Pressan - 05.12.1991, Page 41
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. DESEMBER 1991
41
D V birti á þriðjudaginn lista yf ir
10 mest seldu jólabækurnar, en jóla-
bóksalan er hafin af fullum krafti
þótt enn séu ekki all-
ar bækurnar komn-
ar í verslanir. Sam-
kvæmt DV er „Líf-
róður" Árna
Tryggvasonar eftir
Ingólf Margeirs-
son ritstjóra Al-
þýðublaðsins, sem Örn og Örlygur
gefa út, mest selda bókin til þessa og
í öðru sæti „Fyrirgefning syndanná'
eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Sé lit-
ið til þess hvaða forlög eiga flestar
bækurnar á 10 bóka listanum kem-
ur í ljós að Jóhann Páll Valdimars-
son í Forlaginu fer þar með vinning-
inn með alls fjórar bækur, ævisögu
Kristjáns Eldjárns eftir Gylfa
Gröndal, „Bláskjá" eftir Franz
Hoffmann, „Þegar sálin fer á
kreik“ — minningar Sigurveigar.
Guðmundsdóttur eftir Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur og
„Lífsháská' Jónasar Jónassonar
eftir Svanhildi Konráðsdóttur ...
u
JL JLafnar eru nornaveiðar hinar
meiri í Garðyrkjuskóla ríkisins á
Reykjum í Ölfusi eftir að PRESSAN
birti í síðasta tölu-
blaði ábendingar frá
nokkrum óánægð-
um nemendum með
ástand mála í skól-
anum. Alls hringdu
fimm manns í blaðið
og sögðu frá því
meðal annars að skólinn væri mjög
fátæklega tækjum búinn þótt hann
hefði starfað í 50 ár og fengi 50 millj-
ónir á ári á fjárlögum auk þess sem
nemendur fengju aldrei að fara inn
í tilraunagróðurhúsin. Þetta hafa
nokkrir fyrrverandi nemendur
einnig staðfest. Eftir að fréttin birtist
í blaðinu kallaði skólastjórinn,
Grétar Unnsteinsson, nemendur
á sal og hélt fjallræðu yfir þeim og
gaf til kynna að hinir óánægðu
nemendur yrðu reknir úr skólanum
ef þeir fyndust. Síðan hefur einn
nemandi haft samband við PRESS-
UNA og skorað á blaðið að gefa upp
nöfn þeirra til að megi reka þá ...
FLUGLEIÐIR
Þegar xnatarilmurinn liggur í loftinu
I Lóninu á Hótel
Loftleiðum verður fram-
reitt glæsilegt jólahlaðborð
á aðventunni, frá 29. nóv-
ember -23. desember.
Matreiðslumeistarar
hótelsins sjá til þess að
hlaðborðið svigni undan
Ijúffengum réttum -
bæði í hádeginu og á
kvöldin; hvítlauksrist-
aður smáhumar, síld,
reyktur lax, reyksoðin
lundabringa, grísasteik,
reyksteikt lambalæri,
hreindýrabuff, ris á
l'amande, kanelkrydd-
uð epli og ótal margt fleira.
Allir jólahlaðborðsgestir eru sjálfkrafa þátt-
takendur í glæsilegu ferðahappdrætti. Það fer
vel um þig í Lóninu og þjónarnir okkar leggja
sig alla fram til að stundin verði sem ánægju-
legust.
Borðapantanir í síma 22321.