Morgunblaðið - 29.05.2004, Side 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LY K I L L I N N A Ð H Á L E N D I Í S L A N D S
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
HÁLENDISHAN
DBÓKIN
ÖKULEIÐIR
, GÖNGULE
IÐIR OG ÁF
ANGASTAÐ
IR Á HÁLE
NDI ÍSLAN
DS
Ö
N
N
U
R
Ú
TÁ
FA
2
0
0
4
PÁLL ÁSGE
IR ÁSGEIRS
SON
SHANDBÓKIN
I
S
B
N
9
9
7
9
9
6
3
9
3
NÝJAR LEIÐ
IR OG FERS
KAR UPPLÝ
SINGAR
NÝJAR LJÓS
MYNDIR
GEISLADISK
UR MEÐ M
YNDSKEIÐU
M AF
80 VÖÐUM
Á HÁLENDI
NU FYLGIR
BÓKSALI FRÁ 1872
FÁÐU NÝJA OG GLÆSILEGA
FYRIR ÞÁ GÖMLU
HÁLENDISHANDBÓK
[ 2004 ]
EF ÞÚ ÁTT FYRRI ÚTGÁFU
HÁLENDISHANDBÓKARINNAR
GETURÐU FARIÐ MEÐ HANA Í
PENNANN EYMUNDSSON EÐA
MÁL OG MENNINGU ÞAR SEM
HÚN ER TEKIN UPP Í NÝJU BÓKINA Á 1.000 KR.
ÞANNIG GETURÐU EIGNAST NÝJU BÓKINA Á AÐEINS 3.980 KR. Í
STAÐ 4.980 KR. TILBOÐIÐ GILDIR TIL 15. JÚNÍ.
MARGIR munu eflaust leggja
land undir fót um hvítasunnuhelg-
ina, enda telst hún fyrsta stóra
ferðahelgi sumarsins. Í samtali við
ýmsa aðila í ferðaþjónustunni í
gærdag var augljóst, að ýmsar
ferðir eru á boðstólum. Þannig
hyggjast til dæmis nærri 60
manns leggja á Hvannadalshnúk á
vegum Íslenskra fjallaleiðsögu-
manna.
Formleg dagskrá innan þjóð-
garðsins á Þingvöllum hefst ekki
fyrr en aðra helgi júnímánaðar.
„Tjaldstæðin við Þjónustumiðstöð-
ina eru opin núna um helgina.
Hins vegar eru tjaldstæði í Vatns-
koti lokuð,“ sagði Einar Á. E. Sæ-
mundsen, fræðslufulltrúi þjóð-
garðsins, í samtali við
Morgunblaðið. Fræðslumiðstöðin
við Almannagjá er opin um og
messa verður í Þingvallakirkju á
hvítasunnudag klukkan tvö.
Fólk um fjöll og firnindi
Hjá ferðafélaginu Útivist eru
ýmsar ferðir í boði, að sögn Bjarn-
eyjar Sigurjónsdóttur á skrifstofu
Útivistar. „Það verða um 60 manns
á okkar vegum í Þórsmörk, og
einnig verður ferð á hvítasunnudag
á Móskarðshnúka, yfir á Trönu og
síðan norður á Möðruvallaháls nið-
ur í Kjós,“ sagði Bjarney í samtali
við Morgunblaðið.
Ívar Finnbogason, leiðsögumað-
ur hjá Íslenskum fjallaleiðsögu-
mönnum, sagði árlega hvítasunnu-
ferð félagsins á Hvannadalshnúk
standa fyrir dyrum þegar blaða-
maður hafði samband við hann í
gær. „Það munu 56 manns fara á
Hvannadalshnúk í dag, ásamt sjö
leiðsögumönnum. Annað teymi
lagði af stað í gær, og enn annað
mun fara á sunnudag. Veðurspáin
gæti verið skárri, en hún hefur
breyst til batnaðar þegar liðið hef-
ur á vikuna,“ sagði Ívar. Félagið
heldur upp á 10 ára afmælið sitt
um þessar mundir, og er þetta í tí-
unda sinn sem farin er hvíta-
sunnuferð á hnúkinn. „Í hópnum
eru margir sem hafa gert þessa
ferð að árlegum sið, en einnig
sumir sem ekki hafa farið upp áð-
ur,“ bætti Ívar við.
