Pressan - 03.09.1992, Síða 2

Pressan - 03.09.1992, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. SEPTEMBER 1992 — ÞETTA BLAÐ HEFUR TÍMA AFLÖGU ...einsog„tálbeitan" sem hafði tíma aflögu til að hjálpa fíknó að kló- festa „kókaínmanninn" sem segist hafa ætlað að selja efnið í Danmörku. Á blaðsíðu 16 og 17. ... eins og George Bush sem gefur sér tíma frá erilsömu starfi Banda- ríkjaforseta til að freista þess að ná endurkjöri, þótt maðurinn sé með eindæmum óvinsæll og það þurfi kraftaverk til, líkt og fræðast má um á blaðsíðu 24. ... eins og Elsa G. Drage- de sem hefur sótt nám- skeið hjá Námsflokkun- um i 15 ár og hikar ekki við að skrá sig enn á námskeið í postulíns- málun í haust. Blaðsíða 30. ... eins og Bjarni Sig- urðsson markmaður sem hafði tíma til að fara nið- ur úr jörðinni eftir að hann fékk boltann í gegnum klofið í leik gegn Stjörnunni. Það fannst honum vont eins og stendur á síðu 34. ... eins og baráttuglöðu gleðikonurnar sem koma reglulega saman og ræða sín mál og setja fram kröfur svo mellu- dólgarblána. Alltum það hjá Jónu á síðu 35. ... eins og fslendingarnir sem sitja á bekknum hjá fótboltaliðunum á Bret- landi, naga neglur eða horfa annars hugar á fé- lagana skemmta sér úti á velli. Allt um þá á s/ðu 37. ... eins og Eyfi sem hafði tíma aflögu til að skreppa inn í búð og kaupa sér sportbíl sem hann keyrir á, alveg rígmontinn, eins og lesa má um á blaðsíðu 41. F Y R S T F R E M S T LEÓ LÖVE. Gæti hagnast vel á dáhsk-íslenskri orðabók. VALGERÐ- UR MATTHÍASDÓTTIR. Sér um menninguna í Sjónvarpinu ásamt Arthúri Björgvini. RÁNDÝR ORÐABÓK Deilan milli prentsmiðjunnar Odda og Isafoldarprentsmiðju um prentkostnað við dönsk-íslensku orðabókina hefur vakið talsverða athygli. Af henni virðist mega ráða að heildarprentkostnaður á þeim 6.000 eintökum sem hingað til lands eru komin hafi ekki verið meiri en 420 krónur á eintak. Leó Löve, eigandi ísafoldarprent- smiðju, dásamar hversu ódýrt sé að prenta í Belgíu, þeir Odda- menn reyna að malda í móinn. Meðal þeirra sem þekkja til bókaútgáfu er almælt að með þessu hafi Leó líklega talað af sér. Ef prentkostnaðurinn er ekki hærri en þetta þarf ekki flókna út- reikninga til að komast að þeirri niðurstöðu að Leó hljóti að leggja allhressilega á bókina, langt um- fram framleiðslukostnað. Efbókin selst hljóti hann að hagnast vel á framtakinu, og þá ekki síður í ljósi þess að hann fékk drjúga styrki frá opinberum aðilum til að ldára verkið, bæði hérlendis og í Dan- mörku. Bókin kostar 9.980 krónur út úr búð. ARTHÚR BJÖRGVIN ÞÝÐIR NIETSZCHE Arthúr Björgvin Bollason hefur dvalið á Akureyri í sumar við þýðingar ásamt Þresti Ás- mundssyni sagnfræðingi. Þeir fé- lagarnir ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, en þeir hafa síðustu tvö sumur unnið að því að þýða eitt af höfuðverkum þýska heimspekingsins Friedrichs Ni- etzsche, ritið Handan góðs og ills. Bókin mun koma út sem lær- dómsrit á vegum Hins íslenska bókmenntafélags, öðru hvoru megin við áramótin. Listaþátturinn Litróf verður aftur á dagskrá Ríkissjónvarpsins í vetur og hefst hann í október. Art- húr Björgvin mun áfram hafa um- sjón með þættinum, en þó ekki einn, þar sem hann hefur fengið Valgerði Matthíasdóttur til liðs við sig. Er æflunin að hafa þáttinn með nokkuð svipuðu sniði og áð- ur en hann mun þó fá á sig annað yfirbragð. ÞORSTEINN GERIRTIL- RAUN UM HEIMINN Kannski eru pólitískar marka- línur alveg hættar að skipta máli, en fyrir þá sem eru langminnugir hlýtur það samt að sæta tíðindum þegar Þorsteinn Gylfason, pró- fessor í heimspeki, lætur Mál og menningu, útgáfufélag íslenskra sósíalista í