Morgunblaðið - 05.06.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 152. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Ævintýraferð
til Eyja
Kára Guðmundssyni fannst mest
gaman að spranga | Ferðalög
Lesbók | Spessi myndar Ísfirðinga Andabær
Vorblót Stravinskís Kristján Guðmundsson
Börn | Lærðu að sigla Sjóræningjar Þrautir
Lesbók og Börn í dag
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra telur
ekki óeðlilegt að miða við að þrír fjórðu hlutar
kjósenda þurfi að taka þátt í þjóðaratkvæða-
greiðslu um fjölmiðlafrumvarpið svo kosningin
verði bindandi.
Í pistli á heimasíðu sinni segir Björn að Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra hafi minnst á
það í Íslandi í dag á Stöð 2 að R-listinn hefði sett
það sem skilyrði fyrir bindandi niðurstöðu í at-
kvæðagreiðslu um flugvöllinn að ¾ hlutar kjós-
enda tækju þátt í atkvæðagreiðslunni. „Þetta er
ívið lægra hlutfall en almennt gerist hér í þing-
kosningum og því virðist ekki ósanngjarnt að
miða við það,“ skrifar Björn.
Guðni vill bíða álits hinna lögfróðu manna
Guðni segir í samtali við Morgunblaðið að
hann sé ekki búinn að mynda sér skoðun á því
hvernig eigi að standa að þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni. „Ég var nú bara að velta vöngum og draga
fram dæmi um það sem hefði farið fram í ákvarð-
anatöku eftir þessari leið,“ segir Guðni.
Hann vill að beðið verði eftir áliti nefndar
hinna lögfróðu manna sem forystumenn stjórn-
arflokkanna ætla að setja á laggirnar. „Ég geri
mér grein fyrir því að það þarf einhvern aukinn
meirihluta,“ segir Guðni. „Það er stór ákvörðun
að hnekkja lögum frá réttkjörnu Alþingi þannig
að það er enginn vafi að þarna þarf reglur,“ segir
landbúnaðarráðherra.
Í atkvæðagreiðslu um framtíð flugvallarins í
Vatnsmýri, sem fram fór 17. mars árið 2001, var
ákveðið að ef þátttakan næði ekki 75%, sem hefði
gert kosninguna bindandi, yrði þó að fara eftir
vilja kjósenda væru að minnsta kosti 50% at-
kvæðisbærra manna sammála um annan kost-
inn.
Kjörsókn hefur alla jafna verið minni í Reykja-
vík í kosningum um einstök málefni. Fjórum
sinnum hafa borgarbúar kosið um einstök mál-
efni, auk flugvallarkosningarinnar hefur tvisvar
hefur verið kosið um sameiningu í bindandi kosn-
ingum og einu sinni um hundahald í leiðbeinandi
kosningu. Í atkvæðagreiðslu árið 1997 um sam-
einingu Reykjavíkur og Kjalarneshrepps var
kjörsókn 9,63% og kaus 24,1% í kosningu um
sameiningu Reykjavíkur, Seltjarnarness, Mos-
fellsbæjar, Kjalarneshrepps og Kjósarhrepps
árið 1993. Í kosningu um hundahald árið 1988
greiddu 12,8% atkvæðabærra manna atkvæði.
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu
Ekki ósanngjarnt að
miða við 75% þátttöku
Vísar til reglna R-listans
um flugvallarmálið
LÖGREGLUMAÐUR grípur í mótmæl-
anda á Torgi hins himneska friðar í Pek-
ing í Kína í gær, en þá voru fimmtán ár
liðin frá því að kínverskar öryggissveitir
drápu þar hundruð, ef ekki þúsundir, frið-
samra mótmælenda sem kröfðust lýðræð-
isumbóta.
Að minnsta kosti þrettán voru hand-
teknir á torginu í gær. Lögreglubílar
keyrðu látlaust um torgið og fjöldi ein-
kennis- og óeinkennisklæddra lögreglu-
manna fór um svæðið til að koma í veg
fyrir óróa á meðal fólks. Fáir þorðu þó að
minnast dagsins á almannafæri í borginni.
Tugþúsundir manna söfnuðust hins
vegar saman í Hong Kong og tendruðu
kertaljós til þess að minnast atburðanna.
Þá héldu leiðtogar námsmanna úr mót-
mælunum 1989, sem búa nú í útlegð í
Bandaríkjunum, sína eigin minningarat-
höfn við kínverska sendiráðið í Wash-
ington.
AP
Minnast
blóðbaðsins
ÍSLENSKIR fjárfestar í félagi við
stjórnendur norska laxafyrirtækisins
Norlax AS hafa, undir forystu Ís-
landsbanka, keypt allt hlutafé í Nor-
lax. Hlutur Íslendinganna er um 70%
en hlutur stjórnendanna er um 30%.