Veðrið getur truflað
Ferð hafði verið ráðgerð í Þórs-
mörk um helgina á vegum Ferða-
félags Íslands, og átti að ganga
yfir Fimmvörðuháls í dag. Af
ferðinni verður þó ekki, helst
vegna slæmrar veðurspár, að
sögn starfsmanna Ferðafélags-
ins.
Óli Þór Árnason, veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands,
segir hlýtt loft berast til landsins
sunnan úr höfum, og hiti verði á
bilinu 10 til 17 stig um helgina,
hlýjast í innsveitum norðvest-
antil. „Það verður austanátt, og
líkur á rigningu austan- og sunn-
antil. Það er helst að Norðurland
og Vesturland sleppi við vætuna.
Einnig er hætt við þoku þegar
kólnar með nóttunni,“ sagði Óli
Þór Árnason í samtali við Morg-
unblaðið.
Ýmsar ferðir í boði fyrstu ferðahelgi ársins
Nærri 60 manns stefna
á Hvannadalshnúk
Morgunblaðið/Þorkell
Þungur straumur bíla var útúr Reykjavík um kvöldmatarleytið í gær.
JÓN E. Guðmunds-
son, myndlistarkenn-
ari og upphafsmaður
brúðuleikhúslistar á
Íslandi, lést í Reykja-
vík í gær. Hann var
89 ára.
Jón E. Guðmunds-
son fæddist á Pat-
reksfirði 5. janúar
1915. Hann lagði
stund á nám í mynd-
list, fyrst á Íslandi og
síðar í Kaupmanna-
höfn. Eftir að Jón
sneri heim frá námi
starfaði hann sem
myndlistarkennari, fyrst við
Flensborgarskóla, Miðbæjarskól-
ann og loks við barnaskóla Austur-
bæjar. Jón kynntist brúðuleikhús-
list, þegar hann var við nám í
Danmörku, og ásetti sér að kynna
þessa listgrein fyrir löndum sínum.
Skömmu eftir að hann sneri aftur
til landsins, stofnaði
hann Íslenzka brúðu-
leikhúsið.
Um árabil ferðaðist
hann um landið með
brúðuleikhús sitt. Síð-
ar kom Jón á laggirn-
ar brúðuleikhúsbíl,
sem hann ferðaðist
einnig með vítt og
breitt.
Jón var um tíma
forseti UNIMA, al-
þjóðlegra samtaka
brúðuleikhúsgerðar-
manna.
Jón hélt fjölmargar
sýningar bæði á brúðum sínum,
höggmyndum og málverkum. Jón
sótti viðfangsefni listar sinnar til
íslenskra þjóðsagna og líf íslenzkr-
ar alþýðu.
Jón var giftur Valgerði M. Eyj-
ólfsdóttur og eignuðust þau fjögur
börn. Valgerður lést 9. mars 2000.
Andlát
JÓN E.
GUÐMUNDSSON
VERÐ á matvöru á Íslandi var um það
bil 50% hærra en að meðaltali í Evr-
ópusambandinu á árinu 2001 að mati
hagstofu Evrópusambandsins, Euros-
tat. Álíka miklu munaði á drykkjar-
vörum öðrum en áfengi. Fiskur er eini
vöruflokkurinn í samantekt Eurostat
sem reyndist álíka dýr á Íslandi og í
Evrópusambandinu, en í öðrum mat-
arflokkum var verð á Íslandi frá 30%
til 70% hærra. Verð á matvöru var aft-
ur á móti að jafnaði heldur hærra í
Noregi og Sviss en á Íslandi þetta ár.
Þetta kemur fram í skýrslu, sem
forsætisráðherra hefur látið gera um
samanburð á matvælaverði á Íslandi,
Norðurlöndum og ríkjum Evrópusam-
bandsins, í samræmi við ályktun Al-
þingis þar að lútandi.
Í skýrslunni eru tilgreindar nokkrar
skýringar fyrir hærra matarverði hér
en annars staðar. Þannig mætti lækka
matarreikning landsmanna töluvert ef
influtningshömlur væru afnumdar.
