Pressan - 12.12.1991, Page 43
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991
43
Sigríður Indriðadóttir: „Við truflum hann ekki rétt fyrir mót."
tvisvar á ári með honum, en
það er ekki svo gott við það
að eiga vegna þess að maður
getur ekki hlaupið hvenær
sem er úr vinnunni. Auk þess
fylgja skákmótunum gífur-
lega stífar dagskrár þannig
að það er ekki alltaf sérstak-
lega gaman að fylgja þeim
eftir"
EIGINKONURNAR
MIKLAR VINKONUR
OG FARA í UTAN-
LANDSFERÐIR SAMAN
Skákmennskan og kraft-
lyftingar eiga það sameigin-
legt að vera miklar einstakl-
ingsíþróttir. Það er reyndar
túlkunaratriði hvort tala eigi
um skák sem íþrótt eða list en
það skiptir ekki máli hér.
Hvoru tveggja virðist fylgja
að konur lyftingamanna
verða góðar vinkonur og
konur skákmeistaranna einn-
ig. Reyndar eru, þegar þessi
orð eru skrifuð, eiginkonur
Jóns L., Margeirs og Jónína
Ingvadóttir, eiginkona Jó-
hanns Hjartarsonar, lagðar af
stað einar í sameiginlegt or-
lof til útlanda, þar sem þær
ætla að eyða nokkrum dög-
um saman. Þær vildu ekki
svara því hvort ferðin væri
mótleikur við eilíft utan-
landsbrölt eiginmannanna.
ÞARF STUNDUM AÐ ÝTA
ÞEIM í HÚSVERKIN
En hvernig ætli önnum
kafnir íþróttamenn og skák-
menn reynist sem heimilis-
feður þegar þeir gefa sér tíma
til þess á annað borð, leggja
þeir til dæmis sjálfir parketið
á stofugólfið?
„Já minn maður setti niður
parketið sjálfur fyrir tveimur
vikum og var ekki lengi að
því,“ segir Lilja.
„Margeir gerir nú ekki
stóra hluti hérna heima. Það
þarf eiginlega að ýta honum
í það sem hann gerir, en við
skulum ekki fara nánar út í
það,“ segir Sigríður.
Þórunn, kona Jóns L., segir
að það hafi ekki enn reynt á
verkkunnáttu Jóns og Soffía,
kona Jóns: „Hann er í eðli
sínu heimakær og væri meira
heima ef hann þyrfti ekki að
æfa sig svona mikið. Hann er
nú enginn stórviðgerðamað-
ur en hann þolir alls ekki
drasl á heimilinu og er alltaf
Óskar Adólfsson: „Ekki alltaf
létt líf."
að skamma mig fyrir að skilja
fötin mín eftir út um alla
íbúð.“
SEGI HONUM FREKAR
AÐ FARA Á BAR
EN VERA HEIMA
Er hann erfiöur í sambúd
og stressadur fyrir mót?
„Nei, Jón er í eðli sínu geð-
góður og síbrosandi. Það býr
mikið skap í honum, ég finn
það, en ég hef ekki skoðað
það nánar."
Lilja segir að þegar Magnús
sé stressaður og pirraður fyr-
ir mót segi hún honum að
drífa sig frekar út að hitta fé-
lagana eða fara á barinn. Hún
nenni ómögulega að hafa
hann inni á heimilinu stress-
aðan og þöglan.
Kristín Gísladóttir, kona
Valdimars Grímssonar hand-
boltahetju, segir að Valdimar
kunni ýmislegt fyrir sér inni á
heimilinu en það þurfi reynd-
ar að ýta honum í það.
„Svo er það svo skrýtið
með hann að fyrir mikilvæga
handboltaleiki, þegar hann
er alveg að deyja úr stressi,
þá á ég helst að vera heima
en vera samt ekki að atast í
honum að óþörfu," segir
Kristin og hlær hátt.
„Annars er ekki farið að
reyna svo mikið á hefðbund-
ið heimilislíf hjá okkur því að
við erum ekki með barn á
heimilinu og bæði önnum
kafin. Ég kenni eróbikk og
fimleika og hann þjálfar í
yngri flokkum í handbolta
auk vinnunnar og æfing-
anna, sem eru fimm sinnum í
viku, þannig að við erum
hvorugt komin heim fyrr en
um níuleytið á kvöldin."
Ferö þú með honum utan í
keppnisferdir?
„Nei, það hentar ekki. Ég
hef einu sinni farið og það var
skemmtilegt því þá unnu ís-
lendingar B-heimsmeistara-
keppnina. Það er miklu
skemmtilegra þegar hægt er
að tengja keppnisferðir frí-
um, þá gætum við hist úti að
lokinni keppni."
GAFST UPP Á HONUM ÞVÍ
HÚN VILDI EKKI EIGA
NEINN „HOBBÍ-MANN“
Það eru til dæmi um að
konur hafi hreinlega gefist
upp á unnustum sínum sem
hafa verið á kafi í íþróttum og
því sem þeim fylgir. Hún var,
eins og hún segir, ekki tilbúin
að fórna sér algerlega fyrir
hann og áhugamálin hans.
