Morgunblaðið - 04.06.2004, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 53
VEIGAR Páll Gunnarsson og Dan-
inn Mads Jörgensen, sem áttu að
fara fyrir sókninni hjá norska úr-
valsdeildarliðinu Stabæk í ár og
bæta frá síðustu leiktíð, hafa
greinilega ekki þolað æfingar liðs-
ins í vetur. Báðir hafa átt við þrálát
meiðsli að stríða í vor og vill þol-
þjálfari liðsins kenna um lélegum
æfingagrunni þeirra þar sem þeir
hafa einfaldlega ekki haft nógu
gott þrek og of lítinn vöðvamassa
til að komast í gegnum æfingar.
Veigar Páll lék aðeins síðari hálf-
leikinn gegn Viking í fyrrakvöld en
Jörgensen sat sem fastast á bekkn-
um þegar Stabæk beið ósigur, 1:0.
Þolþjálfari Stabæk, Thor Øst-
hagen, dregur ekki dul á það að
bakmeiðsli Veigars Páls og hné-
meiðsli Jörgensens stafi af lélegum
æfingagrunni. Á síðustu leiktíð hafi
æfingar liðsins á undirbúningstím-
anum miðast við að styrkja og bæta
skrokkinn sem leitt hafi til færri
meiðsla í ár nema hjá nýliðunum en
þeir Veigar og Jörgensen þurfa á
næstu vikum að stunda séræfingar
samhliða æfingum hjá liðinu.
„Þeir hafa bara ekki haft nógu
sterka vöðva til að þola æfingarnar
hjá Stabæk,“ segir Thor Østhagen
við norska blaðið Budstikka.
Veigar Páll þótti sýna góða takta
þegar honum var skipt inná í leikn-
um við Viking en hann hefur aðeins
komið við sögu í tveimur af níu
leikjum með Stabæk í deildinni.
Nýja sóknarmenn Stabæk
skortir þrek og kraft
FÓLK
JALIESKY Garcia, leikmaður ís-
lenska landsliðsins í handknattleik,
er rifbeinsbrotinn og verður ekki
með íslenska liðinu í síðari viðureign
þess gegn Ítölum á sunnudag. Þeir
Ingimundur Ingimundarson og
Vignir Svavarsson koma inn í hóp-
inn í hans stað. Íslendingar unnu
fyrri leikinn 37:31 en sigurvegari við-
ureignarinnar mun leika á heims-
meistaramótinu í Túnis á næsta ári.
EYJÓLFUR Gíslason, einn af
frumkvöðlum Víðis í Garði, var á
miðvikudaginn sæmdur gullmerki
KSÍ. Eyjólfur varð sjötugur í lok
apríl, en hann fékk silfurmerki KSÍ
þegar hann varð sextugur.
TÉKKNESKU leikmennirnir
Tomas Galasek og Jan Koller munu
ekki missa af EM í Portúgal. Þeir
meiddust í leik við Búlgaríu á mið-
vikudaginn, en meiðsli þeirra eru
minniháttar og verða þeir báðir til-
búnir í slaginn. Galasek er varnar-
maður og Koller fremstur í sókn
Tékka.
MUZZY Izzet hefur gengið til liðs
við Birmingham City á frjálsri sölu
frá Leicester City. Izzet, sem er
tyrkneskur landsliðsmaður, hefur
spilað með Leicester undanfarin átta
ár en eftir að liðið féll úr úrvalsdeild-
inni var ljóst að hann myndi yfirgefa
félagið. Izzet skrifaði undir þriggja
ára samning við Birmingham og
hittir þar fyrir fyrrverandi félaga
sinn frá Leicester, Robbie Savage.
RONALD De Boer, sem áður lék
með Ajax, Barcelona og Glasgow
Rangers, mun spila í Katar á næsta
tímabili. Þessi fyrrverandi landsliðs-
maður Hollands, sem er 34 ára, hef-
ur skrifað undir eins árs samning við
bikarmeistara Al Rayyan. Ekki er
talið ósennilegt að tvíburabróðir
hans, Frank De Boer, muni einnig
ganga til liðs við Al Rayyan fyrir
næsta tímabil.
DAVID Bentley, framherji Arsen-
al, hefur verið lánaður til Norwich
City út næsta tímabil. Þetta er annar
leikmaðurinn sem Norwich fær fyrir
næsta tímabil en fyrr í vikunni gekk
skoski landsliðsmarkvörðurinn Paul
Callagher til liðs við félagið frá
Dundee United.
CARLOS Queiroz, fráfarandi
þjálfari Real Madrid, staðfesti í gær
að hann væri á leið til Englands á
nýjan leik til þess að taka við sínu
fyrrverandi starfi sem aðstoðarmað-
ur Sir Alex Fergusons knattspyrnu-
stjóra.
GABRIEL Heinze, varnarmaður
PSG í Frakklandi og argentínska
landsliðsins, er á leið til Manchester
United. Talið er að Heinze kosti 8,5
millj. punda, um 1,1 milljarð kr.
STEVE Cotterill var í gær ráðinn
knattspyrnustjóri Burnley. Cotterill
tók við af Guðjóni Þórðarsyni hjá
Stoke fyrir tveimur árum en Guðjón
var um tíma orðaður við starfið hjá
Burnley.
