Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 18
ERLENT
18 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKA varnarmálaráðu-
neytið, Pentagon, hefur gert áætlan-
ir um róttækustu uppstokkun á
skipulagi varnarviðbúnaðar ríkisins
um allan heim sem um getur í meira
en hálfa öld, að sögn dagblaðsins
The New York Times í gær. Sagt er í
greininni frá fundi nokkurra af
æðstu embættismönnum landsins
20. maí og m.a. haft eftir Condol-
eezzu Rice, þjóðaröryggisráðgjafa
George W. Bush, að forsetinn myndi
ekki samþykkja að herþotur yrðu
fluttar frá Keflavík fyrr en búið væri
að finna leið til að „sefa“ Íslendinga
og fá þá til að samþykkja þá ráð-
stöfun. Sagt er í frétt blaðsins að
ekki hafi verið tekin endanleg
ákvörðun í málinu.
„Hvergi nokkurs staðar í heimin-
um verður staðan [í bandarískum
herstöðvum] óbreytt,“ sagði
Douglas Feith, aðstoðarvarnarmála-
ráðherra er stjórn Bush hóf að
kynna tillögurnar fyrir ári. Hug-
myndirnar um gagngera uppstokk-
un og breytta varnarstefnu voru
upphaflega settar fram af Donald
Rumsfeld varnarmálaráðherra og
segir í blaðinu að búast megi við að
endanleg ákvörðun verði tekin innan
eins eða tveggja mánaða. Hermenn
og tæki verða flutt á milli bæki-
stöðva, sums staðar verða stöðvar
lagðar niður vegna breyttra að-
stæðna. Markmiðið er að sögn
Rumsfelds að nýta heraflann sem
best og staðsetja hann þar sem þörf-
in er brýnust og þar sem minnstar
pólitískar hömlur eru settar á rétt
Bandaríkjamanna til að beita hon-
um.
Gera á heraflann eins sveigjanleg-
an og unnt er og hæfari til að fást við
verkefni í Mið-Austurlöndum, Mið-
Asíu og annars staðar þar sem líkur
eru taldar á því að átök geti blossað
upp. Fyrrverandi yfirmaður herafla
Atlantshafsbandalagsins, NATO, í
Evrópu, Bandaríkjamaðurinn Jos-
eph Ralston, er hlynntur hugmynd-
um Rumsfelds og vill nýjar áherslur.
„Frá herfræðilegu sjónarmiði er vit-
legra að flytja lið frá Þýskalandi og
vera með einhvern viðbúnað í Búlg-
aríu og Rúmeníu,“ segir hann.
Málefni Íslands „viðkvæm“
Ýmsir embættismenn, bandarísk-
ir og í öðrum NATO-ríkjum og sér-
fræðingar eru sagðir óttast að breyt-
ingarnar geti dregið úr pólitískum
áhrifum Bandaríkjamanna í NATO
og veikt tengslin við hefðbundna
bandamenn á tímum þegar andúð á
stefnu Bandaríkjamanna fer vax-
andi í heiminum. Bent er á að nýja
áætlunin geti rennt stoðum undir
ásakanir um að stjórn Bush taki ein-
hliða ákvarðanir og eigi ekki samráð
við bandamenn sína. Væri þannig
óafvitandi verið að styrkja þann mál-
flutning Frakka að Evrópumenn
verði að annast sjálfir varnir sínar,
án afskipta Bandaríkjamanna.
Fjallað var um varnir á Íslandi á
fundinum í maí. „Málefni Íslands
hafa lengi verið viðkvæm,“ segir í
grein blaðamanns The New York
Times, „embættismenn í Pentagon
hafa þrýst á um að flytja á brott fá-
einar F-15 herþotur sem þar eru
staðsettar í samræmi við tvíhliða
samning sem gerður var í kalda
stríðinu. Það gæti komið í uppnám
ríkisstjórn sem hefur yfirleitt stutt
stefnu Bandaríkjanna og þarf á
F-15-þotunum að halda vegna loft-
varna sinna.
