Morgunblaðið - 04.06.2004, Blaðsíða 6
JÓN Kristjánsson heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra vígði í gær
nýja hjúkrunarálmu sem er við
eldri hluta Hrafnistu í Reykjavík.
Mun álman vista 60 heimilismenn.
Álmunni er ætlað að létta á þeim
vanda sem blasir við í hjúkr-
unarmálum aldraðra, en talið er
að um 260 manns séu á biðlista
eftir hjúkrunarrými.
Álman er 3.910 fermetrar að
stærð, á tveimur hæðum, sem
hvor um sig vistar 30 manns, auk
kjallara og tengigangs við Hrafn-
istu. Hver heimilismaður fær til
afnota 22 fermetra herbergi útbú-
ið með salerni og sturtu.
Sjómannadagsráð sér um rekst-
ur álmunnar en það rekur nú tvö
Hrafnistuheimili, eitt í Reykjavík
og annað í Hafnarfirði ásamt því
að reka tvö önnur hjúkrunarheim-
ili, samkvæmt samningum við heil-
brigðis- og tryggingarmálaráðu-
neytið. 70 manns koma til með að
starfa við deildina, í um 60 stöðu-
gildum, að sögn Sveins H. Skúla-
sonar, forstjóra Hrafnistuheim-
ilanna.
Stoðdeildir nýtast betur
Sveinn segir það vera mikinn
kost að byggja nýja álmu við eldri
bygginguna, með því náist full
nýting á stoðdeildinni og almennt
betri nýting á ýmislegri þjónustu
við heimilismenn. „Við erum með
sömu yfirstjórnina og sömu launa-
deildina og allar stoðdeildir nýtast
og ekki síst nálægðin við end-
urhæfingu og sundlaug sem er við
gaflinn á þessu.“ Sveinn segir
ennfremur að tilvonandi heim-
ilismönnum, sem hafa farið í sýn-
isferð um álmuna, lítist mjög vel
á. „Þetta er mjög glæsilegt og það
hefur náðst að gera þetta heim-
ilislegt.“
Sveinn segir að mikið breyting-
arferli standi yfir á eldra húsinu,
sérstaklega á aðkomunni, sem eigi
að ljúka á sunnudag, sjó-
mannadag. Þá verður húsið opið
almenningi.
Fyrstu heimilismennirnir munu
flytja í nýju álmuna nú í byrjun
júlí samkvæmt því sem fram kem-
ur í fjárlögum.
Léttir verulega á
vanda í hjúkrun-
armálum aldraðra
Hjúkrunarálman er tæplega 4.000 fermetrar. Hún er á tveimur hæðum,
sem hvor um sig vistar 30 manns, auk kjallara og tengigangs við Hrafnistu.
Morgunblaðið/Eggert
Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra klippir á borða á
vígsluhátíð sem fram fór í gær í hinni nýju hjúkrunarálmu.
Ný hjúkrunarálma við Hrafnistu vígð
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
hefur sýknað karlmann á fertugs-
aldri af ákæru fyrir að hafa notað
kreditkortanúmer annars manns
til að kaupa vörur og einkadans-
þjónustu á nektarstað í Reykja-
nesbæ fyrir tæpa hálfa milljón
króna í apríl 2002. Maðurinn var
hins vegar sakfelldur fyrir að hafa
notað sama kortanúmer til að
greiða 50 þúsund krónur fyrir
einkadans á sama skemmtistað
viku áður.
Undirskrift á kreditkortanótun-
um var rakin til ákveðins manns,
sem vann hjá fyrirtæki sem korta-
eigandinn hafði keypt af vöru með
símgreiðslu. Maðurinn viðurkenndi
fyrir dómi, að hafa notað umrætt
kreditkortanúmer í heimildarleysi
21. apríl 2002 og þannig blekkt
starfsmann Striksins til að láta
honum í té þjónustu einkadans-
meyjar. Hins vegar sagðist hann
hvorki geta játað né neitað því að
hafa beitt sömu aðferð til kaupa á
einkadansi 28. apríl 2002 þar sem
hann myndi ekki eftir því að hafa
verið inni á staðnum.
Kreditkortanóturnar voru send-
ar til rithandarrannsóknar hjá lög-
reglunni í Svíþjóð en niðurstaða
þeirrar rannsóknar var ekki afger-
andi. Í dómnum er gagnrýnt, að
ákæruvaldið skuli ekki hafa reynt
að hafa upp á nektardansmeyjunni
Lindu enda þótt hún hljóti að telj-
ast mikilvægt vitni í málinu. Segir
dómurinn að þetta rýri óneitanlega
sönnunarstöðu ákæruvaldsins í
málinu.