SVO getur farið að Þróttur
Reykjavík verði í pottinum
þegar dregið verður í Evr-
ópukeppni félagsliða þann 8.
júní næstkomandi. Knatt-
spyrnusamband Evrópu út-
nefnir tólf lönd sem eiga
möguleika á að hljóta þrjú
sæti í keppninni sem veitt eru
vegna háttvísi.
Þar sem Svíar eru efstir á
háttvísilista UEFA eiga þeir
öruggt sæti í keppninni en
dregið verður um tvö sæti og
er Þróttur þar á meðal liða
frá ellefu löndum. Til að eiga
möguleika á að komast í pott-
inn verður viðkomandi land
að hafa náð meðaleinkunn
upp á 8,0 og að hafa leikið
tilskilinn fjölda leikja í
keppnum á vegum UEFA. Að
þessu sinni náðu tólf lönd lág-
markinu og er Ísland þar á
meðal. Ísland er með 8,008 í
meðaleinkunn.
Ástæða þess að Þróttur er
fulltrúi Íslands í valinu er sú
að liðið hlaut háttvísiverðlaun
KSÍ á síðasta tímabili. Hátt-
vísistuðull UEFA ræðst af
fjölda gulra og rauðra
spjalda sem íslensk landslið
og félagslið fá í keppni á veg-
um sambandsins.
Þróttur í
UEFA-
keppnina?Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Húnar frá Hvammstanga skörtuðu fögrum skósíðum kyrtlum, sem komu sér vel í roki og rigningu.
Hér eru frá vinstri Eygló Hrund Guðmundsdóttir, Kristín Birna Sveinsdóttir, Rannvá Björk Þor-
leifsdóttir, Sigurður Örn Sigurðsson, Arndís Eir Sveinsdóttir og Linda Þorleifsdóttir. Bak við hóp-
inn stendur þjálfarinn Sveinn Benónýsson.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Sundfólk frá Ungmennafélaginu Þrótti frá Vogum mætti vígreift til leiks og lét sig ekki muna um
myndatöku utanhúss. Frá vinstri eru Rebekka María, Hekla Eir, Sólrún Ósk, Jóhann Sævar, Guð-
munda Birta, Sjöfn, Einar Óli, Berglind, Petra Ruth, María Jóna Jónsdóttir þjálfari, Kristjana, Eir-
þrúður, Thelma Rún, Elísabet Rós, Valgerður, Hákon Þór, Emilía Rós og Ágústa Margrét.
KR-ingar létu sig ekki vanta. Hér eru f.v. Ásgerður, Hildur, Rán,
Sigmundur, Kolbrún, Adriana, Snær, Eiríkur, Gunnar, Ari og Þór.
DREGIÐ var í 32 liða úrslit Visa-
bikarsins, bikarkeppni Knatt-
spyrnusambands Íslands, í karla-
flokki í gær. Liðunum var skipt í
tvo hópa, annars vegar þau lið sem
unnu sér rétt til þátttöku í keppn-
inni með sigri í undankeppninni og
hins vegar þau 16 lið sem voru í
efstu sætum Íslandsmótsins í fyrra.
Bikarmeistarar Akraness lenda á
móti HK og verður leikið í Kópa-
vogi.
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði
bikarmeistaranna, var tiltölulega
ánægður með mótherjana. „Þetta
er þægilegt ferðalag en vissulega
hefðum við getað verið heppnari
með mótherja, svona á pappírunum
altént. HK er með gott lið og í bik-
arnum má búast við öllu, við höfum
oft lent í vandræðum í bikarkeppn-
inni þannig að það er ekkert gefið í
henni,“ sagði Gunnlaugur.
Spurður um hvort hann sæi ein-
hverja leiki sem hann myndi fara á í
32-liða úrslitunum ef hann yrði
ekki að spila á sama tíma sagði
Gunnlaugur: „Leikur Breiðabliks
og Njarðvíkur er forvitnilegur
enda eru þau að berjast í fyrstu
deildinni. Hvað aðra leiki varðar
veit ég satt best að segja ekki hvað
skal segja.“ Eftir nokkra umhugsun
kom þó niðurstaðan: „Nei, ég held
ég myndi ekki gera mér ferð á ein-
hvern af þessum leikjum.“
Liðin sem mætast í 32-liða úrslit-
unum eru: Afturelding – Haukar,
Reynir Sandgerði – Þór Akureyri,
ÍR – Fylkir, Tindastóll – KA, Fjölnir
– ÍBV, Selfoss – Grindavík, Breiða-
blik – Njarðvík og Tindastóll – KA
og verða þessir leikir föstudaginn
11. júní. Daginn eftir, laugardaginn
12. júní, leika: Ægir Þorlákshöfn –
FH, Sindri – Víkingur Reykjavík,
Fjarðarbyggð – Valur, Víðir – KR,
KS – Stjarnan, HK – ÍA, Grótta –
Fram, KFS – Þróttur Reykjavík og
Völsungur – Keflavík.
Bikarmeistar-
arnir fá HK