Morgunblaðið - 29.05.2004, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 29.05.2004, Qupperneq 57
Ekki á morgun heldur hinneða The Day After Tomorrow er nýjastamynd Þjóðverjans Ro- lands Emmerichs sem virðist hafa sérhæft sig í – ekki stórmyndum – heldur risastórum myndum. Að baki eru t.d. Independence Day og God- zilla, báðar tröllvaxnar, en nú má næstum segja að Emmerich hafi farið fram úr sjálfum sér. Ekki á morgun heldur hinn er stórslysa- mynd til að enda allar stórslysa- myndir því hér er sjálfur hnöttur- inn undir og er hann á heljar- þröm. Bara það að sjá stikluna („trailer“) í bíó var nóg til að mann sundlaði og fljótlega sökk maður í sætið. Heilu borgirnar fóru undir sjó fyrir augum manns og allt hrein- lega að fara til fjandans. Hér segir af vísindamanninum Jack Hall (Dennis Quaid) sem reyn- ir að vara stjórnvöld við því að skelfileg meðferð á móður jörð á síð- ustu áratugum er að fara að segja til sín. Áður en nokkur fær við ráðið brestur á ný ísöld með ógnarhraða, afleiðingar gróðurhúsaáhrifa, óson- lags-eyðslu og svo framvegis. Jake Gyllenhall leikur son Jacks Hall, Sam Hall, í myndinni. Gyllen- hall er á örri uppleið í Hollywood um þessar mundir og sló í gegn í hinni súrrealísku Donnie Darko. Hann á margar og mismunandi myndir að baki og leikur einnig á sviði. Heilar fjórar myndir eru nú í vinnslu þar sem hann fer með stórt hlutverk. Systir hans er Maggie Gyllenhall sem hefur leikið í myndum eins og Secretary, Mona Lisa Smile, Con- fessions of a Dangerous Mind og Adaptation. Jake Gyllenhall reyndist einstak- lega geðugur viðmælandi, sem er ekkert sérstaklega algengt í þessum bransa. Séntilmaður fram í fingur- góma og afar fagmannlegur en með nóg af manneskjulegheitum við sig til að heilla hvern mann upp úr skónum. Og það var nákvæmlega það sem gerðist í eftirfarandi viðtali. Ég er orðinn aðdáandi! Sólgleraugu Hæ Jake! „Hæ, hvernig hefurðu það?“ Ég hef það gott. „Hvað er að gerast á Íslandi?“ Ja … sólin er að hækka á lofti og björtu næturnar eru komnar. „Já, ég vissi af þeim furðulegheit- um. Það hlýtur að vera mjög áhuga- vert að lifa við svona aðstæður.“ Já, mér finnst alltaf jafn skrýtið að vakna klukkan fjögur á nóttunni við glaðasólskin. „Einmitt, þarftu þá ekki að vera með almennileg sólgleraugu?“ Humm … já … en það er víst Dagurinn eftir morgundaginn sem við ætluðum að ræða um. „Já.“ Þú ert búinn að vera brjálæðis- lega upptekinn undanfarið sé ég. „(Hlær) Ó já. Fjölmiðlafárið í kringum þessa mynd t.d. er all- svakalegt.“ Svo þetta er 300. viðtalið þitt í þessari viku? „Já, eitthvað svoleiðis (hlær).“ Þetta er allsvakaleg mynd. Stór- slysamynd til að enda allar stór- slysamyndir. „Rétt.“ Hefur þú persónulega gaman af slíkum myndum? „Ég er nú ekkert sérstakur aðdá- andi verð ég að viðurkenna. En ég dýrka þessar risastóru sumarmynd- ir. Mér finnst líka athyglisvert við þessa mynd að það eru pólitísk skilaboð í henni.“ Þú hefur gert svolítið af því að leika í jaðarmyndum ef svo mætti kalla … „Jú jú.“ Ég sá þig t.d. í Góðu stelpunni (The Good Girl). Ég var nokk hrif- inn af þeirri mynd. „Ó, þakka þér fyrir.“ Jennifer Aniston var mjög góð. Hún getur leikið! „Já (hlær).“ Donnie Darko? Svo sá ég þig auðvitað í Donnie Darko en ég verð að viðurkenna að ég botnaði ekkert í henni … „(Hlær) Ég held að þú sért í stórum hópi þar.“ Það voru allir að tala um hvað þetta væri mikil snilld en ég skamm- aðist mín fyrir það að hafa ekki fatt- að hana! „Ég held að sú mynd geri í raun út á það að vera algerlega opin hvað túkun varðar. Hún bara er. Ef þú labbar út ringlaður í hausnum þá er hún bara þannig fyrir þér. Donnie Darko gengur ekki út á einhvern einn sannleika eða lausn. Sumar myndir eru óskiljanlegar án þess að þær ætli að vera það en í tilfelli Donnie Darko var Richard Kelly (leikstjórinn) markvisst að leita eftir þeim áhrifum.