Pressan - 05.12.1991, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
ÞRATTAÐ UM
VERÐMÆTI
ASIACO
Ágreiningur er nú risinn vegna kaupanna á Asiaco hf., sem
voru gerð fyrir um það bil ári. Fyrirtækið, sem er eitt stærsta
þjónustufyrirtækið við sjávarútveginn hér á landi, var selt
þeim Gunnari Óskarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra
Fjárfestingarfélagsins, og Eyjólfi Brynjólfssyni, framkvæmda-
stjóra Jöfurs. Þeir keyptu af feðgunum Kjartani Jóhannssyni
og Kjartani Erni Kjartanssyni, sem er orðinn umboðsmaður
fyrir MacDonald’s-hamborgarakeðjuna hér á landi.
Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR stendur ágreiningur-
inn um söluverð fyrirtækisins. Telja þeir Gunnar og Eyjólfur
sig ekki hafa fengið fullnægjandi upplýsingar um verðmæti
fyrirtækisins þegar kaupin fóru fram. Aðrir halda því fram að
þeir hafi keypt fyrirtækið of dýru verði. Þessi ágreiningur hef-
ur ekki leitt til riftunar kaupanna, en hvorki Gunnar né Kjart-
an Örn vildu tjá sig um málið.
Asiaco er heildsölu- og þjónustufyrirtæki við sjávarútveg-
inn og flytur meðal annars inn flestar tegundir veiðarfæra.
Samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar var fyrirtækið í 192. sæti
yfir stærstu fyrirtæki landsins í fyrra. Veltan var þá um 410
milljónir króna en hjá fyrirtækinu starfa 30 manns. Þá voru
heildareignir metnar á 173 milljónir.
LÖGREGLAN GLEYMDIAD FARA
MED RÚTUNA í SKOBUN
Rúta Lögregluskólans er ólögleg og ætti eins og aðrar
óskoðaðar bifreiðir að sæta númeraklippingu. Rútan er notuð
til að ferja nemendur. Númerið er JV-855 og átti rútan því að
ná aðalskoðun í maí, en í síðasta lagi í júlí.
Komið var með rútuna í skoðun 23. ágúst, en þá voru at-
hugasemdir gerðar við rúður, rúðuþurrkur, aðalljós, önnur
ljós, slökkvitæki og sjúkrakassa. Lögreglan fékk frest til 23.
september til að laga þetta, en hefur enn ekki mætt með rút-
una í endurskoðun. Af einhverjum ástæðum fékk rútan ekki
bráðabirgðamiða í ágúst, er enn með gamla miðann, og ætti
því að vera fæði fyrir klippur lögreglunnar.
„Við höfum samband við þá á stundinni,” sagði Magnús Ein-
arsson, foringi klippsveitar lögreglunnar, aðspurður um þetta.
LANDSPITALINN
MEÐ220
MILLJÓNA
Um nokkurt skeið hafa verið miklar sprengingar og með-
fylgjandi jarðvegsvinna á Landspítalalóðinni. Skýringin á því
er sú að nú er hafin vinna við mikil tengigöng þar á milli húsa.
Það er Byggðaverk sem sér um framkvæmdirnar en 220 millj-
óna króna tilboði þess var tekið. Verkið var boðið út fyrr á ár-
inu.
Með göngunum á að tengja saman einstakar byggingar á
spítalalóðinni, en í þessum áfanga verða tengd saman hluti
K-byggingarinnar og eldhúsbygging. Einnig er ætlunin að
byggja þarna yfir ljósa- og spennistöðvar.
Þetta er í raun aðeins áfangi í að gera Landspítalann að einni
heild, en það vekur hins vegar athygli að í framkvæmdirnar
skuli vera ráðist núna á samdráttartímum. Mun láta nærri að
til framkvæmdanna sé varið því fé sem Sighvatur Björgvins-
son heilbrigðisráðherra ætlaði að spara hjá ríkisspítulunum.