meira en fimmtíu ár, gefa út bók eftir sig. Þorsteinn hef- ur sjaldnast verið dreginn í dilk með áköfum vinstrimönnum. En fyrir jólin kemur hún sem- sagt út þessi bók, hjá Máli og menningu, greina- og ritgerðasafn sem að líkindum mun hafa titilinn Tilraun um heiminn. Hún inni- heldur meðal annars rómaðan fyrirlestur um lýðræðið, sem Þor- steinn hefur flutt víða um land. Ekki munu þó allir vera jafn- hrifnir af þessu ráðslagi Þorsteins. Hann hefur lengstum bundið trúss sitt við Bókmenntafélagið og meðal annars ritstýrt flokki svo- kallaðra „lærdómsrita“ sem Bók- menntafélagið hefur gefið út um árabil. Mun Sigurður Líndal, prófessor og forseti Bókmenntafé- lagsins, vera heldur móðgaður út í Þorstein fyrir að hafa söðlað um. EDDU HEIÐRÚNU MISBOÐIÐ Það hefur löngum staðið styr um hlutverk stúlkunnar Elizu Do- little í söngleiknum My Fair La- dy. Frægt er til dæmis þegar leik- konurnar Audrey Hepburn og Julie Andrews bitust um rulluna. Ekki var miklu friðlegra á dög- unum í Þjóðleikhúsinu þegar tU- kynnt var um val á leikurum í uppfærslu leikhússins á söng- leiluium, sem verður jólaleikritið í ár — í leikstjórn sjálfs Stefáns Baldurssonar þjóðleikhússtjóra. Edda Heiðrún Backman hafði reiknað með að hreppa þetta eftirsótta hlutverk og brást hin versta við þegar ljóst varð að það væri ætlað annarri leikkonu, nefriilega Steinunni Ólínu Þor- steinsdóttur. Var Eddu Heið- rúnu svo misboðið að hún sagði samningi sínum við Þjóðleikhúsið LADDI FERYFIR Vikulegir skemmtiþættir hefja göngu sína á Stöð 2 í vetur í umsjá grínistanna Ladda (Þórhalls Sigurðssonar) og Arnar Árnasonar. „Við ætlum að vera með grín og glens og fáum til liðs við okkur hina og þessa leikara,“ segir Laddi. Auk þeirra stendur til að Sigurður Sigurjónsson verði viðloðandi skriftir og sjálfsagt á honum eff- ir að bregða fyrir í einum þætti eða svo. Von er á að nýjar persónur taki til starfa en jafnframt mun gömlum andlitum bregða fyrir. Þeir félagar ætia að breyta nokkuð til en væntanlega verður mikið af „þeim sjálf- um“ í þáttunum. Nú þegar Laddi er „farinn yfir“, eins og sagt er, hlýtur að verða tómlegt hjá Hemma og líklegt að þættir hans verði ekki samir á eftir. „Þetta verkefni er miklu stærra og því er ég trúlega hættur hjá Hemma en við höf- um hins vegar ekki rætt það endanlega. Hemmi stendur alveg fyrir sínu þótt Dengsa vanti. Hann þarf bara að fá sér nýj- an aðstoðarmann, enda tími kominn á Dengsa að hvíla sig.“ Laddi er ekki óvanur að leggja persónur í dvala þegar þreyta er farin að segja til sín og það er honum því nauðsynlegt að virkja sinn óþrjótandi hug- myndabanka til að halda sér ferskum. Laddi og Örn Árna aetla í loftið með vikulegt grín og glens á Stöð 2 í vetur. Siggi Sigurjóns verður að öllum líkindum liðtækur við skriftir en ætlar ekki að vera fastur leikari í þáttunum. þegar í stað lausum og hélt á brott með allt sitt hafurtask. FÍNT EN EKKI SNOBBAÐ Eins og PRESSAN hefur greint frá verður opnað kafifihús á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis í byrjun október, Kaffi Sólon ís- landus, sem á að verða lifandi kaffihús með myndlistarsýning- um, fyrirlestrum, tónleikum og fleiru, en án þess þó að vera of snobbað. Fjölmargir hluthafar standa að baki framkvæmdinni eða hátt í 20 manns sem eiga ýmislegt sameig- inlegt, til að mynda eru þetta vina- hópar sem tengjast innbyrðis. Einn af frumkvöðlunum er Hall- dór Auðarson sem verður fyrst um sinn framkvæmdastjóri. Aðrir hluthafar eru Ríkharður Hördal í Morkinskinnu, Lisbet Sveins- dóttir myndlistarkona, Dóra Einarsdóttir, eiginkona Harðar Helgasonar, aðstoðarforstjóra Olís, Elín Edda