Pressan - 05.12.1991, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
Gestur Guðmundsson. doktor í rokkfræðum
ROKKIÐ ÁTTI
STÓRAN HLUT í
HRUNI MÚRSINS
,,Efnefna á dœmi um þjód-
félagsbreytingar sem rokkiö
hefur haft í för meö sér þá er
fyrst aö nefna hrun mársins.
Þad er enginn vafi á því aö
rokkiö átti mikinn þátt í aö
grafa undan veldi sovéska
kerfisins og jafnvel má segja
aö þaö hafi haft meiri áhrif
en beinn áróöur vestan frá.
Æskan austan járntjalds not-
aöi rokkiö mikiö til aö finna
samhljóm vestan frá. Þaö er
hinn alþjóölegi œskuheimur
sem geröi þetta kerfi fárán-
legt í augum unga fólksins."
Þetta sagði Gestur Guð-
mundsson, sem síðastliðið
vor varði doktorsritgerð við
Kaupmannahafnarháskóla
um æskulýðskenningar, en
þar notaði hann rokkið til að
lesa sögu æskunnar eftir
stríð. Hann er einnig höfund-
ur bókarinnar „Rokksögu ís-
lands", sem kom út í fyrra.
Við spjölluðum við Gest um
rokkið fyrr og nú.
FYRSTA TÓNLISTIN
TENGD ÆSKUNNI
„Ég hef oft sagt að það sé
ekki hægt að skilgreina rokk-
ið bara sem tónlist heldur
verði að líta á félagslega þátt-
inn í þeirri skilgreiningu.
Rokkið kemur upp sem
blanda af blús og kántrí og
verður síðan suðupottur sem
hægt er blanda nánast hverju
sem er saman við. Rokkið
verður fyrsta tegund tónlistar
sem er sérstaklega tengd
æskunni. Það kemur upp á
þeim tíma sem æskuskeiðið
er að verða til sem sjálfstætt
skeið á sjötta áratugnum, en
rokkið verður til sem skil-
greining um 1954 þótt tónlist-
in hafi orðið til áður," segir
Gestur þegar hann er beðinn
að skilgreina rokkið.
Gestur segir að rokkið hafi
Júdas fór hamförum i eina tíð.
i upphafi tengst uppreisn
æskunnar gegn hinum eldri
og það eigi sinn þátt í að
rokkið hafi orðið svona líf-
seigt. Með þessari tónlist hafi
hvíta æskan verið að taka
upp ýmsa þætti úr menningu
svartra, þar á meðal meiri lík-
amlega tjáningu. Menning
hvíta mannsins hafi verið
mjög bundin við höfuðið. í
byrjun hafi rokkið því ekki
síður verið dans en tónlist og
því til stuðnings bendir Gest-
ur á að kannski hafi Sæmi
rokk og Lóa verið fyrstu ís-
lensku rokkhetjurnar frekar
en einhverjir söngvarar.
Rokkið byrjar í Bandaríkjun-
um og Gestur segir að meðal
fyrstu rokksöngvaranna hafi
verið Bill Haley, sem stæidi
nokkuð svartan söngvara er
hét Joe Turner. Einnig megi
nefna Chuck Berry og fleiri
en það hafi verið Elvis Presl-
ey sem fyrstur gerði rokkið
að stóru fyrirtæki.