Pressan - 19.03.1992, Blaðsíða 43

Pressan - 19.03.1992, Blaðsíða 43
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. MARS 1992 43 LÍFIÐ EFTIR VINNU Björn Baldvinsson starfsmaöur Aðalstöövarinnar Hvað ætlar þú að gera um helgina Bjössi? „í kvöld œtla ég að spila með Rut+ á Duus. A föstu- dagskvöldið œtla ég að fara á nýja staðinn Hollí og hlusta á D.J. Keoki og dansa frá mér allt vit. A laugardaginn œtla ég að setjast áTvo vini og hoifa á handboltann á 130 tommu skjá. Um kvöldið œtla ég bara að slappa afvið kerta- Ijós, osta og rauðvín. Og á sunnudaginn œtla ég aftur á Tvo vini og fá mér að borða og horfa á liand- bolta. “ Sjálfsagt hefði Þorbjöm Broddason ekki getað sagt fyrir um það á sínum yngri ámm hvemig hann kæmi til með að líta út sem miðaldra maður. Og ef hann hefur gert það er næsta víst að sá spádómur hefurekki ræst. Að minnsta kosti ef marka má alla þá spádóma um pólitíska ffamvindu mála sem Þorbjörn hefur mælt fram en ekki gengið eftir. En svona var hann þá. Og svona er hann nú - kontinn með spá- mannsskeggið. • Pat Tennis er stálgítarleikari frá Bandaríkjunum. Hann var hér á landi í sumar er leið og spilaði þá meðal annars inn á plötu með Geir- mundi Valtýssyni. Hann heillaðist svo af landi og þjóð að hann er kominn aftur og leikur kántrí í Borg- arvirkinu ásamt Viðari Jónssyni og Þóri Úlfarssyni í kvöld og helgina _ alla. Tarna er eitthvað fyrir hina mörgu aðdáendur amerískrar sveitatónlistar. • Blátt blóö rennur á Blúsbarnum á föstudagskvöldið. Aðalsmennirnir í Bláu blóði eru blúsarar í yngri kant- inum sem frelsast hafa í blúsnum. POPPIÐ • Andrea Gylfadóttir ætlar að syngja djass á veitingastaönum Jass í kvöld. Andrea syngur flestum betur og engu máli virðist skipta fyrir stúlkuna hvað tónlistarstefnurnar heita. Með aðstoð Kjartans Valdimarssonar og Þórðar Högnasonar fer Andrea létt i gegnum djassinn. Hreint unaðslegt. • Amishes heitir hljómsveit sem margir hafa heyrt um en enginn heyrt í. En nú skal bætt úr því og í kvöld, fimmtudagskvöld, spilar þetta band á Blúsbarnum. Sveitin mun eiga ættir að rekja til þeirra er stóðu að þeirri ágætu Blúsbræðrasýningu á Borginni. Nú, gospel- og soultón- list er á efnisskránni og ef að líkum lætur verður þetta allt frekar alvöru- iaust og skemmtilegt. • Djasstónleikar verða haldnir á Púlsinum fimmtudags- og föstu- dagskvöld. Þar leika Hilmar Jens- son, sem er útskrifaður frá Berklee College of Music, Skúli Sverrisson, sem er reyndar einnig útskrifaður frá Berklee, og Jim Black og Chris Speed. Þessir herramenn hafa allir saman leikiö með ýmsum þekktum sveitum og kunna víst örugglega til verka við djassinn. Þetta veit á gott. H^aiaa Ragnar Rögnvaldsson bakari „Þetta er hjá Ragnari Rögnvaldssyni. Nú er illt í efni, húsbóndinn er hvergi nærri. En; svarinn, hann er sérstakt tœki sem er við tólið mitt. Það tœki sem ég vil að sœki, sœki skila- boðið þitt. Síðan skilaboðin þú tala skalt inn á svarann, þá veit ég allt. Skiljið eftir nafit og númer, samband hefég trú