Morgunblaðið - 04.06.2004, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222,
auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569
1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald
2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein-
takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Sturlaugur H. Böðv-
arsson kemur og fer í
dag. Tjaldur, Akra-
berg Ottó N. Þorláks-
son og Hav Arcturus
koma í dag. Mánafoss
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Orlik, Víking og Barði
koma í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 14 bingó. Fær-
eyskir dagar í dag, 4.
júní, og á morgun kl.
13, 5. júní söngur, dans
og fleira. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16.30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag
í mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–16
vefnaður og frjálst að
spila í sal. Sími
535 2760.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Fyrstu
vikuna í júní er lokað
vegna viðgerða á hús-
næði.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Vinnustof-
an opin miðviku-,
fimmtu- og föstudag
með leiðbeinanda til
15. júní. Púttvöllurinn
opinn. Böðun mánu- og
fimmtudaga. Fótaað-
gerðastofa á mið-
vikudögum, aðra daga
eftir samkomulagi.
Hárgreiðsla alla daga
kl. 9–12.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Opið í
Garðabergi kl. 13–17.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3.
Kl. 11.30 leikfimi. kl.
13, brids, kl. 14–16 pútt
á Hrafnistuvelli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Fullgreiða
þarf ferð um Austuland
fyrir 8. júní.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9 aðstoð við
böðun, kl. 14, bingó.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
10 gönguferð um
Elliðaárdalinn, frá há-
degi spilasalur opinn.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin alla virka daga frá
kl. 9–17. Alltaf heitt á
könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og búta-
saumur , kl. 10–11 pútt,
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
14 bingó. Leikhúsferð.
Sunnudaginn 13. júní
kl. 20 verður farið að
sjá Edith Piaf. Lagt af
stað frá Hraunbæ 105
kl. 19.30, skráning á
skrifstofu eða í síma
587 2888.
Hvassaleiti 58–60.
Fótaaðgerðir virka
daga, hársnyrting
þriðju- til föstudags.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 10–
11 boccia, kl. 14 leik-
fimi.
Vesturgata 7. kl. 9–
10.30 setustofa, dag-
blöð og kaffi,
kl. 9–16 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl.
9.15–14 aðstoð v/
böðun, kl. 9.15–15.30
hannyrðir, kl. 9–10
boccia, kl. 9.30–11.30
skrautskrift, kl. 13–14
leikfimi.kl. 13–16 flóa-
markaður, Lóa Guð-
jóns spilar á gítar,
kl.13.30 sungið við flyg-
ilinn við undirleik Sig-
urgeirs, kl.14.30–16
dansað við lagaval Sig-
valda, pönnukökur með
rjóma í kaffitímanum.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
12.30 leir, kl. 13.30
bingó.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 10–14.
Félag eldri borgara
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl.
21 í Konnakoti Hverf-
isgötu 105, Nýir fé-
lagar velkomnir. Heitt
á könnunni. Munið
gönguna mánu- og
fimmtudaga.
Brúðubílinn
Brúðubílinn, verður í
dag, föstudaginn 4. júní
kl. 10, við Austurbæj-
arskóla (forsýning) og
kl. 14 við Árbæjarsafn
( frumsýning).
Minningarkort
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimerssjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd alla daga í
s. 533 1088 eða í bréfs.
533 1086.
Í dag er föstudagur 4. júní, 156.
dagur ársins 2004. Orð dagsins:
Þegar sál mín örmagnaðist í
mér, þá minntist ég Drottins,
og bæn mín kom til þín, í þitt
heilaga musteri.
(Jónas 2, 8.)
Atli Rafn Björnsson,formaður Heimdall-
ar, segir í pistli á vefrit-
inu Frelsi að margir sjálf-
stæðismenn velti því fyrir
sér þessa dagana hvort
ríkisstjórnarsamstarf við
Framsóknarflokkinn sé
ásættanleg staða.
Það er ekki hægt aðsegja annað en að ný-
yfirstaðið þing hafi verið
Sjálfstæðisflokknum erf-
itt,“ segir Atli Rafn.
„Þingmenn og ráðherrar
flokksins geta að mörgu
leyti horft í eigin barm
þar sem þeir hafa verið
linir við að framfylgja
frjálslyndri stefnu flokks-
ins. Einnig hefur mót-
staða og oft á tíðum yf-
irgangur Framsóknar-
flokksins í núverandi
ríkisstjórnarsamstarfi
verið mjög áberandi.
