Pressan - 12.11.1992, Page 31

Pressan - 12.11.1992, Page 31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. NÓVEMBER 1992 f Þ R Ó T T I R 31 HVAÐ SEGJA ÞJÁLFAR- ARNIR UNI PÉIUR? MILLINN BAK VIÐ BESTA LID HEIMS Pétur Ingvarsson, framherji Hauka, hefur komið mjög á óvart það sem af er tímabilinu. Við fengum nokkra þjálfara til að gefa honum umsögn. „Aðal Péturs er vilji og geysileg einbeitni skín út úr honum í hverjum leik. Þá hefur sjálfs- traustið aukist rosalega hjá honum.“ Jón Kr. Gíslason, þjálfari (BK. „Pétur er gríðarlega duglegur, alltaf að. Vinnuhestur og áræðnari en tígrisdýr.“ Friðrik I. Rúnarsson, þjálfari KR. „Pétur er hugaður leikmaður sem gefst aldrei upp og hefur blómstrað undanfarið.“ Torfi Magnússon landsliðsþjálfari. „Pétur er villtur og baráttu- glaður. Auk þess er hann hæfi- leikaríkur leikmaður sem hefijr ekki einbeitt sér nóg að íþrótt- inni fyrr en nú.“ (var Ásgrímsson, þjálfari Snæfells; „Pétur er vaxandi leikmaður sem orðinn er stórhættulegur.“ Svali Björgvinsson, þjálfarf Váls. Það eru víst fáir sem draga í efa að lið AC Milan er besta knattspyrnulið heims í dag og jafnvel besta félagslið allra tíma. Ekki nóg með að það hafi sýnt frábæran árangur undanfarið í erfiðustu deildarkeppni í heimi heldur er liðið að slá flest hugsanleg met. Á ftalíu segja menn í hálfkæringi að allt eins sé hægt að afhenda liðinu meistara- titilinn strax og snúa sér að baráttunni um annað sæti, slíkir eru yfirburðir liðsins sem nú hefur leikið 44 leiki í deildinni án taps. En að búa til lið sem AC Milan kostar sitt. Þrátt fyrir að aðeins séu leyfðir þrír erlendir leikmenn í einu þá á lið einn umgang vara- manna. Það þýðir að frábærir leikmenn eins og Jean-Pierre Papin frá Frakklandi, Boban frá Króatíu og Savicevic frá Júgó- slavíu eru á bekknum. Fremst fer hollenska tríóið Ruud Gullit, Marco Van Basten og Frank Rijkaard. Um daginn þegar Holland og ftalía áttust við í landsleik voru tíu leik- menn AC Milan inni á vellinum í einu; leik- urinn líktist meira æfingu hjá liðinu. ftalska deildarkeppninn er annað og meira en keppni um meistaratitil. Hún er einnig keppni á milli ríkustu manna ftalíu; Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan, Agn- elli, Fíatkóngurinn sem á Juventus, og Cragnotti, eigandi Lazio, eru þrír af ríkustu mönnum Ítalíu. Þeir beita knattspyrnunni fyrir sig á sama hátt og prinsarnir á I’talíu, sem gerðu endurreisnina í listum að keppni sín á milli fyrir fjórum öldum. Berlusconi hefur verið líkt við Medici-ættina sem á tímabili hafði þá Raphael, Leonardo da Vinci og Michelangelo í listaliði sínu. Berl- usconi hefur hollenska tríóið! HEFUR EYTTFIMM MILUÖRÐUMI LEIKMENN Berlusconi er ríkasti maður Italíu að dómi Fortune- tímaritins. Hann á verslun- arkeðjur og fjölmiðlaveldi auk þess sem hann hefur fjárfest víða. Þegar hann tók við félaginu árið 1986 skuldaði það 1,5 millj- arða króna. Síðan hefur hann eytt 5 millj- örðum og aðeins fyrir síðasta tímabil reiddi Jakob Sigurðsson KVABTA EKKI UNDfl UMHYGGJULEYSI „Ég er svo heppinn að ég get stundað vinnu þrátt fyrir meiðslin,“ sagði Jakob Sigurðs- son, fyrirliði Valsmanna, sem nú annað árið í röð er kominn á sjúkralista. Jakob sleit kross- bönd í vinstra hné og óvíst