Morgunblaðið - 29.05.2004, Page 54

Morgunblaðið - 29.05.2004, Page 54
ÍÞRÓTTIR 54 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT FH 1:1 Keflavík Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeild karla, 3. umferð Kaplakriki Föstudaginn 28. maí 2004 Aðstæður: Strekkingur, völlur mjög góð- ur. Þurrt lengst af. Áhorfendur: 1.320 Dómari: Garðar Örn Hinriksson, Þróttur R., 3 Aðstoðardómarar: Einar Örn Daníelsson, Sigurður Óli Þórleifsson Skot á mark: 18(5) - 11(6) Hornspyrnur: 7 - 4 Rangstöður: 1 - 0 Leikskipulag: 4-5-1 Daði Lárusson M Heimir Snær Guðmundsson M Sverrir Garðarsson M Tommy Nielsen M Freyr Bjarnason Jónas Grani Garðarsson (Guðmundur Sævarsson 70.) Ásgeir Gunnar Ásgeirsson M Simon Karkov Atli Viðar Björnsson M Ármann Smári Björnsson M (Víðir Leifsson 65.) Jón Þorgrímur Stefánsson M (Sigmundur Ástþórsson 85.) Magnús Þormar Guðjón Antoníusson Haraldur Freyr Guðmundsson M Sreten Djurovic MM Ólafur Ívar Jónsson M Jónas Guðni Sævarsson Zoran Daníel Ljubicic M (Magnús Sverrir Þorsteinsson 79.) Stefán Gíslason MM Hólmar Örn Rúnarsson MM (Guðmundur Steinarsson 87.) Scott Ramsay M Hörður Sveinsson M (Þórarinn Brynjar Kristjánsson 71.) 0:1 (33.) Scott Ramsay tók aukaspyrnu við hliðarlínu hægra megin, sneri bolt- ann laglega inn í vítateiginn þar sem Haraldur Freyr Guðmundsson skallaði að marki. Boltinn stefndi framhjá vinstri stönginni en Sretan Djurovic kom höfðinu í knöttinn og breytti stefnu þannig að hann fór í hægra hornið. 1:1 (61.) FH-ingar brutu sókn Keflvíkinga á bak aftur rétt við miðlínu og boltinn barst til Ásgeirs Gunnars Ásgeirssonar sem lék með hann í átt að ví- tateignum en eina tíu metra fyrir utan hann skaut hann góðu skoti og lenti boltinn neðst í hægri stönginni og þaðan í vinstra hliðarnetið. Glæsilegt mark. Gul spjöld: Heimir Snær Guðmundsson, FH (10.) fyrir brot.  Stefán Gíslason, Keflavík (72.) fyrir brot.  Sigmundur Ástþórsson, FH (88.) fyrir brot. Rauð spjöld: Heimir Snær Guðmundsson, FH (84.) fyrir brot. „VIÐ erum með eitt markmið og það er einfalt, að fá ekki á okkur mark og skora eitt eða fleiri,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þjálfari kvenna- landsliðsins í knattspyrnu, sem leik- ur í dag gegn Ungverjum í Evrópu- keppninni. Íslenska liðið æfði á Székesfenérvål-vellinum í gær þar sem leikurinn fer fram, en það er um 60 km fyrir utan höfuðborgina Búdapest. „Okkur leist vel á allar aðstæður, völlurinn er ágætur, veðrið verður skaplegt en það hef- ur rignt undanfarna daga en við er- um klárar í slaginn. Heimamenn gera ekki ráð fyrir nema um 500 áhorfendum á völlinn og við höfum ekki séð heilsíðuauglýsingar með þeirra liði í helstu dagblöðum landsins.