Nokkur dæmi um nún-
ing frá því í vetur er um-
ræðan um heilbrigð-
iskerfið, tafir á
einkavæðingu Símans og
sértæk lagasetning um
sparisjóðina auk þess sem
framsóknarþingmenn-
irnir Jónína Bjartmarz og
Kristinn H. Gunnarsson
hafa svo gott sem stund-
að skæruhernað í hinum
ýmsum nefndum og tekið
mál í gíslingu í samstarfi
við stjórnarandstöðuna.
Nýjasta dæmið og e.t.v.það alvarlegasta er
tregða Framsókn-
arflokksins við að sam-
þykkja og gera opinberar
áætlanir ríkisstjórn-
arinnar um skattalækk-
anir. Tafir á málinu hafa
verið einkar vandræða-
legar fyrir fjármálaráð-
herra og aðra þingmenn
flokksins þar sem þeir
hafa um alllangt skeið
klifað á að áætlanir um
skattalækkanir yrðu
lagðar fram á næstunni
en ekkert hefur svo
gerst. Vert er að minna á
að umfangsmiklar skatta-
lækkanir voru á stefnu-
skrá beggja flokka fyrir
síðustu kosningar og
verði þeim ekki fylgt eftir
af myndarskap á þessu
kjörtímabili gætu báðir
flokkarnir svo gott sem
sleppt að bjóða fram í
næstu kosningum!
Það er ekki gott til þessað vita að lítið er um
raunhæfa valkosti í stöð-
unni varðandi ríkisstjórn-
arsamstarf. Samfylkingin
virðist við fyrstu sýn geta
komið til álita þar sem
hluti flokksins hefur lagt
áherslu á ýmis frjálsræð-
ismál. Fátt virðist þó
standa þegar á hefur
reynt og það sér hver
sem vill að ekki er um
raunverulegan flokk að
ræða.
Eins og staðan er í dag
þá virðist Sjálfstæð-
isflokkurinn því miður
ekki eiga annan kost um
að velja en að una við nú-
verandi stöðu. Framsókn-
armönnum ætti þó að
vera ljóst að þeir eru
komnir á hálan ís og eiga
ekki mikið inni. Forsætis-
ráðherratíð Halldórs Ás-
grímssonar gæti allt eins
orðið skammvinn,“ segir
Atli Rafn Björnsson á
Frelsi.
STAKSTEINAR
Sjálfstæðisflokkurinn
fastur í spennitreyju?
Víkverji skrifar...
Þótt Víkverji sé prentaður ápappír er hann ekkert óskap-
lega hrifinn af pappír. Honum
finnst pappírspeningar t.d. subbu-
legir og óþarfir, vill frekar nota
rafræna peninga sem hann nálgast
á Netinu og með greiðslukortunum
sínum. Og Víkverja er heldur ekki
vel við að fá pappírspóst, allra sízt
vinnunnar vegna. Í stað þess að
alls konar fundarboð, frétta-
tilkynningar, skýrslur og svoleiðis
dót berist í tölvupóstinum og sé í
rafrænni röð og reglu í tölvunni
hjá Víkverja, hrúgast það upp á
skrifborðinu hans í pappírsformi
þannig að vesalings Víkverji fær
hálsríg af að reyna að sjá viðmæl-
endur sína yfir pappírshauginn.
x x x
Svo er pappír líka dýr og oftastmiklu dýrara að senda bréfa-
póst en tölvupóst. Víkverja er þó
fyrst ofboðið þegar t.d. fundarboð,
sem hann hefur þegar fengið í
tölvupóstinum, berst honum dag-
inn eftir eða enn síðar, prentað á
rándýran pappír í lit eða með upp-
hleypingum og gyllingum. Víkverji
botnar heldur ekkert í þeim op-
inberu stofnunum, sem senda hon-
um alls konar óþarfan pappír.
Seðlabanki Íslands stundar það
t.d. ennþá að senda fréttatilkynn-
ingar í pósti, á vönduðu bréfsefni.
Víkverji hendir þeim iðulega beint
í ruslið, af því að hann er búinn að
fá þær í tölvupósti eða sjá þær á
Netinu.
x x x
Og Víkverji hugsaði með sér aðekki væri Háskóli Íslands
blankur, þegar hann fékk í póst-
inum þverhandarþykkt umslag,
sem innihélt ritaskrá háskólans og
árbók, báðar prentaðar á óskap-
lega fínan og vandaðan pappír. Af
hverju í ósköpunum er svona lagað
ekki bara gefið út á Netinu? spyr
Víkverji, sem sér svolítið á eftir
þessum fallegu heftum í ruslið, en
hann hefur barasta ekkert pláss til
að geyma þau á skrifstofunni hjá
sér.
x x x
Meira um póst. Víkverji fékkpóst frá tízkuvöruverzlun í
bænum, sem spurði í bréfinu: „Í
hverju ætlar þú að leika þér í, í
sumar?“ Það ííískraði nú bara í
Víkverja að sjá svona mörg í sam-
ankomin í sömu setningunni. Höf-
undur Stafakarlanna hefði verið
stoltur af henni, nema kannski
málfræðinni og stílnum.
