Morgunblaðið - 29.05.2004, Síða 58
58 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 11.30
Sýnd kl. 12, 2, 4 og 6.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 12, 2, 4 og 6.
Frá meistara
spennunnar Luc
Besson kemur Taxi 3.
Sýnd kl. 5.50 og 10. B.i. 16.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 12, 2.40, 4, 5.20, 8, 10.40 og Powersýning kl. 12.15.
Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni
mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í
hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést
á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.
Léttöl
Kvikmyndir.com
kl. 12.30,3, 5.50, 8.30 og 11.10.
HP
Kvikmyndir.com
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
„Öllum líkindum besta
skemmtun ársins“
HL MBL
„Algjört Kill Brill“
ÓÖH DV
Skonrokk
Æðisleg ævintýramynd
fyrir alla fjölskylduna
með Anne Hathaway
úr Princess Diaries!
ELLA
Í ÁLÖGUM
HEIMSFRUMSÝNING
Sýnd kl. 3.40. Með íslensku tali Sýnd kl. 1.30. Með íslensku tali
Sýnd kl. 8. B.i. 16.
DV
Ó.H.T Rás2
F
erill Mikes Pattons er
með miklum ólík-
indum. Hann hóf fer-
ilinn með tilrauna-
sveitinni Mr. Bungle
en öðlaðist svo heimsfrægð með
þungarokkssveitinni Faith No
More (sem hann átti eftir að hafa
mikil áhrif á, sjá t.d. meistaraverk
sveitarinnar, Angel Dust). Eftir
upplausn þeirrar sveitar er eins og
hann hafi snúið „heim“ aftur því að
í dag er hann einn af virkari jaðar/
neðanjarðartónlistarmönnum
Bandaríkjanna og hefur t.d. gefið
út tvær sólóplötur á merki Johns
Zorns, Tzadik, sem innihalda súrar
og brjálæðislegar raddæfingar.
Þær plötur komu út ’96 og ’97 en
tveimur árum síðar stofnaði Patton
eigið merki, Icepac (sem beitir fyr-
ir sig slagorðinu „Making People
Sick since 1999“), og hefur þar
gefið út plötur með listamönnum á
borð við Melvins, Queens of the
Stone Age, Sensational, Young
Gods, Isis og Eyvind Kang.
Fantômas er stjörnum prýdd
sveit en ásamt Patton eru í sveit-
inni þeir Trevor Dunn, bassaleik-
ari Mr. Bungle, Dave Lombardo,
fyrrverandi trymbill Slayer (var á
Show No Mercy til og með Seas-
ons in the Abyss), og Buzz Os-
bourne, leiðtogi hinnar ógurlegu
Melvins.
Fantômas hefur gefið út þrjár
plötur, hverja annarri sérstæðari,
en sú nýjasta er eitt 74 mínútna
verk, Delirium Cordia, og þar ægir
öllu saman, munkatónlist, þunga-
rokki, kokkteiltónlist, tæknói og
sveimi; allt saman toppað með
ótrúlegri rödd Pattons.
Fantômas er að fylgja verkinu
eftir um þessar mundir en loka-
tónleikarnir í Evróputúrnum verða
hér á Íslandi.
Dregið úr ofsanum
Þú hefur ekkert verið hér áður
er það nokkuð?
„Aldrei. En hlakka mikið til að
koma. Ég á mikið af vinum sem
hafa komið til Íslands.“
Ætlið þið að dvelja hérna eitt-
hvað?
„Já, við ætlum að vera eitthvað
fram í vikuna. Þetta verða loka-
tónleikarnir á túrnum okkar þann-
ig að það er við hæfi að taka sér
smáfrí. Við verðum auðvitað að
tékka á Bláa lóninu maður!
(hlær).“
Til hamingju með nýju plöt-
una …
„Takk.“
Ég var að lesa að hún hefði
gengið afskaplega vel í sölu!?
„Já, miðað við hvers eðlis hljóm-
sveitin er hefur þetta gengið furðu
vel. En á mælikvarða hins hefð-
bundna plötumarkaðar hefur hún
gengið hroðalega!“
Þetta er mjög epískt verk.
„Það er fallega sagt af þér. Hin
hliðin á þeim peningi væri þá lík-
lega að þetta sé algerlega óþolandi
drasl! Ég er glaður að heyra að
þér líkar platan en við höfum feng-
ið afskaplega mikið af kvörtunum
og spurningum. Dagskrárgerð-
armenn á útvarpsstöðvum eru
náttúrulega kolvitlausir af því að
þeir geta ekki spilað neitt af henni.
Ég skil það nú ekki alveg því að í
raun gerir platan þeim starfið auð-
veldara. Þeir geta skellt henni á og
farið heim að ryksuga.“
Hver er eiginlega hugmyndin á
bak við þessa plötu?
„Mig langaði til að búa til eitt-
hvað sem væri ólíkt því sem við
höfum verið að gera áður. Ég vildi
ekki hafa þetta eins og hinar plöt-
urnar sem hljóma eins og það sé
verið að troða simpansa í gegnum
hakkavél. Ég vildi draga úr ofs-
anum og búa til bakgrunnstónlist;
svona sveimandi stemningstónlist
sem þú nýtur eins og málverks.
Bara líður með í rólegheitum. Mér
finnst Delirium Cordia vera af-
slappandi verk.“
Ég hef heyrt plötunni lýst
svona: „Þetta er eins og að vera
læstur inni í geðsjúkrahúsi að
nóttu til.“
Rætt við Mike Patton, leiðtoga Fantômas, sem hitar upp fyrir Korn í Höllinni á morgun og hinn
Ryksugutón-
listin hin nýja
Fantômas er eitt af mörgum verk-
efnum hins mikilhæfa Mikes Pattons,
sem þekktastur er fyrir að hafa verið
söngspíra Faith No More. Arnar Egg-
ert Thoroddsen ræddi stuttlega við
hinn tilraunaglaða Patton.
Fantômas er skipuð þeim Mike Patton, Buzz Osborne, Trevor Dunn og
Dave Lombardo.
Fantômas – Fantômas (1999)
Fantômas – The Director’s
Cut (2001)
Fantômas – Delirium Cordia
(2004)
Einnig tónleikaplatan Millenn-
ium Monsterwork (2002) sem
er samvinnuverkefni Fan-
tômas og Melvins.
Plötur Fantômas