“ Helena sagði enn fremur að leik- aðferð íslenska liðsins yrði hefð- bundin, 4:5:1, en markmiðið væri að setja pressu á leikmenn Ungverja frá fyrstu mínútu. „Það sem ég hef séð af ungverska liðinu segir mér að þær eru í raun með svipaða leikmenn og við. Sum- ar eru líkamlega sterkar á meðan aðrar eru kvikar og leiknar með knöttinn. Við höfum lagt áherslu á æfingum okkar að koma knettinum fljótt á milli okkar í sókninni. Ef það gengur vel er ég bjartsýn á að við gerum góða hluti hér í Ung- verjalandi,“ sagði Helena. Allir leikmenn íslenska liðsins eru tilbúnir í átökin og segir Hel- ena að íslenska liðið ætli sér að leggja Ungverja að velli í dag. „Setjum pressu á Ung- verja frá fyrstu mínútu“ Morgunblaðið/Jim Smart Helena Ólafsdóttir lands- liðsþjálfari kvenna. Þróttarar fögnuðu rækilega á Val-bjarnarvelli í gær þegar þeir skoruðu sitt fyrsta mark í 1. deild- inni í sumar eftir 240 mínútna bið og ekki var fagnað minna í leikslok þegar það mark dugði til 1:0- sigurs á Breiðabliki. Varfærni einkenndi leikinn lengi vel þegar menn spiluðu aftur á aft- asta mann ef það var fyrirstaða í sókninni en svo var boltinn gefinn inn í vítateig og vonað hið besta. Það fór líka svo að lítið var um færi fram- an af en á 28. mínútu varði Stefán Logi Magnússon vítaspyrnu Blikans Sverris Sverrissonar og tíu mínútum síðar varði Páll Gísli Jónsson glæsi- legan skallabolta Þróttarans Ey- steins Lárussonar. Á 62. mínútu skoraði Sören Hermansen fyrir opnu marki eftir góðan undirbúning Hjálmars Þórarinssonar. Heldur hresstust Þróttarar við það og voru nær því að skapa sér færi. „Við vor- um frekar taugaóstyrkir framan af en það lagaðist aðeins þegar við skoruðum,“ sagði Sören eftir leikinn. „Þetta var ekki góður leikur en mik- ilvægt að vinna því við byrjuðum illa í mótinu. Vonandi erum við komnir á skrið.“ Maður leiksins: Kristófer Sigur- geirsson, Breiðabliki. Sterk vörn Valsmanna Valur lagði Hauka með einu markigegn engu í leik sem var ekki mikið fyrir augað. Sterkur vindur setti svip á fyrri hálf- leik og í þeim seinni tók að rigna. Að- stæður voru því tals- vert frá því sem best verður á kosið. Valsmenn voru sterk- ari aðilinn framan af fyrri hálfleik og uppskáru mark eftir 20 mínútna leik. Baldvin Hallgrímsson fékk boltann við vítateigslínu Hauka eftir þunga sókn, tók hann á lofti og skaut föstu skoti að marki heimamanna. Mark- vörður Hauka varði boltann í stöng- ina en þaðan fór hann í netið. Það sem eftir lifði hálfleiksins voru Haukarnir meira með boltann án þess þó að skapa sér færi. Í seinni hálfleik reyndu Haukar hvað þeir gátu að jafna metin. Þeir voru meira með boltann en sterk vörn gestanna átti svör við öllum að- gerðum heimamanna. Valsmenn fögnuðu því öðrum sigri sínum í röð og þremur stigum í viðbót á töfluna. Miðverðir Vals, þeir Baldvin Hall- grímsson og Bjarni Eiríksson, áttu skínandi góðan leik og voru bestu menn vallarins. Jón Gunnar Gunn- arsson í liði Hauka átti nokkra góða spretti á kantinum en það dugði skammt. Maður leiksins: Baldvin Hall- grímsson, Val. Friðrik hetja Njarðvíkinga Njarðvíkingar halda sigurgöngusinni áfram í 1. deildinni því lið- ið lagði Fjölni á heimavelli, 3:2. Þriðji sigur heimamanna á leiktíðinni stóð þó tæpt, þar sem gest- irnir fengu víta- spyrnu á 88. mínútu. Friðrik Árnason, markvörður Njarðvíkinga, braut á sóknarmanni Fjölnis en