Pressan - 03.09.1992, Blaðsíða 45

Pressan - 03.09.1992, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. SEPTEMBER 1992 LÍFIÐ EFTIR VINNU 45 „Síðustu tuttugu mínúturnar; aðdragandi strandsins, strandið og eftirleikur þess — þarna er óefað glæsilegasti kafli sem hefur sést í íslenskri kvikmynd," skrifar Egill Helgason um Svo á jörðu sem á himni. Svo ájörðu sem ______áhimni HÁSKÓLABfÓI ★ ★★ Það er enginn vafi: Nýja myndin hennar Krist- ínar Jóhannesdóttur flýgur léttilega í flokk bestu íslensku kvikmynda. Og ef hún höfðar ekki til áhorfenda, þá hlýtur að mega álykta að hann hafi bráð snögglega af íslending- um útbreiddur áhugi á dulrænum efnum. Því annaðhvort er hér fjallað um yfirskilvitlega atburði ellegar sérkennilega ofurskynjun stúlkubarns, nema hvort tveggja sé. Það er flakkað milli staða í tíma og rúmi. Þetta eru þrjár sögur sem renna saman og sundur og verða þríeinar í lokin: í fysta lagi ástar- harmur hinnar göldróttu Straum- fjarðar-Höllu langt aftur á mið- öldum, í öðru lagi hinsta för rann- sóknaskipsins Pourquoi-pas? á haustdögum 1936 og svo í þriðja lagi þungamiðja myndarinnar — stúlkubarnið sem skynjar þessa atburði eins og þeir renni á filmu í gegnum kollinn á henni. Að mestum hluta heppnast hún prýðilega þessi ffásagnarað- ferð, sem vissulega er brothætt. Sagan lumar á ýmsum óvæntum uppákomum, litlum smásögum og lymskulegum tilvísunum, sem margar eru ekki að fúllu skýrðar fyrr en í bláendann. Kvikmynda- fólkið er ekki að lofa upp í ermina á sér þegar það segir að myndin sé spennandi; það er hún svona oft- astnær, þótt allan tímann sé ljóst hver endalokin hljóta að verða. En það eru náttúrlega ýmsir hnökrar á myndinni, þótt ekki séu þeir stórvægilegri en gengur og gerist í kvikmyndum sem hafa verið marglofaðar hérlendis. Flakkið milli tímaskeiða reynir til dæmis á þolinmæði áhorfandans sem er orðinn dálítið þreyttur áð- ur en myndin nær sér aftur á strik í lokin; það hefði mátt stytta atrið- in aftan úr miðöldum talsvert og fækka þeim. í heildina hefði myndin alveg þolað að vera svona tuttugu mínútum styttri. Það er einkum í miðaldafrá- sögninni sem hin innri ritskoðun Kristínar bregst. Sá kafli er áber- andi veikasti hluti myndarinnar, en atburðarásin sem gerist 1936 er miklu áhugaverðari, einfaldari og oft á tíðum hrífandi mikilúðleg. Samtöl miðaldafólksins eru flat- neskjuleg og þvinguð, þarna er eina skiptið í myndinni að bregð- 'ur fyrir þeirri tilgerð sem stund- um hefur reynst Kristínu dálítið skæð (sbr,- böð sem eru iðkuð af kappi); umgjörðin er á köflum eins og úr mynd eftir Hrafn Gunnlaugsson og í bakgrunnin- um hljómar voða víkingaleg mús- ík (gæti kannski líka verið úr ind- íánamynd). Poppararnir Daníel Haraldsson og Páll Hjálmtýsson eru ffáleitir í hlutverki tvíbura og ekki bætir úr skák að heyra Megas og Sigurð Pálsson lesa inn á myndina textann þeirra (á mörg- um stöðum heyrist að tal er „döbbað" og svolítill vandræða- gangur í hljóði, líklega er það af íílri nauðsyn). Tinna