Morgunblaðið - 05.06.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓR ÓSÁTTUR
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins og utanrík-
isráðherra, sagði í ræðu við upphaf
miðstjórnarfundar Framsóknar-
flokksins í gær, að hann væri mjög
ósáttur við hvernig forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, hefði stað-
ið að fjölmiðlamálinu.
Málið á borði Bush forseta
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir frétt The New York Times í
gær staðfesta að Bush Bandaríkja-
forseti vilji horfa til sjónarmiða Ís-
lands í varnarmálum Davíð sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
fréttin væri mjög athyglisverð enda
kæmi þar fram staðfesting á því að
mál varðandi orrustuþotur Varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli sé á
borði Bandaríkjaforseta.
Verð á olíu lækkar
Olíuverð er nokkuð á niðurleið eft-
ir að OPEC, samtök olíuútflutnings-
ríkja, ákváðu að auka fram-
leiðslukvótann um 11% á næstu
tveimur mánuðum. Sérfræðingar
segja samt sem áður að ekki sé víst
að olíuframboðið aukist.
Vísindaveiðar hafnar
Tvö hvalveiðskip, Njörður KÓ og
Halldór Sigurðsson ÍS, hófu á
fimmtudag vísindaveiðar á hrefnu,
samkvæmt hvalveiðiáætlun Haf-
rannsóknastofnunar. Sjávarútvegs-
ráðherra heimilaði fyrr í vikunni
veiðar á 25 hrefnum í vísindaskyni
og hefur stofnunin umsjón með
framkvæmd veiðanna. Líkt og í
fyrra munu þrjú skip stunda veið-
arnar. Tvö skip eru þegar komin á
miðin.
Gríðarleg öryggisgæsla
Þúsundir her- og löggæslumanna
munu halda uppi öryggisgæslu í
París um helgina vegna komu
George W. Bush Bandaríkjaforseta
þangað en búist er við fjölmennum
mótmælum. Munu hann og Laura
Bush, eiginkona hans, taka þátt í at-
höfnum til að minnast þess að 60 ár
verða á sunnudag liðin frá innrás
bandamanna í Normandí.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 36
Viðskipti 12 Umræðan 36/37
Úr verinu 12 Minningar 38/41
Erlent 16/18 Íslenskt mál 38
Minn staður 20 Kirkjustarf 42/43
Höfuðborgin 21 Myndasögur 48
Akureyri 22 Bréf 48
Suðurnes 23/24 Dagbók 50/51
Árborg 24 Staksteinar 50
Landið 25 Íþróttir 52/55
Daglegt líf 26/27 Leikhús 56
Ferðalög 28/29 Fólk 56/61
Listir 30/31 Bíó 58/61
Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 62
Þjónusta 35 Veður 63
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
CONDOLEEZZA Rice, þjóðaröryggisráðgjafi
Bandaríkjaforseta, sagði á fundi nokkurra æðstu
manna Bandaríkjanna hinn 20. maí sl., þar sem
fjallað var um nýjar hugmyndir um skipulag
varna, að George W. Bush myndi ekki styðja að
F-15 þoturnar á Keflavíkurflugvelli yrðu fluttar
þaðan nema fundin yrði leið til að sefa Íslendinga.
Ein leiðin gæti verið að skilgreina Ísland sem
„sameiginlegan öryggisvettvang“ (cooperative
security location). Þetta kom fram í frétt The New
York Times í gær. Í henni kom jafnframt fram að
ekki hefði verið tekin endanleg ákvörðun um
brottflutning vélanna.
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að fréttin staðfesti að
Bandaríkjaforseti vildi horfa til sjónarmiða Ís-
lands í varnarmálum og Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra sagði að í henni kæmi skýrt fram að
ákvarðanir í þessum málum yrðu ekki teknar
nema að höfðu samráði við Íslendinga.
