Pressan - 05.12.1991, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
Leikreglurnar um kvótakaupin eru mismunandi. Og það er sama hvaða skoðun menn hafa á kvóta,
ljóst er að ekki standa allir jafnir fyrir leikreglunum. Þeir sem betur mega sín geta í raun keypt
allan þann kvóta sem þeir vilja á því verði sem þeir vilja, vegna þess að þeir einir hafa möguleika á
að láta aðra greiða kvótann. Þess vegna ráða þeir markaðnum og ná til sín æ stærri sneið af þeirri
köku sem er til skipta og á að heita sameign þjóðarinnar.
Kvótakaup og -sala hafa verið
mikið í umræðunni. Það eru fá fyrir-
tæki sem hafa verið ráðandi á þess-
um markaði. Þau sem mest hafa
keypt eru Útgerðarfélag Akureyr-
inga, Samherji á Akureyri, Skag-
strendingur á Skagaströnd, Grandi í
Reykjavík og Hrönn á ísafirði, sem
gerir út aflaskipið Guðbjörgu.
Leiðir þessara stóru fyrirtækja til
kvótakaupa eru mun fleiri en hinna
smærri. Reyndar geta þau stóru
komið kostnaðinum við kaupin að
hluta yfir á þjóðina. Það er gert með
afskriftum, kaupum á tapi og fleiri
leiðum.
Lengi vel var deilt um með hvaða
hætti ætti að færa kvótakaup í bók-
hald þeirra fyrirtækja sem keyptu
kvóta. í fyrstu voru kvótakaupin
færð eins og hver annar rekstrar-
kostnaður, svo sem eins og olía,
veiðarfæri og fleira.
Næsta skref var að færa tap af bát-
um sem sölutap. Skoðum þetta að-
eins nánar. Stóru og öflugu fyrirtæk-
in hafa keypt marga báta og fært
kvótann af þeim yfir á önnur skip.
Þegar bátarnir eru keyptir, segjum á
eitt hundrað milljónir króna með
kvóta, er kvótinn færður af bátun-
um, ýmist allur eða að verulegum
hluta. Síðan eru bátarnir seldir aftur,
kvótalausir eða kvótalitlir á mun
lægri upphæð en þeir voru keyptir
á. Við það myndast sölutap sem
kemur til frádráttar af hagnaði fyrir-
tækjanna og þar með greiða þau
lægri skatta til hinna sameiginlegu
sjóða. Með því má segja að almenn-
ingur í landinu taki verulegan þátt í
kvótakaupum stóru fyrirtækjanna.
Nú eru keyptar veiðiheimildir
færðar sem eign í bókhaldi fyrir-
tækjanna og eru afskrifaðar á
nokkrum árum. Þar með er hafin
eignamyndun. Margir eru þeirrar
skoðunar að eftir að fyrirtækin eru
búin að afskrifa kvótann hljóti hann
að teljast þeirra eign og fyrirtækin
geti þar með ráðstafað kvótanum
með þeim hætti sem stjórnendur
þeirra vilja.
Þetta stangast á við það sem segir
í fyrstu grein laganna um stjórn fisk-
veiða, en eins og kunnugt er segir
hún að kvótinn sé sameign þjóðar-
innar.
AÐRIR HAFA EKKl
MÖGULEIKA
Þeir sem PRESSAN ræddi við
voru á einu máli um að smátt og
smátt færðist mestur hluti kvótans
til fárra en stórra fyrirtækja. Ástæð-
an er einföld. Þau fyrirtæki sem
ekki eru rekin með hagnaði, en
þeim fer fækkandi í sjávarútvegi,
hafa einfaldlega ekki möguleika á
að keppa við stóru fyrirtækin.
Tökum dæmi. Þegar vandræði
voru hvað mest á Patreksfirði og
þeir misstu þar frá sér veiðiskipin og
kvótann, sem skipti reyndar mestu
máli, fengu þeir fyrirgreiðslu til að
kaupa skip aftur.
Gott og vel, þetta leit vel út og Pat-
reksfirðingar keyptu meðal annars
bátinn Patrek aftur. Þegar þetta var
gert komu margar gagnrýnisraddir
fram sem töldu þennan rekstur von-
lausan, vegna þess að kvótinn var of
dýr. Aðrir voru á öðru máli. Nú hef-
ur komið í ljós að Patreksfirðingar
gátu ekki haldið bátnum. Af hverju?
Jú, vegna þess að þeir gátu ekki nýtt
sér afskriftirnar þar sem enginn
hagnaður var af rekstrinum og
reyndar alltaf borin von að hægt
væri að reka bátinn með hagnaði.
