Pressan


Pressan - 03.09.1992, Qupperneq 44

Pressan - 03.09.1992, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. SEPTEMBER 1992 LÍFIÐ EFTIR VINNU Klassíkin MTUDAGUR • Þýsk háskólahljómsveit, Freiburger Kammerensem- ble, skipuð 34 hljóðfæra- leikurum, er hér á ferðalagi og fer víða. Stjórnandinn er þrítugur íslendingur, Gunnsteinn Ól- afsson, en einleikari á píanó heitir Ól- afur Elíasson og er líka íslendingur. Á efnisskrá hljómsveitarinnar er forleik- urinn að Don Giovanni eftir Mozart, píanókonsert nr. 3 í c-moll eftir Beet- hoven og sinfónía nr. 83, „Hænan", eftir Haydn. Aðgangur er ókeypis. Stykkishólmskirkja kl. 20.30. • Guðrún Jónsdóttir er sópransöng- kona, menntuð hér og á Ítalíu, en bor- in og barnfædd á ísafirði. Þar heldur hún tónleika við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar, en á efnisskránni eru sönglög eftir Schumann, Brahms, Ma- hler og Richard Strauss, en líka óperu- aríur eftir Mozart, Puccini og Doniz- etti. Frímúrarasaluritin ísafirði kl. 20.30. • Þýsk háskólahljómsveit frá Freiburg. Stjórnandi Gunnsteinn Ólafsson, ein- leikari á píanó Ólafur Elíasson. Efnis- skrá: Forleikurinn að Don Giovanni eft- ir Mozart, píanókonsert nr. 3 í c-moll eftir Beethoven, sinfónía nr. 83 eftir Haydn. Aðgangur er ókeypis. Kirkju- bæjarklaustur kl. 20.30. Ókeypis • íslenskir karlmenn minnast með hrolli sumardaganna fyrir tveimurárum þegar ítalskir sjóliðar fóru um bæinn, kölluðu á eftir kvenfólki og varð vel ágengt. En varla þurfa menn að óttast slíka samkeppni frá frönskum sjóliðum sem hingað eru komnir í kurteisis- heimsókn með freigátunni Ni- voise. Frakkar eru satt að segja ekki jafnsætir og ítalir, ekki jafnyfirþyrmandi ágengir við konur og líklega skortir þá ein- hverja persónutöfra til að jafn- ast á við ítalina. Því ætti að vera óhætt að bjóða konunni með að skoða freigátuna þar sem hún liggur við Ægisgarð á sunnudaginn, frá kl. 14.30-17.30. • Nú er alls konar vetrarstarf að hefjast. Flest kostar það peninga, námskeið eru til dæm- is sjaldnast ókeypis. En það er ókeypis að syngja fullum hálsi og sá blanki getur fengið útrás fyrir þá hæfileika í frjóu kór- starfi. Ýmsir kirkjukórar eru til dæmis að taka aftur til óspilltra málanna um þessar mundir. Það kostar tíma, en ekki bein- harða peninga. Málþing MMTUDAGUR EJ# Íslenskt-mexíkóskt vin- SJ áttufélag verður stofnað á ■ Hótel Sögu á fimmtudags- ■kvöldið. Tilgangurinn er að stuðla að auknum samskiptum íslands og Mexíkó á sem flestum sviðum og er rætt um að félagið geti tekið að sér að annast sýningahald, kynningar og aðra viðburði, hvort tveggja á sviði menningar og viðskipta. Allir eru vel- komnir á stofnfundinn, en þar skemmtir söngkonan Nina Mares frá Mexíkó ásamt undirleikurum. Ætli Ól- afur Ragnar mæti? Hótel Saga kl. 20.30. Myndlist • Norrænn skúlptúrhóp- ur opnar sýningu í Nýlista- safninu á laugardag. Þetta eru upprunalega nem- endur frá ríkislistaskólan- um í Ósló sem hafa starfað saman síð- an 1988 og sýnt víða á Norðurlöndun- um. Hópurinn, sem samanstendur af sjö listamönnum, fimm konum og tveimur körlum, sýndi í vor í Kaup- mannahöfn, en nú er röðin semsagt komin að Reykjavík. Opið kl. 14-18. • Samsýning á Kjarvalsstöðum. Þarna leggja í púkk ungir listamenn (sem reyndar eru smátt og smátt að færast á miðjan aldur); Kristján Steingrímur, íris Friðriksdóttir, Ragnar Stefánsson og Ólafur Gíslason. Til sýnis í húsinu eru líka teikningar eftir Alfreð Flóka og afstrakt höggmyndir eftir Ásmund Sveinsson. Opiðkl. 