Davíð sagði fréttina staðfestingu á því að málið
væri á borði Bandaríkjaforseta. „Hann hefur á því
alveg sérstaka skoðun og mér finnst það vera
mjög í anda þess sem ég hef orðið var við í sam-
skiptum við hann, síðast í símtali sem ég átti við
hann þegar ég var staddur í New York,“ sagði
hann. „Þetta er mjög athyglisverð og jákvæð frétt
fyrir okkar málstað. Þessi frétt, sem virðist vera
byggð á góðum heimildum, bendir til að það sé
horft sérstökum augum til okkar þannig að forset-
inn vilji ekki að það sé gengið á okkar hlut og alls
ekki gengið frá niðurstöðum sem við getum ekki
sætt okkur við og það er afskaplega jákvætt. Þetta
staðfestir það sem við höfum talið að Bandaríkja-
forseti hefur sett sig vel inn í málið sjálfur og vill
horfa til sjónarmiða Íslands um að varnir þess séu
tryggðar.“
Halldór sagði fréttina í samræmi við þá stöðu
sem málið væri í. „Það gerðist í kringum síðustu
kosningar að þetta mál fór inn á borð Bandaríkja-
forseta fyrir tilstilli framkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins, George Robertson, og þar hef-
ur það verið. Það kemur skýrt fram í þessari frétt
að ákvarðanir í þessu máli verða ekki teknar nema
að höfðu samráði við Íslendinga og þess vegna er
málið í pólitískum farvegi.“
Hugsanlega rætt í Istanbúl
Inntur eftir því hver næstu skref verði í þessu
máli segir Halldór að ekkert hafi verið ákveðið um
það. „Við höfum beðið eftir því að Bandaríkja-
menn kynntu þessar áætlanir, en við höfum þá
sérstöðu í þessu sambandi að okkar samstarf
byggist á varnarsamningi sem er meira en hálfrar
aldar gamall, ólíkt því sem er um margar aðrar
þjóðir. Þess vegna er málið ekki aðeins tæknilegt –
það er pólitískt og ég vonast eftir því að það komi
tækifæri til að ræða það við leiðtoga Bandaríkj-
anna á leiðtogafundi NATO í Istanbúl í lok þessa
mánaðar.“
Vélarnar fara ekki nema
takist að sefa Íslendinga
FORSETABÍLLINN, Packard ár-
gerð 1942, var afhjúpaður á forn-
bílasýningunni í Laugardalshöll í
gærdag. Sýningin stendur yfir
helgina og er haldin í tilefni af því
að hundrað ár eru liðin frá því að
fyrsti bíllinn kom til landsins. For-
setabíllinn, sem tók um fimm ár að
gera upp, var embættisbíll fyrsta
forseta lýðveldisins, Sveins Björns-
sonar.
„Hann kom í stað annars bíls,
sem pantaður hafði verið og sökk
með Goðafossi þegar skipið var
skotið niður í síðari heimsstyrjöld,“
sagði Sævar Pétursson í samtali við
Morgunblaðið, en Sævar er formað-
ur Fornbílaklúbbs Íslands og hefur
haft veg og vanda af endurgerð
bílsins. Bíllinn er í eigu Þjóðminja-
safnsins.
Aðeins voru framleiddir 600 bílar
af þessari gerð, sem gerir bílinn
enn fágætari en ella. Það hefur
einnig gert leit að varahlutum erf-
iðari og þurfti að sérsmíða marga
hluti til endurgerðarinnar. „Bíllinn
er allur hinn glæsilegasti, sann-
kölluð limmósína, og til dæmis eru
allar rúður vökvadrifnar,“ segir
Sævar.
Það voru núverandi og fyrrver-
andi þjóðminjaverðir, Margrét
Hallgrímsdóttir og Þór Magnússon,
sem afhjúpuðu forsetabílinn. Sævar
Pétursson fylgdist með.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sannkölluð limmósína afhjúpuð
ÞORBJÖRG Inga Jónsdóttir, for-
maður Kvenréttindafélags Íslands,
segist bæði hneyksluð og vonsvikin
yfir þeim niðurstöðum sem fram
koma í nýrri skýrslu Ríkisendurskoð-
unar um viðbótarlaun. Í fréttatil-
kynningu Ríkisendurskoðunar um
skýrsluna segir að karlar fái í flestum
tilvikum mun hærri viðbótarlaun en
konur hjá þeim tíu ríkisstofnunum
sem úttekt Ríkisendurskoðunar náði
til. Ekki er í skýrslunni gefið upp um
hvaða stofnanir er að ræða.
Í fréttatilkynningunni segir einnig
að hæstu viðbótarlaunin hafi aðallega
runnið til þeirra starfsmanna sem
voru hæst settir innan stofnunar.
