Morgunblaðið - 29.05.2004, Page 59

Morgunblaðið - 29.05.2004, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 59 „Humm … það hefur verið ein- hver með mun fjörugra ímynd- unarafl en ég (hlær).“ Tónlistin fer ansi víða. „Já, hún er út um allt. Ég vildi ekki að þetta hljómaði eins og rokksveit, frekar eins og einhvers konar nútímatónlist. Þetta átti ekki að vera fjórir gaurar að djamma en ég vildi heldur ekki skrifa eða semja upp í topp. Ég vildi hafa tónlistina stóra og hæga og það var ekki auðvelt fyrir mig að skrifa tónlistina þannig og þetta var mikil áskorun. Við lögðum okkur mjög fram við þetta og not- umst við hin ýmsu tæki og tól til að ná fram réttu stemningunni.“ Spilið þið þetta verk á tón- leikum? „Já en ekki allt samt. Það hefur virkað mjög vel þar og passar vel með gamla dótinu, merkilegt nokk. Blandan er orðin meira spennandi því það er ekki verið að keyra á fullu allan tímann heldur er rennslið svona hægt-hratt-hægt- hratt.“ Fantômas er stundum kallað ofuband vegna liðskipunarinnar … „Það má kalla þetta hvaða nöfn- um sem er (hlær). Ég hef sann- arlega heyrt það verra!“ Þarf ekki að selja tónlistina Er ekki erfitt að samhæfa þessa sveit þar sem allir meðlimir eru í öðrum sveitum líka? „Jú, það getur verið harla snúið. Við getum t.d. ekki haldið fleiri tónleika þetta árið þar sem allir eru að fara í önnur verkefni. Það þarf að beita smáskákpælingum til að koma þessu öllu saman.“ Hann Hosky Hoskulds hefur unnið með ykkur (Íslendingur sem hljóðblandaði hina gríðarvinsælu plötu Noruh Jones, Come Away With Me. Hann tók upp tvær síð- ustu plötur Fantômas). Hvað seg- irðu mér af honum? „Hosky er vinur minn. Hann sagði mér frá Bláa lóninu og Hum- arhúsinu. Ég ætla svo sannarlega að fara þangað.“ Semur þú alla tónlistina? „Já. Allt draslið er eftir mig og ég kenndi sveitinni svo partana. Þetta er ekki sameiginleg vinna hjá sveitinni þannig, nema hvað viðkemur spilamennskunni.“ Og hvernig gengur Icepac svo? „Mjög vel. Það er afskaplega gaman að standa í þessu. Ég stofn- aði þetta í upphafi til að koma dótinu mínu út en það hefur undið upp á sig. Þetta veitir mér vissa öryggistilfinningu.“ Þú ert kannski öruggari í dag en þegar þú varst svaka rokkstjarna með Faith No More? „Ja … tími minn með Faith No More er ekkert sérstaklega of- arlega í minningunni. Einhvern veginn trúði ég því alltaf að ég gæti gert allt sem mig langaði til. Það sem er best við Icepac er að nú þarf ég ekki að selja neinum tónlistina. Ég á hana, get gert hvað sem mig langar til og þarf ekki að hafa áhyggjur af því hvað einum né neinum finnst. Það sem var óþægilegt við Faith No More var að útgáfan átti tónlistina okkar og gat sett stopp á útgáfur ef henni líkaði ekki það sem hún heyrði. En nú er það ég sem borga brúsann og stend og fell með mínu. Það er miklu afslappaðra að hafa eitthvert svona fast athvarf.“ Sumir segja: „Vá, Mike Patton, hann var í Faith No More en nú er hann að gera einhverja stór- skrýtna hluti.“ Hvað finnst þér um þetta? „(hlær lengi) Humm … ég myndi segja að þetta væri bara frekar nákvæm lýsing á þeirri stöðu sem ég er í í dag. Ég tek þetta sem hrós!“ Fantômas leikur með Korn á morgun og á mánudaginn í Laug- ardalshöll. Enn eru til miðar á síðari tónleikana og er sérstakt tilboð í gangi, tveir fyrir einn, og eru það Síminn, Coca Cola og X- ið 97,7 sem að því standa. Miðaverð er 4.500 kr. í stæði en 5.500 í stúku. Miðasala er í verslunum Skíf- unnar, Pennanum Glerártorgi Ak- ureyri, Pennanum Akranesi, Hljóðhúsinu Selfossi og BT Eg- ilsstöðum. arnart@mbl.is ÉG hafði bara meira gaman af henni Ellu en ég bjóst við. Myndin er alls ekki gallalaus, en það er einhver gamaldags, saklaus sjarmi yfir henni sem fær mann til að líða vel og njóta. Tæknibrellurnar