Pressan - 12.12.1991, Síða 21

Pressan - 12.12.1991, Síða 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991 21 al SVIPTIVINDUM eftir STEINAR AúÐVÍKSSON. flugmálum á íslandi þegar hann kom inn í stjóm Loftleiða á frægum byltingarfundi árið 1953. í tæp fjömtíu ár eða fram til aðalfundar Flugleiða 1991 var Sigurður í fylkingarbijósti. Hann var um árabil forstjóri Loftleiða í Bandaríkjunum en eftir sameiningu Loftleiða og Flugfélags Islands 1973 varð hann einn þriggja forstjóra félagsins. Hann var forstjóri og síðar stjórnarformaður Flugleiða um árabil. Þar blésu oft kaldir vindar um Sigurð Helgason enda var hann þekktur fyrir að taka ákvarðanir og standa eða falla með þeim. í SÖNGVARANS JÓREYK Æviminningar Sigurðar Olafssonar eftir RAGNHEIÐIDAVÍÐSDÓTTUR. I bókinni segir Sigurður frá litríku lífshlaupi sínu. Hann var mjög fjölhæfur söngvari og á 50 ára söngferli sínum söng hann í kórum, við jarðarfarir, með danshljómsveitum og í óperum, auk þess sem hann söng inn á margar hljómplötur sem njóta enn gífurlegra vinsælda. En Sigurður var ekki síður kunnur sem hestamaður þar sem skeiðið var sérgrein hans. í bókinni endur- speglast geislandi lífsgleði og þróttur Sigurðar sem áður kom fram á skeiðvöllunum og í söng hans. „HEITIRÐU OMAR ?!!" Minningabók eftir ÓMAR RAGNARSSON fréttamann. I bókinni rekur Ómar endurminningar sínar frá bernskuárunum. Hann bregður upp ógleymanlegri mynd af Reykjavík eftirstríðsáranna og af lífsbaráttu alþýðufólks á þeim árum. Hann segir frá prakkarastrikum í sveitinni og kristilega þenkjandi ungum mönnum í Kaldárseli. Hann segir frá fyrstu ástinni í lífi sínu sem kviknaði við harmrænar kringumstæður. Einlægni og frásagnargleði einkenna þessa bók ÓMARS RAGNARSSONAR, rétt eins og persónuna sjálfa. STAÐIÐISTRONGU Æviminningar Erlendar Einarssonar eftir KJARTAN STEFÁNSSON. Erlendur Einarsson var um langt árabil forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga. Undir hans stjórn reis veldi samvinnu- hreyfingarinnar á Islandi hæst og hún varð stórveldi í íslensku samfélagi. Flest var þar slétt og fellt á yfirborðinu en eins og oft gerist í miklum atvinnurekstri og umsvifum kraumaði undir niðri. Og nokkrum sinnum sauð reyndar upp úr. Erlendur fjallar um afskipti sín af málum samvinnuhreyfingarinnar sem hófust þegar hann var innanbúðarmaður í Kaupfélaginu í Vík í Mýrdal. Hann rekur feril sinn hjá Sambandinu og fyrirtækjum þess og segir frá átökum sem urðu við lok starfsferils hans þar. FLÓTTAMAÐURINN Ein kunnasta saga bandanska spennusagna- höfundarins STEPHEN KING í íslenskri þýðingu Karls Birgissonar. Sagan gerist í stórborg í Bandaríkjunum í náinni framtíð. Kerfið hefur sigrað einstaklinginn og í gegnum fjölmiðla og þó einkum sjónvarpið er auðvelt að æsa lýðinn til óhæfuverka. Aðalsöguhetja bókarinnar, Ben Richards, er sendur nauðugur til leiks þar sem lífið sjáift er að veði. STEPHEN KING bregst aldeilis ekki fjölmörgum aðdáendum sínum með þessari óvenjulegu sögu. ÍTÆTLUM Danska stúlkan SYNN0VE S0E sló rækilega í gegn með þessari bók sem nefnist FARS á frummálinu. Bókin hefur orðið metsölubók á hinum Norðurlöndunum og kemur nú út í íslenskri þýðingu Steinars J. Lúðvíkssonar. SYNN0VE S0E leynir því ekki að í bókinni er hún að lýsa sinni eigin æsku og hvernig hún varð hálfgerð leikbrúða karlmannanna í lífi hennar. Sagan er óvenjulega trúverðug og nær að snerta strengi í brjóstum lesendanna. Þess vegna hafa lesendurnir í senn verið hrífnir og hneykslaðir. DAUÐADÚKKAN RUTH RENDELL er löngu heimsfræg fyrir spennusögur sínar en gerðar hafa verið kvikmyndir eftir mörgum þeirra og þær m.a. sýndar í sjónvarpinu á íslandi. í skáldsögunni DAUÐADÚKKAN grt'pur aðalsöguhetjan, Peter Yearman, til örþrifaráðs þegar hann álítur að hann verði alltaf lágvaxnari en aðrir menn. Hann hrindir af stað ógnvekjandi atburðarás sem erfitt reynist að stöðva. Afleiðingarnar bitna ekki eingöngu á honum sjálfum. Jónína Leósdóttir þýddi bókina. BARNA OG UNGLINGABÆKUR MITTERÞITT Unglingasaga eftir ÞORGRÍM ÞRÁINSSON. Þetta er þriðja unglingabók Þorgríms en báðar fyrri bækur hans fengu mjög góðar móttökur. Ekki einungis að þær yrðu metsölubækur heldur hlaut bókin, sem út kom í fyrra, TÁR, BROS OG TAKKASKÓR, verðlaun sem besta íslenska unglingabókin 1990. MITT ER ÞITT er sjálfstætt framhald fyrri bókanna. Þetta er saga um dugmikla stráka og stelpur sem grípa til sinna ráða þegar einn úr hópnum er sakaður um þjófnað og auðvitað kemur knattspyman einnig við sögu því það er keppikefli strákanna að komast í drengjalandsliðið. EGILLOG GARPUR Barnabók eftir RAGNHEIÐI DAVÍÐSDÓTTUR. Þetta er saga utn sex ára strák, sem heitir Egill. Hann er að byrja í skóla og búinn að læra umferðarreglurnar. Egill fær kettling í afmælisgjöf en kisi er ekki eins vel að sér í umferðarreglunum og eigandinn og lendir í slysi. Þetta er lærdómsrík saga um hættur umferðarinnar. Umferðarráð mælir með bókinni og /gr segir hana sameina vel skemmtun - og fróðleik. Teikningarnar í í bókinni eru eftir ungan myndlistarmann, STEFÁN KJARTANSSON. BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA I "_._ ^ FRODI Ármúli 18-108 Reykjavík - Sími: 812300 WýR DAGUR . SlA

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.