Morgunblaðið - 29.05.2004, Page 22
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Mývatnssveit | Framkvæmdir Bað-
félags Mývatnssveitar ganga vel.
Fjölmargir eru þar að störfum, við
alls konar verkefni. Vatn er komið á
annað lónið af tveimur sem þarna
verða. Það er fagurblátt yfir að líta.
Gufubaðið er þegar orðið funheitt og
freistandi. Að sögn Péturs Snæ-
björnssonar er reiknað með að form-
leg vígsluhátíð verði 30. júní næst-
komandi. Þó verður reynt að opna að
einhverju leyti aðstöðuna um miðjan
júní.
Morgunblaðið/BFH
Vatn komið
á lón Bað-
félagsins
Laxamýri | Söngur og gleði ein-
kenndu útskriftarhátið í leikskól-
anum í Aðaldal en þá kvöddu elstu
nemendurnir með eigin skemmti-
atriðum. Í tilefni dagsins fengu
börnin áletrað skjal þess efnis að
þau væru útskrifuð og í ávarpi til
þeirra þakkaði leikskólastjórinn
þeim fyrir ánægjulegar sam-
verustundir á liðnum árum. Þá
þökkuðu foreldrar starfsfólkinu
fyrir farsælt starf með börnunum
og færðu skólanum nokkra bolta að
gjöf sem nýtast munu til leikja, en
það kom fram að ánægja ríkir með
þessa starfsemi í sveitinni.
Á komandi hausti munu þessi
börn byrja í 1. bekk Hafralækj-
arskóla, en að undanförnu hafa þau
farið í kynnisferðir þangað til þess
að venjast umhverfinu.
Að athöfninni lokinni var boðið
upp á vöfflur og rjóma sem allir
kunnu vel að meta.
Leikskólinn á enda
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Útskriftarnemendur leikskólans í Aðaldal ásamt starfsfólki.
Reykholt | Nú standa yfir á vegum
Fornleifaverndar ríkisins viðgerðir
á Snorralaug í Reykholti, en laugin
er ein af merkustu fornminjum okk-
ar. Þær eru meðal 10 fyrstu fornleif-
anna sem friðlýstar voru á Íslandi,
en það var gert að frumkvæði Kon-
unglegu dönsku fornleifanefnd-
arinnar í upphafi 19. aldar.
Laugin er hlaðin upp með grjóti,
en upp frá henni liggja göng að bæj-
arrústunum þar sem fornleifaupp-
gröftur hefur farið fram á und-
anförnum árum. Gangaendinn hefur
verið lokaður um nokkurt skeið þar
sem hann var að mestu hruninn sam-
an. Að lauginni liggja fornir vatns-
stokkar sem vatnið er leitt eftir frá
hvernum.Nú hefur endi gagnanna
sem liggja frá lauginni að
húsarústunum verið tekinn niður, en
til stendur að hlaða hann upp og
byggja yfir hann að nýju. Lagnir að
og frá lauginni verða lagfærðar og
veggir og bakki laugarinnar sjálfrar
endurhlaðnir. Hellulagt verður í
kringum laugina með náttúrugrjóti
til að umhverfið þoli betur þann
mikla fjölda ferðamanna sem koma
árlega. Auk þess verður komið upp
upplýsingaskiltum. Síðast var gert
við laugina og göngin árið 1959.
Ljósmynd/Lára Kristín
Snorralaug endurbætt
LANDIÐ
Eyrarbakki | Hátíðadagana Vor í Árborg hef-
ur verið boðið upp á margs konar viðburði. Á
Eyrarbakka gafst fólki kostur á að sjá hvern-
ig gamalt hús lítur út eftir smekklegar lag-
færingar, einnig heimili sem lítið hefur
breyst frá árunum eftir aldamótin 1900. Þá
voru ýmsar myndlistarsýningar og hand-
verks-, auk þess að þjónustuhús Byggðasafns
Árnesinga og söfnin á Eyrarbakka voru opin.