eru á stundum ein- um of gamaldags – minntu á fyrstu Stjörnustríðsmyndina – en það hafði vissan sjarma líka. Og sagan er líka gamaldags. Hún er byggð á skáldsögu þar sem höf- undurinn vildi aðeins poppa upp öskubuskusöguna. Ella er í álögum því álfamærin gaf henni „gjöf“ hlýðninnar svo aumingja stúlkan hlýðir öllum skipunum, hversu fá- ránlegar sem þær eru. Og þegar vondu stjúpsysturnar fara að not- færa sér þetta er henni nóg boðið og hún verður að finna álfamærina til að leysa sig undan álögunum. Segjast verður að myndin er þó- nokkuð stefnulaus og yfirhlaðin. Þar ægir nokkrum tegundum kvik- mynda saman, hver ofan í annarri, og ekki alveg víst að leikstjórinn og handritshöfundarnir hafi vitað hvernig mynd þau vildi gera. Hér er á ferð grín, spenna og ævintýri með söng- og dansatriðum. Það er hins vegar greinilegt að Shrek og Princ- ess Bride hafa verið ofarlega í huga þeirra við gerð handritsins. Myndin höfðar líkast til helst til ungra stúlkna á aldrinum 8–12 ára, og svona á bakvið grínið leynast lítil skilaboð til þeirra um að láta ekki kúga sig og réttlæti handa öllum. Leikkonan Anne Hathaway er líka fínasta fyrirmynd handa þeim. Hún er sannfærandi sem klár og ákveðin ung kona með réttlætiskennd sem þó hefur húmor fyrir lífinu. Eiginlega var ég heilluð af Anne. Það er miklu meiri reisn yfir útgeislun hennar en margra af þessum ungu leikkonum, líkt og Lindsay Lohan, Mandy Moore og Hillary Duffy, sem eru meira bara krúttibollur með tilvilj- unarkenndan viljastyrk. Anne er virkilega hæfileikarík, gáfuleg og tignarleg. Marga aðra fína leikara má finna í myndinni, og furðulegt að sjá marga af fínustu leikurum Breta leika hlut- verk sem eru hvorki stór né sérlega spennandi. Söngatriðin byggjast öll á gömlum slögurum frá áttunda og níunda áratugnum. Það er ekki spurning að foreldrar eigi eftir að njóta þeirra betur – alla vega á öðr- um forsendum – en það er um að gera að kynna Queen og fleiri snill- inga fyrir ungdómnum. Á heildina litið er þetta eiginlega hallærisleg mynd, en svo vinalega hallærisleg að gaman er að. Heillandi Ella – og hallærisleg? KVIKMYNDIR Regnboginn og Smárabíó Leikstjóri: Tommy O’Haver. Handrit: Laurie Craig eftir skáldsögu Gail Carson Levine. Kvikmyndataka: John De Bor- man. Aðalhlutverk: Anne Hathaway, Hugh Dancy, Cary Elwes, Vivica A. Fox, Joanna Lumley, Aidan McArdle og Minnie Driver. 95 mín. BNA. Miramax 2004. ELLA ENCHANTED / ELLA Í ÁLÖGUM  Hildur Loftsdóttir Indæla Ella er hallærislega heill- andi að mati Hildar Loftsdóttur. Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 Sýnd kl. 10. B.i. 16. HP Kvikmyndir.com „Gargandi snilld“ ÞÞ FBL „Öllum líkindum besta skemmtun ársins“ HL MBL  „Algjört Kill Brill“ ÓÖH DV Skonrokk FRÁ HANDRITSHÖFUNDI PANIC ROOM BYGGÐ Á SÖGU STEPHEN KING  Ó.H.T Rás2 www .regnboginn.is Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og Powersýning kl. 10.30. www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Dóttur valdamesta manns í heimi er rænt getur aðeins einn maður bjargaðhenni. Frábær spennumynd frá leikstjóranum og handritshöfundinum David Mamet. l í i i i i j i. l i j i i i . Sýnd kl. 4, 6 og 8. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. Æðisleg ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna með Anne Hathaway úr Princess Diaries! Sýnd kl. 2.30, 4, 5.30, 7, 8.30, 10 og Powersýning kl. 11.30. Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari. HEIMSFRUMSÝNING Léttöl  Kvikmyndir.com ELLA Í ÁLÖGUM Powersýningá stærsta THX tjaldilandsinskl. 10.30Í Laugarásbíó Að breyta fortíðinni getur haft óhugnalegar afleiðingar fyrir framtíðina. Svakalegur spennutryllir sem fór beint á toppinn í USA. DV  Ó.H.T Rás2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.