hvort hann verður meira með í vetur. Jakob, sem er efnaffæðingur að mennt, var við vinnu þegar haft var samband við hann. Hann sagði að það væri baráttu- mál Félags fyrstudeildarleik- manna að koma tryggingamál- um á hreint og hefðu könnunar- viðræður verið í gangi við trygg- ingafélögin. „Ég get ekki kvartað yfir um- hyggjuleysi Valsmanna, en ég geri ráð fýrir að fá einhverja að- stoð frá félaginu vegna læknis- kostnaðar," sagði Jakob. Hann sagði að lækniskostnaðurinn væri sem betur fer lítill því þetta greiddist að mestu í gegnum heilbrigðiskerfið. „Hins vegar er endurhæfing- in hrikaleg vinna og maður hlakkar svo sem ekkert til þess,“ sagði Jakob, en ekki er enn ljóst hvenær hann verður skorinn upp við meiðslunum. SÁ SLEIP- ASTI í FLIKK- FLAKKI „Þetta er auðvitað affakst- ur mikilla æfinga," sagði Jó- hannes Níels Sigurðsson, fimleikamaður og íþrótta- kennaranemi, en hann sigraði í öllum sex keppnisgreinum karla á haustmóti Fimleika- Jóhannes Níels Sigurðsson er í (þróttakennaraskólanum á Laugarvatni og ferðast fimm sinnum í viku til Rej^javíkur á æfingar. sambands fs- lands um síðustu helgi. Jóhannes hefur æft fim- leika ffá sjö ára aldri og segist alltaf vera að bæta sig. Sem kunnugt er hafa A-Evrópu- menn verið í sérflokki í fim- leikum en Jóhannes segir að yfirburðir þeirra hafi minnk- að. Hann bíður nú eftir að fim- leikasambandið ákveði hvort það sendir hann á mót erlend- is. Undanfarið hafa hann og Guðjón Guðmundsson, sem einnig er í Ármanni, verið f sérflokki og marga hildi háð. „Nei, þetta er allt í góðu á milli okkar, við erum orðnir | vanir þessari keppni,“ sagði Jó- hannes. KÖRFUBOLTI ÚRVAI.SDEILD Keflavík - Snæfell kl. 20.00. Kefl- víkingar eiga stórgott lið og ekk- ert lið er öfundsvert af þvl að lenda I kiónum á þeim I ham, en Hólmarar eru glúrnir. KR - Haukar kl. 20.00. Bræður og frændur gegn þeim röndóttu. Við veðjum á bræðurna. KÖRFUBOLTI l.DEILDKVENNA KR - Grindavík kl. 20.00. Stelp- urnar keppa í Hagaskóla meðan strákarnir eru á fullu á Seltjarnar- nesinu. HANDBOLTI 1. DEILD KVENNA Armann - Grótta kl. 21.15. Út- lenska stúlkan hjé Ármenningum átti að vera stórskytta en reyndist hornamaður. Sem er allt I lagi þvl stelpan er góð. KR - Stjarnan kl. 18.00. Garða- bæjarfraukurnar hljóta að vera betri en Vesturbæjartáturnar. KÖRFUBOLTI ÚRVALSDEILD Breiöablik - Valur kl. 20.00. Blik- ar eru búnir að reka liðþjálfann og fá nýjan útlending. Njarðvík - Skallagrímur kl. 20.00. Njarðvíkingum hefur engan veginn gengið í vetur. íWiWM^RiMataaaE KÖRFUBOLTI ÚRVALSDEILD Haukar - Tindastóll kl. 14.00. Þetta verður én efa skemmtilegur leikur. Valur Ingimundarson er hreint ótrúlega sterkur ef hann er ekki i banni. KÖRFUBOLTI l.DEILD KVENNA KR - fS kl. 17.00. Þessi lið standa framarlega í kvennakörfubolta á (slandi. Tindastóll - Njarðvík kl. 16.00. Körfuboltaáhugi er ekki kynskiptur á Króknum. KÖRFUBOLTI ÚRVALSDEILD Skallagrímur - Grindavík kl. 16.00. Skallgrímingar unnu Grind- víkinga í fyrsta leik mótsins og hljóta að geta gert það aftur, enda á heimavelli. Njarðvík - Keflavík kl. 20.00. Það verður væntanlega allt vit- laust í þessum nágrannaslag, en Kéflvíkingar eru sigurstranglegri.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.