hann gerði upp sín mál er hann varði vítaspyrnuna sem Ilig Mladen tók. Njarðvíkingar voru heppnir að ná öllum þremur stigunum að þessu sinni þar sem Fjölnismenn sköpuðu sér mun fleiri færi í leiknum. Leik- urinn var nokkuð grófur og var tveimur leikmönnum Fjölnis vísað af leikvelli undir lokin, en þeir sóttu án afláts síðasta stundarfjórðunginn í leiknum. Heimamenn geta hrósað happi yfir stigunum þremur sem þeir uppskáru að þessu sinni. Gengi liðsins hefur samt sem áður komið flestum í opna skjöldu enda vann Njarðvík lið Breiðabliks með fjórum mörkum gegn engu í fyrstu umferð, og gerði síðan góða ferð í Garðabæ þar sem að Stjarnan var lögð að velli með minnsta mun, 1:0. Maður leiksins: Friðrik Árnason, Njarðvík. Völsungar sterkir Völsungar lögðu Stjörnumenn úrGarðabæ að velli á heimavelli sínum á Húsavík með fjórum mörk- um gegn tveimur. Gríðarleg barátta einkenndi leikinn en gestirnir voru aðeins níu inni á vellinum síðustu 20 mínútur leiksins eftir að tveimur leikmönnum þeirra var vís- að af leikvelli. Gestirnir voru meira með knöttinn í upphafi leiks án þess að skapa sér færi en misstu einbeitinguna tvíveg- is með stuttu millibili og í bæði skipt- in skoruðu Völsungar eftir skyndi- sókn og þeir bættu við þriðja markinu skömmu síðar. Stjörnumenn skoruðu úr víta- spyrnu undir lok fyrri hálfleiks og voru grimmir í síðari hálfleik þar sem þeir eygðu enn von um vænleg úrslit. Það breyttist hins vegar er leik- mönnum þeirra var vísað af velli, en fyrra rauða spjaldið var afar umdeilt svo ekki sé meira sagt. Í því tilviki fór Jónmundur Grétarsson af leik- velli í leyfisleysi að mati aðstoðar- dómara leiksins. Hann fékk gult spjald fyrir það atvik og í kjölfarið fékk hann annað gult spjald fyrir að fara inná völlinn í leyfisleysi að mati aðstoðardómara leiksins! Leikurinn var nokkuð grófur enda fór gula spjaldið sjö sinnum á loft, þar sem að dæmt var á harðar rimmur og orð- bragð leikmanna fór fyrir brjóstið á dómara leiksins. Heimamenn skemmtu sér vel á áhorfendasvæð- um vallarins, en þeir voru um 400. Kjöraðstæður á Húsavík í gær, logn og blíða. Maður leiksins: Hermann Aðal- geirsson, Völsungi. HK fór illa með færin Leikmenn HK úr Kópavogi getanagað sig í handarbökin fyrir að hafa ekki komið knettinum í netið gegn Þór frá Akureyri í gær en ekk- ert mark var skorað í leiknum. HK var mun sterkara liðið í fyrri hálfleik, Þórsarar vörðust og fengu heimamenn tvö gullin tækifæri til að skora. Gunnar Líndal, markvörður Þórsara, varði vel frá Herði Má Magnússyni á 5. mínútu en skot Harðar var alveg út við stöng. Stuðn- ingsmenn HK vildu einnig fá dæmda vítaspyrnu er Brynjar Skúlason virt- ist vera felldur í vítateignum. Hörður Már fékk ákjósanlegt færi á 32. mínútu er hann slapp einn í gegn en skaut framhjá. Gunnlaugur Gunnlaugsson, mark- vörður HK, þurfti ekki að hafa mikið fyrir hlutunum í gær en hann kom í veg fyrir að Ibra Jagne, Gambíu- maður í liði Þórs, skoraði á 45. mín- útu þegar hann nýtti sér mistök varnarmanns sem ætlaði að gefa til