Condoleezza Rice þjóðaröryggis-
ráðgjafi [Bandaríkjaforseta] sagði á
fundinum 20. maí að Bush myndi
ekki styðja að flugvélarnar yrðu
fluttar á brott nema fundin yrði leið
til að sefa Íslendinga. Ein leiðin gæti
verið að skilgreina Ísland sem „sam-
eiginlegan öryggisvettvang“ (coop-
erative security location) en það er
orðalag sem notað er í varnarmála-
ráðuneytinu um varnarstöð sem
hægt er að flytja herlið til ef hætta
skapast.“
Skiptar skoðanir eru sagðar með-
al ráðamanna um ýmis atriði tillagna
Pentagons. Ætlunin er að flytja þús-
undir hermanna í brynvarnahersveit
og búnað þeirra frá Þýskalandi og
tugi F-16 orrustuþotna frá flugbæki-
stöðinni í Spangdahlem. Mun flug-
sveitin fá aðstöðu í bandarísku bæki-
stöðinni í Incirlik í Tyrklandi þar
sem hún yrði nær átakasvæðunum í
Mið-Austurlöndum og Mið-Asíu. En
skilyrðið er að Tyrkir fáist til að
veita Bandaríkjamönnum víðtæka
heimild um beitingu flugvélanna
sem sumir embættismenn í Wash-
ington álíta að verði torsótt.
Colin Powell utanríkisráðherra,
sem eitt sinn var forseti bandaríska
herráðsins, sagðist á maí-fundinum
telja ólíklegt að Tyrkir gæfu slíkt
leyfi og tók núverandi herráðsfor-
seti, Richard B. Myers hershöfðingi,
undir þá skoðun. Myers sagðist
kjósa fremur að vélarnar yrðu áfram
í Þýskalandi. Powell rifjaði upp að
þýsk stjórnvöld hefður aldrei sett sig
á móti því að hluti heraflans í stöðv-
um Bandaríkjamanna þar væri
sendur til verkefna annars staðar,
eins og reyndin var í stríðunum við
Íraka 1991 og 2003. Tyrkir neituðu
hins vegar Bandaríkjamönnum um
leyfi til að flytja herlið um landið til
að ráðast inn í norðanvert Írak sl.
vor.
Utanríkisráðuneytið
vill meiri tíma
Yfirstjórn bandaríska flotans í
Evrópu verður flutt frá Bretlandi til
Napólí á Ítalíu en ekki Spánar eins
og áður hafði verið rætt um. Tals-
menn ráðuneytisins segja að það
tengist ekki þeirri ákvörðun nýrrar
ríkisstjórnar á Spáni að kalla heim
spænska herliðið í Írak heldur hafi
tillit til kostnaðar ráðið ferðinni.
Sagt er í grein blaðsins að emb-
ættismenn í Pentagon vilji að Bush
forseti segi frá umræddum áætlun-
um í ræðu eða yfirlýsingu um miðjan
júní. Fulltrúar utanríkisráðuneytis-
ins hafi á hinn bóginn sagt að þá
myndi ekki gefast nægur tími til að
ráðfæra sig við bandalagsþjóðir og
svo gæti virst sem nýja stefnan hefði
þegar verið ákveðin, menn stæðu
frammi fyrir gerðum hlut.
Bush sagður geta
samþykkt flutning
herþotna frá
Keflavík ef menn
finni leið til að
sætta Íslendinga
við ákvörðunina
Reuters
Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, heimsótti í gær bandaríska herskipið USS Essex í
Singapore og sést hér á fundi með skipverjum. Rumsfeld sagði í flugvélinni á leiðinni til Singapore að tími væri
kominn til að laga bandarískar herstöðvar í öðrum löndum betur að 21. öldinni og nýjum verkefnum hennar.
’Bent er á að nýjaáætlunin geti rennt
stoðum undir ásakanir
um að stjórn Bush taki
einhliða ákvarðanir og
eigi ekki samráð við
bandamenn sína.‘
Hyggjast færa varnar-
búnað nær átakasvæðum
HALLIR rússneskra aðalsmanna eru margar í
slæmu ásigkomulagi enda var viðhald þeirra
ekki ofarlega á forgangslistanum eftir að
kommúnistar rændu völdunum 1917. Mörg önn-
ur sögufræg hús eru einnig ömurleg útlits,
málningin hefur flagnað af, járnskreytingar
ryðgað. Húsin þar sem þeir bjuggu, Púskín og
Dostoévskí, eru bæði mann-
laus, reyndar óhæf til búsetu.
En nú vilja yfirvöld í Sankti
Pétursborg, sem var höf-
uðborg Rússlands í rúm 200
ár fram yfir fyrri heimsstyrj-
öld, beita nýjum ráðum til að
koma í veg fyrir að hallirnar
verði að rústum: Þau ætla að
selja sumar þeirra einkaaðilum til að tryggja að
þær grotni ekki niður.