10-18. • Hafsteinn Austmann er einn mest- ur afstraktmaður í íslenskri myndlist og langt í frá nýgræðingur. Á sýningu í listsalnum Nýhöfn í Hafnarstræti sýn- ir Hafsteinn málverk og vatnslita- myndir sem hann hefur gert síðustu þrjú árin. Opið kl. 14-18. • Kristín G. Gunnlaugsdóttir, listakona norðlenskrar ættar, sýnir í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju grafíkmyndir, teikningar og málverk frá og með laugardegi. Opiðkl. 14-18. • Kjörgripir — keramíkfrá Japan. Jap- önsk leirkeragerð á sér langa hefð. Á þessari farandsýningu í Norræna hús- inu má sjá verk eftir 56 leirkerasmiði, flest eru þau í hefðbundnum stíl. Opið kl. 14-19. • Halldóra Emilsdóttir heldur mál- verkasýningu í Gallerí Úmbru sem er í gömlu húsi á Bernhöftstorfunni. Opið kl. 12-18. • Elías Halldórsson sýnir í Hafnarborg, hinni ágætu menningarmiðstöð Hafnfirðinga. Þar hefur Elías hengt upp málverk og grafíkmyndir. í kaffi- stofunni sýna hjónin Einar Már Guð- varðarson og Susanne Christiansen höggmyndir úr ítölskum marmara, grásteini og móbergi. Opiðkl. 12-18. • Gísli Sigurðsson, sem annars er rit- stjóri Lesbókar Moggans, hefur málað röð olíumynda þar sem er lagt út af hinum fornu Sólarljóðum. Myndirnar sýnir Gísli á Hólum í Hjaltadal. • Gunnlaugur Scheving málaði fyrir- ferðarmikil verk sem fjalla um lífsbar- áttu sjómanna. Svoleiðis hlemmar hljóta að fara vel á hráum veggjunum í nýja galleríinu niðri í Hafnarhúsi. Op- iðkl. 14-18. • Donald Judd, einn frægasti lista- maður sem nú er á dögum, sýnir nokkur verk eftir sig í sýningarsalnum Annarri hæð, sem er á Laugavegi 37. Opið miðvikudaga kl. 14-18 eða eftir samkomulagi. • íslensk málverk hanga uppi í Lista- safni íslands, úr eigu safnsins. Á kannski betur við þennan túristamán- uð en jórdönsku kjólarnir. í sölunum á neðri hæð gamla íshússins eru verk eftir frumherja íslenskrar málaralistar, á efri hæðinni eru nýrri verk, auk nokk- urra verka frá útlöndum. Opið kl. 12-18. • Æskuteikningar Sigurjóns minna okkur á að enginn er fæddur lista- maður, þótt sumir hafi jú meiri hæfi- leika en aðrir. Elstu myndirnar á sýn- ingunni í Safni Sigurjóns Ólafssonar eru frá æskuárum hans á Eyrarbakka, en flestar frá árunum 1924 til 1927 þegar hann stundaði nám í Iðnskólan- um. Skemmtileg sýning og svo er allt- af gaman að koma í safnið á fallega staðnum í Laugarnesinu, út við Sund- in blá. Opiðkl. 14-17. Sýningar !• Það var svo geggjað. Ár- bæjarsafn er löngu hætt að snúast bara um moldarkofa og gömul hús, heldur líka um fólk, sumt í ekki alltof fjarlægri fortíð. Til dæmis hippasýn- ingin sem ber með sér andblæ áranna 1968 til 1972, þegar herbergi ung- linga önguðu af reykelsi, allir gengu í útvíðum buxum og karlmenn voru hæstánægðir með að skvetta á sig Old Spice- rakspíra. Opiðkl. 10-18. • Húsavernd á íslandi. Aðalstræti er sorglegt dæmi um þegar menn vilja hvort tveggja halda og sleppa, vernda og rífa. Vissir hlutar Akureyrar eru á hinn bóginn fagurt dæmi um skyn- samlega húsavernd. í Bogasal Þjóð- minjasafns stendur yfir sýning þar sem er rakin saga húsaverndar á ís- landi. Opiðkl. 11-16. • Höfnin í Reykjavík er mikið mann- virki og það voru stórhuga menn sem réðust í að byggja hana í kringum 1915. Nefnum Jón Þorláksson. Sýning í Hafnarhúsinu rekur sögu hafnarinn- ar, í tilefni af 75 ára afmæli hennar. Opiðkl. 