Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 55
99 krónur skilaboðin.
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
handknattleik lagði í gær upp í
erfitt ferðalag til Tékklands þar
sem liðið mætir heimastúlkum í
síðari leik liðanna um laust sæti á
Evrópumótinu. Tékkar unnu fyrri
leikinn hér heima 27:26 þannig
að það verður þungur róðurinn í
Brno í Tékklandi í fyrramálið.
„Við ætlum aðeins að breyta til
varðandi hraða miðju og eins
verður áherslubreyting hjá okkur
varðandi seinni bylgjuna í hraða-
upphlaupunum,“ sagði Stefán
Arnarson, landsliðsþjálfari
kvenna, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Annars er svo stutt á milli
leikjanna að maður má ekki
breyta of miklu,“ bætti þjálfarinn
við.
Liðið hélt af landi brott upp úr
hádegi í gær, flaug til Lundúna
þar sem það gisti í nótt. Vakið
var snemma í morgun því allir
þurftu að vakna klukkan fjögur í
nótt til að fljúga til Vínar og það-
an áfram til Tékklands. Komið
verður á leikstað um miðjan dag í
dag og leikurinn verður síðan
klukkan 10.30 að staðartíma í
fyrramálið eða 8.30 að íslenskum
tíma. Eftir leik er haldið beint út
á flugvöll og áleiðins heim og er
áætlað að liðið komi til landsins
annað kvöld. Sannarlega snagg-
aralegt og strembið ferðalag hjá
íslenska kvennalandsliðinu í
handknattleik. „Við náum einni
æfingu í höllinni og mér skilst að
þetta sé mikil gryfja. Við erum
vanar að leika á útivöllum vegna
þess að erlend lið hafa ekki viljað
koma hingað, en eftir að okkur
fór að ganga betur hefur þetta
lagast. Stelpurnar eru því vanar
að leika á útivöllum og eftir á að
hyggja held ég það skipti ekki
öllu hvort við förum í þennan leik
með eitt mark í plús eða mínus.
Það getur oft verið betra að
þurfa að sækja frekar en falla í
þá gryfju að ætla sér að verja
eitthvað. Við gerum okkur fulla
grein fyrir því að þetta verður
erfitt, en það er allt mögulegt,“
sagði Stefán.
„ÞAÐ er spennandi að fá þetta
tækifæri að taka að sér þjálfun
Skjern þar sem það er eitt
sterkasta og besta rekna félag
Danmerkur,“ segir Aron Krist-
jánsson handknattleiksmaður
en hann var í gær ráðinn þjálf-
ari danska úrvalsdeildarliðsins
Skjern á Jótlandi. Aron lék
með Tvis/Holstebro á síðustu
leiktíð en í byrjun árs gerði
hann samning um að verða að-
stoðarþjálfari Skjern. Á dög-
unum ákvað Anders Dahl-
Nielsen þjálfari að rifa seglin
og var þá leitað til Arons um að
hann tæki að sér þjálfunina.
„Eftir nokkurra daga umhugs-
un ákvað ég að taka verkefnið
að mér. Ég þekki vel til í
Skjern, var þar leikmaður um
þriggja ára skeið fyrir nokkr-
um árum, einmitt undir stjórn
Anders. Hann verður áfram
viðloðandi liðið sem fram-
kvæmdastjóri og mér því innan
handar, en ég ber alla ábyrgð á
þjálfun þess,“ sagði Aron sem
skrifaði undir þriggja ára
samning við liðið. Aron ætlar
ekki að leika með liðinu.
Aron þjálfar
Skjern
Þó að við höfum sex marka for-skot megum við ekki vanmeta
Ítali. Við þekkjum það í gegnum ár-
in að sex marka forskot í handbolta
er ekki mikið og við megum ekki
gefa neitt eftir gegn Ítölum. Í fyrri
leiknum náðum við tíu marka for-
skoti en það var fljótt að fara og
þeir náðu að minnka muninn í fjög-
ur mörk. Á þessu sést að Ítalir geta
vel unnið upp sex marka forskot.
Við höfum verið óheppnir með
meiðsli í vikunni en við verðum að
þjappa okkur saman og koma ein-
beittir til leiks á sunnudaginn,“
sagði Guðmundur í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Hver er helsti styrkleiki ítalska
landsliðsins?
„Þeir hafa mjög góðan miðju-
mann sem var ekki með í fyrri
leiknum. Við verðum að hafa góðar
gætur á honum en hann er höfuðið í
sóknarleik liðsins. Ítalska liðið hef-
ur einnig á að skipa mjög öflugum
leikmanni sem leikur stöðu vinstri
skyttu. Hann lék vel í fyrri leiknum
og skoraði nokkur góð mörk. Einn-
ig hafa þeir nokkra aðra ágætis
leikmenn sem við verðum að hafa
gætur á.
