Pressan - 12.12.1991, Side 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991
35
TÍSKUDOPIB ECSIACY ER
KOMIB TILISLANDS
Vímuefnið Ecstacy hefur verið áberandi í Bretlandi og á Spáni á undanförnum misserum.
Þetta er ofskynjunarlyf sem jafnframt er örvandi. Þótt stutt sé síðan Ecstacy varð áberandi
ytra hefur íslenska fíkniefnalögreglan þegar lagt hald á efnið hérlendis og það er notað af hópi
íslenskra vímu- og fíkniefnaneytenda.
í september síðastliðnum
var maður tekinn í tollinum í
Keflavík með þrjár töflur af
vímuefni. Vímuefni þetta
nefnist „Ecstacy" eða alsæla.
Efnið hefur náð geysimikilli
útbreiðslu í Evrópu en er ekki
mjög útbreitt hér á landi enn
sem komið er.
Björn Halldórsson hjá fíkni-
efnalögreglunni segist hafa
upplýsingar um að efni þetta
sé komið til landsins en veit
lítið um útbreiðslu þess eða
hverjir eru helstu neytendur:
,,Við erum bara nýlega farin
að sjá greinar um þetta efni
frá lögregluyfirvöldum í öðr-
um löndum. Við vitum að
efnið er útbreitt í Hollandi,
Bretlandi, Þýskalandi og á
Spáni og eitthvað á Norður-
löndunum. Við vitum líka
hvernig fólk lítur út þegar
það hefur tekið þetta efni og
að víman er þannig að neyt-
andinn fer í aðra veröld og
verður mjög framtakssamur;
getur til dæmis dansað í
marga klukkutíma án þess að
finna fyrir þreytu.“
KEMUR FRÁ BRETLANDI
OG IBIZA
Ecstacy eða MDMA, eins
og það er kallað á lyfjamáli,
er efnafræðilega skylt LSD
og amfetamíni. Það er því
bæði ofskynjunar- og örvandi
efni. Flestir viðmælenda
PRESSUNNAR sem nota efn-
ið virtust ekki vita að það
væri skylt LSD eða amfeta-
míni, því þær upplýsingar
liggja ekki á lausu.
„Isiendingar sem nota
þetta eru frekar fáir, kannski
innan við 100,“ segir notandi
efnisins, sem vill eVki láta
nafns getið. „Fólkið sem not-
ar þetta hér er fólk sem hefur
Björn Halldórsson, yfirmað-
ur fíkniefnadeildar lögregl-
unnar. „Víman er þannig að
neytandinn fer í aðra veröld
og verður mjög framtaks-
samur; getur til dæmis
dansað í marga klukkutíma
án þess að finna fyrir
þreytu."
kynnst þessum klúbbakúltúr
í Bretlandi eða á Ibiza. Notk-
un þessa efnis tengist klúbb-
um sem bjóða upp á House-
tónlist með hljómsveitum
eins og Happy Monday, 808
State og fleiri. Ég byrjaði að
nota þetta þegar ég bjó í Bret-
landi og þetta gengur þannig
fyrir sig að þú ferð á svona
klúbb, kaupir pillu og ferð svo
í vímu sem gerir að verkum
að þér líður alveg ofsalega
vel; kvöldið verður ofsalega
skemmtilegt og allir eru svo
skemmtilegir í kringum þig
og þér þykir svo vænt um
alla. Pillurnar kosta 5.000
krónur á íslandi en um 2.000
krónur í Bretlandi."
FULLT AF FÖLSKU DÓPI
Jakob Kristinsson hjá
Rannsóknarstöð Háskólans í
lyfjafræði segist ekki hafa
fengið mörg sýni af iyfinu til
rannsóknar: „Við höfum
fengið sýni sem hafa verið
nefnd þessu nafni (Ecstacy)
en voru það alls ekki þegar
við rannsökuðum þau nánar,"
segir Jakob. Rannsóknarstöð-
in hefur aðeins fengið eitt
sýni sem var að mestu leyti
hreint MDMA. „Það sem ein-
kennir islenskan fíkniefna-
markað er að hér er selt fulit
af lyfjum sem eru ekki það
sem þau eru sögð vera,“ segir
Jakob.
