinn, og bendir okkur réttilega á hversu gagns- laust það er að draga fólk í dilka eftir því hver smitleið- in er. Ekki alls fyrir löngu héldu HlV-jákvæðir Norð- urlandabúar árlega ráð- stefnu sína í Reykjavík. (Að vera HlV-jákvæður merkir að viðkomandi sé smitaður af veirunni sem veldur al- næmi.) í einum vinnuhópn- um var fjallað um „Ást og kynlíf" og þátttakendur greindu frá eigin viðhorf- ÉJÖNA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR um og reynslu. Ýmislegt at- hyglisvert kom i Ijós sem mig langar að tæpa á i pistl- inum. Hver er líðan einstakl- ings sem stendur frammi fyrir þeirri staðreynd að vera HlV-jákvæður? Hverju breytir það í nánum sam- skiptum? Fyrst þegar vitn- eskjan unt að vera smitaður liggur fyrir verða margir fyrir áfalli. Reiði, kvíði. áhyggjur yfir eigin smiti og ótti við að smita aðra eru áberandi. Sumir finna til óöryggis urn það hvenær og hvernig eigi að segja elskhuga frá því að maður sé smitaður. Einstaklingn- um finnst ef til vill að hann sé á einhvern hátl „óhreinn" og óttast nei- kvæð viðbrögð og höfnun þeirra sem ekki eru smitaö- ir. Aðrir óttast að einangr- ast frá öðru fólki, jafnvel það sem eftir er ævinnar, eða að allt eðlilegt fjöl- skyldulíf — þar með taliö barneignir — sé út úr myndinni. Hræösla, von- leysi, ótti og óöryggi eru allt eðlilegar tilfinningar hvað varðar náin sam- skipti, sérstaklega fyrstu mánuðina — jafnvel nokk- ur ár eftir að viðkomandi veit að hann er HlV-já- kvæður. Það sem mér þótti einna athyglisverðast var sú skoðun nokkurra sænskra homma að gagnkyn- hneigðir karlmenn sem mælast HlV-jákvæðir ættu erfiðara með að leita sér hjálpar en samkynhneigöir karlmenn og stæðu því verr að vígi með vitneskj- una um smit. Ástæðurnar töldu hommarnir vera þær að gagnkynhneigðir karl- menn gengjust meira upp í því (en hommarnir) að vera harðir af sér — sýna „karl- mennskuna" — og þeir hefðu ekki greiöan aðgang að „stuðningsneti" eins og því sem finnst meðal homma. Þeir sem hafa verið smit- aðir í nokkur ár hafa haft tíma til að átta sig á hlutun- um og lífið aftur náð jafn- vægi hvað varðar náin sam- skipti. Heyrum hvað þeir hafa að segja: „Núna kann ég hættulaust kynlíf utan- bókar og óttast ekki að smita neinn." „Viðhorf fólks hefur breyst, þetta er ekki eins mikiö mál og það var einu sinni." „Þarfir mínar í nánum samskiptum eru skýrari núna en áður og sjálfstraustið hefur aukist — ég hef þroskast." „Ég lifi bara eðlilegu kynlífi — hættulausu kynlífi." Það er ekki bara tíminn sem virðist hafasett plástur á sárið heldur það að hafa tileinkað sér hættulaust kynlíf (kynlíf sem felur ekki i sér að fá sæði eða blóð inn í líkamann), aö eiga skiln- ingsríkan maka og vin. sýna persónulegan kjark, leita sér hjálpar í upphafi og horfast í augu við vand- ann þótt það sé gífurlega erfitt. HlV-jákvæðir einstakl- ingar þurfa að takast á viö ótalmarga hluti — allt á meðan þeir eru í mikilli óvissu um hvernig sjúk- dómurinn þróast. I vinnu- hópnum létu nokkrir í Ijós í lokin von um að ást og kyn- líf gæti orðið það sem það var hér áður; frjálst og óheft, laust við hræðslu og kvíða. Löngun til að hitta þann eina rétta, eignast fjölskyldu — börn. Ósk um .. núna kann ég hættulaust kynlíf utanbókar og óttast ekki að smita neinn.“ að nákomnir yrðu ekki fórnarlömb fáfræði eða for- dóma. HlV-jákvætt fólk þyrfti á stuðningi að halda. Spyrjió Jónu um kynlífió. Utanáskrift: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.