“ Svo er systir þín að gera það mjög gott... „(Samþykkjandi humm).“ Eruð þið í góðu sambandi? „(Hissa) Að sjálfsögðu. Hún er systir mín.“ Það hlýtur að vera kostur í þess- um bransa að geta leitað ráða hjá systkinunum! „Já, það er mjög mikilvægt fyrir mig og ég leita oft ráða hjá henni en hún er aðeins eldri en ég (hún er fædd 1977 en Jake er fæddur 1980) og ég virði hana mjög sem leik- konu.“ Hún var auðvitað stórkostleg í Secretary. Þvílík mynd! „Ó já.“ Maður nánast skammaðist sín fyrir þær undarlegu tilfinningar sem flóðu um mann þegar maður var að horfa … „Já, mjög kynferðisleg en um leið fjallar hún um samband og innileika á milli fólks. Mjög svöl mynd.“ Fæddust þið systkinin með ein- hver leikaragen eða „Tjaa … ég veit ekki … kannski (hlær) … Pabbi er leikstjóri og mamma handritshöfundur og við ól- umst upp í þessum heimi. En kannski erum við með eitthvert leik- arablóð í okkur líka.“ „Partur af prúgrammet“ Svo hefur þú gert svolítið af því að leika á sviði. Hvernig finnst þér það vera, samanborið við kvikmynda- leikinn? „Á sviði færðu viðbrögð áhorf- enda beint í æð og færð að klára heila sögu frá upphafi til enda. Í kvikmyndnni er allt brotið upp og þetta er allt miklu meira batterí ein- hvern veginn. Og þú sjálfur hefur enga stjórn á þessu.“ Geturðu labbað niður í bæ án þess að verða fyrir truflunum? „Ég get það í Evrópu. En það er að verða mjög erfitt hér í Bandaríkj- unum.“ Er þetta ekki bara „partur af prúgrammet“ eins og sagt er? „Auðvitað. Ef þú ætlar að hasla þér völl sem leikari er mikilvægt að gera sér strax grein fyrir fylgifisk- unum. Andlitið á þér er á skjánum og það er sama andlitið og fólk sér á götunni. Og það er eðlilegt að fólk bregðist við því.“ Jæja, ætli ég verði nú ekki að fara að spyrja þig eitthvað út í myndina!? „Jú (hlær hátt og innilega).“ Hvernig var að vinna hana. Erf- itt? „Nei nei (segir hann og hefur greinilega engan áhuga að tala um sig og er sýnu uppteknari af pólitík- inni í myndinni). Það sem mér finnst mikilvægast við þessa mynd er að hún sendir skilaboð um móður jörð og verndun hennar. Þó að þetta sé stór og spennandi mynd segir hún dálítið sem myndir af þessum toga forðast að gera. Það að við þurfum að hugsa okkar gang og bera ábyrgð því að þetta er sameign okkar allra. Sérstaklega þarf að koma á þessum þankagangi hér í Bandaríkjunum.“ Ég er alveg sammála þér. Það er sannarlega visst meðvitundarleysi í gangi. „Einmitt. Það þarf að stuða fólk til að fá það til að hugsa og kannski leggur þessi mynd einhver lóð á þær vogarskálar.“ Jake Gyllenhall fer með eitt aðalhlutverkið í Ekki á morgun heldur hinn „Ég dýrka þessar risastóru sumarmyndir“ Jake Gyllenhall er einn af efnilegri leikurum Holly- wood og hefur komið að mörgum og ólíkum verk- efnum á stuttum ferli. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við leikarann vegna þáttar hans í stórmynd- inni Ekki á morgun heldur hinn. Hin algera stórslysamynd? Sam Hall (Jake Gyllenhall) kemst hér í hann krappan. arnart@mbl.is Ekki á morgun heldur hinn er komin í bíó. Jake Gyllenhall FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 57 F í t o n / S Í A F I 0 0 9 1 3 8 800 7000 - siminn.is Aðeins hjá Símanum Ef þú hefur VIT valmynd hefur þú aðgang að öllu því sem skiptir máli um bíó. Þetta er einfalt, þú ferð bara inn í VIT valmyndina, velur þér flokka og færð sent SMS skeyti um hæl. Ef þú hefur ekki valmyndina, þá sendir þú SMS: vit kvik 1, á númerið 1848. Flokkarnir eru: Nýtt í bíó Kvikmyndahús Sýningartímar Gagnrýni Topplistar Væntanlegtí símann Fáðu sent allt um bíó þinn Hvert SMS skeyti kostar 19 kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.