Gunnlaugs- dóttir, sem annars stendur sig með ágætum, virðist ekki ná miklu sambandi við persónu galdrakonunnar Höllu. Fyrir kverúlanta er erfitt að heyra „kaupmann“ tala um að sigja með fisk til „austurlanda“ — á fjórtándu öld. Ekki bætir heldur úr skák þegar maðurinn, ljós- hærður og mæltur á íslensku, kvartar yfir því hversu erfitt það sé að vera gyðingur. Eða var það misheyrn? Dálítið erfitt er að umbera sögulega ónákvæmni af þessu tagi, sérstaklega í ljósi þess hversu nákvæmlega er farið með söguleg- ar staðreyndir í þeim atriðum sem gerast nær nútímanum. Þrátt fyrir að tilgreindur sé mikill fjöldi aukaleikara virðist myndin aldrei ýkja mannmörg. Þetta skiptir kannski ekki miklu máli. öllu alvarlegra er hversu leikur í aukahlutverkum er yfir- Ieitt vondur. Þetta verður enn meira áberandi þegar maður ber saman frammistöðu íslenskra aukaleikara og fransks leikara sem fer snilldarlega með lítið hlutverk hásetans Burte. fslendingarnir virðast alveg óskiljanlega klaufskir og vandræðalegir og fara þá al- gengu leið áhugaleikarans að geifla sig og hreyfa sig of mikið þegar smávægileg svipbrigði hefðu dugað miklu betur. Kannski er þetta leikstjórnarlegt atriði, og þó — svipað hefur maður séð í fjölda íslenskra kvikmynda. Máski kunna íslendingar ekki að leika í kvikmyndum — með örfáum undantekningum? Ýmislegt gætu þeir til dæmis lært af Frakkanum Pierre Vaneck, sem fer makalaust vel með hlut- verk leiðangursstjórans, dr. Charcots. Gerir ekki of og ekki van, hefúr engin áberandi leikræn tilþrif, en nær samt að hrífa áhorf- andann með inn í þessa örlaga- hringiðu. Hins vegar dregur það frekar úr áhrifamætti sögunnar en hitt að skipbrotsmaðurinn Gonidec skuli allan tímann æða um í hálf- hýsterísku ástandi, svona eins og hann hafi átt verulega bágt frá fæðingu. Erjur hans við háseta eru óskiljanlegar og bæta engu við. Það er semsagt hægt að finna ýmislegt að verki Kristínar. Það breytir því þó ekki að heildaryfir- bragð myndarinnar er glæsilegt; kvikmyndatakan er oftast góð og stundum bráðsnjöll. Svart fjall, grasræma og bólgið haf eru glæsi- leg umgjörð um atburðarásina — líklega hefur sjórinn aldrei fengið jafnveglegan sess í íslenskri bíó- mynd. Um miðbikið finnst manni lop- inn að sönnu teygður óþarflega, en það er áhorfendum ríkulega bætt upp síðustu tuttugu mínút- urnar; aðdragandi strandsins, strandið og eftirleikur þess, lok myndarinnar — þarna er óefað glæsilegasti kafli sem hefur sést í íslenskri kvikmynd. Svo er að geta ffammistöðu Álf- rúnar Örnólfsdóttur. Hrefna hennar er frábært stelpuskott, sem Álfrún leikur svo sniðuglega að manni verður orðs vant. f raun er nauðsyn að fara í bíó að sjá hana — og þessa forvitnilegu mynd sem er stærri í sniðum og hugsun en gengur og gerist um ís- lenskar myndir. Óttist menn að kvikmynd eftir Kristínu Jóhann- esdóttur hljóti að vera leiðinleg, þá er það fullkominn misskilning- ur... Egill Helgason Bongó oggœrur Trúbrot Trúbrot ★★★★ Grýiurnar Mávastellið ............