mér. Hlakka til að heyra í þér. “ LIST UNCA FÓLKSINS '92 Svona til fróðleiks má geta þess að einhverjir þeirra voru áður í Sonum Raspútíns. • Haraldur Reynisson skemmtir þeim sem leggja leið sína til Feita dvergsins á föstudags- og laugar- dagskvöldið. Haraldur ku vera nokkuð snjall við spilleríið og fær fólk til að syngja með og skemmta sér. Það er líka svo þægilegt að koma sér í gott skap hjá Dvergnum því öliö er selt á vægu verði miðað viö það sem annarstaðar gerist. • Blautir dropar spila á Apríl á föstudags- og laugardagskvöldið. Mjólkursamlagsdrengurinn frá Búð- ardal og félagar hans eru alveg ágætir. Við vitum þaö því við höfum heyrt í þeim. • Gömlu brýnin verða í Firöinum á laugardagskvöldið. Björgvin Gísla- son og félagar. Þarna eru á ferðinni tónlistarmenn sem staðið hafa í eld- línunni í mörg ár en á þeim eru þó engin ellimörk. Viö vekjum sérstaka athygli á því að þetta kvöld heldur líkamsræktarstööin Hress árshátíð sína í Firðinum og því ætti aö verða fullt af föngulegu kvenfólki þarna (jú, jú og körlum líka en þeir eru víst í minnihluta). Og drengir, húsið verður opnað klukkari 24. VEITINGAHÚS Starfsfólk úr nærliggjandi bönkum og kontórum borðar í hádeginu á Kínahúsinu viö Lækjargötu, og líka konur sem eru í hátt eins og þær séu annars í óðaönn að selja eöa kaupa kjóla, ilmvötn og svoleiðis. Svo villist inn maður í úlpu, sest einn út í horn og lítur varla upp fyrr en hann pantar sér mat og bjór með. Þvínæst blaðamaður sem er vanur að fara út að borða með Mogganum. Allir virðast njóta há- degisstundarinnar ágætlega, enda er þarna hægt aö fá prýðilega þrí- réttaða máltíð fyrir tæpar 600 krón- ur. Og ögn minna fyrir 500 krónur. Staöurinn er svo allt öðruvísi á kvöldin. Þá er þar fólk sem er ekki vant því að fara út að borða. Er hik- andi í fasi og horfir dálítið vand- ræðalega í kringum sig á hitt fólkið, sem kann eiginlega ekki heldur að borða á veitingahúsi. En það þarf í raun ekki aö hafa neinar áhyggjur, því maturinn er ágætlega frambæri- legur og þjónustan umhyggjusöm. Hið eina sem vekur spurn er hvern- ig verðið tvöfaldast á þeim fáu stundum sem líða frá hádegi til kvölds. LEIKHÚS • Indíánar. Það er sjálfur Gulli í Karnabæ sem stendur fyrir því að flytja hingað þennan 15 til 20 manna hóp indiána af Sioux-ætt- bálki. Og áhuginn virðist ærinn, enda hefur smátt og smátt orðið sú umpólun viöhorfa aö almennings- álitið telur indíána nokkurn veginn algóða, en hvíta ofsækjendur þeirra alslæma. Þessi hópur, sem kallar sig Lakota-flokkinn, ætlar að dansa, syngja og gefa innsýn í menningar- heim rauðskinna. Borgarleikhús sun. kl. 15, Þjóöleikhús sun. kl. 21. • Rómeó & Júlía. Þaö er alveg Ijóst að sýningin fór í taugarnar á Helga Hálfdanarsyni, enda löngum verið umdeilt hvort eða hvernig eigí að færa Shakespeare í nútíma- klæði. Dómnefnd DV líkaði hins vegar svo vel að hún úthlutaði sýn- ingunni menningarverðlaunum. Raunin er sú aö margt er vel gert, annaö miður: Leikmyndin hefur of Æ S K U M __ - sðPN Þessar stúlkur