Viðmælandi PRESSUNN-
AR sagði að víman væri mjög
mismunandi og „maður veit í
rauninni aldrei hvað maður
kaupir. Maður reynir að
kaupa af þeim sem maður
þekkir. Pillurnar eru allavega
á litinn og eru annaðhvort í
hylkja- eða pilluformi. Víman
varir svona í 2 til 8 tíma eftir
styrkleika".
„Einn vinur minn lenti í því
að kaupa eitthvert drasl og í
marga klukkutíma var hann
með uppköst og ofsjónir,"
segir annar.
FÓLK NOTAR SJÁLFT
SIG SEM TILRAUNADÝR
Lyfið var fyrst búið til 1898
og notað af Þjóðverjum í fyrri
heimsstyrjöldinni til að
minnka matarlyst hermann-
anna. Neysla lyfsins jókst aft-
ur á sjöunda áratugnum en
það var bannað í Bretlandi
árið 1977. i kringum 1980 fer
að bera aftur á neyslu þessa
lyfs hjá háskólanemendum í
Bandaríkjunum og það er nú
orðið vinsælt í Evrópu.
„Hreint Ecstacy virkar þann-
ig að fólk verður rólegt og
getur talað og hlustað í
marga klukkutíma," segir
Arno Adelaars, hollenskur
maður sem skrifaði bók um
Ecstacy. Lyfið er sem fyrr seg-
ir skylt amfetamíni, en fólk
þarf að nota meira af efninu
til að ná fram örvunaráhrif-
um amfetamínsins. Engar
marktækar rannsóknir liggja
fyrir um langvarandi áhrif
lyfsins og er þetta efni skráð
af Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnuninni sem ávana- og
fíkniefni.
„Fólk er því að taka áhættu
og notar sjálft sig sem til-
raunadýr," segir Peter McDer-
mott, forstöðumaður Mers-
ey-fíkniefnamiðstöðvarinnar
í Bretlandi, í viðtali við tíma-
ritið The Face.
Efnið er skylt amfetamíni
og getur því orðið vanabind-
andi og þar sem það er líka
ofskynjunarlyf geta þeir sem
nota það lengi átt á hættu að
verða þunglyndir, þróa með
sér ofstækisfulla framkomu
og verða fyrir geðtruflunum
eða persónuleikabreytingum
og lystarstoli. Sumt fólk hefur
ofnæmi fyrir efninu og þegar
það tekur það inn getur það
dáið samstundis eins og
dæmi eru til um erlendis. Þeir
sem hafa notað efnið í ein-
hvern tíma kvarta oft undan
svefnleysi, kækjum, svita-
köstum, bakverkjum, tann-
skemmdum og vöðvakrampa
og að þeir fái flensu og háls-
bólgu oftar en áður.
Framleiðsla efnisins er
mjög flókin. Sérfræðingar
eru þess fullvissir að fólki sé
sjaidan selt hreint Ecstacy
heldur einhvers konar blanda
af ýmsum efnum sem það
ætti að vara sig á.
„TEK BARA SÉNSINN“
„Að kaupa Ecstacy í dag er
eins og að spila rússneska
rúllettu; þú veist aldrei hvort
efnið er hreint eða ekki,“ seg-
ir Peter McDermott.
Einn neytenda var spurður
hvort hann væri ekki hrædd-
ur við að eiturlyfið væri bara
eitthvert kukl í pilluformi:
„Auðvitað er ég hræddur við
aukaverkanir en þar sem
ekkert er vitað um efnið tek
ég náttúrlega bara sénsinn.
Það fólk sem notar þetta dóp
er ekki þessir venjulegir dóp-
istar með neysluvandamál.
