Pressan - 03.09.1992, Blaðsíða 35

Pressan - 03.09.1992, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. SEPTEMBER 1992 35 jfEiríkur Örn Pálsson trompetleikari Hljóðfærið bilar eða ég hitti ekki á tóna „Versta martröðin sem maður lendir í er sennilega að hljóðfærið bili hjá manni eða maður hitti ekki á tónana sem maður er búinn að þjálfa sig í að hitta á í tuttugu ár. Þetta er hugsun sem er alltaf til staðar, en það hefur þó alltaf blessast þegar á reynir. Oft er það nú svo að eitthvert smotterí fer úr skorðum svo útkoman ekki alveg eins og hún á að vera. Maður er þá sjálfur í rusli og miklar þetta fyrir sér, en áheyrendur taka sjaldnast eftir nokkru. Kúnstin er að láta ekki á neinu bera og góðir „performerar“ eru góðir í að breiða yfir þau smávægilegu mistök sem þeim ef til vill verður á að gera.“ Góður „performer" er slunginn í að breiða yfir smávægileg mistök. eftir henni. Þetta gat valdið mikilli streitu, þar sem auðvelt er að vill- ast í ókunnu landi. Það var líka mjög óþægilegt þegar ljósmynd- arar áttu það til að vera einum of ágengir. Þeir eru margir í aðstöðu til að notfæra sér að ungar stelpur eru einar og fjarri öllum sem þær þekkja, en fæstar fyrirsætur kom- ast hjá því að verða fyrir þessu.“ Hafði hvorki martraðir á undan né hafa þær komið í Ijós síðar. Anna Ólafsdóttir Björnsson þingmaður Vissi að hverju var gengið „Ég er í raun vanhæf til að svara þessu því ég vissi nokkurn veginn að hverju ég gekk í þessu starfi. Það má því segja að raun- veruleikinn hafi ekki verið mar- traðarkenndur þótt erillinn væri aðeins meiri en ég hélt. Þvert á móti. Það kom mér í raun á óvart hversu svipað þetta var því sem ég átti von á. Þetta líktist mjög starfi blaðamannsins, sem ég var að koma úr, þar sem maður var stöð- ugt að setja sig inn í alla mögulega hluti. Ég hafði engar martraðir á undan og ekki hafa þær heldur komið í ljós seinna. Það var hins vegar miklu meira álag sem fylgdi því að vera kennari og á sínum tíma kveið ég því miklu meira. Ábyrgðarhlutinn var mjög mikill í því starfi.“ Flóki Kristinsson prestur Gleymdi ræðunni „Þegar ég var nýbyrjaður í prestskap dreymdi mig oft sama drauminn aftur og aftur og var hann á þá leið að ég fór í predik- unarstól en hafði þá gleymt ræð- unni minni. Eitt sinn sem oftar dreymir mig drauminn og ég bið Dreymdi sama drauminn aftur og aftur. söfnuðinn að hafa mig afsakaðan því ég hafi gleymt ræðunni. Ég geng síðan úr stólnum og sný mér að altarinu til að biðja, en upp- götva þá að ég er ber að aftan. Draumurinn rættist að nokkru viku síðar þegar ég var að messa norður á Skagaströnd. Var ég þá reyndar ekki ber en gleymdi hins vegar ræðunni. Það var afskaplega óþægileg lífsreynsla, sérstaldega fyrir ungan_ mann sem ekki var orðinn vanur í starfi." Helgi Gústavsson leigubílstjóri Alvarlegt þegar ráðist er á menn „Það versta sem getur komið fyrir er að keyra á einhvern, því sú hætta er alltaf fyrir hendi þegar verið er að keyra tvö til þrjú hundruð kílómetra á dag út um alla borg. Sem betur fer hefur það sloppið og er þetta því ekki raun- veruleg reynsla. Einnig er það mjög alvarlegt þegar ráðist er á menn, en töluvert er um það í þessari stétt og ekki óalgengt að menn lendi í einhverju stappi. Það eru þá farþegar sem standa í slíku og gera það af ýmsum hvötum en það er oftast þagað um þetta. I dag er mestur kvíðinn í kringum dóp- ið, sem virðist auka árásargirni manna. Oft er við ofurefli að etja og hafa þeir verið allt upp í fjórir, en menn eru nú ekki allir aum- ingjar! Raunveruleikinn getur því verið martröð líkastur. Það er nú annað öllu sakleysislegra sem líka veldur óþægilegri tilfinningu en það er að gleyma heimilisfangi þegar fólk er mikið að spjalla við mann. Yfirleitt kemur það nú upp í hugann aftur en ef ekki þá spyr maður bara fólk. Það þykir ekkert tiltökumál.