„Það var ætlast til þess að
ég stæði í söfnunum fyrir lið-
ið með hinum konunum, bak-
aði, færi á alla leiki, fagnaði
með honum þegar liðið vann
og styddi hann þegar það tap-
aði. Þegar voru til dæmis
samkvæmi í báðum vinahóp-
um á sama tíma þá varð ég
alltaf að boða forföll en það
kom aldrei til greina að hann
Kristín Gísladóttir: „Vera
heima en atast ekki í honum."
gerði það. Ég gafst upp á
þessu. Ég hafði ekki og hef
aldrei haft áhuga á íþróttum
og þótt ég færi stundum á
völlinn þá fann ég mig ekki í
þessu. Ég hafði ekki áhuga á
því að fara að stunda mann-
inn minn sem eitthvert
hobbí,“ segir fyrrverandi
unnusta landsliðsmanns í
boltaíþrótt.
HEPPILEGAST EF
ÁHUGINN ER SVIPAÐUR
HJÁ BÁÐUM AÐILUM
„Ég held að galdurinn við
góð hjónabönd íþróttamanna
sé að miklu leyti áhugi hins
aðilans á því sem makinn
fæst við," segir Helga Möller,
eiginkona Péturs Ormslev
knattspyrnumanns. „Ég held
að öðruvísi sé erfitt að fá
dæmið til að ganga upp, þetta
er svo tímafrekt. Pétir æfir
fimm daga vikunnar auk þess
sem hann er þjálfari í knatt-
spyrnu. Hitt er annað að fé-
lagsandinn er geysilega góð-
ur og við hittumst mjög mikið
liðin og makarnir og gerum
mikið saman og svo framveg-
is.“
Fariö þið alltaf með þegar
strákarnir fara saman út að
borða?
„Nei, þeir fara stundum
einir og það er mín vegna í
góðu lagi. Maður þarf ekki
alltaf að vera að gera allt sam-
an. Við hittumst oft konur
þessara manna og þá eru þeir
ekki alltaf með.“
Helga segir að Pétur sé
meistarastraujari og taki sig
stundum til og straui allan
þvottinn í einu. Hún þurfi
sjaldnast að hreyfa litla putta
í eldhúsinu eftir matinn því
hann sjái algerlega um það.
En hann hafi ekki gaman af
hömrum og sögum. Þegar
slíks þurfi við leiti hann til
vina sinna en sé jafnframt til-
búinn að handlanga til þeirra
áhöldin.
ENGINN DANS Á RÓSUM
En það eru ekki allt konur
sem þurfa við íþróttamenn að
eiga. Óskar Adolfsson er
sambýlismaður Ragnheiðar
Runólfsdóttur, sunddrottn-
ingar frá Akranesi. Þau eru
nú bæði í Alabama í Banda-
ríkjunum, þar sem þau
stunda háskólanám.
Ragnheiður æfir sund sex
daga vikunnar, stundum
tvisvar á dag, auk þess að
vera í skóla. Hún fer snemma
að heiman á morgnana og
kemur seint heim á kvöldin.
Hún er á ferðalögum, í æf-
ingabúðum og sund er íþrótt
sem er stunduð allan ársins
hring. Því fer Ragnheiður í
laugina á Þorláksmessu, jafnt
sem aðra daga ársins.
„Það var mikið að það var
talað við mig,“ segir Óskar í
símann og hlær. „Hún er ansi
mikið í burtu, það verður nú
Þórunn Guðmundsdóttir:
„Það hefur ekki reynt á verk-
kunnáttu Jóns ennþá."
ekki annað sagt en það. En
hún var sundfrík þegar ég
kynntist henni og ég vissi því
nokkurn veginn út í hvað ég
var að fara. Því er þó ekki að
neita að maður hefur sossum
fórnað ýmislegu. Við höfum
til dæmis aldrei átt frí saman,
ég hef lagað mig algerlega að
hennar málum. En ég er full-
sáttur við það. Sundið gengi
aldrei upp hjá henni nema
vegna þess að það er fullkom-
in samstaða um það milli
okkar og innan fjölskyldunn-
ar. Hún á góða að.“
SÉR FRAM Á BETRITÍMA
Þú ert fullsáttur við hlut-
skipti þitt?
„Já, ég er það, en þetta er
ekki alltaf létt, hún getur ver-
ið erfið í sambúð þegar hún
kemur heim útkeyrð á kvöld-
in, sérstaklega fyrir mikilvæg
mót — hver væri það ekki
þegar mikið er í húfi? En ég
sé nú fram á betri daga með
blóm í haga því hún hefur
ákveðið að Ólympíuleikarnir
á Spáni á næsta ári verði
lokapunktur hennar í sundi í
þeirri mynd sem það er í dag.
Hún hættir auðvitað ekkert
að synda en það verður ekki
svona mikið eins og það er í
dag. Svo koma börnin
kannski einhvern tímann,"
sagði Óskar að lokum.
Bolli Valgarðsson