Ámadóttir, bún- ingahönnuður og eiginkona Sverris Guðjónssonar söngvara, Klara Stephensen, eiginkona Ólafs Stephensen, Oddný Ól- afsson, móðir Guðrúnar Krist- jánsdóttur myndlistarkonu sem gift er Ævari Kjartanssyni út- varpsmanni, Guðmundur Ing- ólfsson í fmynd, Ríkharður Lín- dal sálfræðingur, Jóhanna Jónas- dóttir læknir, kona Ingólfs Margeirssonar, Þorvaldur Val- geirsson, markaðsstjóri hjá Visa, Helga Benediktsdóttir arkitekt, Olaf Fekker sem rekur íslands- gallerí í Holiandi og móðir hans Johanna Fekker Islandsvinur, Mark Andre Partal, Frakki bú- settur á íslandi, Sigrún Þorvarð- ardóttir í Pipar og salti og Guð- rún Svansdóttir, eiginkona Guðjóns Bjamasonar arkitekts. ARTHÚR BJÖRGVIN BOLLASON. Fyrstur Islendinga til að þýða Nietszche að gagni. ÞORSTEINN GYLFA- SON. Gefur út hjá Máli og menningu, við lítinn fögnuð Sigurðar Líndal. STEINUNN ÓLlNA ÞORSTEINS- DÓTTIR. Þar fann Stefán Baldursson Elizu Dolittle. EDDA HEIÐRÚN BACKMAN. Hraktist móðguð burt úr Þjóðleikhúsinu. UMMÆLI VIKUNNAR „Ég vek athygli á að það er búið að vera að skamma mig í heilt árfyrir að pína sjúklinga, gamalmenni og ég veit ekki hvað. Erþetta þá allt bara vitleysa, bara misskilningur? Leynast margir kántrí- aðdáendur í Austur- og Vestur- Húnavatns- sýslu og á Ströndun- um, Hallbjörn? „Kántríaðdáendur leynast víða en þeir eru duglegir að fela sig, sér- staklega á Ströndunum. Það koma kannski fleiri í ljós þegar Útvarp Kántríbær fer í loftið.“ Hallbjörn Hjartarson, konungur fslenska kántrísins, ætlar, auk þess að reka Kántríbæ sem hann opnaði aftur eftir sex ára hlé í sumar, að hleypa af stokk- unum nýrri fjölskyldurekinni útvarps- stöð sem spilar eingöngu kántrítónlist. Hann hefur þegar fjárfest I fokdýrum út- búnaði og munu útsendingarstöðvar- innar ná til Austur- og Vestur-Húna- vatnssýslu og á Strandir. Það þarf ódýrari skot „Það gengur einfaldlega ekki upp að það fari um 150 krónur af hverju kílói kindakjöts í slátur- kostnað." Halldór Blöndal sauðáhirðir. Diana Ke/ur/allið /yrir orðkynagiriai „Elsku krúsidúllan mín, hlæðu meira. Ég er hamingjusamur þeg- Sighvatur Björgvinsson niðurskurðarhnífur. ar þú ert hamingjusöm. Ég græt þegar þú grætur. Ég elska þig, ég elska þig, ég elska þig, ég elska þig-“ JamesGilbey símaelskhugi og ökuþór. fllirafer Jön Baldvin Hl vondræða! „Það að ég er gift ráðherra var mér fremur til trafala en hitt.“ Bryndís Schr^m nýr framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs. Og svo á frændi minn þribjól í Breiöholtdnu! „Það hefur sterkari áhrif á áhorfandann að stúlkan skuli vera skyggn en samt sem áður nær sjónlaus.“ (sak Örn Sigurðsson kvikmyndagagnrýnandi DV. Þetta gerum við öll! „Við sáum ekki ástæðu til að sitja á okkur. Okkur hefur lengi þótt launin of lág. Því ákváðum við á síðasta fundi að breyta um viðmið og hækka launin.“ Steinunn Sigurðardóttir bæjarstjórnarforseti á Akranesi. Það er nó» að fletta Lögbirtinffi „Ég reikna svo sem ekkt með að fara og skoða íslensk fiskeldisfyr- irtæki meðan ég verð hjá ykkur.“ lan Anderson rokkari. Valdimar Traustason, 70 ára fékk nýleqa oq Aró inn með handafíi r\7kí\óa túðu af eyjunni. En Örn Smarason, fjögurra ára Eatreksfírð- ingur, veiddi nyieqa 11 kíióa lax! Dynjandaá. Nú er fískur Vaidimars að vísu 964% pynqri, en á hinn bóginn er Vaidimar 1.650 prósentum eldri en Örn. Kílóin eru 2,75 á hvert lifar hja Erni en aðeins 1,67 hjá Vaidimari. Ár- anqur quttans er þvi í raun 64J°% betri. Til að jafna ár- anqurinn hefði iúða Vaidimars þurft að vera 192,5 kíló. Eða Vaidimar 27,5 árum yngri en hann er. Huqteiðið þefcta.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.