Patrekur hefur verið seldur til
Stöðvarfjarðar. Það var Byggða-
stofnun sem lánaði 50 milljónir til
kaupanna. Þeir sem sögðu á sínum
tíma að Patreksfirðingar gætu ekki
gert út bátinn segja nú að eftir um
eitt ár verði Byggðastofnun að
koma aftur til hjálpar svo Stöðfirð-
ingar losni við bátinn og svo koll af
kolli.
NÝR OG STÓR GJALDALIÐUR
„Þessi gjaldaliður var ekki til í út-
gerð og fiskvinnslu fyrir fáeinum ár-
um en er orðinn einn sá stærsti í dag
og fer sívaxandi," sagði Ólafur Arn-
fjörd, sveitarstjóri á Patreksfirði,
þegar hann var spurður um áhrif
kvótakaupa á hag útgerðar og fisk-
vinnslu.
„Vinnslan kaupir fiskinn dýrasta
verði, verðlagsráðsverðið heyrir
sögunni til þar sem útgerðirnar
verða að fá hærra og hærra verð og
vinnslan kemur því líka illa út úr
þessu. Það er eins og menn séu að
vakna upp við þetta núna.“
Nú hafid þið selt Patrek, huers
vegna?
„Skipið var of dýrt. Ef vinnslan
hefði borgað það verð fyrir fiskinn
sem skipið þurfti þá hefði hún farið
á hausinn. I mörgum tilfellum eiga
menn að sjá að þetta gengur ekki
upp. Þess vegna fer þetta á þennan
veg. Þegar Patrekur var keyptur
hingað voru menn fullir bjartsýni.
Þetta gekk bara ekki upp. Til að
vera sjálfbjarga var báturinn seldur,
þrátt fyrir að sárt sé að horfa á eftir
honum. Með þessu tryggjum við
stoðir stærsta fyrirtækisins hér,
Odda, sem stendur sæmilega eftir,“
sagði Ólafur Arnfjörð.
VONLAUS REKSTUR
Nýlegt dæmi eru kaupin á Stakka-
vík ÁR. Báturinn var seldur frá Eyr-
arbakka til Grenivíkur á 160 milljón-
ir króna. Kvótinn er rúm 400 tonn
og kostar einn og sér um 70 milljón-
ir króna. í kaupum sem þessum er
ekki getið um í kaupsamningum
eða afsali hvernig verðið skiptist
milli báts og kvóta. Þarna lætur
nærri að kvótinn sé um 70 milljónir
og báturinn, sem er 247 tonn og
smíðaður 1967, lengdur 1975 og yf-
irbyggður 1979, kostar um 90 millj-
ónir króna.
Þumalputtaregla segir að veltan á
fyrsta ári verði að vera nærri kaup-
verðinu. í þessu dæmi, sem er alls
ekki óraunhæft, gengur reksturinn
aldrei. Verum bjartsýn og segjum að
meðalverð aflans á fyrsta árinu sé
80 krónur fyrir hvert kíló, sem sagt
aflaverðmæti fyrsta árs verði þá um
þrjátíu og tvær milljónir króna.
Þá er eftir að greiða mannskapn-
um, en það er um helmingur þess
sem kemur inn, eða um 16 milljónir.
Annar rekstrarkostnaður, svo sem
olía, veiðarfæri, viðhald og fleira og
fleira, er þá óreiknaður. Gott þykir
að þegar þetta allt er greitt verði eft-
ir um tíu prósent, 3,2 milljónir
króna.
Það er sama hvernig menn
reikna, þessi afgangur, 3,2 milljónir,
er hvergi nógur til að standa straum
af afborgunum og vöxtum af hluta-
fé. Gróflega er hægt að áætla að tap
á fyrsta ári verði um 30 til 35 millj-
ónir króna og það hækki svo eftir
því sem árunum fjölgar og mögu-
leikar þess að gera bátinn út verða
sífellt minni.
PRESSUNNI er ekki kunnugt um
hversu mikið eigið fé kaupandinn
átti, en samkvæmt því sem hér hef-
ur verið rakið mega skuldirnar ekki
vera miklar til að endar nái saman.
Þess má geta í lokin að vélin í
Stakkavíkinni er frá 1974 og því
væntanlega orðin viðhaldsfrek.
Það skal tekið fram að þetta
dæmi, kaupin á Stakkavíkinni, er
tekið hér sem eitt dæmi af mörgum
hliðstæðum.