Hins vegar virðist vörugjöld og önnur
skattlagning ekki skipta sköpum um
mun á verðlagi hér og í nágrannalönd-
unum, því að ákveðnar vörur sem séu
að mestu tollfrjálsat og beri ekki háa
skatta eða gjöld hafi verið tugum pró-
senta dýrari hér á landi en í öðrum
löndum Evrópu á árinu 2001. Þar á
meðal sé brauð og kornvara og senni-
legt sé að hátt verð á þessum vörum
skýrist af legu landsins. Flutnings-
kostnaður sé að meðaltali 7–25% af
verði í útflutningshöfn auk þess sem
stærðarhagkvæmni njóti ekki eins við
hér á landi og í þéttbýlli löndum.
Mikill kaupmáttur einnig skýring
Einnig er bent á háan kaupmátt hér
á landi sem eina skýringu hás matar-
verðs. Launakostnaður sé hár og þess
sjáist merki í framleiðsukostnaði mat-
vöru, auk þess sem kaupmáttur hafi
vaxið mikið hér síðustu árin og þar
með geta neytenda til að greiða hátt
verð fyrir vörur.
Þá kemur fram í skýrslu Hagfræði-
stofnunar að árin 1996–2000 hækkaði
verðlag á matvörum í samræmdri vísi-
tölu evrópskra hagstofa um 10% meira
á Íslandi en í Evrópusambandinu.
Gengi krónunnar hækkaði á sama
tíma um 15% gagnvart evru, þannig að
í heild hækkaði matarverð á Íslandi
um fjórðung miðað við Evrópusam-
bandið á þessum fjórum árum. Síðan
hafi evran styrkst um 20% gagnvart
krónunni og mikil samkeppni ríkt á ís-
lenskum matvörumarkaði síðustu
misserin, einkum á kjötmarkaði. Hlut-
fallsleg verðhækkun á þessum árum
hafi þannig að nokkru leyti snúist við.
Í umfjöllun um samkeppni á mat-
vælamarkaði segir í skýrslunni að
verðþróun almennrar neyslu og verð
matar og drykkjar hafi fylgst nokkuð
vel að á árunum 1993–1997. Árin 1997
og 2001 hafi matvörur hækkað veru-
lega umfram annað verðlag.
50% hærra matar-
verð hér en að með-
altali í ESB 2001
!
"
!
"
!" #$%&!!
Á VEF Vegagerðarinnar má
sjá ástand fjallvega víða um
land, og að sögn starfsmanna
þar hafa margir hringt síðustu
daga og forvitnast um ástand
vega á hálendinu. Nú er búið
að opna vegina um Kjöl og
Kaldadal, og jeppafært er í
Landmannalaugar og að
fjallabaki yfir í Skaftártungu
og Laka. Er með fyrra móti að
þessir vegir séu opnir í maílok.
Fært um Kjöl
og Kaldadal
ÁRNI Mathiesen segir að fljótlega
muni framhald vísindahvalveiðanna
skýrast. Til stóð að hann tilkynnti
um framhaldið á morgunverðarfundi
Sjávarnytja á miðvikudag, en það
varð ekki úr. „Maður þarf að vanda
sig vel í þessu máli,“ sagði ráðherra
spurður um hvenær hann muni til-
kynna um framhald veiðanna.
Vísindaveiðarnar hófust um miðj-
an ágústmánuð síðasta sumar. Þá
voru 36 dýr veidd og tekið af þeim
kvóta sem gefinn hafði verið upp fyr-
ir veiðarnar fyrir ágúst og septem-
ber. Til stendur að veiða alls 200 dýr,
á mismunandi svæðum í kringum
landið, á tímabilinu maí til septem-
ber, til að skoða fæðu, ástand skepn-
unnar og fleira á mismunandi tíma-
bilum.
Árni segir að hvalveiðimenn hafi
sagt að þeir séu til þegar kallið komi
og því þurfi ekki að tilkynna um veið-
arnar með miklum fyrirvara.
Bráðum
tilkynnt um
framhald
hvalveiða