Niðurstaða dómsins var að fall-
ast yrði á það með verjanda
ákærða að skynsamlegur vafi leiki
á því hvort ákærði hafi gefið upp
kreditkortanúmer annars manns í
viðskiptunum 28. apríl 2002. Mað-
urinn viðurkenndi hins vegar brot
sitt sem framið var 21. apríl en
dómurinn ákvað að gera sakborn-
ingnum ekki sérstaka refsingu
vegna þess.
Sýknaður
af ákæru
fyrir að
svíkja út
einkadans
TEKIST hafa samningar milli
Sýnar og Ríkissjónvarpsins um
beina útsendingu allra leikja í
Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu – EM, sem fram fer í
Portúgal.
Sjónvarpið og Sýn hafa einnig
samið um útsendingu ákveðins
efnis frá ólympíuleikunum í Aþenu
og golfmótunum British open og
Ryder Cup, en Sjónvarpið hafði
tryggt sér sýningarrétt frá þess-
um viðburðum. Leikirnir í Evr-
ópukeppni landsliða í knattspyrnu
verða sýndir í opinni dagskrá á
Sýn.
Með þessum hætti fá íslenskir
áhorfendur í fyrsta sinn tækifæri
til að sjá alla leikina sem fram fara
í Evrópukeppninni, þar sem fleiri
en einn leikur fer fram á sama
tíma. Keppnin í Portúgal stendur
frá 12. júní til 4. júlí, og verða alls
sýndir 26 leikir á RÚV og 5 leikir
á Sýn.
Hvað varðar ólympíuleikana
mun ítarleg dagskrá verða á RÚV,
og einnig sýnt beint frá leikunum
16 daga á Sýn, í um þrjár klukku-
stundir dag hvern.
Allir leikir
EM í opinni
útsendingu
Samningar milli
Sýnar og RÚV
SAMKOMULAG hefur náðst milli
Landsvirkjunar og Skeiða- og
Gnúpverjahrepps um tilhögun
Norðlingaölduveitu í Þjórsárverum.
Í framhaldi af samkomulaginu, sem
samþykkt var einróma í hrepps-
nefndinni á þriðjudag, munu Ása-
hreppur og Skeiða- og Gnúpverja-
hreppur setja framkvæmdina inn á
aðalskipulag sitt og auglýsa það í
sumar. Þá mun samvinnunefnd um
svæðisskipulag miðhálendisins gera
breytingar á svæðisskipulaginu og
setja það í kynningu síðar í sumar.
Samkvæmt samkomulaginu verð-
ur lónhæð Norðlingaöldulóns miðuð
við að gúmmílokur á stíflu verði í
566 metra hæð yfir sjó (m y.s.) að
sumarlagi en í hæstu stöðu 567,8
m.y.s. að vetrarlagi. Rekstrarhæð
lónsins að vetrarlagi verður hins
vegar 30 cm lægri, eða í 567,5 metr-
um.
Samkomulagið kemur í kjölfar
funda viðræðunefndar deiluaðila frá
því í haust, sem sett var á laggirnar
eftir úrskurð setts umhverfisráð-
herra, Jóns Kristjánssonar, í janúar
2003 og umsögn Umhverfisstofnun-
ar frá júlí sama árs. Viðræðunefndin
hélt fimm vinnufundi og kynnti sér
málið, m.a. með fundum með settum
umhverfisráðherra og ráðgjöfum
hans.
Áratuga löngum deilum lokið
Landsvirkjunarmenn segja að
með samkomulaginu sé lokið ára-
tuga löngum deilum um þessa fram-
kvæmd. Afar mikilvægt sé að sátt
verði um veituna og góð samvinna
takist við heimamenn um hana og
önnur sameiginleg mál.
Agnar Olsen, yfirmaður fram-
kvæmdasviðs Landsvirkjunar, segir
fyrirtækið vera ánægt með niður-
stöðuna. Umsamin lónhæð sé lág-
markshæð til að gera veituna
rekstrarhæfa að vetrarlagi. Ekki sé
um mikla breytingu að ræða frá
upphaflegum áformum. „Við teljum
að með þessu móti eigi lónið ekki að
hafa áhrif inn í sjálft Eyvafenið. Nú
verður hægt að setja skipulagsvinnu
í gang þannig að við verðum þá við-
búnir því að fara í framkvæmdina
þegar þar að kemur,“ segir Agnar.
