Morgunblaðið - 29.05.2004, Page 53

Morgunblaðið - 29.05.2004, Page 53
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 53 KB BANKA GOLFMÓTI‹ Við byrjum núna! Komið og sjáið bestu kylfinga landsins keppa. Við hvetjum áhugafólk um golfíþróttina til að fylgjast með strax frá byrjun á laugardag en draga fer til tíðinda á milli efstu manna á mótinu eftir hádegi á sunnudag. Sjáumst í góðum golfgír Fyrsta keppnin í Toyota-mótaröðinni í golfi verður háð á golfvelli Golfklúbbs Reykjavíkur við Korpu á laugardag og sunnudag. Keppnin hefst kl. 8 báða dagana. Leiknar verða 18 holur sinn hvorn daginn. Golfklúbbur Reykjavíkur, Korpa, 36 holur 29.-30. maí. TOYOTA MÓTARÖÐIN KB BANKA GOLFMÓTIÐ TOYOTA MÓTARÖÐIN KB BANKA GOLFMÓTIÐ TOYOTA MÓTARÖÐIN KB BANKA GOLFMÓTIÐ TOYOTA MÓTARÖÐIN KB BANKA GOLFMÓTIÐ TOYOTA MÓTARÖÐIN KB BANKA GOLFMÓTIÐ ÍS LE N SK A A U G L SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 24 86 2 0 5/ 20 04 ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik leikur sinn fyrsta lands- leik á Ítalíu er það mætir Ítölum í und- ankeppni HM í Túnis 2005 – í kvöld í borg- inni Teramo, sem austan við Róm. Ís- land hefur einu sinni áður leikið gegn Ítalíu í undankeppni HM. Það var 1973 fyrir HM í A-Þýskalandi 1974. Fyrri leikurinn fór fram í Reykjavík og endaði með stórsigri Íslendinga, 26:9. Ítalir gáfu seinni leikinn, sem átti að fara fram á Ítal- íu. Íslenska landsliðið lagði einnig Frakka, sem voru í riðlinum, að velli og lék í HM í A-Þýskalandi. Ísland og Ítalía hafa leikið 7 landsleiki og hafa Íslendingar fagn- að sigri í sex leikjum, en einum lauk með jafntefli – 20:20 í Haarlem í Hollandi 1999, en þá tefldu Íslend- ingar fram táningaliði. Af þessum leikjum hafa tveir far- ið fram í Reykjavík, einn í Hollandi, Austurríki, Ungverjalandi, Noregi og Danmörku. úrslit hafa orðið: 1973 í Reykjavík: .........................26:9 1984 í Teie: .................................25:15 1991 í Györ: ................................27:20 1993 í Ósló ..................................21:18 1994 í Reykjavík: .......................26:15 1995 í Voitsburg: .......................23:20 1999 í Haarlem: .........................20:20 Guðmundur með flesta leiki Af þeim leikmönnum sem eru nú í landsliðshópi Íslands hafa þessir leikið landsleiki gegn Ítalíu: Guð- mundur Hrafnkelsson 4 sinnum, Patrekur Jóhannesson 4, Dagur Sigurðsson 2, Ólafur Stefánsson, Róbert Sighvatsson, Ragnar Ósk- arsson og Guðjón Valur Sigurðsson einu sinni hver. Fyrsti lands- leikurinn á Ítalíu Guðmundur Hrafnkelsson Guðmundur var eins og íslenskulandsliðsmennirnir óánægður með frammistöðuna í leikjunum gegn Austurríkis- mönnum og Grikkj- um sem voru liður í undirbúningi liðsins fyrir leikinn gegn Ítölum í dag. En hann vonast til þess að menn taki sig saman í andlitinu og spili góðan leik gegn Ítölum. Sem fyrirfram teljast mun veikari and- stæðingur en Íslendingar. „Handboltinn er á uppleið“ „Við erum búnir að eiga góðan undirbúning í fyrradag og í gær. Og mér sýnist á öllu að strákarnir hafi lært sína lexíu og viti að þeir þurfa að koma með rétt hugarfar í leikinn í dag. Handboltinn er á uppleið í Evr- ópu og Ítalir eru engin