íklæðast fötum frá Dolce & Gabbana. Islensk- ar stúlkur fá að prófa þau í Hollí á föstudagskvöldið. LANDAMÆRI RAUNVERULEIKANS Listahátíðir eru yfirleitt því betri og skemmtilegri sem fleiri fá að koma þar fram og gera hér- umbil það sem þeim sýnist. Fyr- irtæki af því taginu eru nefnilega fljót að taka á sig svip þyngsla- legra stofnana. Við hér á PRESSUNNI þykjumst vissir um að það verði ekki raunin á Listahátíð ungs fólks sem hefur hlotið nafnið Unglist ’92 og verður haldin í Hinu húsinu 30. mars til 5. apríl. Þar standa vonir til að blómgist þúsund blóm unglinga- og æskumenningar, en skólar, einstaklingar og hópar hafa frest til laugardags að til- kynna þátttöku í sfma 624320. Og hvað verður svo á seyði þessa daga? Jú, allt sem nöfnum tjáir að nefna og endurspeglar áhugamál fólks á aldrinum 16 til 20 ára. Kannski myndlist, tón- list, leiklist, söngur, ljóðlist, og kannski ljósmyndun, dans, skúlptúr, gjömingar, fórðun. Og kannski eitthvað allt annað. „Ég eyði orðið miklum tíma í flugvélum og á hótelherbergjum, sem er náttúrlega ákveðinn ókostur fyrir jafnheimakæran mann og mig,“ segir Kristinn Sigmundsson stórsöngvari sem kemur fram á tvennum tónleik- um hér í Reykjavík um helgina. Kristinn hefur undanfama mán- uði verið á þönum milli borga í Evrópu og sungið Rossini í Genf og Dresden, Verdi í Wiesbaden og Hamborg og Wagner í Ham- borg. Að auki var hann nýskeð í tónleikaferð um Suður-Évrópu með ffægum hljómsveitarstjóra, Frans Bmggen, sem fæst einkum við miðaldatónlist. En er það ekki hálfgerð bilun hjá söngvara að syngja svona víðáttumikið prógramm? „Auðvitað er algengara að menn sérhæfi sig og líklega er það betra svona bisnesslega séð. Ég syng hins vegar allt sem að kjafti kemur og held því áfram meðan ég kemst upp með það að hafa prógrammið svona fjöl- breytt. Kannski sérhæfi ég mig seinna." Kristinn ætlar ekki að dvelja lengi á íslandi þetta sinnið. A fimmtudagskvöld treður hann upp með Sinfóníuhljómsveitinni í Háskólabíói og glímir við flók- ið verk og vandflutt, Söngva förusveins eftir Mahler. A föstu- dagskvöld halda þeir svo ljóða- tónleika í Islensku óperunni vin- imir Kristinn og Jónas Ingi- mundarson píanóleikari. Efnis- skráin liggur á mörkum Þýska- Kristinn æfir sig meö Jönasi. - Hef prógrammiö fjölbreytt meöan ég kemst upp með það. lands og Frakklands, þar mætast á miðri leið Beethoven og Schu- mann og Ravel og Fauré. Einu sinni var þama Sesar, svo lengi Hollywood, stutta stund Yfir strikið og í smátíma líka Eplið. Nú gengur staðurinn við Ármúla enn einu sinni í endur- nýjun lífdaga og heitir frá og með föstudagskvöldi Hollí, undirtitill „landamæri raun- veruleikans“. Svo er bara að bíða og sjá hverju ffarn vind- ur. Það á alltént að opna með stæl á föstudagskvöldið. Inn- lendir og erlendir hönnuðir og listamenn hafa innréttað stað- inn eftir sínu höfði og meðal ann- ars komið fyrir reykvélum, sápu- kúlumaskínum og leysigeisla- tækjum, þannig að varla þurfa menn að sjá handa skil frekar en þeir vilja. Og