Aðalatriðið hjá okkur á sunnu-
daginn verður að byrja leikinn vel
og við verðum að vera þolinmóðir í
sókninni. Við megum ekki flýta
okkur of mikið því við vitum að það
er ekki hægt að skora tvö mörk í
einu. Ítalir eru með hávaxið lið og
við verðum að vera sterkir fyrir í
vörninni gegn þeim.“
Ég legg áherslu á það að við er-um ekki öruggir með sæti á
HM og við þurfum að mæta mjög
einbeittir til leiks gegn Ítölum. Við
munum þurfa að sýna frumkvæði í
leik okkar, bæði í vörn og sókn. Að-
almarkmiðið hjá okkur verður að
vinna leikinn en ekki treysta á for-
skotið sem við höfum,“ sagði lands-
liðsþjálfarinn.
Margir telja að það sé forms-
atriði að sigra Ítali.
„Það er alls ekki formsatriði að
sigra Ítali og það er nú einu sinni
þannig í handboltanum að það er
ekkert gefið. Ég hef verið að segja
það við íslensku leikmennina alla
vikuna að Ítalir eru sýnd veiði en
ekki gefin. Við munum alveg klár-
lega þurfa að hafa fyrir því að
vinna þá á sunnudaginn í Kapla-
krikanum.
Ítalir eru með sterkara lið en í
fyrri leiknum því að þeirra öflugasti
miðjumaður er orðinn leikfær en
hann gat ekki tekið þátt í fyrri
leiknum vegna meiðsla. Á sama
tíma eru við með veikari leik-
mannahóp en á Ítalíu. Ítalir sýndu
það um síðustu helgi að þeir hafa á
ágætu liði að skipa. Það var mikið
jafnræði með liðunum fyrstu fimm-
tán mínúturnar í fyrri leiknum en
þá kom ótrúlegur kafli hjá okkur.
Við skoruðum þá 15 mörk gegn
fimm og það er mjög óvenjulegt og
það verður seint endurtekið. Síðari
hálfleikinn unnu þeir með fimm
mörkum og mér finnst það segja
dáldið mikið um Ítali.“
Mikil meiðsli hafa verið að hrjá
íslensku leikmennina.
„Þetta er búið að vera mjög erfið
vika fyrir okkur en svona gerist
stundum og við þessu er ekkert að
gera. Patrekur Jóhannesson meidd-
ist í upphafi vikunnar og hann
verður ekki með í nokkrar vikur.
Það kom svo í ljós í gær að Jaliesky
Garcia er rifbeinsbrotinn. Snorri
Steinn Guðjónsson missteig sig á
æfingu í gær og er tæpur á ökkla
en hann á að geta leikið á sunnu-
daginn. Sigfús Sigurðsson hefur átt
við meiðsli að stríða og Birkir Ívar
Guðmundsson getur ekki leikið á
sunnudaginn vegna meiðsla. Á
þessari upptalningu sést að við höf-
um verið mjög óheppnir með
meiðsli en við verðum bara að taka
þessu. Nýir leikmenn munu þurfa
að axla meiri ábyrgð.“
Er hætta á að íslenska liðið van-
meti Ítali?
„Ég hef ekki trú á því enda væri
það mjög undarlegt þar sem lyk-
illeikmenn okkar hafa verið að
meiðast. Við höfum ekki efni á að
vanmeta Ítali. Þeir eru mjög há-
vaxnir og hafa á að skipa mjög góð-
um skyttum sem við verðum að
stoppa. Það er ljóst að við munum
þurfa að spila öflugan varnarleik til
þess að hafa betur gegn Ítölum,“
sagði Guðmundur.
Við gerum okkur grein fyrir því að
þetta verður erfitt en allt er mögulegt
Sex mörk eru
fljót að fara
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik,
segir að það megi ekki vanmeta Ítali sem hafi ágætu liði á að skipa.
Guðmundur er leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins en hann
lék vel í fyrri leiknum gegn Ítölum á Ítalíu og varði þá 18 skot. Hann
þekkir vel til ítalska landsliðsins en sex landsliðsmenn þeirra léku
með Guðmundi þegar hann var á mála hjá Conversano á Ítalíu á ár-
unum 2001–2003.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Rúnar Sigtryggsson skýtur að marki en Guðmundur Hrafnkels-
son reynir að verja á skotæfingu íslenska landsliðsins í gær.
Ítalir sýnd veiði
en ekki gefin
„ÞETTA verður ekki auðveldur leikur gegn Ítölum og við munum
þurfa að spila vel til þess að sigra þá,“ sagði Guðmundur Þórður
Guðmundsson, þjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Ísland mætir Ítölum á morgun í Kapla-
krika í síðari leik liðanna í undankeppni HM en Ísland sigraði í fyrri
leik liðanna á Ítalíu með sex marka mun, 37:31. Sú þjóð sem hefur
betur samanlagt í tveimur viðureignum mun verða á meðal 24 þátt-
tökuþjóða sem spila til úrslita á HM í Túnis í janúar á næsta ári.