Seljandi er Norway Seafoods en aðal-
eigandi þess er hinn kunni norski at-
hafnamaður Kjell Inge Rökke. Í til-
kynningu frá Íslandsbanka segir að
fyrirtækjaþróun bankans í Reykjavík
og London hafi haft milligöngu um
viðskiptin. Kaupendahópurinn er
samsettur af framkvæmdastjóra og
markaðsstjóra fyrirtækisins og ís-
lenskum fjárfestum, þ.á m. Íslands-
banka. Íslandsbanki sér einnig um
alla lánsfjármögnun viðskiptanna.
Leiðandi í reyktum laxi
Norlax er leiðandi í framleiðslu og
sölu á reyktum laxaafurðum í Evr-
ópu. Fyrirtækið velti rúmlega 2 millj-
örðum íslenskra króna á síðasta ári og
eru helstu markaðir fyrirtækisins í
Danmörku, á Ítalíu og í Ástralíu.
Kaupin á Norlax eru með fyrirvara
um áreiðanleikakönnun, en niður-
stöður hennar munu liggja fyrir síðar.
Kaupa
stóran hlut
í Norlax
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins og utanríkisráðherra,
sagði í ræðu við upphaf miðstjórnarfundar
Framsóknarflokksins í gær að enginn
ágreiningur væri um það sem stæði í
stjórnarsáttmálanum um skattalækkanir.
Því, sem þar stæði, yrði komið í fram-
kvæmd og staðfest hefði verið í langtíma-
áætlun í ríkisfjármálum sl. haust að 20
milljörðum króna yrði varið til skattalækk-
ana á árunum 2005–2007 og 3 milljörðum
til barnabóta eða annarra tiltekinna verk-
efna. „Þetta er alveg skýrt,“ sagði Halldór.
„Það á eftir að útfæra þetta nánar og það
mun að sjálfsögðu koma fram í fjárlögum
fyrir árið 2005 og í frumvarpi til laga í
þessu skyni á næsta hausti.“ Sagði hann að
í þeim aðgerðum yrði ráðist í breytingar til
hagsbóta fyrir allan almenning í landinu.
„Það er hins vegar alveg ljóst að samfara
þessu verðum við að gæta þess að halda
áfram að styrkja almannaþjónustuna,
þannig að hún geti áfram þjónað göfugu
hlutverki sínu, fyrir alla landsmenn óháð
búsetu eða efnahag.“
Enginn
ágreiningur
um skatta-
lækkanir
♦♦♦
GRÍÐARMIKLAR öryggis-
ráðstafanir gengu í gildi í
París í gær vegna komu
George W. Bush Banda-
ríkjaforseta þangað í dag.
Þúsundir her- og lögreglu-
manna halda uppi öryggis-
gæslu í borginni um helgina.
Bush og eiginkona hans,
Laura, taka þátt í athöfnum
til að minnast þess að 60 ár
verða á sunnudag liðin frá
D-degi, innrás bandamanna
í Normandí. Búist er við
fjölmennum mótmælum í
París.
Í gær var umferð bönnuð
í nágrenni bandaríska
sendiráðsins þar sem for-
setahjónin dveljast. Hluta
Champs-Elysees-breiðgöt-
unnar var lokað og umferð
takmörkuð við Concorde-
torgið og Sigurbogann. Í
dag verður leitað skipulega
á vegfarendum í nágrenni
sendiráðsins og hugsanlega
víðar í París. „Ég fæ ekki
séð að við hefðum getað
gert meira … nema þá að
staðsetja flugmóðurskip á
Signu,“ sagði ónefndur lög-
reglumaður í samtali við
AFP. Raunar er viðbúnaði
haldið uppi á Signu. Þar
hafa síðustu daga siglt um
fjórir bátar sem ferja
sprengjusérfræðinga út-
lendingahersveitarinnar.
Alls munu um 30.000 her-
og lögreglumenn starfa við
öryggisgæslu vegna innrás-
arafmælisins en búist er við
að um 100.000 manns taki
þátt í athöfnum sem þjóð-
arleiðtogar og gamlir her-
menn sækja.
Reuters
Í Normandí
sextíu árum síðar
REX Blood, gamall hermaður frá
Leicester á Englandi, kyssir eigin-
konu sína Ivy á Courseulles-sur-
mer-ströndinni í Normandí í Frakk-
landi, eftir að hafa safnað sandi til
minja. Blood gekk á land við
Arromanches-les-Bains 7. júní 1944
og missti vinstri handlegginn er
hann barðist í borginni Caen.
Fjöldi gamalla hermanna, sem
börðust í síðari heimsstyrjöldinni,
hefur undanfarna daga komið til
Frakklands til að minnast þess að á
morgun eru 60 ár liðin frá því
bandamenn réðust inn í Normandí.
Þúsundir
á verði
í París
París. AFP.