Morgunblaðið - 29.05.2004, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„FRÁBÆRLEGASPENNANDI
SAGA ...BÓKSEMMAÐUR
LESÍEINUMRYKK.“BIRTA
„FYRSTAFLOKKSAFÞREYING.“
„GÁTUSAGAMEÐGULLINSNIÐI.“
VIKTOR ARNAR INGÓLFSSON,
HÖFUNDUR FLATEYJARGÁTUNNAR
MORGUNBLAÐIÐ
SKV. METSÖLULISTUM
VERÐ:1.590KR.
WWW.BJARTUR.IS/DAVINCI MÁ
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
*
*
SENNILEGA
SKELLI á ofsaveður í Japan eru
miklar líkur á að innan fárra daga
hafi það áhrif á norðurhveli jarðar
og þar á meðal á Íslandi. Vindar
sem eru magnaðir upp af landslagi
Grænlands virðast geta valdið
djúpsjávarmyndun sem er það ferli
þegar sjór á yfirborðinu sekkur
niður í 2.000 metra dýpi. Ef djúp-
sjávarmyndunin er ekki til staðar
geta allir hafstraumar raskast.
Þetta er meðal þess sem kom fram
á alþjóðlegri ráðstefnu um veður
og veðurfar, sem var haldin í
Reykjavík í vikunni.
Haraldur Ólafsson, prófessor í
veðurfræði við Háskóla Íslands,
sagði vangaveltur hafa komið upp
um að hugsanlega hefði djúpsjáv-
armyndun getað truflast á forsögu-
legum tíma og væri það mögulega
skýring á því af hverju veðurfar
hefði tekið eins miklum breyt-
ingum og ískjarnar úr jöklum gæfu
til kynna.
Hafnarfjallið á sér veðurkerfi
Haraldur flutti fyrirlestur þar
sem hann sýndi fram á að öfgar í
veðri tengdust veðri á millikvarða
mjög náið. Sérstaklega kæmi áhrif
landslags þar inn. Þar tók Har-
aldur Ísland sem dæmi. „Veð-
urkerfi á millikvarða eru veð-
urkerfi sem hafa stærðargráðu í
kringum einn til fimm hundruð
kílómetra í þvermál. Dæmi um slíkt
kerfi hér á Íslandi er aftakaveður
undir Hafnarfjalli,“ sagði Har-
aldur. „Sá vindur sem kemur út úr
líkönum sem notuð eru til að spá
fyrir veðurfar í framtíðinni gefur
litlar vísbendingar um tíðni ofsa-
veðra í grennd við fjöll.“
Til minni veðurkerfa teljast t.d.
vindhviður sem verða við hús eða
fyrir aftan strætisvagna þegar þeir
keyra af stað. „Á stóra kvarðanum
eru víðáttumiklar lægðir eins og
við sjáum á veðurkortunum sem
eru þúsund kílómetrar í þvermál,“
sagði Haraldur. „Svo eru ennþá
stærri kerfi sem eru bylgjur sem
ná allt í kringum hnöttinn og
bylgjulengd getur verið í kringum
fimm þúsund kílómetra og þar fyr-
ir ofan.“
Fara yfir í líkindaspár
Á ráðstefnunni var m.a. lýst
horfum í rannsóknum á veðurspám
til allt að tveggja vikna. Auk þess
var skýrt frá því að menn myndu
færa sig æ meira yfir í líkindaspár
á komandi árum. Þetta kom t.d.
fram hjá Mel Shapiro, virtum veð-
urfræðingi sem starfar hjá banda-
rísku veðurstofunni og stofnaði
ásamt öðrum alþjóðlegt veðurverk-
efni, Thorpex, hjá Alþjóðaveð-
urstofnun Sameinuðu þjóðanna,
WMO.
Shapiro sagði að í verkefninu
væri verið að þróa nýjar aðferðir
og tækni til að segja fyrir um líkur
á ákveðnu veðri, m.a. með því að
safna saman mörgum ólíkum spám
á tilteknu svæði og slá inn upplýs-
ingum um þær í tölvu. Þannig
mætti koma með spá sem segði að
eftir nokkra daga væru til dæmis
50% líkur á ofsaveðri á ákveðnu
svæði. Markmið verkefnisins væri
að gera þessar líkindaspár eins ná-
kvæmar og hægt væri og fyrir eins
lítið svæði og hægt væri. Veð-
urspár hefðu gríðarmikla þýðingu
fyrir öll samfélög og reyndust þær
rangar gætu stórar fjárhæðir tap-
ast, t.d. ef skipum væri haldið við
bryggju vegna bræluspár sem síð-
an ekki rættist.
Eins og að kasta steini í vatn
Shapiro sagðist einnig hafa skoð-
að keðjuverkun í andrúmsloftinu.