ívar Hauksson mætti 10 sinnum á skrifstofu Hagskiptamanna á tveimur mánaða tíma til að rukka,
*
Innheimtuaðferðir Ivars Haukssonar
HÖIABIAB BERJA BG
BRffA SKUIBARANA
Eins og komið hefur fram í
PRESSUNNI hefur ríkissak-
sóknari ákveðið að ákæra
ívar Hauksson líkamsræktar-
mann fyrir harkalegar inn-
heimtuaðferðir, skjalafals og
líkamsárásir. Ákæran á hend-
ur Ivari er tvíþætt; annars
vegar vegna eldri líkams-
árása og hins vegar fyrir inn-
heimtuaðferðir hans og
skjalafals.
Ivar var ekki alltaf einn að
verki, eins og sést af sam-
skiptum hans við skrifstofu
Hagskipta hf. í Reykjavík. Þar
er Hreinn Hjartarson ákærð-
ur, ásamt ívari, fyrir að hafa
hótað þeim Sigurdi Erni Sig-
urðssyni og Sigurði Halli
Garðarssyni. Þeir nafnarnir
hafa um skeið rekið umdeilda
viðskiptaskrifstofu sem hefur
meðal annars verið til um-
fjöllunar hér í PRESSUNNI.
ívar og Hreinn komu ítrek-
að á skrifstofu þeirra og hót-
uðu þeim líkamsmeiðingum,
dauða og eignatjóni ef þeir
greiddu ekki víxilkröfu sem
Hreinn átti á þá. Það var
Hreinn sem fyrst í stað hafði
reynt að innheimta kröfuna
með hótunum, en í nóvemb-
er 1990 réð hann ívar til
verksins. Var fjölskyldum Sig-
urðanna hótað meiðingum
og fór ívar um 10 sinnum á
skrifstofu þeirra frá nóvemb-
er 1990 fram í febrúar 1991.
Var ívar þá ýmist einn eða í
fylgd með manni, sem ekki
hefur tekist að bera kennsl á.
BARÐI ÞRJÁ SAMA
KVÖLDIÐ í CASABLANCA
Eldri ákæran á hendur
ívari er vegna harðvítugrar
líkamsárásar á veitingastaðn-
um Casablanca við Skúla-
götu. Atvikið átti sér stað að-
faranótt sunnudagsins 8. júlí
1990 og lágu þrír menn sárir.
Sá fyrsti var sleginn tvisvar
í gólfið og síðan skellt niður
þannig að stórsá á honum.
Annar var tekinn kverkataki
og haldið þannig með þeim
afleiðingum að hann marðist
á hálsi. Þriðji maðurinn var
sleginn hnefahöggi í andlitið
svo hann féll í gólfið og þá
sparkaði ívar í hann liggjandi
með þeim afleiðingum að
blæddi úr vitum hans. Er far-
ið fram á skaðabætur vegna
þessara mála.
HÓTAÐI AÐ BERJA
OG DREPA SON
LÖGREGLUSTJÓRANS
Eitt kærumálanna er frá í
ágúst. Þá hringdi ívar í tví-
gang í Harald Braga Böðvars-
son, lögfræðing á lögmanna-
stofu Olafs Thoroddsen. Har-
aldur, sem er sonur Böðvars
Bragasonar, lögreglustjóra í
Reykjavík, var með kröfu á
hendur ívari til innheimtu.
Hafði hann falið öðrum lög-
manni að innheimta kröfuna.
ívar hótaði í símann að berja
Harald eða drepa ef hann
drægi ekki kröfuna til baka.
Ivar var því í þetta skipti í
hlutverki skuldarans.
ívar er auk þess ákærður
fyrir skjalafals. Um miðjan
desember seldi hann í Spari-
sjóði Reykjavíkur og ná-
grennis skuldabréf að upp-
hæð 350.000 þar sem hann
hafði falsað nafn manns sem
sjálfskuldarábyrgðarmanns
bréfsins.
„SÝNDI MÉR
KA RATEK YLFU‘ ‘
Þeir sem hafa orðið fyrir
barðinu á innheimtuaðferð-
um Ivars vilja ógjarnan koma
fram og rekja sögu sína.