Helsti viðburðurinn var eflaust sá að vígt
var minnismerki um árdaga rafvæðingar
Eyrarbakka, um rafstöðina sem stofnað var
til 1919 og gegndi hlutverki sínu til ársins
1947, er rafmagn kom á Bakkann frá Ljósa-
fossvirkjun. Merkið er stórt og þungt sving-
hjól af síðustu vélinni sem sneri rafölum
stöðvarinnar. Veitustjórinn í Árborg, Ásbjörn
Blöndal, sagði frá rafvæðingunni og minntist
þeirra manna sem um árabil stjórnuðu raf-
stöðinni og voru kallaðir rafstöðvarstjórar.
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Minnismerkið er svinghjól af síðustu vélinni sem sneri rafölum stöðvarinnar. Margir tóku þátt í athöfninni þegar minnismerkið var vígt í blíðskaparveðri á Eyrarbakka.
Minnismerki um árdaga rafvæðingar
Hveragerði | Ítalskt sumarævintýri
var sett með formlegum hætti
fimmtudaginn 27. maí í Hverabak-
aríi í Hveragerði. Reynir Carl Þor-
leifsson, formaður Landssambands
bakarameistara, sagði frá tilurð
þessa sameiginlega verkefnis bak-
ara landsins. Síðan flutti Pétur
Björnsson, ræðismaður Ítalíu á Ís-
landi, ávarp. Því næst söng Sigrún
Hjálmtýsdóttir söngkona vel valin
lög á ítölsku. Einnig sungu krakkar
úr 3. bekk Grunnskólans í Hvera-
gerði lagið um fuglana með söng-
konunni góðkunnu. Þegar söngnum
sleppti var gestum boðið að smakka
á dýrindiskrásum sem Sigurjón
Haukssson bakari og hans fólk
höfðu bakað þá um morguninn.
Í sumar stendur Landssamband
bakarameistara fyrir ítölsku sum-
arævintýri í bakaríum landsins. Á
boðstólum verður margs konar
brauðmeti að ítölskum hætti auk
þess sem kynntur verður glæsi-
legur uppskriftabæklingur í hand-
hægu broti þar sem finna má hug-
myndir að einföldum og gómsætum
réttum á ítalska vísu. Lands-
samband bakarameistara hvetur
fólk til að kynna sér ítalska brauð-
menningu í bakaríum landsins.
Brauð er fyrirferðarmikið í mat-
armenningu Ítala og margra ann-
arra þjóða og býður fjölbreytta
möguleika sem uppistaða í mat eða
sem meðlæti.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Pétur Björnsson, ræðismaður Ítalíu,
Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona og
Reynir Carl Þorleifsson, formaður
Landssambands bakarameistara.
Bakarar
landsins á
ítölskum
nótum
Selfoss | Starfsmenn MBF
færðu HSS nýlega sólarhring-
sblóðþrýstingsmæli að gjöf.
Tækið er keypt hjá Lyfjadreif-
ingu og er að verðmæti um 240
þúsund krónur. Fyrir átti
stofnunin einn slíkan mæli.
Með tilkomu nýja tækisins
styttist bið þeirra sem þurfa á
slíkri rannsókn að halda. Það
var Ágúst Örn Sverrisson, yf-
irlæknir lyflæknissviðs HSS,
sem veitti gjöfinni móttöku og
lýsti notagildi tækisins en sól-
arhringsblóðþrýstingsmælar
bæta greiningu og meðferð
blóðþrýstingskvilla. Með því að
lengja mælingartíma og fjölga
mælingum fæst mun skýrari
mynd af blóðþrýstingi yfir
lengra tímabil. Auðveldar það
greiningu háþrýstings og eft-
irlit. Esther Óskarsdóttir,
framkvæmdastjóri HSS, þakk-
aði starfsmönnum MBF gjöf-
ina afhenti þeim áritað þakk-
arskjal.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá afhendingu nýja mælisins: Frá vinstri: Ágúst Örn Sverrisson, yfirlæknir
lyflæknissviðs HSS, Eiríkur Ingvarsson, Ólafur Sigurðsson og Jóhannes Kjart-
ansson, fulltrúar starfsmanna MBF, Esther Óskarsdóttir framkvæmdastjóri
og Guðrún Ágústsdóttir, deildarstjóri á sjúkrasviði.
Gáfu Sjúkrahúsi Suðurlands
fullkominn blóðþrýstingsmæli