Pressan - 12.12.1991, Side 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991
21
al SVIPTIVINDUM
eftir STEINAR AúÐVÍKSSON.
flugmálum á íslandi þegar hann kom
inn í stjóm Loftleiða á frægum byltingarfundi árið 1953.
í tæp fjömtíu ár eða fram til aðalfundar Flugleiða 1991
var Sigurður í fylkingarbijósti. Hann var um árabil
forstjóri Loftleiða í Bandaríkjunum en eftir sameiningu
Loftleiða og Flugfélags Islands 1973 varð hann einn
þriggja forstjóra félagsins. Hann var forstjóri og síðar
stjórnarformaður Flugleiða um árabil. Þar blésu oft kaldir
vindar um Sigurð Helgason enda var hann þekktur fyrir
að taka ákvarðanir og standa eða falla með þeim.
í SÖNGVARANS JÓREYK
Æviminningar Sigurðar Olafssonar
eftir RAGNHEIÐIDAVÍÐSDÓTTUR.
I bókinni segir Sigurður frá litríku
lífshlaupi sínu. Hann var mjög
fjölhæfur söngvari og á 50 ára söngferli sínum söng hann
í kórum, við jarðarfarir, með danshljómsveitum og í óperum,
auk þess sem hann söng inn á margar hljómplötur sem njóta
enn gífurlegra vinsælda. En Sigurður var ekki síður kunnur sem
hestamaður þar sem skeiðið var sérgrein hans. í bókinni endur-
speglast geislandi lífsgleði og þróttur Sigurðar sem áður kom
fram á skeiðvöllunum og í söng hans.
„HEITIRÐU OMAR ?!!"
Minningabók eftir ÓMAR RAGNARSSON
fréttamann. I bókinni rekur Ómar
endurminningar sínar frá bernskuárunum.
Hann bregður upp ógleymanlegri mynd af
Reykjavík eftirstríðsáranna og af lífsbaráttu alþýðufólks á þeim
árum. Hann segir frá prakkarastrikum í sveitinni og kristilega
þenkjandi ungum mönnum í Kaldárseli. Hann segir frá fyrstu
ástinni í lífi sínu sem kviknaði við harmrænar kringumstæður.
Einlægni og frásagnargleði einkenna þessa bók
ÓMARS RAGNARSSONAR, rétt eins og persónuna sjálfa.
STAÐIÐISTRONGU
Æviminningar Erlendar Einarssonar
eftir KJARTAN STEFÁNSSON.
Erlendur Einarsson var um langt
árabil forstjóri Sambands íslenskra
samvinnufélaga. Undir hans stjórn reis veldi samvinnu-
hreyfingarinnar á Islandi hæst og hún varð stórveldi í
íslensku samfélagi. Flest var þar slétt og fellt á
yfirborðinu en eins og oft gerist í miklum atvinnurekstri
og umsvifum kraumaði undir niðri. Og nokkrum sinnum
sauð reyndar upp úr. Erlendur fjallar um afskipti sín af
málum samvinnuhreyfingarinnar sem hófust þegar hann
var innanbúðarmaður í Kaupfélaginu í Vík í Mýrdal.
Hann rekur feril sinn hjá Sambandinu og fyrirtækjum
þess og segir frá átökum sem urðu við lok starfsferils
hans þar.
FLÓTTAMAÐURINN
Ein kunnasta saga bandanska spennusagna-
höfundarins STEPHEN KING í íslenskri
þýðingu Karls Birgissonar. Sagan gerist í
stórborg í Bandaríkjunum í náinni framtíð.
Kerfið hefur sigrað einstaklinginn og í gegnum fjölmiðla og þó
einkum sjónvarpið er auðvelt að æsa lýðinn til óhæfuverka.
Aðalsöguhetja bókarinnar, Ben Richards, er sendur nauðugur til
leiks þar sem lífið sjáift er að veði. STEPHEN KING bregst aldeilis
ekki fjölmörgum aðdáendum sínum með þessari óvenjulegu sögu.
ÍTÆTLUM
Danska stúlkan SYNN0VE S0E sló rækilega
í gegn með þessari bók sem nefnist FARS á
frummálinu. Bókin hefur orðið metsölubók
á hinum Norðurlöndunum og kemur nú út í
íslenskri þýðingu Steinars J. Lúðvíkssonar. SYNN0VE S0E leynir
því ekki að í bókinni er hún að lýsa sinni eigin æsku og hvernig hún
varð hálfgerð leikbrúða karlmannanna í lífi hennar. Sagan er
óvenjulega trúverðug og nær að snerta strengi í brjóstum lesendanna.
Þess vegna hafa lesendurnir í senn verið hrífnir og hneykslaðir.
DAUÐADÚKKAN
RUTH RENDELL er löngu heimsfræg fyrir
spennusögur sínar en gerðar hafa verið
kvikmyndir eftir mörgum þeirra og þær
m.a. sýndar í sjónvarpinu á íslandi.
í skáldsögunni DAUÐADÚKKAN grt'pur aðalsöguhetjan,
Peter Yearman, til örþrifaráðs þegar hann álítur að hann
verði alltaf lágvaxnari en aðrir menn. Hann hrindir af stað
ógnvekjandi atburðarás sem erfitt reynist að stöðva.
Afleiðingarnar bitna ekki eingöngu á honum sjálfum.
Jónína Leósdóttir þýddi bókina.
BARNA OG UNGLINGABÆKUR
MITTERÞITT
Unglingasaga eftir ÞORGRÍM ÞRÁINSSON. Þetta er þriðja
unglingabók Þorgríms en báðar fyrri bækur hans fengu mjög
góðar móttökur. Ekki einungis að þær yrðu metsölubækur
heldur hlaut bókin, sem út kom í fyrra, TÁR, BROS OG
TAKKASKÓR, verðlaun sem besta íslenska unglingabókin 1990. MITT ER ÞITT
er sjálfstætt framhald fyrri bókanna. Þetta er saga um dugmikla stráka og stelpur
sem grípa til sinna ráða þegar einn úr hópnum er sakaður um þjófnað og auðvitað
kemur knattspyman einnig við sögu því það er keppikefli strákanna að komast í
drengjalandsliðið.
EGILLOG GARPUR
Barnabók eftir RAGNHEIÐI DAVÍÐSDÓTTUR. Þetta er saga
utn sex ára strák, sem heitir Egill. Hann er að byrja í skóla og
búinn að læra umferðarreglurnar. Egill fær kettling í afmælisgjöf
en kisi er ekki eins vel að sér í umferðarreglunum og eigandinn
og lendir í slysi. Þetta er lærdómsrík saga um hættur umferðarinnar.
Umferðarráð mælir með bókinni og /gr
segir hana sameina vel skemmtun -
og fróðleik. Teikningarnar í
í bókinni eru eftir ungan myndlistarmann,
STEFÁN KJARTANSSON. BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA I
"_._ ^
FRODI
Ármúli 18-108 Reykjavík - Sími: 812300
WýR DAGUR . SlA