Borgin hefur ekki efni á viðhaldinu, segir
borgarstjórinn Valentína Matvíenko, og þess
vegna verður að leita til stórfyrirtækja og auð-
manna. Sumir gagnrýna áformin, segja að salan
muni einkennast af spillingu, en embættismenn
lofa að allt verði fyrir opnum tjöldum og mann-
virkin ekki seld fyrir slikk. Rússneskir auðjöfr-
ar, ólígarkar, notuðu á sínum tíma tækifærið
skömmu eftir hrun Sovétríkjanna og hrifsuðu til
sín geysilegar eignir með ýmiss konar braski,
bellibrögðum og mútum.
Fulltrúi Samtaka hægriaflanna, Alexei Kov-
aljov, segir að Matvíenko, sem er náinn sam-
herji Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta, ætli
með hugmyndinni að gera olíurisanum Lukoil
greiða. Lukoil greiddi í kosningasjóð Matvíenkó
í fyrra. Fyrirtækið skýrði ný-
lega frá áætlunum sínum um
að verja nær 40 milljónum
dollara, um þremur millj-
örðum ísl. kr., í að lagfæra hið
sögufræga Stieglitz-setur
sem er á Enska bakkanum
svonefnda. Lukoil leigir nú
bygginguna og vill kaupa.
Ekki eru hugmyndir Matvíenko þó orðnar að
veruleika af því að fyrst þarf að setja lög á
þinginu í Moskvu sem heimila sölu á slíkum
mannvirkjum. Borgarstjórnin hefur hins vegar
þegar samþykkt þær. Þjóðargersemar á borð
við Eremitage-safnið og Peterhof verða þó ekki
seldar.
Samofnar rússneskri sögu
Margar bygginganna umdeildu eru samofnar
rússneskri sögu og hafa verið vettvangur ör-
lagaríkra atburða. Alexei stórhertogi var af
Romanov-ættinni eins og Nikulás II. keisari og
yfirmaður flotans. En sól Alexeis hneig þó til
viðar þegar Rússar töpuðu stríði við Japani
1905 og flota Alexeis var eytt við Japans-
strendur. „Hann var viðbragðsfljótur í kvenna-
málum en skipin hans voru seinfær,“ sagði í
minningum sem skráðar voru um ættina.
Alexei dó 1908 og síðan hefur höllin hans risa-
stóra, í gotneskum stíl á Enska bakka, verið lát-
in hrörna. Alexei keypti höllina á níunda áratug
19. aldar og lét gera hana upp. Ásigkomulagið
er vægast sagt slæmt. Sama er að segja um
Séremetév-höllina sem er við hinn eftirsótta
fljótsbakka og sögufrægar herbúðir í grennd
við Kronstadt þar sem stjórn kommúnista barði
niður uppreisn sjóliða skömmu eftir valdaránið.
Sumir benda á að erfingjar rússneskra aðals-
ætta myndu geta farið í mál ef stjórnvöld seldu
eignir sem Sovétstjórnin gerði upptækar eftir
1917. Skiptar skoðanir eru einnig meðal al-
mennings og þeirra sem nú vinna í höllunum
sem einnig óttast um vinnuna. Bent er á að
tryggja verði með lögum að ekki verði gerðar
umtalsverðar breytingar á höllunum.
„Auðvitað væri betra ef ríkið ætti þetta,“ seg-
ir umsjónarkona í einni höllinni. „Ef fyrirtæki
ætti hana myndum við aldrei fá að fara inn.“
Hún sagði hins vegar að gólfborðin væru orðin
fúin, loftklæðning að hrynja, dýrmæt málverk
væru geymd undir rykugum segldúk og gylltir
speglar væru orðnir skemmdir vegna skorts á
umhirðu. Nægur tími hefði verið fyrir yfirvöld
til að taka í taumana en ekkert verið gert.
Vilja selja rúss-
nesku hallirnar
Sankti Pétursborg skortir fé til að halda við sögu-
frægum mannvirkjum frá keisaratímanum
Sankti Pétursborg. The Washington Post.
WP/Susan B. Glasser
Olíurisinn Lukoil leigir nú Stieglitz-setrið í Sankti Pétursborg sem mjög hefur látið á sjá.
’Þjóðargersemar áborð við Eremitage-
safnið og Peterhof
verða þó ekki seldar. ‘