Ef óveður skylli til dæmis á í Japan
þá bærust þeir loftstraumar hálfa
leiðina yfir hnöttinn á nokkrum
dögum og yllu usla þar sem þeir
færu yfir, m.a. með djúpum lægð-
um á Íslandi. Ef slíkar lægðir færu
yfir Ísland væru nokkrar líkur á
öfgakenndu veðri næstu daga og
vikur á öllu norðurhveli. „Þetta er
eins og að kasta steini í vatn sem
síðan myndar gárur og bylgjur á
öllu vatninu. Við gætum litið á
vatnið sem jörðina og ímyndað
okkur að steinninn hefi lent á Jap-
an. Áhrif ofsaveðurs þar geta vel
náð til Íslands nokkrum dögum síð-
ar,“ sagði Shapiro og bætti því við
að almenningur gæti alveg eins og
veðurfræðingarnir fylgst með
veðrinu alls staðar í heiminum og
séð hvernig keðjuverkunin virkaði.
Morgunblaðið/RAX
Haraldur Ólafsson, prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands, og Mel Shapiro frá bandarísku veðurstofunni.
Alþjóðleg ráðstefna um veður og veðurfar
Ofsaveður í Japan getur
haft áhrif á Íslandi
HVATNINGARVERÐLAUN Vísinda- og tækniráðs
voru afhent í gær að loknu rannsóknaþingi sem bar yf-
irskriftina Samstarf háskóla, rannsóknastofnanna og at-
vinnulífs. Anna Birna Almarsdóttir, lyfjafræðingur hlaut
verðlaunin, en tæplega þrjátíu vísindamenn voru til-
nefndir. Þetta eru stærstu vísindaverðlaun sem veitt eru
á Íslandi en verðlaunaféð nemur tveimur milljónum
króna og kemur úr Rannsóknasjóði. Hvatning-
arverðlaunin eru veitt vísindamanni sem þykir hafa
skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vís-
indastarfi sem treystir stoðir mannlífs á Íslandi.
Anna Birna hefur meðal annars rannsakað lyfjanotk-
un barna og unnið að rannsóknum á þjónustu lyfjabúða,
bæði hvað varðar gæði og kostnað með tilliti til breyttra
reglna og starfsumhverfis. Hún vinnur nú að viðamiklu
rannsóknarverkefni með það að markmiði að meta
kostnað og ávinning af nýjum lyfjum á íslenskum mark-
aði. Verkefnið tengist þeim umræðum sem hafa verið um
kostnað ríkisins við lyfjakaup og málin eru skoðuð út frá
sjónarhóli lyfja- og heilsuhagfræði.
Fimm manna dómnefnd, skipuð fyrri verðlaunahöfum,
valdi verðlaunahafa ársins. Við valið var m.a. tekið mið af
menntun og starfsreynslu viðkomandi vísindamanns.
Vísindamaðurinn þarf að hafa stundað sjálfstæðar rann-
sóknir þannig að það sé ljóst á hvaða sviði hann hyggst
hasla sér völl. Jafnframt var lagt mat á hvort viðkomandi
hafi unnið brautryðjendastarf og hvað þekkingin sem
aflað var með rannsóknum leggur af mörkum til íslensks
samfélags.
Anna Birna
Almarsdóttir hlaut
hvatningarverðlaun
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
afhenti Ölmu Birnu Almarsdóttur viðurkenninguna.
SEM aðildarríki Atlantshafsbanda-
lagsins án eigin loftvarna á Ísland til-
kall til þess að bandalagið sjái því fyr-
ir lofthelgiseftirliti (svonefndu „air
policing“). Þetta staðfesti háttsettur
starfsmaður alþjóðastarfsliðs höfuð-
stöðva NATO í samtali við Morgun-
blaðið. NATO sinnir nú slíku eftirliti í
Eystrasaltslöndunum þremur og
Slóveníu, þ.e. þeim hinna sjö nýju að-
ildarríkja bandalagsins sem ekki búa
yfir eigin lofther.
Lofthelgiseftirlit hefur verið meðal
verkefna bandaríska varnarliðsins á
Íslandi og svo lengi sem tvíhliða
samningar Íslands við Bandaríkin um
varnir landsins eru í gildi telja íslenzk
stjórnvöld ótímabært að skoða þenn-
an valkost nánar. Gunnar Gunnars-
son, fastafulltrúi Íslands hjá NATO,
leggur áherzlu á að lofthelgiseftirlit
sé mun takmarkaðra en eiginlegar
loftvarnir, sem bandaríska varnarlið-
ið hefur verið ábyrgt fyrir á Íslandi í
meira en hálfa öld.
Samkvæmt skilgreiningu orða-
safns NATO felst lofthelgiseftirlit
(„air policing“) í því að orrustuþotum
sé beitt til að halda uppi stöðugu eft-
irliti á friðartímum með tiltekinni loft-
helgi, til að tryggja að hún sé virt.
