Morgunblaðið - 05.06.2004, Side 32

Morgunblaðið - 05.06.2004, Side 32
32 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. U m þessar mundir eru tíu ár liðin síðan R-listinn náði völd- um í borgarstjórn Reykjavíkur. Við slík tímamót er við hæfi að líta yfir svið- ið og meta árangur þessa kosninga- bandalags í einstökum málaflokk- um. Í þessari grein verður fjallað um skipulags- og lóðamál og frammistaða R-listans borin saman við árangur Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma. Lóðaframboð Það hlýtur að vera markmið hverrar góðrar sveitarstjórnar að framboð lóða sé í samræmi við eft- irspurn. Á valdatíma sjálfstæð- ismanna 1982–94 hélst þetta tvennt yfirleitt sæmilega í hendur og átti vafalaust sinn þátt í því að sporna gegn hækkun á húsnæðisverði. Lóðir lúta nefnilega ekki ósvipuðu lögmáli og sykur eða síld; skortur leiðir í flestum tilvikum til verð- hækkunar en stöðugt framboð stuðlar að stöðugu verði. Eftir að R-listinn tók við stjórn borgarinnar dró fljótlega úr fram- boði lóða í borginni og lóðaskortur gerði vart við sig. Mestallan valda- tíma R-listans hefur slíkur skortur verið viðvarandi. Á fyrstu níu heilu árunum í meirihlutatíð R-listans, þ.e. frá 1995–2003, voru 4.929 íbúðir full- gerðar í Reykjavík. Til sam- anburðar má geta þess að á fyrstu níu heilu árunum í meirihlutatíð sjálfstæðismanna, 1983–91, voru 6.766 íbúðir fullgerðar eða 37% fleiri. Uppboðsstefna Undir stjórn sjálfstæðismanna var áhersla lögð á að halda lóða- Léleg frammista R-listans í lóðam Eftir Kjartan Magnússon Morgunblað Byggingarvinna. Mestallan valdatíma R-listans hefur lóðaskortu viðvarandi í Reykjavík og haft mikil áhrif til hækkunar húsaverð greinarhöfundur, sem aftur hefur leitt til hækkunar leiguverðs. E ftir að forseti Íslands tók ákvörðun um að synja fjölmiðlalög- unum staðfestingar eru líkur til að á þessu ári verði ekki aðeins kosið til embættis forseta Íslands heldur muni Davíð Oddsson rjúfa þing og kosið verði til Alþingis síðar á árinu. Þótt samstarf stjórnarflokk- anna hafi á yfirborðinu verið slétt og fellt og formenn þeirra lofað hvor annan hástöfum blasir við að vaxandi ókyrrðar gætir innan Framsóknarflokksins og tök Hall- dórs Ásgrímssonar eru ekki hin sömu og verið hefur. Þetta birtist í umræðu og afstöðu til fjölmiðla- frumvarpsins en jafnframt er ljóst að utanríkisráðherrann á í vök að verjast vegna stefnu sinnar og fylgispektar við Bandaríkin og Breta í Írakstríðinu. Við þetta bæt- ast loforðin um skattalækkanir, þar sem Framsóknarflokkurinn keppti við Sjálfstæðisflokk og Samfylk- ingu í yfirboðum í aðdraganda kosninga 2003. Athygli vekur að Halldór bar sig ekki saman við Davíð áður en hann tjáði sig um ákvörðun forsetans og það eitt og sér mun ekki bæta andrúmsloftið í flokkum þeirra hvors í annars garð. Fjölmiðlalögin og þjóðaratkvæði Fyrr í sögu lýðveldis okkar hafa verið ærin tilefni til þjóðaratkvæða- greiðslu á grundvelli 26. greinar stjórnarskrárinnar. EES-löggjöfin er ljósasta dæmið frá síðustu ára- tugum. Slík ákvörðun forseta 1993 hefði vart orðið jafnumdeild og nú sýnist stefna í um það skref sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur stigið. Þar var á ferðinni augljós skerðing á fullveldi þjóðarinnar eins og menn hafa þráfaldlega orðið varir við síðan. Fjölmiðlalögin eru af allt öðrum toga og umræðan um þau hefur snúist meira um form en Stefnir í þingrof og k Eftir Hjörleif Guttormsson ’Afleiðingar afákvörðun forset geta því orðið að og miklu víðtæka en í henni felst a formi til.‘ Alþingiskosningar. Greinarhöfundur telur líkur á því að kosið ve RÉTT ÁKVÖRÐUN RÁÐHERRA Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-herra hefur ákveðið að veitalæknum tæknifrjóvgunar- deildar Landspítala – háskóla- sjúkrahúss (LSH) heimild til einka- rekstrar tæknifrjóvgunarþjónustu utan spítalans. Skilyrði fylgja sam- komulaginu, m.a. um kennslu læknanna á háskólasjúkrahúsinu, eftirmeðferð á spítalanum ef þörf er á, notkun lyfja og fleira. Gerður verður þjónustusamningur við læknana og endanlegt leyfi gefið út þegar gerð hans er lokið. Að óbreyttu hefði starfsemi tæknifrjóvgunardeildarinnar lagzt niður í sumar, þar sem starfsmenn deildarinnar hafa ýmist sagt upp störfum eða verið sagt upp starfi sínu hjá LSH. Í frétt í Morgun- blaðinu í gær segir Jón Kristjáns- son: „Ég vil kappkosta að þessi þjón- usta verði áfram fyrir hendi og læknarnir geti komið sér fyrir á nýj- um stað án þess að slíta á þennan streng. Ég vildi líka eyða þeirri óvissu sem starfsmenn deildarinnar og notendur þjónustunnar hafa verið í. Þar með vonast ég að friður hafi skapast um starfsemina.