PRESSAN fékk þó tvo slíka til
að greina frá hinni „dæmi-
gerðu" atburðarás.
„Þegar hann kom til að
rukka mig um skuldina var
hann með svarta skjalatösku
sem hann opnaði fyrir fram-
an mig rétt nægilega mikið til
að ég gæti séð að hún inni-
hélt ekkert nema karatekylf-
ur," sagði karlmaður á þrí-
tugsaldri í samtali við PRESS-
UNA.
„Hann sýndi mér kröfuna
og lét mig sjá kylfurnar og
hellti yfir mig óbótaskömm-
um. Meðal annars sagði hann
að hlutverk sitt væri að
bjarga þjóðfélaginu frá
mönnum eins og mér sem
lékju þann leik að safna
skuldum og stinga síðan af frá
öllu saman. Hann fylgdi
PRESSAN greindi frá máli
ívars í síðustu viku.
þessu síðan eftir með því að
hringja bæði í aðstandendur
mína og vini og hóta þeim
öllu illu; hann hringdi marg-
sinnis í pabba minn og hótaði
því að þjarma sérstaklega að
honum."
Þannig lýsir viðkomandi,
sem er afgreiðslumaður í
miðbænpm, viðskiptum sín-
um við ívar Hauksson. Þessi
maður, sem ekki treysti sér til
að koma fram undir nafni,
var lýstur gjaldþrota fyrir
nokkrum árum en einn af
lánardrottnum hans seldi
skuldakröfuna eftir gjaldþrot-
ið og hún komst í hendur
ívars Haukssonar.
„LEITAÐI SKULDARA
UPPIÁ
VEITINGASTÖÐUM"
„Á þessum tíma varð ég
mjög lífhræddur og leið mikl-
ar sálarkvalir, ég hætti að
fara út á kvöldin og var aldrei
einn á ferli. Börnin mín fengu
þau fyrirmæli að opna ekki
fyrir neinum ókunnugum og
fjölskyldunni leið eins og hún
væri í fangelsi. Það var ekki
fyrr en ég komst að því fyrir
tilviljun hvert skuldakrafan
hefði farið og hver hefði látið
ívar innheimta kröfuna og ég
hringdi og hótaði á móti sem
þessu línnti.
ívar Hauksson er bara peð
í þessu tafli; það eru fjársterk-
ir aðilar sem standa á bak vtð
þetta og gera út á að inn-
heimta kröfur sem aðrir hafa
gefist upp á að fá greiddar.
Það gerir enginn einstak-
lingur sér að leik að verða
gjaldþrota og það þarf ekki
að geta sér til um aðferðirnar
sem þessir menn beita ef fólk
borgar ekki orðalaust. ívar
fór mikið um vínveitingastað-
ina til að leita að fólki sem
hann var með kröfur á og auk
þess á aðra staði þar sem
hann gat átt von á að hitta
þetta fólk fyrir. Auðvitað eru
brotalamir í þjóðfélaginu, gíf-
urleg vanskil og fleira slíkt,
en ef þessar aðferðir verða
látnar afskiptalausar endar
þetta allt með ósköpum,"
sagði maðurinn að lokum.
MEÐ PAPPÍRA SEM
AÐRIR HAFA AFSKRIFAÐ
„Ég tók þetta aldrei alvar-
lega en þetta hafði mjög trufl-
andi áhrif á konurnar sem
unnu hér. Hegðunarmunstrið
er þannig," sagði skrifstofu-
maður sem kynntist vinnu-
brögðum ívars. „Hann er
ekki eigandi að þessum kröf-
um sem hann er með, ef hægt
er að ræða um kröfur. Yfir-
leitt er hann með kröfur sem
menn sjá að ekki er forsenda
til að innheimta. Oft eru þetta
tryggingavíxlar sem menn
hafa ekki staðið við og því
forsendur fyrir innheimtu
horfnar. Þetta eru pappírar
sem allir eru búnir að af-
skrifa."
Sigurður Már Jónsson
Þóra Kristin Ásgeirsdóttir