Við inngönguna í NATO gerðu
Slóvenía og Eystrasaltslöndin Eist-
land, Lettland og Litháen kröfu til
þess að bandalagið sæi þeim fyrir
sambærilegri lofthelgisvernd og eldri
aðildarríkin nytu. Slíkt eftirlit myndi
vernda þau fyrir árásum hliðstæðum
flugránsárásunum á Bandaríkin 11.
september 2001. Eystrasaltslöndin
töldu auk þess nauðsynlegt að komið
yrði með trúverðugum hætti í veg fyr-
ir að rússneskar herflugvélar ryfu
lofthelgi þeirra, sem yrði hluti af sam-
eiginlegri lofthelgi NATO eftir inn-
göngu þeirra í bandalagið.
Norður-Atlantshafsráðið, æðsta
stofnun NATO sem tekur allar
stefnumótandi ákvarðanir, samþykkti
17. marz sl. áætlun um bráðabirgða-
fyrirkomulag lofthelgiseftirlits
bandalagsins. Meðal þess sem þar er
kveðið á um er að orrustuþotur og
stuðningslið á jörðu niðri verði með
bækistöðvar í Eystrasaltslöndunum.
„Útgerðarríkið“ ber kostnaðinn
Fjórar F-16-þotur belgíska flug-
hersins sinna þessu hlutverki í þrjá
mánuði til að byrja með, með bæki-
stövðar í Siauliai nyrst í Litháen,
miðja vegu milli Vilnius og Riga.
Flugherir Danmerkur, Hollands,
Noregs og Bretlands hafa allir lýst
sig reiðubúna að sinna þessu eftirliti
og er gert ráð fyrir að eftir fyrstu þrjá
mánuðina verði fundið fyrirkomulag á
því sem geti orðið varanlegt. Ítalski
loftherinn sinnir nú lofthelgiseftirliti
yfir Slóveníu og ungverski flugherinn
er reiðubúinn til þess einnig.
Skiptar skoðanir voru á því hver
ætti að bera kostnaðinn af þessu eft-
irlitsflugi. Niðurstaðan varð sú að
landið sem leggur til þoturnar til
verkefnisins, þ.e. Belgía í tilfelli
Eystrasaltsríkjanna, bæri þennan
kostnað að mestu leyti, svipað og til-
fellið er með friðargæzlusveitir sem
hvert NATO-ríki sendir til þátttöku í
friðargæzlu á vegum bandalagsins,
svo sem á Balkanskaga og í Afganist-
an. Lofthelgiseftirlitið í Eystrasalts-
löndunum mun kosta Belgíu 600.000
evrur – um 54 milljónir króna – þessa
þrjá mánuði sem belgísku þoturnar
sinna því, og eru þau útgjöld réttlætt
gagnvart belgískum skattborgurum
með því að eftirlitið hjálpi til við að
hindra að hryðjuverkaárásir á borð
við 11. sept.-árásirnar endurtaki sig.
Litháísk stjórvöld og Mannvirkja-
sjóður NATO bera kostnað af við-
haldi herflugvallarins í Siauliai. Auk
þess reka Eystrasaltslöndin sameig-
inlega flugumferðareftirlitsmiðstöð.
Loftherslaus lönd einbeiti
sér að getu á öðrum sviðum
Í samningunum um aðild nýju
NATO-ríkjanna var kveðið á um að
þau þeirra sem réðu ekki yfir eigin
lofther þyrftu ekki að koma sér slík-
um upp heldur ættu að einbeita sér að
því að hámarka getuna á afmörkuðum
sviðum sem gagnazt gætu varnar-
hagsmunum bandalagsins í heild.
Auk Íslands er eitt annað „gömlu“
NATO-ríkjanna án eigin loftvarna og
með tvíhliða samning við annað
NATO-ríki um þær. Lúxemborg er
með slíkt samkomulag við Belgíu.
Ísland á tilkall til
lofthelgiseftirlits
á vegum NATO
RÍKISSAKSÓKNARI hefur
ákært rúmlega tvítugan varn-
arliðsmann af Keflavíkurvelli
fyrir sérstaklega hættulega lík-
amsárás með því að mölva gler-
flösku á höfði tvítugs Keflvík-
ings með þeim afleiðingum að
hann hlaut 5–6 cm langan skurð
þvert yfir vinstra gagnauga og
upp fyrir vinstri augabrún. At-
vikið átti sér stað á skemmti-
stað í Keflavík aðfaranótt 28.
september 2003.
Krafist er refsingar yfir
ákærða og krefst maðurinn 357
þúsund króna skaðabóta úr
hendi ákærða.
Varnarliðs-
maður
ákærður