Morgunblaðið - 05.06.2004, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 11
RAÐGREIÐSLUR
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík
Sumarútsala
Í dag, laugardag 5. júní, kl. 12-19 og
á morgun, sunnudag 6. júní, kl. 13-19.
Sími 861 4883
Töfrateppið
Allt á að seljast - hættum núverandi
rekstrarfyrirkomulagi
Verðdæmi Stærð Verð áður Nú staðgr.
Pakistönsk
Pakistönsk
„sófaborðsstærð“
Rauður Afghan
60x90 cm
125x180 cm
100x180 cm
9.800
44.900
29.300
6.400
28.400
21.900
og margar fleiri gerðir.
5% aukaafsláttur m.v. staðgreiðslu
Laugavegi 63
(Vitastígsmegin)
sími 551 2040
Laugavegi 63
(Vitastígsmegin)
sími 5 1 2040
Silkitré og silkiblóm
15% afsláttur
af fíguspotta-
plöntum og -trjám
í dag
Augustsilk
Augustsilk
Opið í dag frá kl. 12-17 í Síðumúla 35 – 3. hæð
Ný sending af silkipeysum – heildsöluverð
Peysusett og stuttermapeysur – margir litir
Handofið dupion-silki – 3 litir – kr. 2.400
Engin kort www.laxmann.com
WALDORFLEIKSKÓLARNIR og
Waldorfskólinn fagna í dag 10 ára
afmæli sínu. Skólinn hefur nokkra
sérstöðu innan skólakerfisins en
hann notar ekki próf sem mæli-
kvarða á hæfni nemenda. Af þessu
tilefni verður boðið til afmæl-
ishátíðar í Waldorfskólanum Sól-
stöfum, Hraunbergi 12.
Waldorfskólinn Sólstafir í Reykja-
vík var stofnaður árið 1994 og kenn-
ir nú á öllum stigum grunnskólans
en á meðal þess sem Waldorfskólinn
leggur áherslu á umfram hinn
venjulega grunnskóla eru listir,
handverk og tónlist alla daga vik-
unnar, allt skólaárið. Þá er reynt að
gefa nemendum svigrúm til þess að
skynja og reyna nýja hluti, bregðast
við þeim, herma eftir og skapa nýtt.
Snorri Traustason Waldorfkennari
segir að undirstaðan í þessari skóla-
stefnu sé vitsmunalegi þátturinn, til-
finningalegi þátturinn og hinn lík-
amlegi þáttur. „Það sem okkur
finnst mikilvægt er að samræma
þessa þætti og tengja þá innbyrðis.
Það er sérkenni Waldorfskólans.
Einnig að mennta börn til þátttöku í
nútímasamfélagi en það er jafn-
framt hlutverk allra skóla.“
Hugur, hjarta og hönd
Waldorfskólar byggja kennslu-
fræði sína á kenningum austurríska
mannspekingsins Rudolfs Steiners.
Hann undirstrikaði mikilvægi þess
að ná jafnvægi á milli þeirra þriggja
mismunandi leiða sem manneskjan
tengist heiminum; í gegnum lík-
amlegt starf, tilfinningalífið og á
hugsanasviðinu. Hann sýndi einnig
hvernig þessi þrjú atriði tengjast
mannlegu eðli og hvert öðru inn-
byrðis. Hugur, hjarta og hönd eru
öll jafn mikilvæg í þróun barns-
þroskans og eru grunnurinn að
nálgun Waldorf-uppeldisfræða.
Að sögn Snorra hefur kennari
þrjár leiðir til að hvetja börn til að
læra: ótta, metnað eða kærleik. Í
Waldorf-uppeldisfræðinni er fyrstu
tveimur leiðunum sleppt og leitast
við að vekja kærleika í nemand-
anum fyrir fagi dagsins. Einungis
kærleikur getur vakið áhuga nem-
andans á faginu sjálfu, en ekki óskin
að ávinna sér góðar einkunnir eða
hvatning eigin hagsmuna. „Þetta er
einungis hægt ef kennararnir sjálfir
eru jafn fylltir af eldmóði og nem-
endurnir sjálfir,“ segir Snorri.