Morgunblaðið/Kristján
Svona fer nú yfirleitt fyrir pósti,
sem Víkverji fær, hann fer í ruslið
og svo í pappírspressuna.
Genafordómar
LÁRA Björnsdóttir félags-
málastjóri sagði í viðtali við
DV 26. maí, að ef maður
væri fátækur væri ekki
ólíklegt að það myndi erf-
ast.
Þetta hafði hún víst er-
lendis frá. Fátækt getur or-
sakast af mörgum þáttum
og börn fátæks fólks hafa
staðið sig vel í gegnum tíð-
ina, engu síður en börn efn-
aðs fólks. Þessi orð félags-
málastjóra hafa vakið mikla
reiði í samfélaginu, þetta er
móðgun við fátækt fólk sem
bókstaflega rær lífróður
hvern einasta dag til þess
að reyna að láta enda ná
saman. Lára Björnsdóttir
ætti að skammast sín fyrir
þessi orð sín og biðjast af-
sökunar á þessum orðum
sínum.
Það er ekki hægt að
segja annað en að þetta séu
fordómar og við eigum að
blása á slíkt í nútímasam-
félagi.
Sigrún Á.
Reynisdóttir,
formaður samtaka
gegn fátækt.
Tapað/fundið
Hjóli stolið
Á ANNAN í hvítasunnu
var hjóli sonar míns stolið
frá Kögurseli 50. Hann
hafði fengið peninga í af-
mælisgjöf til að kaupa sér
nýtt hjól og er aðeins búinn
að eiga það í 3 vikur. Hjólið
er svart 24" Pro-Style, 21
gírs, án standara og bretta.
Hann var lengi búinn að
óska eftir slíku hjóli og sér
því mjög eftir því. Ef ein-
hver verður var við slíkt
hjól á víðavangi, eða kann-
ast ekki við hjól í heimreið-
inni, vinsamlega látið okkur
vita í síma 866 3809.
Þórey.
Leðurhanskar fundust
SVARTIR leðurhanskar
fundust í anddyri Þórðar-
sveigs 5. Upplýsingar gefur
Pálína í síma 587 1714.
Dýrahald
Kannast þú við kisa?
ÞESSI kettlingur fannst í
Birkigrund í Kópavogi í
gær, bröndóttur og lítill
fress. Langar að komast
heim.
Upplýsingar í síma
564 2173.
Hefur þú séð Tínu?
UPPHAF þessa er það að
ég tapaði ketti þ. 26. mars í
vetur. Fyrir skömmu birti
Fjarðarpósturinn í Hafnar-
firði auglýsingu og mynd af
kisu. Sama dag hringdi
kona úr Þrastarási og taldi
sig hafa séð svipaðan kött
þar um slóðir. Því miður þá
hef ég ekki símanúmer
þessarar konu, en ef hún
sér þessa tilkynningu, þá
þætti mér vænt um ef hún
vildi hringja til mín á ný.
Síminn er 897 1393. Með-
fylgjandi er mynd af Tínu.
Með þakklæti,
Edda Ársælsdóttir.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 varðst var, 8 trjástofn,
9 kjánum, 10 reyfi, 11
duglegum, 13 trjátegund,
15 beinpípu, 18 herbergi,
21 glöð, 22 týna, 23 for-
móðirin, 24 hreinn.
LÓÐRÉTT
2 eldiviðurinn, 3 líf-
færum, 4 stétt, 5 reiður, 6
mestur hluti, 7 litli, 12
ótta, 14 vafa, 15 bæta, 16
sori, 17 hávaði, 18 þrep,
19 börðu, 20 stela.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hæpin, 4 gómum, 7 túlks, 8 rottu, 9 kút, 11
ansa, 13 hass, 14 labba, 15 matt, 17 lind, 20 hak, 22 galti,
23 orrar, 24 remma, 25 torga.
Lóðrétt: 1 hætta, 2 pilts, 3 nísk, 4 gert, 5 metta, 6
maurs, 10 útbía, 12 alt, 13 hal, 15 magur, 16 túlum, 18
iðrar, 19 durga, 20 hita, 21 kort.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html