undantekning frá því. Þeir lögðu Austurríkismenn og Hvít-Rússa í forkeppni að heims- meistaramótinu og eftir að hafa séð þá leiki af myndbandi verðum við að mæta til leiks af fullri alvöru. Við verðum að vanda okkur í öllum okkar aðgerðum og sóknarleikurinn verður að taka stakkaskiptum frá leikjunum við Grikki og Austurríki. Þar gerðu menn sig seka um afar mörg mistök. Rétt hugarfar Og við megum alls ekki við því að það gerist aftur gegn Ítölum. Ég myndi setja Ítali í svipaðan styrk- leikaflokk og Austurríki og Grikk- land. Ég held að strákarnir séu með- vitaðir um að þeir þurfa að leggja sig 100% fram í þessum leik. Að mínu mati er þetta fyrst og fremst spurning um hugarfarið og ef það verður rétt hef ég ekki svo mikl- ar áhyggjur af úrslitum leiks- ins. Mér sýnist á öllu að þetta sé smám saman að slípast hjá okkur og æf- ingin í kvöld (í gær) gekk mjög vel og vonandi er það byrjunin á góðum leik okkar á morgun (í dag),“ sagði Guð- mundur og benti á að leikirnir gegn Grikkjum og Austurríki hefðu verið góð áminning fyrir íslenska liðið. Í dag mun Guðmundur tilkynna hvaða 14 leikmönnum hann teflir fram í leiknum en það eru 17 leik- menn í leikmannahóp liðsins. Það er ljóst að Birkir Ívar Guðmundsson, markvörður Íslandsmeistaraliðs Hauka, verður ekki með í leiknum en hann tognaði á hné gegn Grikkjum og hefur ekki náð sér af þeim meiðslum. Birkir Ívar sagði við Morgunblaðið að hann ætti von á því að geta tekið þátt í síðari leiknum sem fram fer í Kaplakrika um næstu helgi. Keppnishöllin í Teramo er ekki mjög stór og tekur um 800 áhorfendur en reiknað er með því að uppselt verði á leikinn. Guðjón Valur Sigurðsson og Ró- bert Sighvatsson meiddust lítilshátt- ar á æfingunni í gær en þeir verða klárir í slaginn. „Stund sannleik- ans runnin upp“ ÍSLENSKA karlalandsliðið í handknattleik mætir í dag Ítölum í fyrri viðureign þjóðanna um laust sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Túnis á næsta ári. Fer leikurinn fram í Teramo sem er um 200 km frá Rómarborg. Guðmundur Þórður Guðmundsson, lands- liðsþjálfari, sagði við Morgunblaðið eftir æfingu liðsins í gærkvöldi að nú væri runnin upp stund sannleikans. Guðmundur Hilmarsson skrifar frá Teramo Guðmundur Guðmundsson Íslendingar mæta Ítölum í HM-orrustu í Teramo Ítalir unnu heima- leikina ÍTALSKA landsliðið í hand- knattleik, sem Íslendingar mæta í undankeppni heims- meistaramótsins í Teramo á Ítalíu í dag, komst áfram eft- ir að hafa unnið sinn riðil í forkeppninni sem fram fór í janúar. Ítalir léku í riðli með Austurríki og Hvíta-Rúss- landi og enduðu allar þjóð- irnar með fjögur stig. Þar sem markatala Ítala var hag- stæðust komast þeir áfram. Greinilegt er að ítalska landsliðið er sterkt á heima- velli. Ítalir lögðu Austurríki á heimavelli, 27:23, að við- stöddum rúmlega 1.000 áhorfendum og Hvíta-Rúss- land 28:24 fyrir framan 2.000 áhorfendur. Báðir leik- irnir fóru fram í Chieti. Úti- leikjunum töpuðu Ítalir, 24:23, fyrir Austurríki og 27:24, fyrir Hvít-Rússum í Minsk. Á þriðjudaginn vann íslenska landsliðið það aust- urríska með eins marks mun í æfingaleik í Grikklandi, 27:26.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.