baka á Gunnlaug. Þórsarar sóttu mun meira fyrstu 20 mínúturnar í síðari hálfleik án þess að skapa sér færi. Gestirnir voru mun meira með knöttinn í sín- um röðum en náðu ekki að brjóta á bak aftur vel skipulagðan varnarleik heimamanna. HK fékk sannkallað dauðafæri undir lok leiksins sem varð tileftir eftir lipra skyndisókn. Gísli Freyr Ólafsson fékk boltann á markteig en skaut hárfínt framhjá markinu. Það má með sanni segja að Þórsarar hafi sloppið fyrir horn. Maður leiksins: Hörður Már Magnússon, HK. Njarðvík er enn á sigurbraut ÞRÓTTUR úr Reykjavík braut ísinn í gær er liðið tók á móti Breiða- bliki í 1. deild karla í knattspyrnu, en heil umferð fór fram í gær. Njarðvíkingar halda sigurgöngu sinni áfram og eru efstir með fullt hús stiga að loknum þremur umferðum. Valsmenn lögðu Hauka á útivelli, Völsungur vann Stjörnuna í hörðum leik á Húsavík en ekk- ert mark var skorað í viðureign HK og Þórs frá Akureyri. Stefán Stefánsson skrifar Benedikt Rafn Rafnsson skrifar Davíð Páll Viðarsson skrifar Kristján Þór Magnússon skrifar HANDKNATTLEIKUR Laugardagur: Undankeppni EM kvenna: Ásgarður: Ísland - Tékkland................16.15 KNATTSPYRNA Laugardagur: 3. deild karla, B-riðill: Ásvellir: ÍH - Bolungarvík.........................12 Þorlákshöfn: Ægir - BÍ..............................14 3. deild karla, C-riðill: Grenivík: Magni - Boltaf. Húsavíkur........14 Dúddavöllur: Snörtur - GKS .....................16 1. deild kvenna, B-riðill: Valbjarnarvöllur: Þróttur R. - ÍR.............14 Mánudagur: Bikarkeppni KSÍ. VISA-bikar karla: Helgafellsvöllur: KFS - Freyr ..................16 Kópavogsvöllur: HK - Deiglan..................20 VISA-bikar kvenna: Bessastaðav.: UMFB - HK/Víkingur.......17 GOLF Fyrsta stigamót ársins hjá Golfsambandi Íslands, Toyota-mótaröðin, fer fram í dag og á morgun, sunnudag, á Korpúlfsstöðum. KÖRFUKNATTLEIKUR Vináttulandsleikir kvenna: Laugardagur: Grindavík: Ísland - England......................17 Sunnudagur: Ásvellir: Ísland - England .........................11 UM HELGINA KNATTSPYRNA Efsta deild karla, Landsbankadeild FH – Keflavík............................................1:1 Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 61. - Sreten Djurovic 33. Staðan: Keflavík 3 2 1 0 6:3 7 Fylkir 3 2 1 0 4:1 7 ÍA 3 1 2 0 3:1 5 ÍBV 3 1 2 0 3:2 5 Fram 3 1 1 1 4:3 4 FH 3 1 1 1 2:2 4 KA 3 1 0 2 2:3 3 KR 3 1 0 2 3:5 3 Grindavík 3 0 2 1 1:3 2 Víkingur R. 3 0 0 3 1:6 0 1. deild karla Völsungur – Stjarnan ..............................4:2 Hermann Aðalgeirsson 6., Ásmundur Arn- arson 19., Baldur Sigurðsson 35., Oddur Guðmundsson 87. - Guðjón Baldvinsson 33., Sveinn Magnússon (vítasp.) 