*★*............. ^HH^Endurútgáfa gamalla ^^iTMverka er eitt af því já- kvæöasta við yfirtöku - geislaplötunnar. Flest af því sem er endurútgefið er reglu- lega kærkomið á markaðinn. Af fjölntörgum endurútgáfum Steina hf„ sem þeir kalla hornsteina, eru fyrsta plata Trúbrots og Mávastell Grýlanna með því allra bitastæð- asta. Fyrsta breiðskífa Trúbrots var unnin með hinni klassísku lið- skipan; Gunna Þórðar og Rúnari Júl, Kalla Sighvats, Gunnari Jökli og Shady Owens, sem var fersk- Framhald og meira afgagnrýni á siðu 47. 18.00 Fjörkálfar. 18.30 Kobbi og klíkan. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 ★ Auðlegð og ástríður. Áströlsk sápa. 19.25 ★ Sókn í stöðutákn. Breskt grín. 20.00 Fréttir. 20.35 Blóm dagsins. Njóli. 20.40 ★★★ Til bjargar jörðinni. Látum skynsemina ráða. Flvernig geta pólitíkusar bætt umhverfið? 21.35 Ólympíuleikar fatlaðra. Sýnt frá opnunarhátíð. 21.50 Eldhuginn. Fyrsti þáttur af tuttugu og tveimur um lögreglumann í Chicago, sem hefur setið í fangelsi en sleppur út og fer að elta bófa með aðstoð þokka- gyðju sem er lögfræðingur. 22.40 ★★ Grænir fingur. Hafsteinn tékkar á garði Sigurveigar í Hraunkoti í Lóni. E 23.00 Fréttir. ■HmXEEÐnHI 18.00 Sómi kafteinn. 18.30 Ævintýri íóbyggðum. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Magni mús. 19.25 ★ Sækjast sér um líkir 20.00 Fréttir. 20.35 Blóm dagsins. Holtasóley. 20.40 ★★ Leiðin til Avonlea. Er þyrnum stráð. 21.30 ★★ Matlock. Kyntáknið Andy Griffith. 22.20 Strandverðir. Baywatch. Amerísk. í rauninni er þetta þáttaröð fyrir sjónvarp, en fyrsti þátturinn er í lengd bíómyndar. Umfj'öllunarefnið er stæltir strand- verðir í Kaliforníu. Frekar hljómar það nú illa. 00.05 Natalie Cole. Þessi stúlka varð heimsfræg fyrir að nota upptökutækni nútímans til að syngja á móti löngu látnum föður sínum, Nat King Cole. LAUGARDAG U R 14.00 íslenska knattspyrnan. Bein útsending frá næstsíðus- tu umferð íslandsmótsins. Þennan dag keppa KA og Valur, Breiðablik og ÍBV, ÍA og FH og KR og Þór. 16.00 íþróttaþátturinn. Vonandi ekki golf. 18.00 Múmínálfarnir. 18.25 Bangsi besta skinn. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Strandverðir. Framhald bíómyndarinnar frá því kvöldið áður. 20.00 Fréttir. 20.35 Lottó. 20.40 Blóm dagsins. Tófugras. Fara þeir ekki að klára flóruna? 20.45 Fólkið í landinu. Bryndís Schram talar við Eyþór Sigmundsson póstkortaútgefanda. 21.10 ★ Hver á að ráða? Bara tveir þættir eftir. Við hljótum að lifa það af! 21.35 ★★ Kerlu skal kálað. Throw Momma from the Train. Amerísk, 1987. Svört kómedía, útúrsnúningur úr frægri Hitchcock-mynd. Tveir aðframkomnir menn skiptast á morðum, en annar þeirra tekur samkomulagið með meiri alvöru en hinn. Danny De Vito og Billy Crystal eru nokkurn veginn eins og við mátti búast, en Anne Ramsey er frámunalega ógeðsleg sem skapvond og hálfbrjáluð kerlingarherfa. 