SNÆFELLINGUR í ÓLAFSVÍK
Þetta dæmi á líka við um hið nýja
fyrirtæki í Ólafsvík, Snæfelling. Þeir
keyptu þrjá báta með 1.700 tonna
kvóta fyrir 420 milljónir. Miðað við
80 króna meðalverð verða árstekjur
fyrirtækisins 135 milljónir króna,
sem samkvæmt þumalputtaregl-
unni gefa 13,5 milljónir í vexti, af-
borganir og arð af hlutafé.
Ætla má að Snæfelling vanti um
50 til 70 milljónir króna eftir eitt ár.
Það mun hafa áhrif á lausafjárstöð-
una, sem leiðir til þess að fjármagns-
kostnaðurinn eykst enn.
KAUP Á TAPI
Tapkaup fyrirtækja hafa verið
mikið í fréttum. Nú er einna helsi
rætt um fyrirhuguð kaup Samherja
á Akureyri á tapi Meitilsins í Þor-
lákshöfn, sem er um einn milljarður
króna. Samherji er tilbúinn að
greiða eitt hundrað milljónir fyrir
tapið. Ef af kaupunum verður má
ætla að eigendur Samherja geti
komist hjá skattgreiðslum í allt að
fimm árum. í besta falli, þ.e.a.s. fyrir
Samherja, getur þetta leitt til þess
að þeir sleppi við að greiða skatta
sem geta numið allt að sex til sjö
hundruð milljónum króna.
Þótt rekstur Samherja gangi vel er
ólíklegt að hagnaðurinn á næstu ár-
um verði svo mikill, en víst er að ef
af þessum viðskiptum verður marg-
falda Samherjamenn þessar eitt
hundrað milljónir. Stórgróði blasir
við fái þeir að kaupa tapið.
En þetta er ekki allt. Að hluta til
kemur þjóðin til með að greiða tap
Meitilsins. Hluti af skuldum fyrir-
tækisins er við opinbera aðila, svo
sem Ríkissjóð, Átvinnutrygginga-
sjóð og fleiri. Þeir peningar tapast
og það verður til þess að sameigin-
legir sjóðir landsmanna tapa. Hin
hliðin er sú að Samherji er eitt fárra
útgerðarfyrirtækja sem rekin eru
með hagnaði. Með kaupum á tapinu
hyggjast Samherjamenn lækka
skatta sína. Ef það gengur eftir
missa sameiginlegir sjóðir okkar af
þeim peningum sem Samherji hefði
annars greitt, vegna hagnaðarins.
Þar sem tapframboð er orðið mik-
ið hefur verðið fallið og tap fæst nú
á um tíu prósent af verði. Þeir sem
ráða yfir fjármagni geta því hæg-
lega keypt tap og komist þannig frá
skattgreiðslum að verulegum hluta.
Hreinn Loftsson, aðstoðarmaður
forsætisráðherra, hefur sagt að með
kaupum á tapi verði tap ríkissjóðs
tvöfalt; fyrst í töpuðum kröfum op-
inberra sjóða og síðan verði ríkis-
sjóður af skatttekjum stöndugu fyr-
irtækjanna.
SUÐURNESIN KOMIN LENGST
Margir bátar með mikinn kvóta
hafa verið seldir frá útgerðarstöðun-
um á Suðurnesjum. Þar hafa líka
mörg fiskvinnslufyrirtæki hætt
rekstri, oftast vegna gjaldþrots, og
einnig eru dæmi um að eigendur
þeirra hafi hreinlega gefist upp áður
en kom til gjaldþrots.
„Við erum komnir lengra en aðrir
í þessari þróun. Hér eru hundruð
manna atvinnulaus og útlitið ekki
bjart. Við erum komnir lengra í
þessari þróun en aðrir hefðbundnir
sjávarútvegsstaðir. Þetta á eftir að
breiða úr sér og sama vandamálið á
eftir að koma upp víðar. Ef þessi
þróun verður ekki stöðvuð verður
borgarastyrjöld hér á landi, og ég
mun taka þátt í henni," sagði fisk-
verkandi á Suðurnesjum.
Annar fiskverkandi sagði að mik-
ið væri um að fólk hringdi í sig í at-
vinnuleit. „Ástandið hér er orðið
vægast sagt ömurlegt," sagði fisk-
verkandinn.
HAGRÆÐINGARSJÓÐUR
Hagræðingarsjóður, sem sjávarút-
vegsráðherra fer með, er stærsti
kvótaeigandi á landinu. Sjóðurinn á
um tíu þúsund þorskígildistonn. Nú
er rætt um að selja kvóta sjóðsins á
markaðsverði, en það mundi leiða
til þess að ríkið yrði stærsti kvóta-
seljandinn á landinu og þar með
helsti þátttakandinn í því sem marg-
ir nefna „kvótabrask“.
Sigurjón Magnús Egilsson