52. Rautt spjald: Jónmundur Grétarsson 53., Sveinn Magnússon 74., báðir úr Stjörnunni. HK – Þór ....................................................0:0 Njarðvík – Fjölnir.....................................3:2 Bjarni Sæmundsson 20., Gunnar Sveinsson 48., Milan Janus 72. - Ívar Björnsson 61., Ilig Mladen 64. Rautt spjald: Þórir Hann- esson (80.), Ragnar Sverrisson (90.), báðir úr Fjölni. Þróttur R. – Breiðablik............................1:0 Sören Hermansen 62. Haukar – Valur.........................................0:1 Baldvin Hallgrímsson 21. Staðan: Njarðvík 3 3 0 0 8:2 9 Valur 3 2 1 0 7:2 7 Þór 3 1 2 0 3:1 5 Völsungur 3 1 1 1 5:4 4 Þróttur R. 3 1 1 1 1:2 4 HK 3 1 1 1 2:5 4 Haukar 3 1 0 2 5:5 3 Stjarnan 3 1 0 2 5:6 3 Breiðablik 3 1 0 2 2:6 3 Fjölnir 3 0 0 3 3:8 0 2. deild karla Tindastóll – KS .........................................2:3 Sigmundur Skúlason, Þorsteinn Gestsson - Ragnar Hauksson, Þórður Birgisson, Bjarki Már Flosason. KFS – Afturelding....................................1:1 Sigurður Ingi Vilhjálmsson - Brynjólfur Bjarnason. Leiknir R. – Víðir .....................................4:0 Einar Örn Einarsson, Jakob Spangsberg, Róbert Arnarson, sjálfsmark Víðismanna. Leiftur/Dalvík – Víkingur Ó. .................0:3 Predrag Milosevic 2, Kjartan Einarsson. Staðan: Njarðvík 3 3 0 0 8:2 9 Valur 3 2 1 0 7:2 7 Þór 3 1 2 0 3:1 5 Völsungur 3 1 1 1 5:4 4 Þróttur R. 3 1 1 1 1:2 4 HK 3 1 1 1 2:5 4 Haukar 3 1 0 2 5:5 3 Stjarnan 3 1 0 2 5:6 3 Breiðablik 3 1 0 2 2:6 3 Fjölnir 3 0 0 3 3:8 0 3. deild karla, A-riðill Afríka – Árborg .........................................0:2 Skallagrímur – Deiglan ............................2:1 Freyr – Grótta ...........................................0:6 Staðan: Árborg 2 1 1 0 4:2 4 Skallagr. 2 1 1 0 4:3 4 Númi 1 1 0 0 5:1 3 Grótta 2 1 0 1 7:5 3 Deiglan 2 1 0 1 2:2 3 Afríka 1 0 0 1 0:2 0 Freyr 2 0 0 2 0:7 0 3. deild karla, D-riðill Neisti D. – Höttur .....................................1:0 Fjarðabyggð Leiknir F. ...........................5:0 Einherji – Sindri........................................2:0 Neisti D. 2 2 0 0 4:0 6 Fjarðabyggð 2 1 0 1 6:3 3 Huginn 1 1 0 0 3:1 3 Einherji 2 1 0 1 2:3 3 Leiknir F. 2 1 0 1 2:5 3 Sindri 1 0 0 1 0:2 0 Höttur 2 0 0 2 0:3 0 1. deild kvenna, B-riðill Fylkir – ÍA .................................................1:6 ÍA 1 1 0 0 6:1 3 ÍR 1 1 0 0 5:3 3 Hvöt/Tindastóll 0 0 0 0 0:0 0 Þróttur R 0 0 0 0 0:0 0 Fylkir 2 0 0 2 4:11 0 Vináttulandsleikir Azerbaijan – Úsbekistan .........................3:1 Gurban Gurbanov 31., Ilgar Gurbanov 64., Emin Guliyev 75. – Zeinaddin Tadjiyev 45. - 12.000. Finnland – Svíþjóð....................................1:3 Jari Litmanen 9. vítasp. – Anders Anders- son 30., Marcus Allback 45., 82. -16.500. Frakkland – Andorra...............................4:0 Sylvain Wiltord 45., 55., Louis Saha 68., Steve Marlet 74. - 27.553. KÖRFUKNATTLEIKUR Vináttulandsleikur kvenna: Ísland – England ................................77:101 Stig Íslands: Hildur Sigurðardóttir 22, Erla Þorsteinsdóttir 22, Signý Her- mannsdóttir 16, Birna Valgarðsdóttir 6, Erla Reynisdóttir 4, Rannveig Randvers- dóttir 3, Sólveig Gunnlaugsdóttir 2, María Ben Erlingsdóttir 2. NBA-deildin Vesturdeild, úrslit: LA Lakers – Minnesota........................92:85  LA Lakers er yfir 3:1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.