“ Telma L Tómasson K Y N L í F JÓNAINGIBJÖRG JÓNSDÓTTIT Viðhorftil vœndis í Hollandi Hollendingar eru þekktir fyrir umburðarlyndi gagnvart hegðun sem aðrir eru fljótir að fordæma. Af þeim sökum er fróðlegt að kynnast þankagangi þeirra. Hvaða augum líta hollenskur al- múgi og lögin þar í landi vændi? Þeir eru ófáir íslendingamir sem hafa lagt leið sína í rauðljósa- hverfið í Amsterdam og fengið sér ærlegan skammt af flissi, pískri og augnagotum. Hórurfrá öllum heimshornum hafa sitt alþjóðlega þing ogþarhafa þœr ályktað heilmikið um mál sín. Baráttuhópur gleðikvenna, „Rauði þráðurinn“, hefur líka unnið öt- ullega að mannrétt- indamálum vændiskvenna. í hollenskum lögum frá 1911 er vændi ekki bannað en það er talið ólöglegt að hafa vændi ann- arra að féþúfu. f rejmd er þessum lögum ekki framfylgt. í fyrsta lagi er afar erfitt að sanna fjárhags- lega misnotkun á vændiskonum. Enginn fæst til að bera vitni og sönnunargögnum er erfitt að safna. Veigameiri ástæða er þó hin útbreidda skoðun alls þorra fólks að ákæra vegna vændis þjóni bara þeim tilgangi að ýta starfseminni neðanjarðar og gera yfirvöldum óhægt um vik að hafa eftirlit með öllum sem stunda vændi sér til viðurværis. Um tuttugu þúsund gleðikonur og - karlar lifa eingöngu á vændi í Holiandi. Annar eins fjöldi stundar vændi sem aukastörf. Vegna þessa raunsæis, ef svo má að orði komast, er vændi að mestu látið óáreitt svo framar- lega sem vændisfólkið veitir þjónustu sína á vissum svæðum og ef vændinu fylgja ekki alvar- legir glæpir. Þrátt fýrir þessi (að því er virðist) frjálslegu viðhorf Hollendinga og þá staðreynd að vændiskonur geta og mega starfa sjálfstætt er vinnuöryggi þeirra í mörgu ábótavant. Hugmyndafræðin á bak við hollensku lögin sem sett voru í byrjun aldarinnar endurspegla það sem mætti kalla „afnáms stefnuna". í þeirri hugmynda ffæði er litið á vændi sem niður lægjandi og ómannúðlegt, féiags- legt krabbamein sem beri að skera burt. Lækningin er í því fólgin að líta þannig á að þeir sem stunda vændi séu fórnar- lömb, þeim beri að hjálpa til að verða sómasamlegt fólk að nýju. Ekki sé hægt að refsa fórnar- lambinu fyrir að hafa lent í glöt- un. Þeir sem notfæri sér neyð vændiskvenna til að hagnast á séu glæpamenn, til dæmis hór- mangarar og hóteleigendur. Þetta siðferðislega gildismat ríkir víða um heim og er ísland þar ekki undanskilið. Þeir allra raunsæjustu benda á að vændi verður aldrei hægt að útrýma. Út um allan heim finn- ast karlar og konur sem vilja fá kynferðislega útrás og eru tilbúin að borga íyrir það. í hverju sam- félagi er leitað leiða til að hemja þennan „óskapnað“. Sums stað- ar er vændi leyft að ákveðnu marki, eins og til dæmis í Hol- landi. Vandinn er bara sá að varla getur það talist heppilegt að lögreglan ráði hvernig og hvaða mörk eru sett en ekki stjórn- málamenn. Þeir sem til þekkja telja hæpið að afskiptaleysið og fórnar- lambsviðhorfið þjóni hagsmun- um þeirra sem stunda vændi. Þetta siðferðislega klofna viðhorf gerir að verkum að fordómar bitna hvað mest á vændiskon- um. Hórmangarar og ekki síst viðskiptavinirnir gleymast í um- ræðunni. Það sem mér þykir einna athyglisverðast þegar litið er til vændis í Hollandi er hversu ffjálslegt það er á yfirborðinu en þegar að er gáð er starfsskilyrð- um vændiskvenna í mörgu ábótavant. Það er meginástæða þess að vændiskonur — frá Hol- Iandi og öðrum löndum — hafa sett fram kröfur um að þær fái að vinna sem hveijir aðrir borgarar að vinnu sinni og njóti allra al- mennra mannréttinda. Hórur frá öllum heimshornum hafa sitt al- þjóðlega þing og þar hafa þær ályktað heilmikið um mál sín. Baráttuhópur gleðikvenna, „Rauði þráðurinn“, hefur líka unnið ötullega að mannréttinda- málum vændiskvenna. Undan- farin ár hafa hollensk lög verið tekin til gagngerrar endurskoð- unar og síðan árið 1990 getur hváða hollensk borg sem er látið útbúa sérstök leyfi til handa vændiskonum. Það stefnir allt í að í nánustu ffamtíð verði vændi í Hollandi löggild starfsgrein og vændiskonur hljóti þá öll söniu réttindi og aðrár vinnandi stéttir. Spyrjið Jónu um kynlífið. Utanáskrift: Kynlíf c/o PRESSAN, Nýbýlavegi 14, 200 Kópavogur.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.