Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 25
eins og fleiri af Rauða torginu á Húsavík.
Aðalsteinn sagði það mjög afslappandi að
geta skipt um umhverfi og eiga stund í fal-
legu umhverfi með hjörðinni sinni sem teldi
nokkrar kindur. „Kindur hafa fylgt mér alla
tíð því faðir minn, Baldur Árnason, var frí-
stundabóndi og því man ég ekki eftir öðru en
því að umgangast þær. Ég var alltaf með
pabba í búskapnum og þegar hann féll frá
hélt ég í kindurnar og fjárhúsið. Áhuginn var
reyndar svo mikill hjá mér að ég fór í
Bændaskólann á Hvanneyri og útskrifaðist
þaðan sem búfræðingur þótt ég hafi ekki
orðið alvöru bóndi enn þá. Sumir segja
reyndar að ég sé hálfgerður fræbúðingur en
þeim fullyrðingum vísa ég að sjálfsögðu á
bug,“ sagði Aðalsteinn. Hann segir að þrátt
fyrir að miklar annir væru því fylgjandi að
taka þátt í félagsmálum hefði það aldrei
hvarflað að honum að hætta með kindurnar
því það væru forréttindi að fá að hafa nokkr-
ar kindur sér til gamans. „Í návist sauðkind-
arinnar líður mér alltaf vel,“ sagði Aðalsteinn
Árni Baldursson að lokum.
Húsavík | Aðalsteinn Árni Baldursson á
Húsavík er önnum kafinn maður, ásamt því
að gegna starfi formanns Verkalýðsfélags
Húsavíkur sinnir hann ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir verkalýðshreyfinguna. Þá situr
hann í bæjarstjórn Húsavíkur ásamt því að
sitja í hinum ýmsu nefndum og ráðum á veg-
um bæjarins.
En hann á sínar stundir þar sem hann
slakar á frá erli dagsins. Þær eru m.a. í fjár-
húsunum en Aðalsteinn er frístundabóndi og
var um tíma í forsvari fyrir frístundabændur
á Húsavík. Þegar fréttaritari leit í húsin til
hans á dögunum var sauðburði að ljúka hjá
honum. Að sögn Aðalsteins gekk sauðburð-
urinn mjög vel enda frjósemin góð, svo góð
reyndar að þakið væri farið að lyftast af
fjárhúsinu. Hann vék sér hins vegar frá því
að svara hversu mörg lömb hann hefði
fengið. Sagði þó, að þau væru heldur fleiri en
þau stig sem uppáhaldsliðið hans í enska
boltanum, sem nýlega féll milli deilda, hefði
náð. Hér er Aðalsteinn að tala um úr-
valsdeildarliðið Leeds, enda mikill Leedsari
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, segir það forréttindi að fá
að hafa nokkrar kindur. Aðalsteinn hefur auk þess verið að semja um kaup og kjör í vor.
Mín stund frá erli dags-
ins er í fjárhúsunum
Holt | Sláttur hófst undir Eyjafjöll-
um í Ásólfsskála og Þorvaldseyri 2.
júní og muna menn ekki eftir að
það hafi gerst fyrr, enda var vet-
urinn óvenju mildur, nær ekkert
frost í jörðu eftir veturinn, vorstörf
hófust um hálfum mánuði fyrr en
venja er og kýr voru komnar á góða
beit um miðjan maí.
Komið var að Sigurði Grétari
Ottóssyni, bónda að Ásólfsskála,
snemma að morgni við að snúa í
slægjunni í Gerði, sem er friðað fyr-
ir vorbeit og alltaf fyrst til sláttar á
bænum. Taldi hann slægjuna góða
og fram undan væru fleiri tún sem
biðu sláttar, því nauðsynlegt væri
að ná gæðaheyjum fyrir kýrnar til
að ná hámarksnyt yfir árið. Meðal-
ársnyt kúnna á bænum væri komin
töluvert yfir 6.000 lítra og til að
halda því og jafnvel auka yrði að
gæta mjög vel að slætti og þurrkun,
að slegið væri nákvæmlega á rétt-
um tíma og helst að heyið væri tek-
ið saman eftir dagsþurrkun.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Sigurður Grétar Ottósson, bóndi í Ásólfsskála, að snúa í slægjunni.
Sláttur hefur aldrei
byrjað jafnsnemma
Vestmannaeyjar | Þjóðhátíðarlagið
var valið á sérstöku úrslitakvöldi um
síðustu helgi þar sem bæjarbúar
fengu að velja á milli níu laga. Sig-
urlagið heitir Í Herjólfsdal og er
samið af Helga Tórshamar en text-
ann samdi hann ásamt ömmu sinni,
Jórunni Tórshamar.
„Hvað heldur þú maður,“ sagði
Helgi Tórshamar höfundur þjóðhá-
tíðarlagsins Í Herjólfsdal, aðspurður
hvort úrslitin hefðu komið honum á
óvart. Lagið er 10 ára gamalt og hef-
ur Helgi þegar sent það fjórum sinn-
um inn í keppnina. „Ég var eiginlega
búinn að missa alla trú á laginu og í
raun stóð ekki til að senda það inn í
keppnina í ár en það var þrýst á mig
og ég sló til.“
Einnig var djasshátíð undir heit-
inu Dagar lita og tóna og er sú hátíð
orðin einn af föstu punktunum um
hverja hvítasunnu í Eyjum. Þar var
fjölmennt lið frábærra tónlistar-
manna saman komið í húsi Akóges-
manna í Eyjum. Söngkonurnar Guð-
laug Dröfn Ólafsdóttir og Eivör
Pálsdóttir voru að öðrum ólöstuðum
stjörnur helgarinnar.
Búið að
velja þjóðhá-
tíðarlagið
Morgunblaðið/Sigurgeir
Helgi Tórshamar var hrærður þeg-
ar tilkynnt var að hann væri sigur-
vegari kvöldsins.
2.390 kr.
6 aspir
499 kr.
10 stjúpur
hreinir litir
499 kr.
Birkikvistur
399 kr.
Gljámispill
499 kr.
Hansarós
799 kr.
Sýpris
799 kr.
3 petúníur
Ath!
gró›urátak
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
49
41
06
/2
00
4
249 kr.
Úrvals
gróðurmold
í útikerin - 10 l
499 kr.
Molta 30 l