11-17. • Höndlað í höfuðstað er sýning á vegum Ljósmyndasafns Reykjavíkur og Borgarskjalasafns. Þar eru raktir þættir úr sögu verslunar í Reykjavík. Hún var einna blómlegust um alda- mótin, eða þá voru þar að minnsta kosti mjög flottar búðir. <i dansflokkurirm hefur verið endurnýjaö verkefni leikársins. ao og verða breytingarnar til aðstyrkja hann mjög.Æft er affulium kraftí fyrir Endurnýjun í ballettinum Það hefur oft staðið styr um fs- lenska dansflokkinn og hann fengið gagnrýni af ýmsu tagi, en þótt ýmislegt hafi gengið á hefur hann ekki lagt upp laupana. Nú virðist vind vera að lægja, en Mar- ía Gísladóttir listdansstjóri hefur staðið fyrir breytingum innan flokksins sem munu verða til að styrkja hann mjög. „Það hafa komið inn nýir dansarar, íslenskir og erlendir, og eru þar af fimm nýir strákar. Þessar breytingar munu gjörbreyta flokknum,“ seg- ir Salvör Nordal, framkvæmda- stjóri dansflokksins. „Við erum að æfa ný verk og verðum með sýn- ingu í Þjóðleikhúsinu í október." Það eru þrír bandarískir lista- menn sem setja upp jafnmörg verk og eru æfingar á því fyrsta langt komnar. Öll eru verkin ný- klassísk. „Það er mikill áhugi á ballett hérna, en sá áhugi hefur verið sof- andi því ekki hefur verið það mik- ið að gerast að fólk hafi getað sýnt þennan áhuga,“ segir Salvör. „Við verðum líka að athuga það að ballettinn er ung listgrein á íslandi og það tekur tíma að byggja hana upp, og einnig að þroska áhorf- endur. Nú er flokkurinn orðinn sjálfstæður, undir forystu nýrrar stjórnar, og við höfum tækifæri og öll skilyrði til að styrkja hann. Við finnum mikinn meðbyr og höfum fulla ástæðu til að líta björtum augum á framtíðina.“ Fyrir rúmu ári sátu nokkrir af- slappaðir, glaðir einstaklingar á torgi í Flórens og fléttuðu bönd í hár vegfarenda. Þetta hefur verið stundað í hinni svörtu Afríku í óratíð og nú hafa íslendingar bæst í hóp þeirra sem þetta stunda. Það var að vísu Ástrali sem stóð fyrir þessari iðju fyrstur manna hérlendis en við af hon- um hefur tekið bandarískur lista- maður, Laura Valentino. Hún stendur í portinu hjá Móunóru, fléttandi, perlandi og snúandi upp á hár þeirra sem vilja. Og það eru margir sem vilja. Biðraðir hafa meira að segja myndast. Og nú er svo komið að annar hver maður gengur um með þetta í hárinu. (Verðlag fer eftir sídd hársins og rokkar ffá fimm hundruð krónum upp í fimmtán hundruð.) Fléttuð bönd í hári — vin- sælt, vinsælt. Hvernig fannst þér „Svo á jörðu sem á himni“? RAGNHILDUR GfSLADÓTTIR söngkona „Ég varánægð með þá mynd. Mérfannst hún mjög falleg og ég óska aðstandendum myndarinnartil hamingju." ILLUGI JÖKULSSON blaðamaður „Mér fannst hún fjarska skemmtileg. Myndin er til fyrirmyndar í flesta staði." ELÍN PÁLMADÓTTIR blaðamaður „Þetta er stórmynd. Meira lagt í hana en nokkra aðra íslenska kvikmynd. Nægir að nefna þetta stóra raunverulega seglskip og sviðið þegar það er að farast með mönnun- um. Ég hefði gjarnan viljað sjá þann hlutann fyrirferðarmeiri, þá á kostnað miðaldahlut- ans. En ég býst við að það sé persónulegt, enda er ég mikill aðdáandi þess heimskauta- fara og mikilmennis sem dr. Charcot var. Engu að síður finnst mér samskeytin þar sem telpan tengir þessa tvo heima skila sér vel. Mér finnst myndin góð, mjög dramatísk og leikararnir hreint afbragð, að ógleymdri tónlistinni, sem eykur á dramatíkina." ANNA RINGSTED kaupmaður „Mérfannst alveg rosalega gaman."

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.