„Það er auðvitað út í hött að þetta
skuli vera svona, sérstaklega hjá op-
inberum stofnunum,“ segir Þorbjörg í
samtali við Morgunblaðið. Bætir hún
við að þessi niðurstaða sé ekki í sam-
ræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í
jafnréttismálum. „Þarna er eitthvað
að gerast sem við þurfum að rann-
saka,“ segir hún.
Þarf að vinna mjög markvisst
Þorbjörg telur rétt að gerð verði
jafnréttisúttekt á þessum stofnunum.
Þá segir hún að vinna þurfi mjög
markvisst að því að ná launajafnrétti
kynjanna. „Það þarf að taka hvern
einasta hóp sem á að vera með jafna
stöðu og breyta þessu.“
Skýrsla Ríkisendurskoðunar var
unnin að beiðni Jóhönnu Sigurðar-
dóttur alþingismanns. „[…] Var þar
reynt að einangra þann hóp ríkis-
starfsmanna sem miklar líkur benda
til að fái viðbótarlaun, þ.e. mánaðar-
legar greiðslur ofan á grunnlaun án
þess að sérstakt vinnuframlag þurfi
að koma á móti. Slíkar greiðslur eru
m.a. notaðar til að umbuna starfs-
mönnum fyrir árangur í starfi.
Markmiðið með úttektinni var að
svara því hvernig slík laun hefðu
skipst eftir kynjum milli þeirra starfs-
manna sem gegndu sambærilegum
störfum í tíu stærstu ríkisstofnunum
sem greiddu viðbótarlaun árið 2002
[…],“ segir m.a. í fréttatilkynningu
Ríkisendurskoðunar.
Formaður Kvenréttindafélags Íslands
Hneyksluð og vonsvikin yfir
niðurstöðu um viðbótarlaun
SÝNINGARNAR Þetta er allt að
koma og Ríkarður þriðji í Þjóðleik-
húsinu, Sporvagninn Girnd hjá Leik-
félagi Reykjavíkur, Brim hjá Vest-
urporti og Meistarinn og Margaríta í
Hafnarfjarðarleikhúsinu etja kappi
um Grímuna, íslensku leiklistarverð-
launin, sem besta sýning ársins, en
tilnefningar til verðlaunanna voru
kynntar í gær.
Þetta er allt að koma hlaut flestar
tilnefningar, tíu, og Ríkarður þriðji
hlaut níu. Sýning Leikfélags Reykja-
víkur á Chicago hlaut átta tilnefn-
ingar.
Þjóðleikhúsið fær langflestar til-
nefningar leikhúsa, 30 alls. Leikfélag
Reykjavíkur fær 16 tilnefningar.
Vinsælasta sýningin að mati
áhorfenda voru Chicago, Dýrin í
Hálsaskógi, Edith Piaf, Eldað með
Elvis og Grease.
Síma- og GSM-kosning hefst 11.
júní og endar í beinni útsendingu í
Sjónvarpinu að kvöldi 16. júní.
Gríman, íslensku
leiklistarverðlaunin
Þjóðleik-
húsið fær 30
tilnefningar
Þetta er allt/Listir
MATFUGL ehf. hefur sent frá sér
tilkynningu um að bakterían salmon-
ella worthington hafi fundist við
reglubundna sýnatöku í slátursýni
frá fyrirtækinu. Um er að ræða
ferska Móa-kjúklinga. Matfugl,
starfsmenn verslana sem selja vör-
una, og heilbrigðiseftirlit sveitarfé-
laga, hafa nú tekið kjúklingana úr
sölu, en um 20% úr umræddum kjúk-
lingahópi voru komin í dreifingu.
Kjúklingahópurinn sem greinst
hefur smitaður af salmonellu er auð-
kenndur með sérstöku rekjanleika-
númeri (Rlnr.) sem sjá má á umbúð-
um vörunnar. Númerið er:
011–04–17–3–03. Hafi fólk ferskan
kjúkling heima hjá sér er það beðið
um að athuga rekjanleikanúmerið á
merkimiða vörunnar. „Til að varast
óróleika hjá neytendum skal það
tekið fram að þessi kjúklingur er
hættulaus fari neytendur eftir leið-
beiningum um eldun kjúklinga,
steiki í gegn og passi að blóðvökvi
fari ekki í aðra vöru,“ segir í tilkynn-
ingu Matfugls.
Salmonella
í ferskum
kjúklingi
♦♦♦