Lengra varð ekki komist
Aðalsteinn Guðmundsson, oddviti
Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir
hreppsnefndina hafa á endanum
samþykkt framkvæmdina eftir að
tekist hafi að fá Landsvirkjun til að
lækka lónhæðina lítillega frá upp-
haflegum áformum. Lengra hafi
ekki verið komist, „með ráðherraúr-
skurð á bakinu“, eins og hann orðar
það.
„Innst inni erum við ekki sátt við
þessa niðurstöðu en eftir mikil
fundahöld varð að komast að ein-
hverju samkomulagi. Þegar skekkja
kom í hæðarmælingar á lóninu varð
ljós sú staða að Eyvafenið sleppur
nær alveg. Að því fengnu féllumst
við á að setja framkvæmdina inn á
skipulag,“ segir Aðalsteinn, sem
vonast þó til að eftir fjögur ár verði
Norðlingaölduveita óþörf. Lands-
virkjun hafi frestað framkvæmdun-
um um fjögur ár og í dag sé því eng-
in þörf fyrir raforku frá þessu
svæði.
Óskar Bergsson, formaður sam-
vinnunefndar um svæðisskipulag
miðhálendisins, segir að nefndin
hafi á fundi sínum á miðvikudag
fengið kynningu á samþykkt Skeiða-
og Gnúpverjahrepps og í kjölfarið
hafi lítið annað verið gert en að
dusta rykið af ályktun nefndarinnar
frá sl. hausti um sama mál, þ.e. að
fara af stað með auglýsingu um
breytt svæðisskipuleg vegna Norð-
lingaölduveitu. Hins vegar sé sú
breyting að virkjunarsvæðið sé sett
utan friðlands Þjórsárvera og nán-
ari útfærsla verði í höndum sveitar-
félaganna og aðalskipulags þeirra.
Samkomulag við heimamenn
um Norðlingaölduveitu
FORSETAFRAMBOÐ Baldurs
Ágústssonar opnaði kosn-
ingaskrifstofu í Þverholti 11 í
gærdag. Í tilkynningu frá fram-
boði Baldurs segir að þar muni
stuðningsmenn hans eiga athvarf
fram að kosningum. Enn fremur
kemur fram að áherslur Baldurs
sé margþættar, en einna hæst beri
markmið hans um að hefja for-
setaembættið aftur til fyrri virð-
ingar og yfir deilur og dægurþras.
Hefur honum þótt það heldur
áberandi í tíð núverandi forseta.
Baldur Ágústsson er fæddur ár-
ið 1944 í Reykjavík. Hann útskrif-
aðist úr Loftskeytaskólanum árið
1963, og var loftskeytamaður á
skipum um hríð og réðst síðar til
Flugmálastjórnar Íslands. Hann
vann hjá stofnuninni í rúm tutt-
ugu ár, síðustu sjö árin sem varð-
stjóri í aðflugs- og vallarstjórn
Reykjavíkurflugvallar. Baldur
stofnaði öryggisþjónustuna Vara
árið 1969 og rak hana í 20 ár. Síð-
astliðin ár hefur hann stundað
fasteignaviðskipti í Bretlandi og á
Íslandi. Hann er kvæntur Jean
Plummer.
Baldur Ágústsson
opnar kosningaskrifstofu
Morgunblaðið/Golli
Baldur Ágústsson forsetaframbjóðandi við opnun kosningaskrifstofunnar.
♦♦♦
NOKKUR erill var hjá slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins í
fyrrinótt, en tilkynnt var um
eld á þremur stöðum í vest-
urbæ Reykjavíkur á skömmum
tíma. Fyrst varð eldur laus í
bifreið og svo kom upp eldur í
gröfu við Þjóðminjasafnið.
Bæði ökutækin eru ónýt, að
sögn slökkviliðsins. Eldsupp-
tök liggja ekki fyrir. Þá varð
eldur laus í ruslatunnu við
blómaverslun við Birkimel.
Mikinn reyk lagði yfir Suður-
götu við Melatorg eftir að
kveikt var í skurðgröfu við
Þjóðminjasafnið og varð að
loka Suðurgötu um skamma
hríð.
Kveikt í
skurðgröfu
við Þjóð-
minjasafnið