Pressan - 03.09.1992, Side 18

Pressan - 03.09.1992, Side 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. SEPTEMBER 1992 Umboðsmenn Beck’s buðust til að flytja bjórinn sjálfir Svínaræktendur á íslandi hafa í mörg ár barist íyrir því að ein- angrunarstöð fyrir svín verði reist í Hrísey þannig að hægt verði að flytja svín til landsins og endur- nýja stofninn sem hér er fyrir. Samkvæmt heimildum PRESS- UNNAR hillir nú undir að þessi draumur svínabænda verði að veruleika, því farið er að ræða byggingu húss í eynni sem þjóna myndi þessu hlutverki. Það hefur lengi verið baráttu- mál Svínaræktarfélag Islands að fá að flytja inn til landsins ný erfða- efni. Fyrir nokkrum árum fékk fé- lagið norska sérfræðinga hingað til iands til að meta ástand grein- arinnar hér og koma með tiliögur til úrbóta. Norsku sérfræðingarnir sögðu að bæta þyrfti erfðaeigin- leika stofnsins með innflutningi og gerðu það að tillögu sinni að til landsins yrðu fiuttar grísafullar gyltur. Þeim yrði komið fýrir í ein- angrunarstöð, látnar gjóta og þeim síðan lógað. Afkvæmin yrðu látin æxlast og afkvæmi þeirra loks flutt í land til kynbóta. Valur Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri Svínaræktarfélags íslands, sagði í samtali við blaðið að þetta væri sú áætlun sem svína- bændur væru nú að reyna að þoka áfram gegnum kerfið. „Það hafa engar ákvarðanir verið teknar. Lögin um innflutning búfjár segja að ríkið eigi að gera þessa hluti en það hefur nú verið frekar varnar- stríð gagnvart ríkinu en sókn und- anfarið og er það núna. Þannig að það er ekki gott að segja hvort þessir hlutir eru að gerast en við vonum það,“ sagði Valur. „Peningarnir þurfa að finnast og af því að lögin fela þetta ráðu- neytinu þarf ráðuneytið að ákveða að gera það. Það eina sem við get- um gert er að þrýsta ráðuneytið," sagði ennfremur. Hann kvaðst meðallagi bjartsýnn á aðgerðum yrði, niður- skurður væri alls staðar hann beindist ekki síst landbúnaðinum, en synlegt væri að að grípa til einhverra ráða til að fá erfðaefni í á landi. Eins og bjórneytendur urðu varir í sumar ákvað Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins að láta Holsten-bjór taka við af Beck’s sem helsta fulltrúa þýskra bjór- tegunda í útsölum sínum. Sú ákvörðun byggðist á útboði þar sem Holsten bauðst á töluvert lægra verði en Beck’s og búast má við á næstunni að Beck’s verði ekki fáanlegur eins víða í útsölum ÁTVR og verið hefur. Samkvæmt upplýs- ingum PRESSUNNAR hefði þó ekki þurft að fara svona, nema vegna þeirr- ar tilhögunar sem ATVR hefur á áfengisflutningum til landsins. Þegar Bræðurnir Ormsson, umboðsaðili Beck’s hér á landi, gerðu tilboð sitt buðust þeir til að koma bjómum til landsins sjálfir í stað þess að koma honum á skip Samskips, sem annast alla bjór- flutninga fyrir ÁTVR. Með þessu töldu þeir sig geta lækkað flutn- ingskostnaðinn verulega og kom- ið cif-verði á bjórnum (verði á vörunni kominni til landsins) nið- ur á svipaða tölu og tilboð Holsten hljóðaði upp á eða jafnvel nokkru neðar. ÁTVR tók ekki þessu til- boði. Þór Oddgeirsson, aðstoðarfor- stjóri ÁTVR, sagði í samtali við PRESSUNA að bjórútboðið hefði miðast við fob-verð (verð á hafn- arbakka erlendis), enda hefði stofnunin gert samninga við Sam- skip um að það félag flytti allan bjór sem hingað kæmi á vegum ÁTVR. Miðað við þær forsendur var tilboðið frá Holsten lægra og því var tekið. Svo virðist því sem íslenskir unnendur Beck’s (sem hefur haft um 23 prósenta markaðshlut- deild) hefðu getað haft greiðari aðgang að honum en raunin verð- ur. Flutningssamningar ÁTVR hækkuðu hins vegar verðið og niðurstaðan varð þessi. 22% skerðing heildarkvótans á tveimur árum 20 skip með 18,2% heildar- kvótans Á tveimur árum eða frá upphafi fiskveiðitímabilsins haustið 1990 hefur úthlutaður heildarkvóti' botnfisktegunda dregist saman um rúmlega 81 þúsund tonn þorskígilda eða um 22,3 prósent. Fyrir tveimur árum voru 20 kvótahæstu skipin með 57.000 tonn af liðlega 365 þúsund tonnum eða 15,65 prósent heildarinnar. Þau 20 skip sem nú eru kvótahæst eru með 51.600 tonn af liðlega 283 þús- und tonnum eða 18,23 prósent heildarinnar. Hlutfallsleg aukning kvótahæstu skipanna er því 2,58 prósentustig. Sé aðeins litið á fimm kvóta- hæstu skipin kemur í ljós að fyrir tveimur árum var kvóti þeirra 17.645 tonn, sem var 4,84 prósent heildarinnar. Þau fimm skip sem nú eru kvóta- hæst eru með 17.531 tonn eða 6,19 prósent núgildandi heild- ar. Nokkur breyting hefur orðið á röðun kvótahæstu skipa á þessu tímabili. Árið 1990 var Guðbjörgin frá ísafirði í efsta sæti, en kvóti skipsins hefur síðan minnkað um 643 tonn og hefur skipið nú fallið niður í þriðja sæti. I efsta sæti nú er Grandatogarinn Snorri Sturlu- son, sem hefur aukið kvóta sinn um 1.376 tonn eða 53 pró- sent og hækkað sig úr 12. sæti. I öðru sæti er sem fyrr Örvar í eigu Skagstrendings, en kvóti þess skips hefur minnkað um „aðeins 1,4 prósent". Af þeim skipum sem fyrir tveimur árum voru á lista hinna tuttugu kvótahæstu hafa fimm skip misst 27 til 28 pró- sent kvóta síns. Þetta eru Bjart- ur í eigu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, Dagrún í eigu Baldurs á Bolungarvík, Gyllir í eigu Útgerðarfélags Flateyrar, Akureyrin í eigu Samherja og Kaldbakur í eigu Utgerðarfé- lags Akureyringa. Samningur ATVR við Samskip hækk aði verðið á Beck’s m ra

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.