23.00 ★★ Dion-bræður. The Dion Brothers. Amerísk, 1974. Kolanámumenn fara til stórborgar og gerast glæpamenn. Stacy Keach er góður leikari, en mynd- in hefur ekki elst vel. 17.50 Sunnudagshugvekja. Sigrún Helgadóttir líffræðingur ^■maaxiÐxaHNi pælir í lífsgátunni. 18.00 Ævintýri úr konungsgarði. 18.30 Fyrsta ástin. Ástfangnir sænskir unglingar. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 BernskubrekTomma og Jenna. 19.30 H Vistaskipti. Lífið í MR er skemmtilegra en þetta. 20.00 Fréttir. 20.35 Sjö borgir. Sigmar B. á kafFihúsum í Vínarborg, meðal annars á slóðum Manuelu Wiesler og Hundertwassers. 21.10 ★ Gangur lífsins. Væmið. 22.00 Noregi allt. Helgi Már Arthursson talar við Harald Noregskongung sem kemur í opinbera heimsókn á mánudag. 23.30 Alls ekkert ofbeldi. Þýsk sjónvarpsmynd um konu sem er nauðgað og áhrif þess á líf hennar og geðheilsu. 17.00 Samskipadeildin. íslandsmótið í fótbolta. 18.00 Háðfuglar. Þeir eru breskir og gera grín að sjálfum sér og Bretum. 17.00 Konur í íþróttúm. Þær eru margar en fá ekki mikla athygli. Þær hlaupa líka hægaren karlarnir. 17.30 Van Gogh í Arles. Mörg mestu meistaraverWn málaði Van Gogh í Arles í Suður-Frakklandi. Þar er fagurt landslag og mjúk bi»ta. 18.30 List Dogona. Dogonar eru ættbálkur í Malí sem á sér mikla sögu og mikla menningu. Brot af því er varðveitt á Metropolitan-safninu í New York. 16.45 Nágrannar. MMTUDAGU R 17.30 ídraumalandi. 17.50 Feldur. 18.15 Flakkað um tímann. Leikinn myndaflokkur. 19.19 19.19. 20.15 ★★ Fótboltaliðsstýran. í ensku deildinni. 21.10 ★ Laganna verðir. Amerískar löggur. 21.40 ★★ Ofsahræðsla. Fear Stalk. Amerísk, 1989. Ágæt leikkona, Jill Clayburgh, leikur sjónvarpskonu sem þarf að verjast ásókn geðsjúklings sem vill taka völdin í lífi hennar. 23.15 ★★ Hamskipti. Vice Versa. Amerísk, 1988. Vinnuóður faðir og ellefu ára gamall sonur hans skipta um hlutverk með dularfullum hætti. Bara gaman. E 16.45 Nágrannar. —nnii.ini;i—I 17.30 Krakkavísa.E 17.50 Á ferð með New Kids on the Block. Sem varð aldrei vinsæl á íslandi. 18.15 Trýni og Gosi. 18.30 Eerie Indiana. Myndaflokkur. E 19.19 19.19. 20.15 HKæriJón. 20.45 ★★ Lovejoy. 21.40 ★★ Allt er breytingum háð. Things Change. Amerísk, 1988. Fábrotinn skósmiður tekur á sig sökina á morði fyrir mafíuforingja. Frekar þunnildis- leg gamanmynd, en vel leikin. Gamla brýnið Don Ameche fer á kostum. 23.30 ★★★ Ólíkir elskendur. White Palace. Amerísk, 1990. Uppi fellur fyrir miðaldra gengilbeinu á grill- búllu. James Spader og Susan Sarandon leika prýði- lega, ágætismynd. 01.10 ★ Bjarnarey. Bear Island. Amerísk, 1980. Hæfileikum góðra leikara á borð við Donald Sutherland, Vanessu Redgrave og Richard Widmark er sóað í þessari spennumynd sem er gerð eftir sögu Alistairs MacLean. E 09.00 Með afa. örn Árnason kominn úr sumarfríi. LAUGARDAGUR 10.30 Lísa í Undralandi. Nýr teiknimyndaflokkur. 10.50 Spékoppar. Nýrteiknimyndaflokkur. 11.15 Einaf strákunum. 11.35 Mánaskífan. 11.55 Landkönnun National Geographic. 