Ekki hefðbundin
bekkjarskipting
32 nemendur eru í skólanum og
60 í leikskólanum. Bekkjaskipting
er ekki hefðbundin og skiptist í efsta
stig, miðstig og yngsta stig. Wal-
dorfleikskólinn er fyrir börn frá 18
mánaða aldri og að skólaaldri en
Waldorfgrunnskólinn er fyrir 1.–10.
bekk grunnskóla. „Í grunnskólanum
er hvert námsefni kennt í ákveðinni
námslotu, sem hver um sig stendur
yfir í þrjár til fimm vikur í senn.
Sama námsefnið er þá kennt á hverj-
um degi í aðalkennslustund. Við not-
um ekki próf sem námsmat, heldur
vitnisburð kennara,“ segir Snorri.
Í skólanum er starfrækt eldhús og
boðið er upp á einfaldan grænmet-
ismat í hádeginu og við matseldina
er notað lífrænt ræktað hráefni eftir
því sem kostur er.
Að sögn Snorra hafa nemendur
skólans lagt mikið á sig við und-
irbúning afmælishátíðarinnar svo
hún verði sem glæsilegust. „Á af-
mælishátíðinni verður mikil gleði og
nemendur sýna fjórar mismunandi
leiksýningar. Þá hafa nemendur
smíðað veglegt tjald og að auki kem-
ur hér eldgleypir og ýmiss konar
skemmtiatriði önnur verða á boð-
stólnum.“
Afmælishátíðin stendur yfir frá
kl. 13 til14.30 og frá 14.30 til 16.00
er opið hús á vegum foreldrafélags
Waldorfskólans. Áhugasamir geta
þá komið við og kynnt sér starfsemi
skólans en einnig verður opinn líf-
rænn markaður og vorbasar.
Sólstafir fagna 10 ára afmæli Waldorfskólans og Waldorfleikskólanna
Morgunblaðið/Eggert
Í gær vann starfsfólk skólans að því að undirbúa afmælishátíðina.
Nota ekki próf
sem námsmat
FYRIRHUGAÐ er að undirrita
samning á milli samstarfsráðs um for-
varnir og stjórnvalda þar sem ríkið
skuldbindur sig til þess að leggja
fram 10 milljónir króna á ári, næstu
þrjú árin, til samstarfsráðsins. Munu
þrjú ráðuneyti menntamála-, sam-
göngumála- og heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneyti undirrita samn-
inginn fyrir hönd ríkisins.
Samstarfsráðið, sem byggir á sam-
starfi sex samtaka sem kenna sig við
bindindi, fór þess á leit við stjórnvöld í
október í fyrra að gera slíkan samn-
ing, sem fallist var á og samþykkti Al-
þingi 10 milljóna króna framlag til
samstarfsráðsins gegn því að sam-
starfsráðið leggi fram jafnháa fjár-
hæð í formi sjálfboðastarfs og fram-
laga frá öðrum aðilum.
Árni Einarsson, sem situr í ráðinu
og er framkvæmdarstjóri fræðslu-
miðstöðvar í fíknivörnum, segir að
með þessum samningi sé verið að
brjóta blað í starfi bindindissamtaka í
landinu sem átt hafa undir högg að
sækja á undanförnum árum. Hann
nefnir að fjármagnið muni hleypa
nýju blóði í starf samtakanna., en auk
þess feli hann í sér viðurkenningu á
starfi samtakanna.
Í samningnum er kveðið á um, auk
fjárframlaganna næstu þrjú árin, að
„samstarfsráð í forvörnum taki að sér
tilgreind verkefni samkvæmt samn-
ingi til þriggja ára, sem beinast að því
að draga úr neyslu áfengis og þeim
skaða sem neysla þess veldur, enda
eigi verkefnin sér stoð í langtíma-
stefnu stjórnvalda. Stefnt verði að
framlengingu samningsins að undan-
gengnu mati á árangri.“
Árni segir að eitt af helstu baráttu-
málum þeirra sé að „sporna gegn og
helst útrýma allri áfengisneyslu með-
al barna og unglinga,“ ásamt því að
draga úr ölvunarakstri. Til þess þurfi
þó fólk að sýna samstöðu.