þama verður líka Julie Jewels. Er hún nokkuö sest aö á íslandi? KRISTINN PREPUR NIPUR FÆTI fólk sem kann best við sig í svona umhverfi: Julie Jewels, næturlífs- frömuður frá New York (er hún nokkuð sest að á Islandi?), plötu- snúðurinn D.J. Keoki og Montg- omery Frazier, stfiisti frá MTV- sjónvarpinu, sem ætlar að stjóma tískusýningu með fötum frá eftir- töldum: Dolce & Gabbana, Gi- orgio di Santangelo, Isabel Tol- edo, Alfrodo Viloria, Byron Lars og Rage. Þetta ku vera „djarfur næturklúbbaklæðnaður" og hon- um íklæðast stúlkur frá Módel ’79. Þessi æskubjarti hópur er í óðaönn að skipuleggja unglista- hátíðina sem veröur í Hinu húsinu um mánaðamótin. Vlf> MÆLUM MEf> Að Sjónvarpið gefi lottóinu smáfrí eða setji það á skaplegan tíma, til dæmis klukkan hálfeilefu á þriðju- dagsmorgnum Að fréttastofa Sjónvarps gefi Flugleiðum smáfrí það þarf ekki að segja frá því í hvert skipti sem forstjórinn fær sér brauðsneið Að fólk fjölmenni í ísbúðina í Álfheimunum ísinn er svo rosalega ódýr, og góður Að fólk fjölmcnni í verslunina Kjötborg á Ásvallagötu pillarnir þar eru svo góðir og skemmtilegir við alla, líka börnin og gamla fólkið INNI Að vera unglingur í menntaskóla og leika í stóru leikriti, yrkja ljóð, skrifa í skólablaðið, ganga með pappírskiljur í vasanum, sitja á kaffihúsum. Sletta frönsku eða einhverju ennþá merkilegra tungu- máli. Vera ofboðslega menningar- legur í hugsun, hátt og klæðaburði. Leikstjómendum og svoleiðis fólki sem kom utan úr bæ inn í mennta- skólana fyrir svona fimm árum mætti afar furðulegt andrúmsloft; unglingarnir sem af einhverjum ástæðum (þrýstingi að heiman?) höfðu ákveðið að taka þátt í sýning- um skólaleikfélagsins voru svo uppteknir af því að læra að þeir máttu í raun ekki vera að því að leika f leikriti. Þeir ætluðu nefnilega að standa sig ferlega vel í lífsbarátt- unni. Þessi tími er alveg ábyggilega liðinn. Það verður enginn meiri maður af því að ströggla í skóla í þeim tilgangi einum að græða pen- inga eftir dúk og disk. Nei, maður á að vera áreynslulaust gáfaður og frjór, hvorki skipa sér í flokk fúxa eða dúxa, en nota tímann til að auðga andann í ofboðslega merki- legum leiksýningum. Brjóst. Það er að segja brjóst sem eru eins og valin úr verðlistum lýta- lækna, brjóst sem allir sjá að eru ekki svona frá hendi náttúrunnar, brjóst sem eru öll eins, stór, ávöl, svo þrýstin að þau eru alveg að springa. Gervibrjóst. Þetta er ekki bara af því að sílíkon sé kannski hættulegt, heldur miklu frekar af því að fólk fattaði að svoleiðis brellur væru plebbalegar og varla samboðnar nema konum sem hafa framfæri af því að vera allsberar. Þær konur sem síðustu árin hafa haft komplexa út af brjóstunum á sér geta semsagt borið höfuðið hátt árið 1992. Ógnarstjórn tískunnar kennir kannski ekki að konur eigi að vera eins og Twiggy eða Jane Birkin, ekki ennþá, en það er allt í lagi að hafa alls konar brjóst, lítil, stór eða miðlungs - bara þau séu náttúruleg.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.