“ Þetta er rétt ákvörðun hjá Jóni Kristjánssyni. Eins og Morgunblað- ið benti á, þegar það kom til tals í vor að læknar tæknifrjóvgunardeildar- innar hæfu þennan einkarekstur, hefur það ófremdarástand, sem ríkt hefur í málefnum deildarinnar, skapað óvissu hjá starfsfólki og við- skiptavinum. Biðlisti eftir þessari mikilvægu en viðkvæmu þjónustu hefur verið alltof langur; um 200 manns bíða nú eftir meðferð. Lækn- arnir hyggjast fjölga aðgerðunum og eyða biðlistanum, þeir ætla að bæta aðstöðu viðskiptavina og starfsfólks og þeir hafa áform um að veita út- lendingum tæknifrjóvgunarþjón- ustu og auka þannig tekjurnar, en slíkt var ekki hægt á LSH vegna að- stöðuleysis. Í máli ráðherra kemur fram að leyfið feli ekki í sér breytingar á þátttöku sjúklinga í kostnaði við að- gerðirnar. Með þjónustusamningi verði kostnaðinum skipt milli spít- alans og læknanna. Nú reynir auðvitað á hvaða svar fæst við þeirri spurningu, sem Morgunblaðið setti fram í leiðara 17. apríl síðastliðinn: Er mögulegt að með því að færa þjónustuna út af hinum fjársvelta ríkisspítala megi bæta hana, fá inn nýjar tekjur af út- flutningi hennar, fjölga aðgerðum og lækka einingakostnað þannig að bæði ríkissjóður og viðskiptavinirnir njóti góðs af? Verði það reyndin, er óhætt að taka undir orð Guðmundar Arasonar læknis í Morgunblaðinu í gær, að mikilvæg skref hafi verið stigin í átt til nýrra tíma í heilbrigð- isþjónustu hér á landi. EVRÓPUFERÐ VONANDI VÍSIR AÐ BÆTTUM SAMSKIPTUM Þeir brestir sem urðu í Atlants-hafssamstarfinu vegna einhliða ákvörðunar Bandaríkjastjórnar um að ráðast inn í Írak fyrir rúmu ári, í andstöðu við margar helstu banda- lagsþjóðirnar í Evrópu, eru fyrir ýmsar sakir áhyggjuefni. En binda má vonir við að þriggja daga Evr- ópuferð Bandaríkjaforseta, sem nú stendur yfir, megi verða til þess að treysta á ný samskipti þjóðanna austan og vestan Atlantshafsins. George W. Bush lagði leið sína til Evrópu til að minnast þess að sextíu ár eru nú liðin frá straumhvörfum í síðari heimsstyrjöldinni. Í gær var þess minnst á Ítalíu að hersveitir bandamanna frelsuðu Róm 4. júní 1944. Bandaríkjaforseti átti við það tækifæri fund með Jóhannesi Páli páfa í Vatíkaninu, en páfinn hefur gagnrýnt stríðsreksturinn í Írak harðlega. Lagði hann áherslu á það á fundi sínum með Bush að Banda- ríkjastjórn leggði allt kapp á að tryggja stöðugleika í Mið-Austur- löndum, bæði í Írak og fyrir botni Miðjarðarhafs. Í dag ræðir Bush við Jacques Chirac Frakklandsforseta í París, en samskipti Bandaríkjanna og Frakk- lands stirðnuðu sem kunnugt er til muna vegna Íraksstríðsins. Leiðtog- arnir munu síðan á morgun, ásamt breskum, þýskum og rússneskum ráðamönnum, koma saman í her- mannagrafreit á strönd Normandy í Norður-Frakklandi, til að minnast innrásar bandamanna 6. júní 1944. Raunar eru fundir ráðamanna í Bandaríkjunum og Evrópu tíðir í þessum mánuði, því nokkrir þeirra koma saman á fundi átta helstu iðn- ríkja heims í Georgíu í Bandaríkj- unum í næstu viku. Samráðsfundur Bandaríkjastjórnar og Evrópusam- bandsins fer fram á Írlandi 25.–26. júní, og leiðtogafundur NATO hefst í Istanbúl tveimur dögum síðar. Þess er vænst að Bush muni á fundum sínum með evrópskum leið- togum ræða stöðuna í Írak og reyna að tryggja sér stuðning þeirra vegna ályktunar sem liggur fyrir öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna og heimila myndi veru fjölþjóðlegs herliðs í landinu og viðurkenna írösku bráða- birgðastjórnina sem tekur við völd- um í upphafi næsta mánaðar. Í aðdraganda Íraksstríðsins kom Bandaríkjastjórn fram eins og hún þyrfti ekki á bandamönnum að halda. En eftir margháttuð vand- ræði í Írak og víðar á undanförnum mánuðum er bandarískum stjórn- völdum nú vonandi að verða ljóst að það kunni ekki góðri lukku að stýra að hunsa algerlega álit og óskir al- þjóðasamfélagsins og helstu banda- lagsþjóða sinna. Að þrátt fyrir mikla hernaðarlega yfirburði sé nauðsyn- legt fyrir Bandaríkin að rækta sam- bandið við bandalagsþjóðir sínar í Evrópu. Fyrrgreindir atburðir, sem nú er minnst í álfunni, ættu að vera góð áminning um mikilvægi Atlantshafs- samstarfsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.