12.50 Bílasport. E 13.20 Visasport. E 13.50 ★★★ Ferð til fyrirheitna landsins. Road to Utopia. Amerísk, 1945. Bing Crosby, Bob Hope og Dorothy Lamour í Klondyke. Söngva- og dansamynd frá þeim tíma þegar saklaust skemmtiefni dugði til að hafa ofan affyrirfólki. Fínt fyrir þá sem hafa gaman af svona. 15.15 ★ Persónur og leikendur. American Dreamer. Amerísk, 1984 Óttalega þunn gamanmynd um húsmóður sem vinnur ferð til Parísar og álítur sig hetju í ævintýri. E 17.00 ★ Glys. 17.50 Létt og Ijúffengt. Matreiðsluþáttur. 18.00 Popp og kók. Þáttur um popp og bíó. 18.40 Samskipadeildin. Dregurað leikslokurrv 19.19.19.19. 20.00 ★ Falin myndavél. 20.30 ★★ Morðgáta. Angela Lansbury aftur á ferð í hlutverki Jessicu Fletcher sem leysir allar morðgátur. Einhvern brodd vantar í þættina, en það fer allt eftir smekk. 21.20 ★ Skollaleikur. See No Evil, Hear No Evil. Amerísk, 1989. Asnaleg gamanmynd um blindan mann og annan heyrnarlausan sem eru saklausir grunaðir um morð. Enn hallar undan fæti fyrir Gene Wilder og Richard Pryor. 23.10 ★★★★ Duld. The Shining. Amerísk, 1980. Einhver besta hryllingsmynd bíósögunnar. Jack Nicholson brosir djöfullega í hlutverki rithöfundar sem tapar glórunni á einangruðu fjallahóteli. Stanley Kubrick leikstýrir, þetta er síðasta markverða verk hans. 01.25 Grafinn lifandi. Buried Alive. Amerísk, 1990. ' Sjónvarpsmynd um konu sem eitrar fyrir eiginmanni sínum. Síðan gerast einkennilegir atburðir. E 09.00 Kormákur. I^^MIMWWWWTWTW?WTW»W!WcWTWjWM^Hm 09.10 Regnboga-Birta. Nýrteiknimyndaflokkur. 09.20 Össi og Ylfa. 09.45 Dvergurinn Davíð. 10.10 Prins Valíant. 10.35 Maríanna fyrsta. 11.00 Lögregluhundurinn Kellý. 11.30 ídýraleit. 12.00 ★★ Fjölskylduflækja. Cousins. Amerísk, 1989. Endurgerð á franskri gamanmynd um ástir sem takast með svilfólki. Frummyndin var miklu betri. E 13.55 ítalski boltinn. Bein útsending. AC-Milan á móti Atalanta. Fyrrtalda liðið er eiginlega of gott. 15.45 Á slóð stolinna dýrgripa. Á höttunum eftir lis.ta- verkum og dóti sem nasistar stálu í stríðinu. 16.35 Gigt. Þáttur í tilefni af norrænu gigtarári. Það er fullyrt að 50þúsund íslendingar séu með þennan sjúkdóm í einhverri mynd. 17.00 Listamannaskálinn. Þýska tónskáldið Hans Werner Henze. E 18.00 Lögmál listarinnar. Breskur myndaflokkur um gildi listarinnar. 18.50 ★★★★ Kalli kanína og félagar. Ekta amerískar teiknimyndir. 19.19 19.19. 20.00 ★ Klassapíur. Leiðinlegar ogljótar amerískar kerling- ' ar. 20.25 ★★ Root fer á flakk. Breskur gamanmyndaflokkur. 21.20 ★★ Stíað í sundur. Torn Apart. Amerísk, 1989. Rómantísk (og frekar væmin) mynd um elskendur, hann er gyðingur en hún Palestínukona. Ekki er sú blanda líkleg til vinsælda. 22.50 Samskipadeildin. 23.00 ★★ Arsenio Hall. Dolly Parton lítur inn. Er hún með sílíkon í brjóstunum? 23.45 ★★★ Síðasta óskin. Rocket Gibraltar. Amerísk. 1988. Stórleikarinn Burt Lancaster í mynd um öldung sem fagnar afmælisdegi í faðmi fjölskyld- unnar. Barnabörnin skilja hann betur en börnin. E ★★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt ® Ömurlegt E Endursýnt efni

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.