Þetta er meira og minna ver-
aldarvant fólk sem hefur efni
á þessu en notar efnið sem
spariefni og alls ekki um
hverja helgi; það er of hættu-
legt og fólkið veit það. Þetta
fólk er flest á aldrinum átján
til tuttugu og sex ára og fer á
þá skemmtistaði þar sem
House-tónlist er spiluð. Fóik
notar þetta efni bara á
skemmtistöðum, því veran
þar eykur vímuna.“
Fólk ætti ekki að nota efnið
ef það er hjartveikt, með há-
an blóðþrýsting, flogaveikt,
með asma, er þunglynt eða á
við sálræna erfiðleika að
stríða. Umhverfið hefur líka
sitt að segja; ef það er til
dæmis þéttsetinn loftlaus bar
er meiri hætta á sterkum við-
brögðum.
Flestir viðmælenda PRESS-
UNNAR halda því fram að eit-
urlyf þetta sé ekki vanabind-
andi, „en þegar maður kynn-
ist efninu fer mann að langa
til að nota þetta um hverja
helgi“, segir einn þeirra.
Þórunn Bjarnadóttir
smaa
letrið
Pólt jólin séu indæl þá eru
þau lika miskunnarlaus. Ekki
bara fyrir þá, sem aldrei fá það
sem þá langar í íjólagjöf, heldur
lika þá þrjá tugi manna og
kvenna sem bíða núna eftir
dómi markaöarins. Þetta er
fólkið sem hefur sent frá sér
endurminningar sinar. Þetta er
fólk sem hefur ákveðið að
mæla verðgildi persónu sinn-
ar i jólabókaflóðinu.
Af fjöldanum má ráða að
margir munu fá falleinkunn um
þessi jól. Á aðfangadagskvöld,
þegar fjölskyldan safnast sam-
an til að gleðjast, mun einn (eða
ein) sitja úti i horni særður
Iéða særð) sári sem grær ekki
svo fljótt.
Mikið djöfull hlýtur það að
vera sárt að setja saman endur-
minningar sinar og leggja til
fjölskyldualbúmið til þess eins
að komast að þvi langflestum
er hjartanlega sama. Jafnvel
þeir fáu sem fengu bókinaijóla-
gjöf labba sig út i búð á þriðja i
jólum til að skipta henni fyrir
kúlutússa og skrifblokkir.
Við skulum hugsa til þessa
fólks í smátíma og senda því já-
kvæða strauma.
Þetta fólk er nefnilega miklu
verr sett en rithöfundarnir og
skáldin. Þeir hafa margra aida
þjáifun i því að kenna lesand-
anum um ef hann kaupir ekki
og les bókina. Eina vörnin sem
endurminningafólkið hefur er
að kenna forleggjaranum um
að hafa ekki auglýst nóg,
hönnuðinum um að hafa valið
kolranga liti á bókarkápuna
eða hinum, sem seldu bækurn-
ar sinar, um að vera tilbúnir til
að Ijúga upp á sig morði og
nauðgunum til að selja einu
þúsundinu meira.
Við hin, sem erum ekki enn
svo kjörkuð að hafa farið með
endurminningarnar til forleggj-
ara, sitjum hjá og fylgjumst
með hver fær verstu útreiðina.
Verður það Laddi? Verður það
Erlendur Einarsson eða Sig-
uröur Helgason? Verður það
Jónas Jónasson eða Ómar
Ragnarsson? Liklega verður
það hvorki Árni Tryggvason né
Erró, en verður það Heiðar?
TVÍFARAKEPPNI
PRESSUNNAR - 24. HLUTI
Tvífarar vikunnar bera báðir
með sér anda liðinna alda.
Sveinbjörn Beinteinsson alls-
herjargoði er forystumaður
ásatrúarmanna. Jólasveinninn
i Rammagerðinni er forystu-
sauður jólasveinanna. Báðir
standa þeir fyrir það sem er is-
lenskt og báðir þykja vœnleg-
ur kostur til að vekja athygli á
landiog þjóð í útlöndum. Reynt
hefur verið að selja íslenska
jólasveininn til Japans og
Sveinbjöm er ein helsta „túr-
hesta-atraksjónin" í landinu.
Báðir eru þeir góðlegir, skeggj-
aðir og með bros i augum.