Stjórnvöld styrkja samstarfsráð um forvarnir
Samningurinn brýtur blað í
starfi bindindissamtakanna
SIÐANEFND Blaðamannafélags
Íslands hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að DV hafi brotið gegn 3.
grein siðareglna félagsins, með því
að birta nafn og mynd af lækni á
kvennadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss í umfjöllun um
nýfætt barn sem lést í kjölfar leg-
vatnsástungu. Er brotið alvarlegt
að mati siðanefndarinnar, en í 3.
greininni segir að sýna beri fyllstu
tillitssemi í vandasömum málum.
Viðtal birtist við föður barnsins í
mars sl. og nafngreinir faðirinn
þar lækni deildarinnar og sakar
hann um að hafa brugðist og að
vegna aðgerðarleysis læknisins í
kjölfar legvatnsástungunnar hafi
barnið látist. Foreldrarnir kærðu
starfsfólk spítalans til landlæknis
og síðar lögreglunnar.
Yfirlæknar á kvennadeild kærðu
umfjöllun DV um málið og sögðu
að einn læknir deildarinnar hafi
verið úthrópaður fyrir mistök í
starfi þótt engar sönnur hafi verið
færðar á að svo hafi verið.
Í niðurstöðu siðanefndar BÍ seg-
ir að eðlilegt megi teljast að fjallað
sé um mál sem þetta í fjölmiðlum.
Það sé fréttnæmt en um leið sé
umfjöllunin viðkvæm og því vanda-
söm. Missögn í fréttinni hafi verið
leiðrétt og telur siðanefnd að DV
hafi ekki verið skylt að birta at-
hugasemd sjúkrahússins í heild.
„Eftir stendur nafn- og mynd-
birting. Á fundi með siðanefnd
sögðu ritstjórar DV það stefnu
blaðsins að birta nöfn þeirra sem
um sé fjallað í fréttum nema í und-
antekningartilvikum, t.d. ef fórn-
arlamb á hlut að máli eða ef birt-
ingin gæti vísað á fórnarlambið. Í
því felist engin ásökun af hálfu
blaðsins.
Siðanefnd telur að það hefði
ekki rýrt gildi fréttarinnar þótt
nafn læknisins og mynd af honum
hefðu ekki verið birt og því hafi
það verið óþarft. Sjónarmið föð-
urins um alvarlegt atvik koma
engu að síður skýrt fram en með
því að sleppa nafn- og myndbirt-
ingu hefði verið sýnd nauðsynleg
tillitssemi þegar haft er í huga að
málið er í rannsókn og engin nið-
urstaða fengin. Í kærunni kemur
fram að andlát barnsins hafi verið
óhappatilvik enda legvatnsástunga
alltaf áhættusöm aðgerð. Siða-
nefnd telur ekki hafa verið ástæðu
til að vara við umræddum lækni,“
segir í úrskurði siðanefndarinnar.
Alvarlegt
brot DV að
mati siða-
nefndar
ÍSTAK hf. átti lægsta tilboð í út-
boði Vegagerðarinnar á Reykja-
nesbraut milli Álftanesvegar og
Lækjargötu í Hafnarfirði. Til-
boðið nam 533,4 milljónum
króna, sem er 90% af áætlun
Vegagerðarinnar upp á 589
milljónir króna. Verkinu á að
vera lokið í nóvember á þessu
ári.
Um er að ræða endurbætur á
gatnamótum Fjarðarhrauns og
Flatahrauns, endurnýjun Lækj-
argötu milli Hringbrautar og
Reykjanesbrautar, ásamt aðlög-
un við aðliggjandi götur. Þá felst
í verkinu gerð nýrra undirganga
undir Lækjargötu og Reykja-
nesbraut, ásamt breytingum á
þremur eldri göngum.
Tvö önnur tilboð bárust. Jarð-
vélar ehf. í Kópavogi buðu 635,5
milljónir króna og Íslenskir að-
alverktakar buðu 664,4 milljónir.
Ístak bauð 533 millj-
ónir í Reykjanesbraut